Tíminn - 26.06.1983, Blaðsíða 22

Tíminn - 26.06.1983, Blaðsíða 22
22 SUNNUDAGUR 26. JÚNÍ1983 nútíminn Umsjón: FriArtk Indriðason og Bragi ÓlafMon Baraflokkurinn kominn heim ■ Fclagarnir í Baraflokknum cru nú koninir hciiri frá I.ondon fiarsem þcir hafa nýlokiö við upptökur á nýrri Ip-plötu sinni. Segja kunnugir aö þcir hafi aklrei vcriö í hctra formi en nú cn platan cr væntanleg á markaö í sumar. Upphaflega áttu þcir aö taka hana upp í Jacobs stúdíóinu í Surrey en þaö hreyttist víst á síöustu stundu og var hún tckin upp í Bray stúdíóinu í útjaöri London. - FRI t Iss-videó ■ A tónlcikum Classix Nouvcaux í Möllinni var gcrö vídeómynd af hljómsveitinni Iss og cr ætlunin aö gcfa hana út ásamt tónlist þcirra þctta kvöld. liægt cr aö fá þcssa vídcóspólu með þvt' aö panta hana hjá Gramminu á Hverfisgötu. Afangar hætta ■ Útvarpsþátturinn Áíangar mun vcröa lagður niöur á næstunni, cftir því scnt Nútfminn kcmst na-st cru aöcins 3 þættir eftir. hcssi þáttur hcfur vcrið í gangi nú í ein 10 ár og gegnum hann hcfur hlustcndum gcf- ist kostur a aö fylgjast ntcö þcirri tóniist scm ckki hcrst um sætin á topp 10-20-30-40 o.sv.fr. cn cr hins- vcgar oftar cn ckki sá hrunnur scm dæg'urlagatónlistin hcfur sótt hug- myndir sínar í. Óhætt cr að scgja aö þarna vcröur skarö fyrir skildi cn hugmyndir cru uppí um annan þátt i þessum dúr mcö haustinu. - FRI KLASSIX ■ Það var frekar þunnskipaður salur- inn í I.augardalshöll á tónleikum Classix Nouveaux í fyrri viku, en þeir sem hcima sátu geta nagað á sér handarbökin fyrir að mæta ekki því hljómsveit þessi var frábxr, hrcint út sagt, tvímælalaust einir bestu tónleikar sem hér hafa veriö haldnir í langan tíma. átti hvað bestan dag þeirra félaga, gítarhljómur hans „lak“ um alla Höllina og er hann tók eitt magnaö „Hendrix- sóló" lá við að áhorfendur trylltust af fögnuöi cnda lck hann þetta af mikilli tilfinningu og fimi. Prógramm þeirra félaga í Classix var mikið til byggt upp af þekktum lögum þeirra frá fyrri tíð, en einnig tóku þeir nokkur lög af óútkominni plötu sinni, sem Cnn hefur ekki hlotið nafn að mér skilst, en þau lofa mjög góðu og víst að meö plötunni koma þeir til með að halda fyrri vinsældum sínum hérlendis. — FRI Það voru hljómsveitirnar Iss og Q4u sem komu fram á undan Classix og skörtuðu báðar nokkrum nýjum lögum. Hinsvegar komst cfni þeirra ekki nándar nærri cins vcl til skila og hjá aðalnúmer- inu þar scm hljómburðurinn var eins og svart og hvítt hjá þcim íslensku og þeim crlcndu, ef finna á hcntuga samlíkingu voru þær íslensku eins og tvær gaggandi hænur á móti „nautsöskri" Classix. Bæði Iss og Q4U eru í grcinilcgri framför ef mið cr tekið af þcssum tónlcikum, Isskomnirmcðnokkur „létt- ari“ lög í prógrammiö og Q4U búnir að hvíla trommuheilann í bili, Kommi barði húðirnar á ný af miklu öryggi. Frábær hljómburöur Það cr óhætt aö segja að Classix hafi komiö, séö og sigrað á þcssum tónleikum meö pottþctt prógramm scm kom miklu stuði í áhorfcndur. Hljómburöurinn frábær, fyllti vcl út í Hcillina án þcss aö skcra í eyrun. Sal Solo söngvari hljómsveitarinnar cr alt í öllu hjá þeim, hcfur skcmmtilega sviðsframkomu og gcrir mikiö í því aö fá áhorfcndur til að klappa og stappa í takt viö lögin scm cru hress nýrómantík að mcgninu til. Af öörum hljómsveitarmeðlimum ó- löstuðum vil ég sérstaklega geta hins finnska gítarleikara, Jimi Sumen sem IKARUS ■ Eins og grcint var frá hér í Nútíman- um hafa þeir Þorlákur Kristinsson (Tolli) og Megas sungið saman inn á Ip-plötu og var hún væntanlega á markað í þessum mánuði. Hljómsveit þeirra hefur hlotið nafniö IKARUS en hinsvegar mun út- koma plötunnar frestast fram í næsta — platan kemnr 10. jnlí mánuö og hcfur útgáfudagurinn verið ákveðinn 10. júlí. Grammið gefur plöt- una út. Hljómsveitina skipa þeir Kormákur á trommur, Megas, Bergþór á gítar, Tolli og fimmta manninn ættu lesendur vorir að kannast við Bragi á bassa. - FRI Tappað af ■ Skemmtistaðurinn Safari hefur skipt um eigcndur og er, að manni skilst, ætlunin að hafa þar lifandi tónlist flest þau kvöld sem staðurinn hefur opið i framtíðinni. Hið fyrsta slíka var á miðvikudagskvöldið cr Tappi tíkarrass tróð þar upp, nýkom- inn frá Engiandi þar sem þau tóku upp efni á nýja Ip-plötu i Southern Studio’s. Ekki er hægt að segja að marg- menni haft verið á staðnum þetta kvöld, svona ca 30 hræður létu sjá sig og spurningín er hvort svona mikil þreyta sé komin í tónleikahald hér- lendis eða þá að miðvikudagskvöld séu vonlaus tími fyrir þetta. Þeir sem mættu hinsvegar fcngu út úr því alveg þrumugóða tónleika og hefur undirritaður sjaldan séð Tappann í jafngoðu formi og nú en þetta cru síðustu tónleikar þeirra um nokkurt skeið þar sern Björg ntun vcra farin erlendis í nokkrar vikur. Tappi tíkarrass hóf tónleikana á-að spila þrjú ný lög, scm væntanlega verða á nýju piötunni þeirra en síðan kom gamalt og nýtt í bland út allt prógrammið, lög eins og Heiðar, London.o.fl. sem aðdáendum þeirra cru að góðu kunn. Það hefur löngum vcrið sköðun undirritaðs að varla fyrirfinnist hér- lcndis hljómsveit sem er skemmti- legri og líflegri á sviði cn Tappinn og ckkert hcfur sú skoðun breytst við þessa tónleika. Sem fyrr er tónlistin gott og hratt nýbylgjurokk af bestu gerð cn rúsínan í pylsuendanum á þessum tónleikum var síðasta lag þeirra þetta kvöld, þá brá Björg sér af sviðipu en Jakob tók við söngnum í mjög keyrsiumiklu pönklagi og voru þeir félagar á þeytingi um allt sviðið og utan þess meðan tónlistin barði á eyrum áhorfenda, maður átti allt eins von á þvf að hljóðfærunum yrði dúndrað í gólfið í hamagangn- um, svo mikil voru lætin. - FRI Tónleikar Echo and the Bunnymen 1 Laugardalshöll: EINN MERKASTl POPPTðN- LISTARVIÐBURÐUR ÁRSINS ■ Tónleikar bresku hljómsveitarinnar Echo and the Bunnyinen í Höllinni þann 2. júlí u.k. eru einn merkasti popptón- listarviðburður þessa árs en með þeiin konia fram tvær af þekktustu rokksveit- uni okkar, Egó og Grýlurnar auk þess sem Deild 1 niun einnig troða upp. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Echo... kemur hingað því í nóvembcr s.l. komu þeir upp á „klakann" til að skoða sig um og til að taka myndir utan á umslag nýjustu plótu sinnar Porcupinc. Sú plata var gefin út af Steinar hf. hérlendis og seldist vcl cn áður hafði svcitin vcrið tiltölulega lítti þekkt hérlcndis. Echo... hcfur hinsvegar notið mikilla vinsælda í hcimalandi sínu Englandi og á vaxandi vinsældum aö fagna í Banda- ríkjunum en þaðan eru þeir að koma hingað. Héðan munu þeir svo halda beint til Kaupmannahafnar þar sem þcir verða aðalnúmerið á Roskilde-Festi- val, sunnudaginn 3. júlí Tronunuheili í byrjun Echo and the Bunnymen er stofnuð fyrir um fjórum og hálfu ári síðan. Upphaflcga voru í sveitinni þcir Ian McCuloch, Les Pattinson, Will Sergcánt ög trommuheilinn Echo. Fyrstu tónleik- ar Echo... voru svo haldnir í Eric's klúbbnum í Liverpool skömmu eftir að sveitin var stofnuð en það var ekki fyrr en 1979 að fyrsta smáskífan kom út hjá Zoo Rekords, voru það lögin Pictures On My Wall og Read It In Books. Tæpu ári eftir að sveitin var stofnuð ■ Echo and the Bunnymen á Islandi. var svo trommuheilinn lagður niður en í hans stað fenginn Trinidadbúinn Pete dc Freitas á trommur. Skömmu eftir að það gerðist gekk svo sveitin í samning við Korova Rekords og hálfu ári síðar kom út fyrsta smáskífa þeirra á því merki Krókudílar Fyrsta stóra platan með Echo... Crocodiles kom út í júlímánuði 1980 og hlaut hún rnikið iof breskra gagnrýn- enda. Komst hún á Topp 20 listann yfir breiðskífur og í kjölfarið fór Echo... í tónleikaför um Bretland, eftir aðra smá- skífu fylgdi svo önnur tónleikaför um Bretland og þá höfðu þeir fullkomnað ímynd sína á sviði, allir klæddir í hermannabúninga og sviðið skreytt í stíl við Víctnam stríðið. Aðdáendur áttu það til að nræta með hjálma á höfði á tónleika þeirra eftir það. Önnur breiðskífan „Heaven Up There kom út í júní 1981 og fór hún beina leið á Topp-10 listann. í kjölfar hennar efndu þeir félagar svo til tónleikaferðar um Norðurlönd og meginland Evrópu en síðar á árinu ferðuðust þeir til Bandaríkjanna, Nýja Sjálands og Ástralíu auk annarra staða. Á síðasta ári var sveitin einnig á linnulausum ferðalögum, m.a. um Ev- rópu þar sem þeir komu fram á ýmsum popphátíðum, þannig léku þeir fyrir um 20 þús. manns í Sefton Park í Liverpool skömmu áður en þeir komu hingað til lands. Eftir að þeir hafa leikið hér og í Hróarskeldu munu þeir halda í tónleika- för um Bretlandseyjar og er þegar nær uppselt eða uppsejt á alla tónleika þeirra í þeirri för. Miðar á tónleikana í Laugardalshöll verða til sölu í öllum hljómplötuverslun- um höfuðborgarinnar og er verð miða kr. 390. Tónleikarnir hefjast kl. 20.00. - FRI

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.