Tíminn - 29.09.1983, Blaðsíða 1

Tíminn - 29.09.1983, Blaðsíða 1
Breytingar í kjölfar vetrardagskrár útvarps — Sjá bls. 2 FJÖLBREYTTARA OG REIRA RLAÐ! Fimmtudagur 29. september 1983 225. tölublað - 67. árgangur Sidumúla 15 — Postholf 370 Reykjavik - Ritstjorn 86300 - Auglysingar 18300- Afgreiðsla og askrift 86300 - Kvöidsimar 86387 og 86306 Kennarasamband Islands: HOFÐflR DOMSMAL A HEND- UR MENNTAMAlARflDHERRA — vegna deilu sem Ingvar ■ „Við munum gera kröfu sem bvggist á því að búið haii verið að setja Ormar í stöðuna þegar Ragnhildur tók við“, sagði Gest- ur Jónsson hæstaréttarlögmaður er Tíminn spurði hann um mál Ormars Snæbjörnssonar kennara, en Ragnhildur Helga- dóttir menntamálaráðherra tók í haust þá ákvörðun að cndur- ráða hann ekki að Þelamerkur- ÖBREYTT RÖD A HM í BRIDGE ■ Röð efstu liða á Heims- meistaramótinu i bridge er enn óbreytt þegar undankeppnin er hálfnuð. B-sveit Ameríku er með 151 stig, Pakistan með 130 stig og Svíþjóð 105,5 stig. Í sjöttu umfcrð unnu Pakist- anir Jamaicamenn 24-6, Bandaríkjamenn unnu Svía 19-11, ítalir unnu Brasilíu- menn 21-9 og Nýsjálendingar unnu Indónesa 22-8. í sjöundu umferð unnu Pakistanir ítali 18-12, Svíar unnu Indónesa 18-12, Nýsjá- lendingar unnu Ameríkana 17- 13 og Jamaica vann Brasilíu 18-12. Nýja Sjáland er nú -komið í 4. sæti á mótinu með 104 stig, Ítalía er í 5. sæti með 97, Brasilía í 6. sæti með 88 stig, Jamaica í 7. sæti með 78 stig og Indónesía í 8. sæti með 76 stig. Seinni umferð undankeppn- innar hefst í dag en telja má víst að Ameríka hafi tryggt sér sæti í undanúrslitum. Þá spila sveitirnar tvær frá Ameríku saman en hinn lcikurinn verður, ef svo fer sem horfir, milli Frakka og Pakistana. -GSH um endurrádningu kennara við Þelamerkurskóla, hafði veitt vilyrði fyrir, en Ragnhildur hafnaði skóla, og hefur stjórn Kennara- sambands ísiands samþykkt að höfða mál á hendur ráðherra vegna þeirrar ákvörðunar. Ormar Snæbjörnsson hefur verið settur kennari við Þela- merkurskóla undanfarin ár. Á sínum tíma keypti hann tvær léttvínsflöskur fyrir fyrrverandi nemendur skólans og hlaut fyrir vikið vítur skólanefndar og á- minningu frá þáverandi mennta- málaráðherra, Ingvari Gíslasyni. Kennarar eru settir frá 1. sept- ember til 31. ágúst og er venjan sú að ef þeir hafi ekki fengið bréf um endurráðningu 1. júní, þá beri að líta á það sem uppsögn. Ingvar Gíslason yfirgaf ráðu- neyti sitt 26. maí og samkvæmt heimildum Tímans, hefur Ingvar staðfest, að hann hafi verið bú- inn að gefa ráðuneytisstjóra sín- um heimild til þess að senda út bréf um endurráðningu Ormars. Hvað sem því líður þá fékk Ragnhildur Helgadóttir þessa pappíra aftur inn á borð til sín og tók þá ákvörðun, eins og fyrr segir að endurráða Ormar ekki. Hins vegar herma heimildir Tím- ans að hún hafi boðið Ormari kennarastöðu á Grenivík. en hann hafnað. Eins og fyrr segir snýst málið um það hvort að Ingvar hafi verið búinn að endurráða Ormar. Reynist svo, þá ber hon- um a.m.k. 3ja mánaða uppsagn- arfrestur skv. lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Ekki náðist í Ingvar Gíslason í gær þar sem hann er erlendis. -BK Davíð Oddsson borgarstjóri í ræðustól á félagsfundi Kaupmannasamtakanna á Hótel Sögu í gærkvöldi. Tímamynd Ámi Sæberg. Kaup- menn funda um Kringlu- mýri ■ „Telja Reykvíkingar og landsmenn allir það til góðs að dregið vcrði fyrir glugga í versl- unum við Laugaveginn til að upp byggist verslun í Kringlumýr- inni“? spurði Siguröur E. Har- aldsson formaður Kaupmanna- samtakanna í framsöguræðu á félagsfundi samtakanna sem boðið var til með Davíð Odds- syni borgarstjóra á Hótel Sögu í gærkvöldi. Tilefni fundarins var þær skipulagsbreytingar sem fyrir- hugaðar eru í Kringlumýrinni þar sem á að rísa 30.000 fermetra verslunarhverfi með stórmark- aði og smáverslunum. í ræðu Sigurðar kom fram að kaupmenn hafa áhyggjur af hinni miklu aukningu vcrslunarhúsnæðis í Reykjavík sem fyrirsjáanleg er á næstunni, og þá sérstaklega aukningu stórmarkaða. Þá benti Sigurður einnig á þann kostnað sem þetta vcrslunarhverfi hefur í för með sér fyrir Reykjavíkur- borg vegna róttækra breytinga á gatnakerfinu. í máli Davíð Oddssonar kom fram að á þessu svæði hefði Iengi staðið til að skipuleggja verslun- arogþjónustuhverfi. Hannsagði cnnfremur að stórmarkaður á þessum stað myndi ekki taka viðskipti frá öðrum borgarhverf- um heldur frekar beina við- skiptum úr nágrannabyggðar- lögunum þangað vegna legu Kringlumýrarinnar. Davíð sagðist ekki hafa trú á að verslun á Laugaveginum verði skert í framtíðinni og sagði í því sambandi að uppbygging Skúla- götunnar myndi verða verslun við Laugaveginn til, góðs. - GSH FJÖRUTÍU RADHERRAR Nfn SÉR HEIMILDINA — til niðurfellingar á aöflutningsgjöldum bifreiða til einkanota s.l. þrettán ár ■ Fjörutíu ráðherrar sl. þrettán og hálft ár hafa nýtt sér þá lagaheimild að kaupa bifreið til einkaafnota, með því að fá að- flutningsgjöld niðurfelld. Hafa sumir ráðherranna nýtt sér þessa hcimild oftar en einu sinni, og jafnvel oftar en tvisvar, en þessi heimild er til í lögum frá því 1970. Hafa margir ráðherranna nýtt sér umrædda heimild eftir að ráðherratíð þeirra lauk, en heimildin gildir í ár eftir það. Hafi ráðherrar á hinn bóginn kosið að nýta ekki þessa heimild, þá hefur ríkissjóður keypt fyrir þá bifreið, sem þeir hafa notað sína ráðherratíð, og var í eigu ríkissjóðs og rekin af ríkissjóði. Er Tíminn kannaði hvernig staða þessara mála væri í gær, og leitaði upplýsinga í fjármála- ráðuneytinu, sem býr yfir upp- lýsingum um það hvernig þessum málum hefur verið háttað frá því þessi heimild tók gildi, var blaða- manni neitað um upplýsingar í þessu sambandi, á þeirri for- sendu að um of mikla vinnu fyrir starfsmenn ráðuneytisins yrði að ræða, við að afla þessara upplýs- inga með uppflettingum. Tíman- um tókst, eftir öðrum leiðum að afla upplýsinga um það hvaða ráðherrar hafa notfært sér niðurfellingu aðflutningsgjalda undanfarin 13.5, ár, og auk þess sem upplýst fékkst að fjöldinn allur af starfsmönnum utanríkis- þjónustunnar hefur nýtt sér þessa heimild. -AB Sjá bls. 5..

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.