Tíminn - 29.09.1983, Blaðsíða 8

Tíminn - 29.09.1983, Blaðsíða 8
8. Útgefandi: Framsóknarflokkurinn. Framkvæmdastjóri: Gísli Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrímur Gíslason. Skrifstofustjóri: Ragnar Snorri Magnússon. Afgreiðslustjóri: Sigurður Brynjólfsson. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson, Elías Snæland Jónsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oddur V. Ólafsson. Fréttastjóri: Kristinn Hallgrímsson. Umsjónarmaður Helgar-Tímans: Atli Magnússon. Blaðamenn: Agnes Bragadóttir, Bjarghildur Stefánsdóttir, Friðrik Indriðason, Guðmundur Sv. Hermannsson, Guðmundur j Magnússon, Heiður Helgadóttir, Jón Guðni Kristjánsson, Jón Ólafsson, Kristín Leifsdóttir, Samúel Örn Erlingsson (íþróttir), Skafti Jónsson, Sonja 1 Jónsdóttir, Þorvaldur Bragason. Útlitsteiknun: Gunnar Traustl Guðbjörnssson. Ljósmyndir: Guðjón Einarsson, Guðjón Róbert Ágústsson, Árni Sæberg. Myndasafn: Eygló Stefánsdóttir Prófarkir: Kristín Þorbjarnardóttir, Sigurður Jónsson-. Ritstjórn skrifstofur og auglýsingar: Síðumúla 15, Reykjavik. Sími: 86300. Auglýsingasími 18300. Kvöldsímar: 86387 og 86306. Verð i lausasölu 18.00, en 20.00 um helgar. Áskrift á mánuði kr. 230.00. Setning og umbrot: Tæknideild Tímans. Prentun: Blaðaprent hf. Afvopnun og mannrétt indi eru mál dagsins ■ Við upphaf allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna eru veður öll válynd í veröldinni. Efnahagsþrengingar og skortur ógnar fjölda þjóða, stríð geisa og vígbúnaðarkapphlaupið æsist fremur en hitt þrátt fyrir samningaumleitanir um að draga úr vígbúnaði. Ef ekki tekst að ná samkomulagi um fækkun meðaldrægra kjarnorkueld- flauga í Evrópu á næstu tveim mánuðum verður þeim fjölgað svo um munar. Sú aðgerð Sovétmanna að skjóta niður vopnlausa farþegaflugvél sem villtist inn á þeirra umráðasvæði setur sinn svip á þinghaldið. Utanríkisráðherra þeirra mætir ekki til leiks og þegar Bandaríkjaforseti boðaði eftirgjöf til að liðka fyrir samning- um um takmörkun kjarnorkuvopna var sovéska sendinefndin víðs fjarri og einu svörin sem bárust voru hvatskeytslegar orðsendingar um að forsetinn væri ekki viðræðuhæfur. Þetta lofar ekki góðu um framhaldið en samt má ekki leggja árár í bát. Þjóðir heims verða að láta sér skiljast að samningaleiðin er hin eina færa eins og nú standa sakir. Geir Hallgrímsson utanríkisráðherra rakti þessi mál í ræðu sinni á allsherjarþinginu og ítrekaði að þátttaka íslands í samtökunum er hornsteinn utanríkisstefnunnar. Er utanríkisráðherra hafði rakið ástand heimsmála, sagði hann: „Þótt harma beri að Sameinuðu þjóðunum hefur ekki orðið ágengt eins og vonir stóðu til, megum við ekki gefast upp. Þessi örlagaríku mál er snúast um stríð eða frið hljóta stöðugt að vera til umræðu og úrlausnar á vettvangi Sameinuðu þjóðanna, á allsherjarþinginu og í Öryggisráðinu. Þjóðir heimsins verða að halda áfram að tala saman, en mega ekki láta vopnin ög valdið útkljá málin. Það er einkum mikilvægt fyrir smáþjóðir, eins og okkur íslendinga, að Sameinuðu þjóðirnar starfi markvisst, þótt seint kunni að miða, svo að lög og réttur sé virtur í samskiptum þjóða á milli. Sameinuðu þjóðunum verður að takast að afstýra hættu á stórstyrjöld og breyta til þess starfsháttum við lausn deilumála. Vandamálið er að uppræta þá gagnkvæmu tortryggni, sem ríkir milli þjóða heims. Sum ríki, en sem betur fer fá, virðast vígbúast til að fylgja eftir útþenslu- og yfirráðastefnu, og önnur ríki eru tilneydd vegna þessa að svara með varnarvið- búnaði. Kjarni vandamálsins er sífelld viðleitni til afskipta og yfirráða yfir málefnum annarra ríkja, samfara skerðingu mannréttinda og misskiptingu auðs þjóða á milli.“ Um mannréttindamál sagði utanríkisráðherra m.a.: „Trúokkar á grundvallarmannréttindum, mannhelgi og manngildi er staðfest í mannbréttindayfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna. Þau ákvæði mega ekki halda áfram að vera dauður bókstafur eins og raun ber nú vitni í stórum hluta heims. Brúa verður það hyldýpi sem skilur á milli hátíðlegra skuldbindinga og raunverulegra efnda. Það verður best gert með því að koma á og styrkja stjórnskipulag lýðræðis, þar sem réttur einstaklingsins er virtur og tryggður, þar sem ríkisvaldið er þjónn fólksins en ekki kúgari þess.“ Stefna íslands er sem fyrr að krefjast gagnkvæmrar, alhliða afvopnunar undir alþjóðlegu eftirliti, og lagði utanríkisráðherra áherslu á það. Og sérstaklega varaði hann við þeirri hættu er stafar af því að flytja vopnabúnað í hafið: „Við íslendingar byggjum afkomu okkar fyrst og fremst á auðlindum sjávarins. Við höfum því miklar áhyggjur af vígbúnaði í hafinu. Lítilsháttar óhapp, að ekki sé talað um meiriháttar slys, getur haft alvarlegar afleiðingar fyrir fiskistofna okkar og þar með allan efnahag. Þetta skiptir ekki eingöngu íslendinga máli. Verndun hafsins sem matarkistu fyrir milljónir sveltandi manna er lífsnauðsyn og okkur er öllum skylt að vinna saman að því að koma í veg fyrir hvers konar mengun hafsins. Okkur ber sífellt að hafa þetta í huga og haga gerðum okkar samkvæmt því.“ Einir sér eru íslendingar kannski ekki mikils megnandi að hafa áhrif á gang alþjóðamála en með nánu samstarfi við önnur Norðurlönd á vettvangi SÞ getum við látið rödd okkar heyrast og haldið uppi kröfunni um gagnkvæma afvopnun og að mannréttindi séu virt. Þetta eru mikilvægustu málin í dag. . OO SEPTEMBER 1983 Asetningur búfjár Ólafur R. Dýrmundsson landnýtingarráðunautur skrifar um ásetning búfjár eftir erfitt sumar í Frey: „I ritstjórnargrein síðasta tölublaðs Freys fjallaði Jónas Jónsson búnaðarmálastjóri um harðnandi árferði, erfiða heyskapartíð víða um land og horfur á lélegum heyfeng í mörgum héruðum. Víðast hvar mun grænfóð- urspretta vera léleg, bygg þroskast illa og horfur á kartöfluuppskeru eru afar slæmar. Ffætt er við að dilkar verði sums staðar rýrir á þessu hausti. Sumarsins 1983 mun verða minnst sem ein- staks kulda- og rigningasum- ars á sunnan- og vestanverðu landinu. Þótt heyfengur sé í góðu meðallagi í sumum sveitum er fullvíst að mjög víða þarf að huga vandlega að ásetn- ingi búfjár í haust..Eftir síð- astliðinn vetur og vor mun vera tiltölulega lítið af hey- fyrningum L landinu, og þær eru jafnvel alls engar á því norðanverðu. Nú kemur sér vel að framleidd eru um 10.000 tonn af graskögglum í landinu, en þó er sú fram- leiðsla ekki svo mikil sem skyldi vegna óhagstæðs tíð- arfars. Mikil úrfelli hafaeinn- ig aukið þurrkunarkostnað flestra verksmiðjanna. Þótt auðvelt sé að flytja inn fóður- bæti frá útlöndum er vitað, að verð á fóðurkorni fer hækkandi um þessar mundir. Hin mikla áburðarhækkun í vor er enn í fersku minni og óhætt er að fullyrða, að það fóður, sem bændur hafa aflað eða þurfa að nota fyrir búfé sitt, verður tiltölulega dýrt. Miklu máli skiptir að það verði nýtt á sem hagkvæmast- an hátt. Eðlilegt er að tengja ásetn- inginn stöðunni í framleiðslu og markaðsmálum. Við sam- drátt mjólkurframleiðslunn- ar hefur kúm verið fækkað töluvert síðustu árin. Sumar- kuldar og rigningar hafa víða dregið úr nytinni, og hætt er við að léleg hey segi til sín á mörgu kúabúinu í vetur. Nú þegar hefur komist á jafnvægi í mjólkurframleiðslunni, og því er eðlilegt að mjólkur- kúastofninum verði viðhald- ið sem næst óskertum. Öðru máli gegnir um sauð- féð og hrossin. Þótt sauðfé sé nú orðið nær 17% færra en það var fyrir fimm árum, og samdráttur er í framleiðslu sauðfjárafurða, verður mikið af kindakjöti frá fyrra ári óselt nú í byrjun sláturtíðar. Frekari fækkun fjár er talin óhjákvæmileg, enda raun- hæfasta leiðin til að draga úr framleiðslu dilkakjöts. Ef- laust geta sumir bændur fækkað sauðfé sér að skað- lausu, og jafnvel til hagsbóta, t.d. þar sem þröngt er orðið í högum og afurðir lélegar. Aftur á móti er ljóst að mörg sauðfjárbú með nýlega fjár- festingu í byggingum og vél- um standa höllum fæti. Ýms- ar jaðarbyggðir mega ekki við teljandi samdrætti í sauð- fjárrækt umfram þann sem orðinn er. Okkur er því mikill vandi á höndum, og til of mikils er ætlast að nýbú- greinar leysi hann í bráð. Hross eru greinilega orðin of mörg fyrir þá markaði sem tiltækir eru fyrir hrossaafurð- ir. Eftir því sem best verður séð er unnt að fækka hrossum töluvert, einkum stóði, án þess að efnahagur bænda skaðist. Sums staðar er farið að sjá á beitilöndum vegna óhóflegrar hrossaeignar. Þótt hrossum sé víðast hvar ætlað lítið fóður eru þau býsna fóðurfrek í hörðum vetrum. Þau þurfa meira en moð og rekjur. Hagsmunafélag hrossabænda vinnur ötullega að markaðsleit, og vonandi verður hægt að auka sölu kjöts af afsláttarhrossum og hefja markvissa grisjun hrossa. Miðað við aðstæður eru það búhyggindi að draga stórlega úr ásetningi folalda í haust.“ Stóðið of margt í sama blaði skrifar Andrés Arnalds hjá Landgræðslu ríkisins um stóðhross og segir, að fjöldi hrossa í land- inu hafi aldrei verið meiri en nú. Sé hrossafjöldinn kominn upp fyrir öll skynsamleg mörk bæði hagfræðilega séð og með tilliti til gróðurvernd- unarsjónarmiða. Það er einkum óhófleg stóðhrossaeign sem er And- rési þyrnir í augum og telur hana ekki arðsama og stóðið fer illa með gróðurlendi, sem ekki er alltof mikið af hér á landi. Reiðhestaeign telur hann hins vegar í jafnvægi og vel hirtir reiðhestar valda ekki landníðslu. Hér verður gripið ofan í skrif Andrésar: Hross í landinu eru nú talin vera um 54 þúsund, samkvæmt skýrslum, en eru sennilega enn fleiri. Þau taka að líkindum allt að því jafn- mikið fóður í beitilöndum að vetrarbeit meðtalinni og allt sauðfé landsins sem nú telst vera 750 þúsund í haust og fer sennilega enn fækkandi. Sauðféð skilar um 38% af heildarverðmæti búvöru- framleiðslunnar, en hrossin hins vegar ekki nema 1,5%, skv. hagtölum, eða 25 sinn- um minna. Mikil offram- leiðsla er í báðum greinum, miðað við núverandi mark- aðsaðstæður. Þetta mikla nauðsynjamál, að fækka stóðhrossum, er því hag- fræðilegs eðlis ekki síður en gróðurvemdarmál. í raun- inni má segja að málið snúist um það, hversu stór stóð- hrossastofninn þurfi að vera til að anna eftirspurn eftir lífhrossum og kjöti. Ég vil leyfa mér að fullyrða að veru- leg fækkun stóðhrossa, jafn- vel um þriðjung til helming, myndi ekki verða til þess að skerða tekjur af hrossarækt- inni í heild, jafnvel þvert á móti auka þær. Arðsemi af hrossaræktinni virðist eins og er vera komin niður fyrir öll skynsamleg mörk, og auk þess verða stóðhrossin víða til þess að skerða verulega arð af sauðfjárræktinni. Mun ég nú reyna að rökstyðja þetta nánar. Stóðhrossa- fjöldinn hamlar markvissri kynbóta- starfsemi Hinn mikli fjöldi stóð- hrossa stendur markvissri kynbótastarfsemi í landinu stórkostlega fyrir þrifum. Þetta kom m.a. fram nýlega í ágætu útvarpsviðtali við Þorkel Bjarnason, hrossa- ræktarráðunaut Búnaðarfé- lags íslands. Sumir bændur virðast halda að góður og þekktur stóðhestur geti bætt upp lélega meri og tíma helst ekki að farga neinum grip, jafnvel þótt ljóst sé að um léleg hestefni sé að ræða. Hjarðirnar eru því víða æði blandaðar að gæðum. Nauð- synlegt er að grisja stofnana af hörku og halda aðeins eftir því besta. Eftir slíka fækkun myndu bændur fá hærra verð fyrir lífhrossin sökum þess að betri gripir væru á boðstólum og minna framboðs. Víða á landinu eru hrossin þó enn einkum höfð til kjöt- framleiðslu. Folalda- og trippakjöt selst sæmilega. Mikið offramboð er hins veg- ar á kjöti af fullorðnu og hafa birgðir hlaðist upp. Afföll af þessu kjöti eru veruleg, þvf að það geymist fremur illa í frysti. Magn folalda- og trippakjöts myndi ekki minnka í hlutfalli við fækkun stóðhrossa. Þar sem rúmt er í högum, er algengt að fall- þungi folalda sé í kringum 95-100 kg eða jafnvel enn meiri. Mikið beitarálag sem leiðir af miklum hrossafjölda veldur því, að víðast hvar er fallþungi folalda aðeins á bilinu 60-80 kg og sums staðar enn minni. Dæmi eru til þess að meðalfallþungi folalda á bæ hafi farið niður í 35 kg. Var það raunar eink- um vegna mikils ormasmits, sem náði að magnast upp í haganum vegna þrengsla, en einnig einfaldlega vegna þess að folöldin höfðu ekki nóg í sig til að vaxa eðlilega. Fall- þungi folalda einn sér segir þó ekki alla söguna. Mikið beitarálag verður til þess að draga úr viðkomu í hrossa- stofninum. Þar sem hross eru mörg, beitarálag mikið og illa fóðrað yfir veturinn, reynast merar oft geldar eða þá að þær láta fóstri. Frjó- semi meranna verður því óeðlilega lítil, og lítið gagn er af geldum stóðmerum, eða öllu heldur minna en ekki neitt. Greininni lýkur svo: Mikil offramleiðsla er hér á landi bæði á sauðfé og hrossum. Bændur eru nú að laga sauðfjárstofninn að markaðsaðstæðum og hefur fé fækkað um 150 þúsund á síðustu 5 árum. Hrossum þarf einnig að fækka, ef sú búgrein á að vera arðbær, og hef ég reynt að færa að því rök hér að framan. Færri hross, betri hagar óg betri fóðrun munu veita meiri arð en óræktað stóð í ofsetnum högum og vetrarsvelti. Að lokum ber þó að leggja áherslu á það sem höfuðmáli skiptir ef bændur hyggjast reka hér blómlegan búskap í framtíðinni, en það er að gæta þess að ganga ekki of nærri gróðri Iandsins með ofbeit, hvorki hrossa né sauðfjár, svo að hann megi frekar aukast en eyðast hér eftir. Það er mál sem varðar alla íslendinga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.