Tíminn - 29.09.1983, Blaðsíða 6

Tíminn - 29.09.1983, Blaðsíða 6
6______________ í spegli tímans FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1983 F o rsetadótt i ri n hneykslar ■ Það dugir ekki, þó að Ron- ald Reagan og kona hans Nancy séu þekkt að því að vera pen og prúð. Bömin þeirra era alltaf öðru hverju að koma þeim í einhverja skömm. Núna er það rétt einn umganginn dóttir þeirra Patty, sem hefur tekið upp ungpíunafn móður sinnar og kallar sig Davis. Patty stefnir að því hægt, en örugglega, að verða leikkona, rétt eins og foreldrarnir á sínum tíma. Hún hneykslaði foreldra sína núna fyrr í sumar, þegar til hennar sást í gegn- særri blússu og mátti greinilega sjá, að hún var í engu innan undir. En nú hefur hún gert gott betur. Hún hefur tekið tilboði um að leika á sviði og í því hlutverki hylur hún ekki nekt sína einu sinni með gegn- særri blússu. Þetta er fyrsta hlutverkið, sem Patty fer með á sviði, og verður leiksýningin færð upp í Michigan. Þarleikur Pattv létt- lynda stúlku, sem skiptir um elskhuga eins og hreina sokka. Þegar árin fara að færast yfir hana, sest hún í helgan stein sem eigandi sýningarsafns kynlífsmynda. - Mér er aiveg sama um hvaða álit pabbi og mamma hafa á þessu, segir Patty. - I mínum augum skiptir það mestu að mér var boðið hlut- verkið og ég er hreykin af því. ■ Bandarísku forsetahjónun- um þykir dóttir sín full óspör á að sýna á sér hörundið. ■ Ríkasti skipaeigandi í heimi, Chrístina fær yfir sig kampavínsgusu líkt og snekkja sem hleypt er af stokkunum með viðhöfn og svo er sungið og dansað af Ijöri. HVER VAR KONflN SEM IMNSAH ABORDINU? —spurðu túrist- arnir á Korfu ■ Það var líf og fjör í Gouvia á grísku eyjunni Korfu nú nýlega. Ferðamenn frá Norðurlöndum og Bretlandi voru þar að skemmta sér ásamt fleiri túristum frá mörgum löndum, og það var sungið og dansað og allir skemmtu sér vel. Allt í einu stökk ein stór og myndarleg kona upp á borð og ruddi burtu flöskum og glösum og pantaði fjörugt lag. Síðan benti hún tveimur ungum breskum piltum að koma til sín upp á borðið. Strákarnir létu ekki segja sér það tvisvar en voru tU í tuskið. Hljómsveitin spilaði og söng með kampavín og tóku þátt í inn hátt og snjallt: „Er þetta og þjónar komu hlaupandi gleðinni. Þá spurði einn Bret- ekki hún Christina Onassis?" Flestir í kríng um hann hlógu, og sögðu eitthvað á þá leið, að hún færí nú ekki að skemmta sér með venjulegum túrístum á knæpu, hún sem ætti heilu skemmtisnekkjurnar og eyj- arnar fyrir sjálfa sig og sína gesti. Þá kom þjónn til þeirra og sagði, að Christina kæmi oft til þeirra á Korfu til að skemmta sér. Hún kynni vel við sig þar og þetta værí hennar upp- áhaldsstaður. Annar breski strákurínn heitir Robert Roe, tvítugur gutti frá Cardiff, (sá Ijóshærði á borðinu) en vinur hans tók myndimar. Robert sagði að þetta hefði verið rosalega skemmtilegt-, og konan var kát og hress, sagði hann. „Húu lét sér ekki bregða hið minnsta, þegar ég hellti yfir hana kampavíninu! og svo dönsuð- um við uppi á borði. Ég fylgdi henni heim að hótelinu hennar og kyssti hana fyrír skemmtunina, og ég hugsa bara að ég komi hingað aftur næsta haust, hér er svo skemmtilegt að vera“, sagði ungi maðurinn frá Cardiff. viðtal dagsins ■ Hjá Kaupfélagi Þingeyinga hafa að undanförnu staðið yfir tilraunir með nýja verkun á kjöti. Höfundur að verkunarað- ferðinni er Steindór Haraldsson, búsettur á Akureyri. Við slógum á þráðinn til Steindórs til þess að forvitnast um hina nýju verkun- araðferð. „Þú meinar Lado-lambið“, svarar Steindór. „Það er búin að vera tilraunaframleiðsla á því í 4 mánuði, og hún lofar mjög góðu. Þetta er ný vinnsluaðferð sem beinist bæði að því að auka geymsluþol og bragðbæta kjöt. Þetta er ekki marinering þar sem kjötið marinerast í ákveðinn tíma í sérstökum legi og mjólk- ursýrugerlar meyra það. Þarna skeður þetta á miklu skemmri tíma, þannig að engin gerjun á sér stað. Kjötið cr sett í gegnum ákveðna vinnslu, í ákveðnum vélum, og við það næst fram aukið geymsluþol og gott bragð og kjötið meyrnar í leiðinni.“ Getur þú lýst aðferðinni betur. „Aðferð sú sem notuð er við verkun Lado-lambsins er bylting frá því em áður var. Efnin sem notuð eru gera kjötið meyit og Lado-lamb — ný verkunaraðferð: „BEINIST AD M/í AD AUKA GEYMSLU- ÞOL OG BRAGÐBÆTA“ — segir Steindór Haraldsson höfundur verkunaraðferðarinnar mjúkt. Fitubragð finnst ekki lengur af kjötinu. Geymsluþol eykst að miklum mun. Ég hef valið saman ýmsar kryddtegund- ir. Aðallega frá Austurlöndum fjær. Blanda þessara kryddteg- unda fellur vel að hinu eiginlega bragði kjötsins. Undirstrikar það vel og er um Ieið dálítið kröftug. Nákvæmt hlutfall kryddsins og annarra efna, sem notuð eru við verkunina valda því að kjötið kryddast í gegn og meyrnar á mjög skömmum tíma. Þess má geta að engin kemísk efni eru notuð við framleiðsluna og mat- vælafræðingar eru mjög hrifnir af þessari aðferð þar sem ekkert nítrít er notað, engin reykefni og saltmagnið er lágt.“ Hvert verður framhaldið? „Ég veit að þetta kemur innan skamms á markað um allt land. Ég á þessa uppfinningu og ég á Steindór Haraldsson Tímamynd G.K. Akureyri

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.