Tíminn - 29.09.1983, Síða 2
4 I •
Vetrardagskrá útvarpsins:
smAþjöhustu þAttum ATVINNUVEG-
ANNA ÖLLUM KASTAD FYRIR RÖM
— en í staðinn kemur fréttamagasín Páls Heiðars Jónssonar
■ „Helst nýmæla er að smá þjónustu-
þáttum sem verið hafa árdegis verður
öllum kastað fyrir róða ug í staðinn
kemur fréttamagasín sem Páll Heiðar
Jónsson hefur umsjón með alla virka
daga frá 17.10-18.00.“ sagði Ævar Kjart-
ansson dagskrárstjóri er Tíminn spurði
hann hvað helst væri nýmæla í komandi
vetrardagskrá, sem senn fer að heijast.
„Morgunþáttur verður með svipuðu
sniði og í fyrra, nú undir stjórn Stefáns
Jökulssonar. Kvöldvökunni verður
breytt. Henni verður dreift yfir vikuna
og verður svona hálftíma á dag fjóra
daga vikunnar. Sigmar B. Hauksson
verður með „kúltúrmagasín" eftir há-
degi á laugardögum, þar sem fjallað
verður um listir og menningu. Þá eru
upp taldar stærri breytingar á fyrirkomu-
lagi“, sagði Ævar. „Fyrir utan þetta má
nefna að Edda Björgvinsdóttir og Helga
Thorberg verða með þáttinn. „Á tali“
a.m.k. fram að áramótum".
Stefán Jökulsson, arftaki Stefáns Jóns
í morgunútvarpinu, sagði „að þátturinn
yrði í beinni útsendingu á sama tíma og
í fyrra milli 7.15 og 9.00 og inn í hann
yrði skotið föstum liðum eins og morg-
unleikfimi, fréttum, morgunorðum og
veðurfréttum o.s.frv. Tímanum yrði síð-
an skipt á milli tónlistar og talmáls.
Tónlistin ríflega helmingur og svo stuttir
talmálsliðir á milli. Liðir eins og. „Úr
dagblöðunum“. „Kynning dagskrár", og
ýmiskonar þjónusta við hlustendur,
símatími o.fl. Tónlistin sem við leikum
verður á léttu nótunum, til þess fallin að
vekja fólk og kæta.
Við verðum með „kontakt“ menn út
á landi sem senda okkur reglulega efni.
Þá verður mjög náið samstarf við
RUVAK., skotið inn sendingum þaðan
þegar það á við.“, sagði Stefán, sem
hefur sér til aðstoðar Kristínu Jónsdótt-
ur og Kolbrúnu Halldórsdóttur.
„Menn eru
auðvitað
eitthvað
óhressir”
— segir Agnar Gudnason,
blaðafulltrúi bændasamtakanna
■ „Menn eru auðvitað eitthvað óhressir, vegna þess að
þessi þáttur er búinn að vera svo lengi, en nýjungin getur
reynst miklu betur og ástæðulaust er að mótmæla að
óreyndu máli“, sagði Agnar Guðnason blaðafulltrúi í
tilefni að því að nú leggjast búnaðarþættir niður og
landbúnaðarmál fljóta með í fréttamagasíni Páls Heiðars
eins og annað efni tengt atvinnuvegunum.
„Löngu fyrir stríð voru komnir
þættir", sagði Agnar aðspurður um sögu
búnaðarþáttanna. Svokölluð útvaps-
þáttanefnd, sem var fljótlega kosin af
Búnaðarfélaginu, sá um þá. Síðan er
Gísli Kristjánsson, í kring um 1949-50,
ráðinn af útvarpinu til að sjá um búnað-
arþætti. Skömmu stðar fengum við út-
hlutað þætti sem hét. „Spjallað við
bændur“. Fimm mínútna þættir alltaf á
föstudögum. Þóttu vinsælir og lengi vel
var þetta eina efnið í útvarpinu sem ekki
var borgað fyrir“., sagði Agnar Guðna-
son að lokum. - BK
■ Páll Heiðar Jónsson. ■ Páll Magnússon. ■ Guðrún Birgisdóttir.
„FJÖLBREYITUR ÞAfTUR UM
ATVINNU- OG EFNAHAGSLÍF”
— segir Páll Heiðar um hið nýja fréttamagasín sitt
■ „Þetta á að vcra fjölbreyttur þáttur
um atvinnu- og efnahagslíÞ', sagði Páll
Heiðar Jónsson er hann var spurður um
hið nýja fréttamagasín er hann stýrir í
Ríkisútvarpinu og hefur göngu sína n.k.
ntánudag. „Þátturinn kemur að vissu
leyti í staðinn fyrirfasta þætti um tiltekn-
ar atvinnugreinar. Það er hugmyndin að
stokka þetta upp og Ijalla daglega uin
hluti sem snerta hvem einasta mann. I
fæstum orðum sagt: Við verðum með
atvinnuvegina. Við verðum með efna-
hagsmálin í víðasta samhengi og að
sjálfsögðu stjórnmál", sagði Páll enn-
frcmur.
Með Páli í þættinum verða Guðrún
Birgisdóttir fjölmiðlafræðingur fyrrum
samstarfsmaður Páls Heiðars í Morgun-
vöku og Páll Magnússon fyrrum aðstoð-
arritstjóri Storðar.
Þátturinn verður á dagskrá alla virka
daga. Hefst kl. 17.10 og lýkur kl. 18.00,
og eins og fyrr segir þá verður fyrsta
útsending á mánudag. - BK
„KOMIÐI SÆL” A JÓLAMARKAÐI
■ Bókaforlagið Vaka mun senda frá
sér á jólamarkaðinn hressilega viðtals-
bók við Sigurð Sigurðsson fyrrum
íþróttafréttamann útvarps og sjónvarps,
sem Vilhelm G. Kristinsson hefurskráð.
Bókin mun heita „Komiði sæl“ en sú
kveðja var einskonar vörumerki Sigurð-
ar öll þau ár sem hann starfaði við
fréttamennsku hjá útvarpi og sjónvarpi.
Samkvæmt upplýsingum forlagsins er
frásögn Sigurðar mjög lifandi og opin-
ská varðandi það sem gerðist bakvið
tjöldin í ríkisfjölmiðlunum þá áratugi
sem Sigurður starfaði þar., og segir hann
ekki síst frá ýmsu sem ekki var hægt-áð
segja í hljóðnemann. Þá rifjar hann
einnig upp keppnisferðir íslenskra
íþróttamanna til útlanda.
Þetta er fyrsta bókin sem Vilhelm
Kristinsson ritar en hann starfaði lengi
við fréttamennsku. Hann er nú fram-
kvæmdastjóri Santbands íslenskra
bankamanna.
í bókinni „Komiði sæl“ munu á fjórða
hundrað manns koma við sögu og verða
birtar fjölmargar myndir sem ekki hafa
áður komið fyrir alntennings sjónir.
■ Sigurður Sigurðssun og Vilhelm G.
Kristinsson ræöast við á heimili Sigurðar
við efnisvinnslu á bók þeirra „Komiði
sæl“ sem væntanleg er frá Vöku í haust.
íbúar í Skugga-
hverfinu stofna
hagsmuna-
samtök
■ Álaugardagkl. 14.30 verðurhald-
inn í Þjóðleikhúskjallaranum stofn-,
fundur íbúasamtaka norðan Hverfis-
götu. íbúar á svæðinu sem afmarkast
af Ingólfsstræti, Hverfísgötu, Snorra-
braut og Skúlagötu, eða skuggahverf-
inu svonefnda hafa tekið höndum
saman um þcssa félagsstofnun og er
hvatinn að henni vafalítið þær miklu
umræður sem farið hafa fram undan
farið um skipulagsmál þessa svæðis.
Harald G. Haralds, einn úr undir-
búningsnefndinni fýrir stofnfundinn
sagði í samtali við blaðið í gær að
margt ungt fólk hefði að undanförnu
tlutst í þetta hverfi og þar væri þjónusta
í lágmarki. Það bæri ekki að líta á
samtökin sem mótmælasamtök gegn
fyrirhuguðu skipulagi heldur miklu
fremur sem hagsmunasamtök íbú-
anna, sem viidu fá að liafa áhrif á það
hvernig hverfið þróaðist og hvernig
búið væri að þeiin af hálfu borgaryfir-
valda. Allir íbúar á svæðinu. sem og
þeir scm þar hafa atvinnurekstur nteð
höndum eru vclkomnir á stofnfundinn.
- JGK
i