Tíminn - 29.09.1983, Blaðsíða 3
„Verðbólguhrað-
inn 15-20% um
mittárið 1985”
— sagði Brynjólfur Bjarnason,
hagfræðingur, á félagsfundi
Verslunarráðsins
??Geta jafnvel leitt
til atvinnuleysis”
— að mati Verslunarráðsins, ef ekki er tímanlega
brugðist rétt við samdrætti á vissum
sviðum atvinnulífsins
■ „Þótt margt hafi áunnist í stjórn
efnahagsmála á skömmum tíma eru
mörg viðfangsefni enn óleyst. Ber hæst
sá vandi, sem miðstýring undanfarinna
ára hefur leitt af sér. Of stór fiskiskipa-
stóll miðað við afrakstur fiskimiða, of-
framleiðsla í landbúnaði og fjárfestinga-
mistök, þar sem arðsemissjónarmið hafa
ekki verið látin ráða. Hér þarf að bjarga
því sem bjargað verður, en cinnig gera
kerfisbreytingu, svo slík mistök verði
ekki endurtekin“, segir meðal annars í
ályktun, sem gerð var í lok almenns
félagsfundar hjá Verslunarráði Islands,
sem haldinn var í gær.
Einnig segir, að rtiikilvægt sé að varð-
veita þann árangur, sem þegar hefur
náðst í baráttunni við verðbólguna.
Þeim árangri væri auðvelt að spilla með
óraunhæfum kjarasamningum, sem gætu
leitt til atvinnuleysis og nýrrar verð-
bólguskriðu. Aukinn kaupmáttur launa
verði að byggjast á því sem þjóðin aflar,
en ekki því sem tekið er að láni erlendis
til að halda uppi fölskum lífskjörum á
kostnað framtíðarinnar.
Þá segir: „Þær aðgerðir sem gripið var
til í sumar til að ná jafnvægi í efnahags-
lífinu og laga útgjöld þjóðarinnar að
lægri þjóðartekjum hafa að sjálfsögðu
leitt til samdráttar í atvinnulífinu á
vissum sviðum. Þetta kann að leiða til
minni atvinnu og jafnvel atvinnuleysis ef
ekki er brugðist rétt við tímanlega.
-Sjó
■ „Fiest þessara fyrirtækja eru það
stór, að ekki er á færi einstaklinga eða
fyrirtækja að kaupa þau. Yrði þeim hins
vegar breytt í hlutafélög í eigu ríkissjóðs
væri efiaust grundvöllur fyrír sölu
hlutabréfanna, að undangenginni breyt-
ingu á skattalögum“, sagði Steinar Berg
Bjömsson, forstjóri Lýsis hf. þar sem
hann fjallaði um sölu ríkisfyrirtækja í
ræðu sinni á opnum fundi hjá Verslunar-
ráðinu, sem haldinn var að Hótel Esju í
gær.
Skattalagabreytingin, sem Steinar á
við, miðar í þá átt, að fjárfesting í
hlutabréfum verði skattlögð á sama hátt
og ríkistryggð skuldabréf. „Þegar við
lítum á, að almenningur, sem hefur
áhuga á að spara, getur á miklu betri
kjörum falið ríkinu fjármuni sína til
ávöxtunar í formi spariskírteina og notið
verulegra skattfríðinda. Hins vegar er
það stefna yfirvalda, eins og fram kemur
í núverandi skattalögum, að gera kaup
hlutabréfa og eign þeirra að óarðbærustu
og vitlausustu fjárfestingu sem hægt er
að hugsa sér,“ sagði Steinar.
„Það mætti hugsa sér,“ segir hann á
öðrum stað, „að öllum þeim ríkisfyrir-
tækjum, sem selja ætti yrði breytt í
hlutafélög og þeim síðan kosin stjórn
eins og í öðrum hlutafélögum. Ríkis-
sjóður gæti síðan boðið hlutabréf sín til
sölu á almennum verðbréfamarkaði og
látið á það reyna, hvort einstaklingar
eða fyrirtæki vildu nýta sér þann hvata,
sem í breyttum skattalögum fælist til
þess að eignast hlut í þessum fyrirtækj-
um.“
Hann fjallaði einnig um ríkisfjármál
og í ræðunni kom fram, að árið 1960 var
skattheimta til ríkis-og sveitarfélaga
34% af vergum þjóðartekjum. Tíu árum
seinna eða 1970 hafi hlutfallið aukist um
8% og í lok ársins 1980 hafi það verið
orðið 44%. Með sama áframhaldi yrði
hlutfallið komið upp í 75% af vergum
þjóðartekjum um næstu aldamót, eða
eftir rúm 16 ár.
-Sjó
■ Fundur Verslunar-
ráðsins var fjöisóttur. í
ræöustól er Ragnar S.
Halidórsson, formaður
ráösins, en hann stjórn-
aði fundinum.
Tímamynd Ámi Sæberg.
Hafrannsóknarskipið Hafþór selt' og hugaö að kaupum á öðru:
„HÖFUM f HUGA SKIP UR
RAÐSMÍÐAVERKEFNINU”
— segir Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra
■ Hafrannsóknarskipið Hafþór er nú ingu þess efnis í sjávarútvegsráðuneyt- og hafrannsóknarbúnaðar og hafa
til sölu og verið er að ganga frá auglýs- inu. Hann verður seldur án veiðarfæra nokkrír sýnt málinu áhuga. Síðan er
Erfiðlega gengur að berja saman nýju síldarverði:
Ekki hægt að verðleggja
upp á væntanlegt gengissig
■ „Háð fjölmörguin óvissuþáttum má
ætla að um mitt ár 1984 verði hraði
verðbólgunnar milli 15 og 20%,“ sagði
Brynjólfur Bjarnason, hagfræðingur og
forstjóri Almenna bókafélagsins, í erínd-
inu „Er jafnvægi á næsta leyti?“, sem
hann flutti á fjölsóttum félagsfundi í
Verslunarráði Islands, sem haldinn var
að Hótel Esju í gær.
1 erindinu kom Brynjólfur víða við.
Hann sagði að von væri á frekari sam-
drætti í íslensku efnahagslífi. Það skipti
miklu máli í þeim samdrætti sem fyrir-
sj áanlegur væri, hvemig tækist með hlut-
deild heimamarkaðar, raungengi og það
atvinnustig sem hér á landi verður.
Miklu skipti hvemig til tækist í væntan-
legum kjarasamningum. Svigrúm til
kaupmáttaraukninga væri ekkert.
Þá taldi hann ástæðu til að ætla að
verðlag í utanríkisverslun mælt í dollur-
um hækkaði eitthvað. Þar skipti okkur
hins vegar mestu máli verð á matvæla-
hráefni helstu markaðslanda. Þótt spáð
væri verðhækkun á innfluttum matvæl-
um til Bandaríkjanna og magnaukningu
iðnvara, væri mikil óvissa um okkar
vörur eins og ljóst væri af verðstríði
fiskafurða, sem réðist af framboði og
eftirspurn. -Sjó
■ „Það liggur mikið á að ná verði fyrir
helgina og ég leyfi mér að vona að það
heppnist,“ sagði Ami Benediktsson,
annar fulltrúa kaupenda, í yfirnefnd
Verðlagsráðs sjávarútvegsins, sem Ijall-
ar um sfldarverð til frystingar.
„Þetta er býsna erfið verðlagning. Það
hefur lengi tíðkast að láta sífellt undan
og verðleggja upp á væntanlegt gengis-
sig, það var til dæmis gert í fyrra, en nú
er það ekki hægt. Þess vegna verða
kaupendur að velta því gaumgæfilega
fyrir sér hver raunveruleg geta þeirra
er,“ sagði Árni.
Fundir í yfirnefndum Verðlagsráðs
sjávarútvegsins stóðu fram á kvöld í gær
og verður væntanlega haldið áfram í dag.
-Sjó
áformað að festa kaup á öðru skipi fyrir
Hafrannsókn í staðinn.
„Það er enn ekkert ákveðið í þeim
efnum en við munum leita samninga um
nýtt skip og höfum í huga skip úr
raðsmíðaverkefninu" sagði Halldór Ás-
grímsson sjávarútvegsráðherra í samtali
við Tímann er við spurðum hann um
þetta mál.
Hann sagði að salan á Hafþóri hefði
verið í undirbúningi hjá ráðuneytinu
undanfarna mánuði og um ástæður söl-
unnar sagði Halldór: „Við erum að leita
allra leiða til aukinnar hagkvæmni í
rekstrinum. Það lá ljóst fyrir að þetta
skip er dýrt í rekstri og hér var því um
hreina sparnaðarráðstöfun að ræða.“
-FRI