Tíminn - 29.09.1983, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1983
5
fréttaskýring
^ g«U «* rifib»r*r AW*0-
IIDa* ■- ■ .-■--J.l.adM
__ Kjarabót á krepputímum
Bílakaup Steingnms r. # 1 •
700.000 kr.friömw
—veík a'
manna • „Þjó5m þarf að leggja
Steingrímur
kaupir jeppa
--- fr— cnn Kúsund króna trieinoi frá rikmu
»beh»k«r5*•ír,
r byrfU «» I
rfctaiJámtWUi
kvafflil uppivMn^'",o
unih««V;n'
jK'Hi ««-‘Punt>.
- ________ ‘ • ci-xia 105- Slringrimur ít^* '*nn *
Hlustendakönn
unin:
Kvöld-
fréttirnar
vinsælar
■ 1 næstu viku verður birt niðurstaða
úr hlustendakönnun, sem ríkisútvarpið
lét framkvæma í vor. í sumar hefur verið
unnið úr könnuninni og er lokaskýrsla
nú frágengin.
Tíminn hefur fregnað að ein af niður-
stöðum könnunarinnar sé að fyrirkomu-
lagið á kvöldfréttunum hafi mælst mjög
vel fyrir hjá þeim sem þátt tóku, og að
fleiri hlusti nú á kvöldfréttir útvarps en
áður. Tíminn mun birta meira úr niður-
stöðum fljótlega.
-BK
Ráðstefna um
AÐFLUTNINGSGJOiD FELLD
NIÐUR SL13 ÁR Á BIFREHh
UM HJA 40 RADHERRUM
einkaflugs
■ Flugmálastjóri og Vélflugfélag ís-
lands boða í samvinnu við Flugleiðir hf.
til ráðstefnu um öryggismál einkaflugs
sem fer fram á Hótel Esju laugardaginn
1. október. Ráðstefnan ber yfirskriftina
„Einkaflug öryggi 83“ og er opin öllum
einkaflugmönnum, flugvélaeigendum,
flugnemum og öðru flugáhugafólki.
í tilefni 10 ára afmælis Flugleiða hf.
Itefur félagið ákveðið að veita skráðum
þátttakendum ráðstefnunnar utan af
landi sérstök kjör á flugi og gistingu á
Flugleiða hóteli umrædda helgi. Að
ráðstefnunni lokinni mun Vélflugfélag
íslands efna til aukaaðalfundar og standa
síðar um kvöldið fyrir „Flugdýrafagn-
aði“ í salarkynnum Hótel Esju.
Þeir sem ekki hafa fengið senda
dagskrá ráðstefnunnar er bent á að hafa
samband við Flugmálastjórn í síma
18430 þar sem þátttökutilkynningum er
veitt móttaka.
-GSH
U mf erðarvika
■ Samkvæmt heimildum Tímans hafa fjölmargir
ráðherrar á undanförnum árum notfært sér þá
heimild að kaupa bifreið til einkaafnota, án þess að
greiða af henni aðflutningsgjöld, en þess ber þó að
geta, að fjölmargir þeirra sem hér um ræðir, hafa
gert það eftir að ráðherratíð þeirra lauk, en réttinn
sem slíkan hafa ráðherrarnir í eitt ár, eftir að
ráðherratíð þeirra lýkur. Eins og mörgum mun
kunnugt er heimildarákvæði í lögum sem leyfir
ráðherrum, og starfsmönnum utanríkisþjónustunn-
ar að kaupa bifreiðar fyrir einkaafnot á ofangreind-
um kjörum, en ef ráðherrar kjósa ekki að notfæra
sér þann möguleika, þá geta þeir látið ríkissjóð
kaupa bifreið sem þeir nota sína ráðherratíð, og er
það af mörgum talin enn ódýrari leið.
Þjóðviljinn gerir að umræðuefni á
forsíðu sinni í gær, að Steingrímur
Hermannsson, forsætisráðherra hafi
keypt sér nýjan bíl. Þessi umfjöllun
Þjóðviljans, og útleggingar blaðsins í
því tilefni urðu okkur hér á Tímanum
tilefni til þess að reyna að upplýsa á
hvem hátt heildarákvæði þessi hafa
verið nýtt af ráðherrum og utanríkis-
þjónustu undanfarin ár. Á daginn kom
að mörg ljón voru í veginum, einkum og
sér í lagi í hinum ýmsu skúmaskotum
fjármálaráðuneytisins, þar sem tak-
markaður áhugi virðist vera fyrir hendi
að veita upplýsingar um þessi mál, að
ekki sé nú meira sagt.
Eftir um það bil 20 símhringingar
fékkst samband við Ingólf Friðjónsson
hjá tolladeild fjármálaráðuneytisins, og
hann var spurður um það hverjir hefðu
nýtt sér þessa heimild undanfarin 10 ár,
hvaða bíltegundir hefði verið um að
ræða, og hve há upphæð aðfiutnings-
gjöldin hefðu verið hverju sinni: „Við
erum ekki með neinar handbærar upp-
lýsingar um öll þau atriði sem þú spyrð
um þannig að það tæki okkur par vikur
að fletta þessu öllu upp,“ sagði Ingólfur,
„þannig að ég get ekki séð að það sé
nokkur vinnandi vegur að veita þér
þessar upplýsingar. Það er algjörlega
útilokað.“
Niðurstaðan varð því sú að þrátt fyrir
þá staðreynd að bifreiðamál heyra undir
fjármálaráðuneytið, og að innflutningur
og aðflutningsgjöld heyra undir tolla-
deild fjármálaráðuneytisins, fengust
engar upplýsingar um ofangreind atriði,
enda fjármálaráðherra erlendis!
Eftir krókaleiðum tókst Tímanum þó
að verða sér úti um eftirfarandi upplýs-
ingar, en þær ná aftur til ársins 1970. Eru
þessar upplýsingar einungis um ráðherra
(eða fyrrverandi ráðherra, en heimildin
gildir í ár eftir að ráðherradómi er
lokið). Utanríkisþjónustan ogbankarnir
verða að bíða betri tíma.
Þeir sem hafa nýtt sér undanþágu
samkvæmt 14. tölulið 3. greinar tolla-
skrárlaga frá setningu reglugerðar no. 6
1970 um bifreiðarmál ríkisins.
Árið 1970 nýtlu þessir sér ákvæðið:
Emil Jónsson, 1. apríl
Magnús Jónsson, 27. apríl
Eggert G. Þorsteinnson, 16. apríl
Ingólfur Jónsson, 29. júní
Jóhann Hafstein, 6. nóvember
Bjarni Benediktsson (dánarbú) 11. nóv-
ember
Gylfi Þ. Gíslason, 19. nóvember
Auður Auðuns, 2. desember
Árið 1971 nýttu þessir sér ákvæðið:
Magnús Kjartansson, 1. október
Magnús Torfi Ólafsson, 19. október
Hannibal Valdimarsson, 4. nóvember
Árið 1972 nýttu þessir sér ákvæðið:
Halldór E. Sigurðsson, 5. janúar
Einar Ágústsson, 5. janúar
Ólafur Jóhannesson, 6. janúar
Árið 1973 nýtti þessi sér ákvæðið:
Björn Jónsson, 29. nóvember
Árið 1974 nýttu þessir sér ákvæðið:
Lúðvík Jósepsson, 6. maí
Vilhjálmur Hjálmarsson, 11. nóvember
Árið 1975 nýttu þessir sér ákvæðið:
Gunnar Thoroddsen,-8. janúar
Matthías Á. Mathiesen, 23. janúar
Halldór E. Sigurðsson, 27. maí
Magnús Torfi Ólafsson, 4. júní ( sem.
fyrrverandi ráðherra)
Magnús Kjartansson, 17. júlí (sem fyrr-
verandi ráðherra)
Lúðvík Jósepsson, 2. ágúst (sem fyrrver-
andi ráðherra)
Ólafur Jóhannesson, 7. nóvember.
Þeir sem nýttu sér ákvæðið 1976:
Geir Hallgrímsson, 18. mars
Einar Ágústsson, 23. júlí
Matthías Bjarnason, 21. september
1977 nýtti einn maður sér ákvæðið:
Vilhjálmur Hjálmarsson, 16. desember
1978 nýttu þeir sér ákvæðið:
Gunnar Thoroddsen, 12. júlí
Halldór E. Sigurðsson, 2. ágúst
Matthías Á. Mathiesen, 3. ágúst
Matthías Bjarnason, 6. desember (sem
fyrrverandi ráðherra)
1979 nýttu þessir sér ákvæðið:
Ólafur Jóhannesson, 20. febrúar
Einar Ágústsson, 14. mars (sem fyrrver-
andi ráðherra)
Geir Hallgrímsson, 20. mars (sem fyrr-
verandi ráðherra)
Tíminn hefur heimildir fyrir því að
þegar ríkisstjórn dr. Gunnars Thor-
oddsen tók við völdum í febrúar 1980,
þá vildu bæði Friðjón Þórðarson og
Pálmi Jónsson kaupa bíla án aðflutnings-
gjalda, en vegna þeirrar starfsreglu sem
ráðherrar í ríkisstjórn Ólafs Jóhannes-
sonar höfðu viðhaft, þ.e. að nýta ekki
þessa heimild, þá hafi þeir hætt við að
kaupa bíla með þeim kjörum, heldur
hafi þeir látið ríkissjóð kaupa Mercedes
Benzana sem þeir óku á í ráðherratíð
sinni, og eru nú komnir til þeirra.Alberts
Guðmundssonar og Halldórs Ásgríms-
sonar. Þeir munu hins vegar báðir þ.e.
Pálmi og Friðjón hafa keypt sér bíla í
sumar, og notfært sér niðurfellingu á
aðflutningsgjöldum. Sömu sögu sé að
segja af ráðherrum sem fóru frá völdum
í vor, að undanskildum Ólafi Jóhannes-
syni og ráðherrum Alþýðubandalagsins.
Er Tíminn ræddi við Hjörleif Guttorms-
son fyrrverandi iðnaðarráðherra í gær-
kveldi og spurði hann hvort hann hyggð-
ist nótfæra sér þessa heimild: „Það hefur
aldrei hvarflað að neinum í okkar hópi
að notfæra sér þetta, og mér kom það
satt að segja ekki í hug að þeir sem voru
með okkur í síðustu ríkisstjórn létu
henda sig þessi ósköp.“ - AB
á Akureyri
■ Umferðarvika stendur nú yfir á
Akureyri í tilefni af Norrænu umferðar-
öryggisári. Á þriðjudag var útifundur á
íþróttavellinum þar sem 3-4000 grunn-
skólanemendur komu saman, í tilefni
vikunnar. Óli H. Þórðarson fram-
kvæmdastjóri Umferðarráðs flutti ávarp
og séra Pálmi Matthíasson flutti hug-
vekju. Þá hélt einn nemandi úr hverjum
skóla stutta ræðu.
Að sögn lögreglunnar á Akureyri er
ýmislegt á dagskrá vikunnar. Eftirlit
með nmferðinni hefur verið hert og
fræðsla aukin. Þá munu ökukennarar
halda fundi um endurmenntun bílstjóra
og á laugardag munu þeir taka fólk í
tíma, bæði bóklega og verklega eftir
óskum.
-GSH
Skátastarf
í Vesturbæ
■ Skátafélagið Ægisbúar er að hefja
vetrarstarf sitt og verður innritun í
húsnæði þess að Neshaga 3 laugardaginn
1. október frá kl. 13.00 til 17.00.
í félaginu starfa tvær léttskátasveitir
fyrir alduinn 9-11 ára, bæði kyn; fjórar
skátasveilir fyrir 11-15 ára, bæði kyn; og
tvær dróttskátasveitir fyrir 15-18 ára þar
sem bæði kyn starfa saman. Ennfremur
er töluverður hópur rekka og svanna,
þ.e. 18 ára og eldri.
Félagsstarfið hefur verið blómlegt
undanfarið og í því er lögð áhersla á
sjálfsbjargarviðleitni og virðingu fyrir
umhverfinu og náunganum. Farið er í
útilegur og unglingum kennt hvernig á
að búa sig miðað við aðstæður hverju
sinni. Mikið er lagt upp úr kennslu í
hjálp í viðlögum.