Tíminn - 29.09.1983, Page 10
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1983
ir leikinn
„Óheppnin ettir
íslendinga“
■ „Ég verð nú bara að segja það, að
heppnin fylgir aldrei íslenskum liðum í
svona keppnum,“ sagði Heimir Karlsson
Víkingur eftir leikinn við Raba. Við
uppskárum ekki eins og við áttum skilið
í þessum leik, þetta er bara alltaf svona.
Við áttum fullt af fxrum sem við notuð-
um ekki, og skot sem hefðu með heppni
getað lent inni, ef við hefðum náð að
skora í fyrri hálfleik hefði það breytt
öllu. Við áttum skilið minnst jafntefli í
leiknum.“
„Munurinn á
atvinnumönnum og
áhugamönnum“
■ „Þetta er bara munurinn á atvinnu-
mönnum og áhugamönnum“, sagði Jean
Paul Colonoval, þjálfari Víkinga eftir
leikinn. „Við fáum fleiri færi og skorum
ekkert, en þeir fá þrjú færi og skora tvö
mörk. Þetta er náttúrlega afskaplega
leiðinlegt, en ég er ánægður með barátt-
una í mínu liði. Við vorum mun nær sigri
en úrslitin segja, ef við hefðum til dæmis
náð að skora úr dauðafæri á 25. mínútu.
- Ég er ekki að áfellast Ómar Torfason,
það er bara þannig að við þurfum flmm
færi til að skora eitt mark, meðan þeir
þurfa bara eitt. En ég get ekki ætlast til
að við skorum mörk gegn Ungvcrsku
meisturunum, þegar það gengur ekki
hjá okkur í íslandsmótinu.“
„Vantaði
herslumuninn“
■ „Það vantaði bara herslumuninn“,
sagði Aðalsteinn Aðalsteinsson Víking-
ur eftir leikinn. „Við vorum bara ekki
nógu ákveðnir, ekki nógu frekir. - Menn
höfðu bara ekki trú á þessu, á því að við
gætum sigrað. Karlinn hefur talað um
þessa karla sem snillinga í allt sumar, og
svo geta þeir ekki meira. Þetta var
einfaldlega allt of mikið í maganum á
mönnum.“
Punktar úr
UEFA keppninni:
Watford
áfram!
Frá Magnúsi Ólafssyni í Bonn:
■ Watford stillti upp 4 framherjum
gegn Kaiserslautern til að reyna að vinna
upp 3-1 tapið í fyrri leiknum í UEFA
keppninni í knattspyrnu. Mörkin létu
heldur ekki á sér standa. Richardson,
sem spilaði í gærkvöldi sinn fyrsta leik
fyrir Watford, skoraði strax á 4. mínútu
og aftur á 67. mínútu en þeim þýsku
tókst að skora sjálfsmark á 8. mínútu og
sleppa tveimur dauðafærum til að koma
Englendingunum í aðra umferð í fyrstu
Evrópukeppni sinni.
Bayern Múnchen bætti upp lélega
frammistöðu sína á Kýpur t fyrri leiknum
með því að taka áhugamennina með
tveggja stafa tölu. Rummenigge bræð-
urnir voru mjög atkvæðamiklir í
leiknum.
Júgóslavarnir í Hadjuk Split sigruðu í
vítaspyrnukeppni á móti Rúmenunum.
Svíarnir sóttu stíft í fyrri hálfleik á
móti þýska liðinu frá Bremen. Á 38.
mínútu skoraði Rönneberg úr víti og
hefðu mörkin hæglega getað orðið 4 eða
5. En í seinni hálfleik kom nýtt þýskt lið
inn á völlinn. Austurríski landsliðsmað-
urinn, Pezzey, besti maður vallarins,
jafnaði á 47. mínútu og Shipka gerði
sigurmarkið á 57. mínútu. Þrátt fyrir að
Þjóðverjar hafi þarna náð í óvæntan
sigur í Svíþjóð, er árangur þeirra í
Evrópukeppninni nú sá lélegasti í 14 ár,
þ.e. 2 lið af 6 eru fallin úr keppninni.
-MÓ/JÓL
■ Heimir Karlsson í baráttu við Halgivik bakvörð Raba ETO Györ á Laugardalsvelli! í gær. Hann verður hér að láta í minni pokann, og hinir Ungverjamir koma til að
taka boltann. Heimir náði ekki að skora fremur en aðrir Víkingar í gær, en þó munaði litlu í lok leiksins, þegar Kovacs markvörður varð að grípa til sparihanskanna og slá
í horn þrumufleyg Heimis af 25 metra færi. Tímamynd Róbert
SAMI HOFUÐVERKURINN
VARD VfKINGUM AB FALLI
— gekk ekki ad skora eins og í íslandsmótinu - töpuðu 0-2 fyrir
Raba en áttu mun fleiri færi
■ Sami höfuðverkurinn og þjáði Vík-
inga svo mjög í sumar á íslandsmótinu
varð þeim að falli á Laugardalsvelli í
gærkvöld, þegar liðið lék við Ungversku
meistarana Raba ETO Györ í Evrópu-
keppni meistaraliða í knattspyrnu. Vík-
ingum var um megn að skora, en þó
fengu þeir til þess fjölmörg færi léku vel
og gáfu Ungverjunum ekkert eftir. Ung-
verjarnir sýndu lítið, rétt að liðið hrykki
í gang við og við í síðari hálfleik, og þá
sýndi liðið hvað í því bjó, lék fallegan og
hraðan fótbolta, og fáar rispur nægðu til
þeirra tveggja marka sem skildu þegar
upp var staðið. Raba er því komið áfram
í keppninni með 4-1 samanlagt.
Liðin fóru afskaplcga varlega af stað í,
leiknum, Ungverjarnirtaugaveiklaðirog
hræddir að því er virtist, auk þess sem
þeir sættu sig grcinilega illa við slæman
Laugardalsvöllinn. Víkingar virtust
feimnir við atvinnumennina, og trúna á
að hægt væri að skora mark virtist vanta.
Þó sóttu þeir í sig veðrið þegar á leið
fyrri hálfleikinn og voru hreinlega miklu
betri.
Víkingar áttu góð færi í fyrri hálfleik,
sem hefðu getað gefið af sér mörk. Var
það helst á 25. mínútu, þegar fyrirgjöf
kom óvænt alla leið til Ómars Torfasonar
á markteignum, þar sem hann stóð fyrir
opnu marki, en varnarmaður hafði ekki
hitt boltann hjá Ungverjunum. Ómar
virtist illa viðbúinn, og í fátinu sem á
hann kom skaut hann himinhátt yfir.
Þremur mínútum síðar átti Aðalsteinn
Aðalsteinsson þrumuskot af 20 metra
færi rétt yfir mark Ungverja, og fimm
mínútum fyrir leikhlé vann Heimir bolt-
ann með skalla af markverðinum eftir
hornspyrnu Aðalsteins, Ungverjar
björguðu á línu og enginn Víkingur var
til að pota. Þá komst Heimir einn upp
gegn einum varnarmanni, og gaf ekki á
félaga sinn Ómar Björnsson til hliðar við
sig, en Ungverjar stöðvuðu síðan Heimi.
Ungverjarnir áttu ekki umtalsvert færi í
fyrri hálfleik, og stóðu lítt undir nafni.
í síðari hálfleik kom hreint og beint
annað lið Raba inná. Liðið tók góða
■ Þórður Marelsson í baráttunni við Ungverja í gær. Myndin er nokkuð dæmigerð
fyrir Þórð, hann er ódrepandi baráttujaxl, mikill vinnuhestur á leikvelli.
Tímamynd Róbert
spretti, sem endaði með marki á 59.
mínútu, þá skoraði Magyar. Eftir að
Szabo gaf fyrir, og Buelsa þrumaði í
varnarmann Víkings á línunni barst
boltinn út til Magyars, sem negldi upp í
vinkilinn af markteig, 1-0. Ungverjarnir
fengu þrjú færi í viðbót, og skoruðu úr
einu, varamaðurinn Szertes komst einn
inn fyrir eftir fallegt samspil og skoraði
eftir að hafa leikið á Ögmund 2-0,
fjórum mínútum fyrir leikslok. í hin
skiptin tvö kom þrumuskot í hliðarnetið
af 20 metra færi, og Buelsa brenndi
hroðalega af á markteignum.
Víkingar sóttu milli góðra kafla Ung-
verjanna, en ógnuðu ekki fyrr en í lokin.
Þá tók Ómar Torfa annað skot yfir
dauðafrír á markteig, fékk að vísu
erfiðan bolta að vinna úr, og Heimir
Karlsson skaut geysilegu þrumuskoti af
25 metra færi, sem markvörðurinn
Kovacs rétt náði að verja í horn.
Leikurinn var skemmtilegur á köflum,
en datt niður á milli, og vonleysið sem
einkenndi Víkingana var helst til þreyt-
andi. Þar vantaði herslumuninn, annað
hvort í því að skjóta á markið, eða koma
boltanum fyrir, allt annað gekk. Annars
stóðu Víkingar sig vel, en það verður
bara að skora mörk í fótbolta, ef eitthvað
á að ganga. Aðalsteinn Aðalsteinsson og
Jóhann Þorvarðarson stóðu upp úr Vík-
ingsliðinu, léku báðir mjög vel, en aðrir
voru jafnir. - Ungverjarnir virtust allir
svipaðir, léttir. nettir og fljótir strákar.
- SÖE
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1983
11
umsjón: Samúel Örn Erlingsson
■
i
SKAGAMENN NAÐU JAFN-
TEFU GEGN EVRÓPU-
MEISTURUNUM ABERDEEN!
- Jöfnuðu á sídustu mínútu úr vítaspyrnu.
Mark dæmt af ÍA
■ „Þetta var stórkostlegt, þaö eru allir
himinlifandi meö þessi úrslit gegn Aber-
deen“, saði Jón Askelsson, bakvörður-
inn trausti í Akranesliðinu í viðtali við
Tímann í gærkveldi en þá léku Skaga-
menn síðari leik sinn gegn Evrópumeist-
urum Aberdeen í Skotlandi, nánar til-
tekið á Pittodrie-leikvanginum. Er upp
var staðið hafði hvort lið skorað eitt
mark.
Sem sagt: 1-1 jafntefli. Frábær
frammistaða Skagamanna, svo ekki sé
meira sagt. Eins og flestum er kunnugt
um lauk fyrri leik liðanna með sigri
Aberdeen 2-1 er leikið var í Laugardaln-
um. Skagamenn eru þó úr leik, marka-
talan samtals 2-3 en ef satt skal segja
væri alveg jafn sanngjart að þeir færu í
aðra umferð. Gordon Strachan, HM
stjarnan rauðhærða, skoraði fyrir Aber-
deen um miðjan síðari hálfleik, úr
umdeildir vítaspyrnu en á lokamínútu
leiksins fengu Skagamenn vítaspyrnu.
Hana tók að þessu sinni Jón Áskelsson,
viðmælandi Tímans. „Ég skal viður-
kenna að það var dálítið erfitt að taka
þessa sþyrnu en sem betur fer náði
Leighton ekki að verja hana“ sagði Jón.
Að sögn hans skoruðu Skagamenn
mark nokkrum mínútum fyrir leikslok
sem dæmt var af vegna rangstöðu. „Það
var alveg út í hött, skal ég segja þér.
ÁSGEIRI VÍSAÐ
AF LEIKVELLI!
— og Stuttgart féll út •
Frá Magnúsi Olafssyni í Bonn:
■ Stanslaust í 90 mínútur sótti VFB
Stuttgart móti búlgarska liðinu LS
Sofia á útivelli, og jafnlengi lá mark
í loftinu. Óteljandi marktækifæri
dugðu þó ekki, og verða þjóðverjam-
ir því að bíta í það súra epli að fá ekki
að vera með í framhaldinu. Heima-
menn skoraðu mark sitt á síðustu
sekúndu leiksins.
Ásgeiri Sigurvinssyni var vísað af
leikvelli á 89. mínútu leiksins fyrir
Ijótt Drot á sóknarmanni LS Sofia, og
að sögn þýska þularins mun þetta
hafa verið réttlátur dómur hjá Bridge
frá Wales. Þetta kemur nokkuð á
óvart hér í Þýskalandi, því Ásgeir er
þekktur fyrir heiðarlega og íþrótta-
mannlega framkomu á knattspyrnu-
vellinum, og til dæmis um það fékk
hann aðeins tvær aðvaranir á knatt-
spymuvellinum í fyrra.
Ásgeir var annars yfirburðamaður
í liði Stuttgart, og skapaði hann hvað
eftir annað stórhættu við mark
heimamanna, eins og sjá mátti í
þýska sjónvarpinu í gærkvöldi. Átti
þulurinn ekki orð til að lýsa frammi-
stöðu hans og þótti sorglegt að leikur-
inn endaði svona hjá honum.
-MÓ/SÖE
Punktar úr Evrópukeppnum:
Árni Sveins skoraði eftir sendingu frá
Sigga Jóns en dómarinn dæmdi svo
rang-stöðu á Sigþór sem var lengst úti á
kanti og hafði akkúrat engin áhrif á
leikinn. Varnarmaðurinn sem var með
Sidda stökk meira að segja aftur fyrir
endalínu til að gera hann rangstæðan.
Alveg fáránlegt", sagði Jón.
„Við byrjuðum leikinn alveg hræði-
lega og gátum ekkert fyrstu 20 mínúturn-
ar. Þeir fengu þá 3-4 góð færi en Bjarni
varði glæsilega í öll skiptin. Eitt sinn
komst McGee einn í gegn en Bjarni
varði ævintýralega", sagði Jón.
„Síðan komumst við smá saman inn i
leikinn og í síðari hálfleik höfðum við í
fullu tré við þá. Árni Sveinssön hélt þá
Strachan niðri en hann hafði verið
nokkuð sterkur í fyrri hálfleiknum.“
„Þeir vóru ekkert góðir þessir karlar
og mér finnst liðið engan veginn neitt
sérstakt. Auðvitað erum við þó firna-
hressir með svona skemmtileg úrslit“,
sagði Jón. Að lokum vildi hann koma á'
framfæri kærri þökk til hinna 10 íslensku
áhorfenda. „Það heyrðist vel í þeim“.
Áhorfendur voru ekki ánægðir með
þessi úrslit og er leiknum lauk var baulað
á skoska liðið. Til hamingju Skagamenn!
-Jól
■ Hinn ungi Sigurður Jónsson lék
vel í Aberdeen í gær, og nú vill
Ferguson fá hann.
Ferguson
vill fá Sigga
■ Framkvæmdastjóri Aberdeen, Alex
Ferguson sagði í viðtali við breska úl-
varpið BBC í gærkvöld, að hann hefði
mikinn áhuga á að fá Sigurð Jónsson frá
Akranesi til liðs við sig. Bætist þar með
Aberdeen í hóp þeirra liða sem eltast við
Sigurð, en Sigurður hefur fengið tilboð
og rætt hefur verið við hann af mörgum
félögum víða að úr heiminum. - Fergu-
son sagði í viðtalinu, sem tekið var eftjr
leik Aberdeen og Akraness í gærkvöld
að hann hefði mikinn áhuga á að fá Sigga
Jónsson („this Siggi Jonsson") til liðs
við Aberdeen. -MÓ/SÖF.
lágu í Jena!
■ Vestmannaeyingar biðu lægri hlut
fyrir a-þýska atvinnumannaliðinu, Carl
Zeiss Jena er liðin léku í A-Þýskalandi í
gærkveldi. Lauk leiknum með 3-0 sigri
Jena. Mörkin þrjú komu á 8 mínútna
kafla í síðari hálfleiknum.
„Þetta var gjörólíkt lið miðað við
leikinn í Kópavogi fyrir hálfum mán-
uði“, sagði Áki Haraldsson, stjórnar-
10-0 í Glasgow!
■ Þeir Skotar í Glasgow Rangers
keyrðu á fullu á móti Valetta frá Möltu,
í Evrópukeppni bikarhafa í knattspyrnu
til að reyna að setja nýtt Evrópumet,
23-0, en Möltumennirair vörðust vel
þannig að leiknum lauk aðeins 10-0.
Kölnarliðið lék nú sinn fyrsta sannfær-
andi leik í iangan tíma og gæla menn við
þá hugmynd að samskiptaerfiðleikar
leikmanna á milli séu yfirstignir.
Manchester United fer áfram á úti-
mörkum.
Tveir einstaklingar í Liverpool liðinu
settu persónuleg met í leiknum gegn
Dönunum í Odenseliðinu í Evrópu-
keppni meistaraliða, þeir Kenny Dalg-
lish og Mike Robinson. Dalglish skor-
aði tvö mörk og hefur nú skorað flest
mörk allra Breta í Evrópukeppnum í
knattspyrau, eða 15 alls. Gamla metið
átti Denis Law, 14 mörk. Robinson
skoraði einnig tvisvar og eru það fyrstu
mörk hans fyrir Liverpool, en hann var
keyptur þangað í haust.
HSV, núverandi Evrópumeistarar,
sátu yfir í lyrstu umferð.
NAUMUR HAUKASKUR
KR tapaði 14-15 í Hafnarfirði
■ Haukar úr Hafnarfirði sigruðu KR-
inga með 15 mörkum gegn 14 í 1. deild
karla í handknattleik í gærkvöldi.
Leikurinn sem var háður í Hafnarfirði
var mjög harður. Staðan í hálfleik var 10
mörk gegn 6 KR-ingum í vil. Haukamir
þéttu vörnina og bættu markvörsluna í
síðari hálfleik og nægði það til sigurs.
KR-ingar byrjuðu leikinn mjög vel og
náðu forystu fljótt og sást t.d. 4-1 á
töflunni. KR-ingar héldu þessu áfram
fram að leikhléi en þá var staðan 10-6
eins og áður kom fram. Fyrri hálfleikur
einkenndist af góðri markvörslu og vöm-
in var nokkuð föst fyrir enda tókst
Hafnfirðingum aðeins að skora sex
sinnum.
Vörnin og markvarslan var allt önnur
í seinni hálfleik hjá Haukunum. Á
meðan voru KR-ingar bæði klaufskir og
óheppnir. Haukunum tókst að jafna
metin 10-10 og ná svo tveggja marka
forystu 12-10. Þá tókst KR-ingum loks
að skora sitt fyrsta mark í seinni hálfleik,
og var Ólafur Lárusson þar að verki.
Tvö Haukamörk fylgdu í kjölfarið, Þórir
Gíslason og Sigurjón Sigurðsson
skoruðu. Guðmundur Albertsson skor-
aði nú tvö mörk og staðan var 14-13
Haukum í vil. Hörður Sigmarsson gerði
.síðan sigurmark Haukanna og tryggði
þeim sín fyrstu stig í 1. deild í vetur.
Lokastaðan var 15-14 Haukum í vil. í
lokin áttu KR-ingar aukakast og aðeins
tvær sekúndur eftir en það rann út í
sandinn. í lokin var'Jakob Jónsson, kom
frá KA í sumar, sleginn illa og varð að
flytja hann í sjúkrahús. Dómararnir
Árni Sverrisson og Hákon Sigurjónsson
dæmdu þama ekkert og er það mjög
slæmt að ekki sé dæmt á slíka hluti,
jafnvel skaðlegt fyrir handboltann hér
á landi.
Mörk Hauka: Hörður 4, Þórir 4,
Pétur 3, Ingimar 2, Jón og Sigurjón 1
hvor. Mörk KR: Ólafur 5, Guðmundur
3, Jakob 2, Bjöm 2, Friðrik, og Willum
1 hvor. -BH
maður í Eyjaliðinu í spjalli við Tímam
að leik loknum í gærkveldi. „Þeir léki
mun betur og leikurinn var hraðari“.
f fyrri hálfleik höfðu Eyjamenn í fullu
tré við Þjóðverjana og þrátt fyrir að
heimamenn hefðu sótt mun meira náðu
þeir ekki að koma tuðrunni í netið
framhjá Aðalsteini Jóhannssyni sem
stóð sig mjög vel í markinu. „Strákarnir
börðust mjög vel og virkilega góður andi
var í liðinu“, sagði Áki.
Staðan í hálfleik var því 0-0 og
áhorfendur bauluðu á Jena-menn.
„Þjóðverjarnir mættu síðan mjög
sterkir til síðari hálfleiks og á 53., 54. og
65., mínútu gerðu þeir út um leikinn
með 3 mörkum. Það gerði auðvitað
útslagið en strákarnir héldu samt haus
allan leikinn og stóðu vel fyrir sínu
sagði Áki.
Að sögn Áka voru úrslitin réttlát en
Eyjamenn léku e.t.v. enn betur í gær-
kveldi en er liðin mættust í Kópavogi
forðum. Áhorfendur voru á milli 8 og 9
þúsund. _jó|
Kalli og
félagar
lögðu
Rússana
■ Karl Þórðarson frá Akranesi og
félagar hans í Laval í Frakklandi lögðu
að velli sovéska stóliðið Dynamó Kiev í
UEFA keppninni í gærkvöld í Frakk-
landi 1-0, og slógu þar með Rússana út.
Fyrri leiknum sem leikinn var í Sovétrikj-
unum iauk með markalausu jafntefli, og
vöktu úrslitin milda athygli. Ekki tókst
að afla frétta um það í gær hvort Kalli
lék með en víst er að það stóð til. Þess
má geta að uppistaða sovéska landsliðs-
ins hefur fram að þessu verið skipuð
leikmönnum úr Kiev liðinu. - SÖE
Ursiit
Evrópukeppni meistaraliða
Víkingur Ísl.-Raba ETO UngverjaI....0-2
Raba áfram (4-1 samanlagt)
Jeuncssc Esch (Austurríki)-Dynamo Bcrlin
(A-ÞýskaI.)...0-2, Berlin áfram (1-6 samanl.)
Viking (Noregi)-Partizan Belgrad (Júgósl)
..0-0, Belgrad áfram (5-1 samanlagt)
Grasshoppers Zúrich (Sviss)-Dynamo Minsk
(Sovét)...2-2, Minsk áfram (3-2 samanlagt)
Atletico de Bilbao (Spáni)-Lech Poznan
Póllandi)...4-0, Bilbao áfram (4-2 samanl.)
Bohemians Prag (Tékkósl.)-Fenerbahce
Istanbul (Tyrkl.)...4-2, Bohemias áfram (5-2
samanlagt)
Omonia Nikosia (Kýpur)-Armildub Sofia
(Bulg.)...4-1, Sofia áfram (4-4)
Liverpool (Englandi)-Odense (Danmörku)
...5-0, Liverpool áfram (6-0 samanlagt)
Dundee United (Skotlandi)-Hamrun Spart-
ans Möltu...3-0, Dundee áfram (6-0 samanl.)
IFK Gautaborg (Svíþj.)-Roma (Ítalíu)...2-1
Roma áfram (4-2 samanlagt)
Standard Liege (Belgíu)-Athlone Town (Ir-
landi) ...8-2, Standard áfram (11-4 samanl.)
Olympiakos (Grikklandi)-Ajax (Hollandi)
...2-0, Olympiakos áfram (2-0 samanl.)
Dynamo Búkarest (Rúmeníu)-Kuusyisii
Lahti (Finnlandi...3-0, Búkarest áfram (4-0
samanl.)
Nantes (Frakklandi)-Rapid Wien (Austurr.)
...1-3, Wien áfram (6-1 samanlagt)
Linfield (N-írlandi)-Benfica (Portúgal)...2-3
Benfica áfram (6-2 samanl.)
Evrópukeppni bikarhafa
Köln (V-Þýskal.)-Innsbruch (Austurr.)..7-1
Köln áfram (7-2 samanlagt)
Glasgow Rangers (Skotl.)-Valetta (Möltu)
...10-0, Rangers áfram (18-0 samanlagt).
Danzig (Póllandi)-Juventus Trino (Ítalíu)
...2-3, Juventus áfram (11-2 samanlagt).
Beveren (Belgíu)-Famagusta (Kýpur)...3-1,
Beveren áfram (7-1 samanl.)
Dukla Prag (Tékkó.)-Man.Utd. (Engl.)..2-2
Man. Utd. áfram (3-3 samanlagt)
Shaktyar Donetzk (Sovétr.)-Nyköping
(Svíþj.)...4-2, Donetzk áfram (9-3 samanl.)
Nento Tirana (Albaníu)-Hammarby (Sviþj.)
...2-1, Hammarby áfram (5-2 samanlagt)
Barcelona (Spáni)-Magdeburg (A-
Þýskal.)...2-0, Barcelona áfram (7-1 samanl)
Paris St. Germain (Frakkl.)-Glentoran (N-
írlandi)...2-l, Paris St. áfram (4-2 samanl.)
Valeahoska (Finnl.)-Sligo Rovers (írl.)...3-0
Valeahoska áfram (4-0 samanlagt).
Avenir Beggen (Luxemb.)-Servette Genf
(Sviss)...l-5, Servette áfram (9-1 samanlagt).
Ujpest Dosza (Ungverjal.)-AEK Aþena
(Grikkl.)...4-1, Dosza áfram (4-3 samanl.)
Brann (Noregi)-NEC Nijmegen (Hollandi)
...0-1, Nijmegen áfram (2-1 samanl.)
UEFA keppnin
Watford (Engl.)-Kaiserslaurem (V-
Þýskal)...3-0, Watford áfram (4-3 samanl.)
Bayern Múnchen (V-Þýskal.)-Larnak
(Kýpur)...10-0, Bayern Múnchen áfram (11-
0 samanl.)
LS Sofia (Búlgaríu)-Stuttgart (V-Þýskal.)
...1-0, Sofia áfram (1-0 samanl.)
Maimö (Svíþjóð)-Werder Bremen (V-
Þýskal.) ...1-2, Bremen áfram (3-2 samanl.)
Frankfurt O.A. (A-Þýskal.)-Nottingh. For.
(Engl.) ...0-1, Forest áfram (3-0 samanl.)
I.eipzig (A-Þýskal.)-Bordeaux (Frakld.)
...4-0, Leipzig áfram (7-2 samanl.)
Aston Villa (Engl.)-Vitoria Guimarcs (Port-
úgal) ...5-0, Villa áfram (5-1 samanl.)
Real Madrid (Spáni)-Sparta Prag (Tékkó.)
...1-1, Sparta áfram (4-3 samanl.)
Antwerpen (Belgiu)-Zúrich (Sviss)...4-2
Antwerpen áfram (8-3 samanl.)
Austria Wien (Austurr.)-Aris Bonneweg
(Luxemb.) ...10-0Wienáfram (15-Osamanl.)
Laval (Frakklandi)-Dynamo Kiev (Sovétr.)
...1-0 Lavai áfram (1-0 samanl.)
Tottenham (Englandi)-Drocheta (írlandi)
...3-0 Tottenham áfram (14-0 samanl.)
Inter Milano (Italíu)-Trabzonspor (Tyrkl.)
...2-0, Milano áfram (2-1 samanl.)
Feyenoord (Hollandi)-St. Mirren (Skotl.)
...3-0, Feyenoord áfram (4-0 samanl.)
Aarhus (Danmörku)-Glasgow Celtic (Skotl.)
...14, Celtic áfram (5-1 samanl.)
Coleraine (N-írl.)-Sparta Rotterdam (Hol-
landi) ...1-1, Sparta áfram (5-1 samanl.)
B1903 (Danmörku)-Banik Ostrava (Tékkó)
...1-1, Ostrava áfram (6-1 samanl.)
Sporting Lissabon (Portúg.)-SeviUa (Spáni)
...3-2 Lissabon áfram (4-3 samanl.)
Groningen (Hollandi)-Atletico de Madríd
(Spáni) ..3-0, Groningen áfram (4-2 samanl.)
Honved (Ungverjal.)-Larissa (Grikklandi)
...3-0, Honved áfram (3-2 samanl.)
Elfsborg (Svíþjóð)-Widzev Lodz (Póllandi)
...2-2, Lodz áfram (2-2 samanl.)
HJK Helsinki (Finnl.)-Spartak Moskva (So-
vétr.)...0-5, Moskva áfram (7-0 samanl.)
Anderlecht (Bclgíu)-Bryne (Noregi) ...1-1,
Anderiecht áfram (4-1 samanl.)
St. GaUen (Sviss)-Radnicki Nis (Júgóslv.)
...1-2, Nis áfram (5-1 samaniagt)
Saloniki (Gríkld.)-Lokomotiv Plodiv (Búlg.)
...3-1, Saloniki áfram (5-2 samanl.)
Hadjuk SpUt (Júgóslav.)-Universitatea Cra-
iova (Rúm.) ...1-0, SpUt áfram á vítaspymuk-
eppni (1-1 samanl.)
Rabat Ajax (Möltu)-Inter Bratislava (Júgó)
...0-6, Bratislava áfram (16-0 samanlagt)
Lens (Frakkl.)-Gent (Belgíu)...2-1, Lens
áfram (3-2 samanl.) -MÓ/SÖE