Tíminn - 29.09.1983, Síða 12
FIMMTUDAGUR 29. SEPTEMBER 1983
12
heimilistíminn
umsjón B.St. og K.L.
Staf-
hestur
■ Stafhcstar hafa lönguni verið
vinsælir meðal yngstu kynslóðar-
innar, sem hefur gaman af að
valhoppa á þeim út um borg og
bý. Þennan einfalda stafhest get-
ur hver sem er gcrt. Það gæti t.d.
verið eaman fvrir stærri systkini
að spreyta sig á að búa þá til til
gjafa handa yngri systkinum. Og
ekki er hann dýr á fóðrum bless-
aður.
Staihestur
Efni: 100 g brúnt ullargarn, sem
passar við sokkaprjóna nr. 3,
50 gr, Ijósbrúnt ullargarnoggarn-
afgangar í bleiku. Vatt í uppfyll-
ingu cða bómull, sívalur stafur
eða kústskaft. 2 hnappar.
Hrukkurnar milli augnanna
Leggið góma vísi-
fingurs og löngu-
tangar milli auga-
brúnanna. Prýstið
þétt og nuddið upp
og niður í hálfa mín-
útu. Nuddið nú í
lárétta línu að gagn-
augunum og þaðan
yfir ennið á ská.
Sláið botninn í æf-
inguna með því að
nudda í hringi í 1
mínútu.
Hrukkótt augnlok
Leggið fingurgóm-
ana fjóra, alla utan
þumalfingra, á hvort
augnlok. Þrýstiðfast
á neðri brúnbeinsins
yfir augntóftinni.
Reynið að loka aug-
unum, en streitist á
móti með því að
þrýsta brúnunum
ákveðið upp með
fingurgómunum.
Lokið augunum, en
berjist á móti. Teljið
upp að 6. Slakið á.
Endurtakið 6
sinnum. Æfingin
tekur alls 1 mínútu.
Hrukkurnar á efri vör
Þekið efri vör með
kremi. Slakið á
munnvöðvunum.
Leggið nú vísifingur
í skarðið undir mið-
snesinu, en þumal-
fingur og löngutöng
við sitt munvikið
hvort. Prýstið nú
öllum fingrunum
saman fast, sex
sinnum. Slakið á.
Endurtakið 5
sinnum. Tími alls 1
rnínúta.
lO mínútur á dag
koma hrukkunum í lag
Fitjiö upp 80 lykkjur og skiptiö
þcim jafnt á 4 prjóna og prjóniö
slétt prjón í 35 cm. Þá hefjast
úrtökur. í upphafi fyrsta og
þriðja prjóns. 1 sl. 1., 2sl. I. sm.,
á öðrum og fjórða prjóni, þegar
3 lykkjur eru cftir: 2sl. I. sm. 1 sl.
I. Endurtakið þessar úrtökur í
annarri hverri umfcrð, þar til 32
lykkur eru eftir. Fellið af.
Eyrun: Fitjið upp 15 I. á tvo
prjóna og prjónið 4 cm slétt
prjón. Fellið af II í upphafi
hvcrrar umferðar, þar til lykkj-
urnar eru.allar felldar af. Prjónið
2 brún og 2 bleik cyru og saumið
þau saman tvö og tvö.
Frágangur:
Stoppið hesthausinn upp með
vatti eða bómull, þannig að hann
sé þéttur. Brjótið inn og saumiö
fast við hálsinn, cins og sést á
tcikningunni. Stingið stafnum í
hálsinn og neglið fast með tveim
litlum nöglum í gcgnum ennið.
Stoppið inn mcira vatti viö
hálsinn og dragið hálsmálið sam-
an um stafinn. Saumið eyrun á.
í faxið er Ijósbrúna garninu
vafið um papparúllu. Saumið
keðjusporum garnhólkinn áður
en hann er dreginn af rúllunni.
Saumiö nú l'axiö á hausinn.
Saumið á augu, cða þá saumið
á smáfilthringi og þar ofan á tvo
hnappa.
Heklið beislistauma úr garn-
afgöngum, eða finnið falleg bönd
heima fyrir í þá.
■ Getum við raunvcrulega hindrað hrukkumyndun í
andliti, eða slétt úr henni, ef hún er þegar farin að gera
vart við sig? Bandarískur snyrtisérfræðingur heldur því
- fram, að sé stuðst við eftifarandi ráðleggingar 10 mínútur
á dag, megi hafa hemil á hrukkunum. Pað sakar ekki að
próta.
Ein tástæða þess að húðin eldist í ótíma er sú, að
vöðvarnir slakna. Þegarvöðvarnir rýrna, missir hörundið
teygjanleik sinn og tekur að „hanga“.
Þessum æfingum er ætlað að byggja aftur upp andlits-
fyllingu og aðstoða við að auka blóðrásina út í yfirborð
húðarinnar, sem hefur í för með að hún verður sléttari
og hraustlegi. Þessar æfingar gera ekki kraftaverk yfir
nótt. En með þolinmæði og þrautseigju eiga áhrifin að
koma í Ijós eftir nokkrar vikur.
Æfingarnar má gera hvenær sem er, en best er að vera
ekki mjög þreytt, þegar þær eru gerðar. Það er gott fyrir
húðina að hressa hana við með því að skvetta á hana eða
úða sódavatni áður en hafist er handa við æfingarnar.
Síðan er best fyrir flestar æfingarnar að bera rakakrem á
andlitið. Berið ríkulega krem á vísifingur beggja handa
og beitið mjúkum hreyfingum, dreifið kreminu yfir
andlitið á eftirfarandi hátt. Nuddið frá hálsrótum að
höku, frá augabrún að enni. Við kinnarnar skuluð þið
vinna frá efri vör yfir „hláturs" línuna og upp að ytri
augnkrók. Gerið hringi umhverfis augun frá ytri augna-
krók undir augað, frá innri augnkrók yfir augnlok með
löngutöng einni.
Allar hreyfingarnar ættu að vera hægar og gætilegar.
Dragið húðina aldrei til eða strekkiðá henni. Þarsem það
getur teygt um of á húðvefjunum í kring. Það er
mikilvægt við þessar æfingar að hreyfa bæði húðina og
vöðvana undir í einu.
Upp með munnvikin!
Opnið munninn upp
á gátt og dragið var-
irnar yfir tennurnar.
Lokið munninum
hægt og sígandi en
skiljið eftir smárifu,
eins og þið ætluðuð
að fara að blístra.
Teljið upp að 5.
Endurtakið þrisvar.
Tími alls 1 mínúta.
Hrukkur frá nefi að munni
Berið á krem frá
nefi niður á efri vör.
Styðjið með tveim
fingurgómum við
hvort munnvik. Ýtið
nú fingurgómum
mjúklega upp að
nasavængjum eftir
hrukkulínunum.
Leggið þá alla fing-
urgómana saman við
nasavængina og
nuddið yfir kinnarn-
ar með stefnuaðefri
brún eyrnanna.
Endurtakið 6
sinnum. Tími alls 1
mínúta.
Hrukkur við ytri augnakróka
Ráðist gegn undirhökunni
Berið krem á allt
andlitið. Leggið lóf-
ana yfir kinnarnar.
Gætið þess að litlu
fingur séu við ytri
augnkróka og þrýst-
ið síðan húðinni upp
á við. Galopnið aug-
un, andið að ykkur.
Lokið munninum og
ýtið til hægri og blás-
ið um leið út hægri
kinn. Andið frá
ykkur. Endurtakið
tvisvar. Gerið á
sama hátt við vinstri
hlið. Tími 1 mínúta.
Teygið hnakkann
aftur og opnið
munninn upp á gátt
og lokið honum
aftur, 5 sinnum.
Setjið höfuðið aftur
í upprétta stöðu.
Teygið nú hökuna
niður og snúið síðan
höfðinu fyrst til
vinstri fjórum sinn-
um og síðan til hægri
jafn oft. Endurtakið
frá upphafi 4
sinnum. Látið
höfuðið að lokum
renna aftur á bak og
klípið mjúklega
spennta vöðva undir
hökuni milli þumal-
fingurs og kreppts
vísifingurs. Tími 1
mínúta.
Lyftið kjálkabörðunum
Leggið aðra höndina
ofan á hinaoghaldið
utan um hökuna.
Opnið munninn.
Reynið að loka
munninum hægt, en
togið á móti með
höndunum. Teljið
hægt upp að 25 á
meðan. Slakið á og
endurtakið þrisvar.
Tími 1 mínúta.
Stinnari undirhaka
Teygið hökuna fram
eins langt og þið
getið. Teygið neðri
vör eins langt upp
á efri vör og mögu-
legt er. Reynið að
ná allt upp að nefi
með neðri vörinni.
Þreifið nú eftir
strengdum punkti
rétt undir höku-
broddinum og teljið
upp að 15. Slakið á.
Endurtakið frá upp-
hafi þrisvar. Tími 1
mínúta.
Þroti umhverfís augun
Lokið augunum fast
og strekkið á vöðv-
unum þar. Opnið
augun mjög lítið og
mjög hægt. Haldið
spennunni í augn-
lokunum. Haldið
áfram að opna aug-
un hægtogteljiðupp
að 15 ámeðan. Slak-
ið á augnlokunum
og galopnið augun.
Lokið augunum og
endurtakið þrisvar.
Tími 1 mínúta.