Tíminn - 06.11.1983, Síða 9

Tíminn - 06.11.1983, Síða 9
SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1983 9 menn og málefni Alþýðubandalagið er óhæft til að verða f orustuf lokkur ■ Svavar Gestsson ræðir við Guðrúnu Heigadóttur Dauf þingbyrjun ■ Fjórar vikur eru liðnar síðan Al- þingi kom saman. Óhætt er að segja, að sjaldan eða aldrei hefur verið eins dauft yfir byrjun þings og að þessu sinni. Venjan er þó, að þingbyrjun sé mjög lífleg á fyrsta þingi eftir kosning- ar. Það hefur aldrei komið til teijandi brýnu á þinginu í þessar fjórar vikur. Stjórnarandstaðan hefur verið sérlega slöpp og bersýnilega skort sjálfstraust og áhuga til þess að láta að sér kveða. Mest áberandi hefur þó málefnafá- tækt hennar verið. Alþýðuflokkurinn hefur verið með nokkurn málaflutn- ing, en næstum eingöngu gamlar lummur frá fyrri þingum. Nýju flokk- arnir hafa verið ennþá geldari. Minnst hefur þó Alþýðubandalagið náð sér á strik. Það er varla hægt að segja að nokkuð hafi borið á þing- mönnum Alþýðubandalagsins. Helzt er það glíma þeirra Guðmund- ar J. Guðmundssonar og Ragnars’ Arnalds um ferðina til New York, sem vakið hefur athygli á því síðan þing kom saman, að þingflokkur Alþýðu- bandalagsins væri til. Ef til vill má finna eðlilega skýringu á þessu. Þingmenn stjórnarandstöðu- flokkanna finna, að þjóðin vill láta ríkisstjórnina fá starfsfrið meðan reynsla er að fást á því, hvort efnahags- aðgerðir hennar bera tilætlaðan árang- ur. Meðan það ástand varir, getur verið rétt hjá stjórnarandstöðunni að hafa hægt um sig. Nýtt Alþýðubandalag Þótt lítið fari fyrir Alþýðubandalags- mönnum á þingi, er ekki hægt að segja, að þeir séu með öllu útdauðir. Þvert á móti er nú unnið að því í kyrrþey að koma fleiri hækjum undir Alþýðubandalagið, líkt og þegar Héð- inn Valdimarsson var innlimaður í Kommúnistaflokkinn og Hannibal Valdimarsson í Sósíalistaflokkinn. Ætlunin er að breyta lögum Alþýð- ubandalagsins á landsfundi, sem hald- inn verður síðar í þessum mánuði, á þann veg að það verði bandalag fleiri flokka, svipað því og þegar Sósíalista- flokkurinn og Málfundafélag jafnað- armanna stóðu að Alþýðubandalaginu eftir innlimunina á Hannibal Valdim- arssyni. Markmiðið er að reyna að koma stjórnarandstöðuflokkunum fjórum undir merki Alþýðubandalagsins á þennan hátt. Rökin eru þau, að þeir geti myndað slíkt bandalag, þótt þeir haldi áfram að starfa sjálfstætt.And- staðan gegn ríkisstjórninni á að tengja þetta bandalag saman. Leiðtogar Alþýðubandalagsins gera sér góðar vonir um að Bandalag jafn- aðarmanna og Kvennalistinn gíni við þessu agni. Síðar verði svo hægt að láta þau renna saman við Alþýðubandalag- ið, líkt og málfundafélag jafnaðar- manna á sinni tíó. Vel gæti komið til mála, að Alþýðubandalagið breytti um nafn, enda nafnbreyting ekki ótíð á þeim flokki. Spurningin er hvort Alþýðuflokkur- inn verður tilkippilegur til slíkrar sam- vinnu. Hjá honum er farið að fenna í spor þeirra Héðins Valdimarssonar og Hannibals Valdimarssonar. Gott væri fyrir Alþýðuflokkinn að rifja upp sögu þeirra. Viðvörun Fyrir Alþýðuflokkinn, Bandalag jafnaðarmanna og Kvennalistann er ekki ófróðlegt að minnast þess, hver urðu úrslit síðustu borgarstjórnarkosn- inga í Reykjavík. Ósigur fráfarandi borgarstjórnarmeirihluta þá stafaði öðru fremur af því, að kjósendur litu svo á, að forustan væri í höndum Alþýðubandalagsins, þar sem það var langstærst flokkanna, sem mynduðu meirihlutann. Margir kjósendur óttuð- ust, að áhrif Alþýðubandalagsins yrðu of mikil af þessum ástæðum og yrðu enn meiri, ef sami meirihluti héldist áfram. Því fór að vísu fjarri, að Alþýðu- bandalagið réði í borgarstjórnarmeiri- hlutanum. Það varð að taka fullt tillit til samstarfsflokkanna. Það tókst hins vegar ekki að gera þetta nógu ljóst, enda ráku hinir öflugu fjölmiðlar Sjálf- stæðisflokksins óspart þann áróður, að Alþýðubandalagið drottnaði með harðri hendi íborgarstjórrrarmeirihlut- anum. Sá ótti, sem þannig skapaðist við Alþýðubandalagið, átti mikinn þátt í að afla fyrrverandi borgarstjórnar- meirihluta óvinsælda. Margar konur, sem höfðu hallazt að Alþýðubandalag- inu, gerðu sér grein fyrir þessu, og vildu því ekki lengur binda trúss við það. Þetta varð upphaf kvennafram- boðsins þótt fleira kæmi þar til sögu. Gleggst kom þetta svo fram í sjálfum borgarstjórnarkosningunum. Alþýðu- bandalagið ekki aðeins stórtapaði fylgi, heldur náði það einnig til sam- starfsflokka þess í borgarstjórninni. Framsóknarflokknum tókst að vísu að halda velli, miðað við borgarstjórnar- kosningarnar 1978, en rétti hvergi nærri við, miðað við fyrri borgarstjórn- arkosningar. Að sjálfsögðu var það ekki eina ástæðan, að margir kjósendur höfðu vantrú á forustu Alþýðubandalagsins, en hún var án efa mjög veigamikil. Af þessu dæmi og raunar mörgum fleiri má hiklaust draga þá ályktun, að Alþýðubandalagið getur aldrei orðið farsælt og sigurvænlegt sem forustu- flokkur íhaldsandstæðinga. Því valda ástæður, sem liggja í augum uppi og óþarft ætti að vera að rekja hér. Það er rétt, að það á ekki að vera markmið umbótasinnaðs fólks að kljúfa sig í marga flokka. Það er verkefni, sem bíður síns tíma, að sameina umbótaöflin. En ráðið til þess er ekki að Kvennalistinn, Bandalag jafnaðarmanna eða Alþýðuflokkurinn kalli yfir sig sömu örlög og Málfunda- félag jafnaðarmanna á sinni tíð. Pólit- ísk örlög Héðins og Hannibals eiga að vera til viðvörunar. Tilboð forsætisráðherra Það lá fyrir áður en fulltrúar launa- fólks gengu út á samráðsfundinum í fyrri viku, að ríkisstjórnin var reiðu- búin til viðræðu um breytingar á því ákvæði efnahagslaganna, sem tak- marka samningsréttinn til 1. febrúar, ef það fengist tryggt á móti að ekki kæmi til aðgerða, sem koma í veg fyrir það takmark ríkisstjórnarinnar að ná verðbólgunni niður í 30% á tímabilinu til 1. febrúar. í viðtali við Steingrím Hermannsson forsætisráðherra, sem birtist hér í blaðinu 26. f. m., segir um þetta á þessa leið: „Steingrímur sagði, að þjóðhags- áætlun hefði verið skýrð í upphafi fundarins, og þegar almennar um- ræður hefðu hafizt, þá hefði Ásmundur Stefánsson, forseti ASÍ, krafizt svars við þeirri spurningu hvort ríkisstjórnin væri reiðubúin til þess að fella niður ákvæðið um bann á samninga fram til 31. janúar, og sagðist forsætisráðherra hafa svarað þeirri spurningu á sama máta og hann hefði gert í þingræðu í fyrradag, en þar sagðist hann telja sjálfsagt að þingið skoðaði þann mögu- leika, og að ríkisstjórnin legði áherzlu á meginmarkmiðið, að koma verðbólg- unni niður í 30%. Ef það væri tryggt, þá teldi ríkisstjórnin vel koma til greina athugun á breytingu sem þessa á lögunum." Þrátt fyrir þetta tilboð af hálfu ríkisstjórnarinnar héldu fulltrúar laun- þega sig fast við þann sýningarþátt að ganga út af fundinum og hafna þannig viðræðum um breytingu á lögunum, sem þeir töldu þó að væri aðalatriðið. Undirstaða kjarasamninga Með þessari útgöngu hafa verið tafðar um sinn nauðsynlegar viðræður ríkisstjórnarinnar og stéttasamtaka um stöðu þjóðarbúsins og framtíðarhorf- ur, en þetta er grundvöllur raunhæfra samninga um kjaramál. Þegar hann er fundinn, er fyrst hægt í alvöru að ræða um þau meginmarkmið, sem hljóta að vaka fyrir launþegum, en þau eru þessi: í fyrsta lagi að tryggja atvinnuörygg- ið eftir því sem kostur er. 1 öðru lagi að tryggja kaupmátt launanna, en það verður ekki gert með krónutöluhækkunum, sem koma á stað nýrri verðbólguskriðu. í þriðja lagi að bæta kjör láglauna- fólks, m.a. með jöfnum kjaranna. Það er afleiðing af útgöngu laun- þegafulltrúanna, að viðræður um þessi stærstu hagsmunamál launafólks geta ekki farið fram að sinni. Reynslan sýnir ótvírætt, að aðilar vinnumarkaðarins þurfa ríflegan tíma til viðræðna um kjarasamninga, og þó einkum um þann grundvöll, sem samn- ingarnir verða að byggjast á, en það er afkoma aivinnuveganna og aðgerðir ríkisvaldsins á sviði fjárfestingar, skattamála og verðlagsmála, svo að nokkuð sé nefnt. Þess vegna þarf ríkisvaldið að koma inn í viðræður um þessi mál, eins og forsætisráðherra hefur stefnt að með samráðsfundun- um. Iðulega hefur komið til stór verkfalla vegna þess, að alvarlegar viðræður stéttarfulltrúanna hafa ekki hafizt fyrr en á síðustu stundu. Þess ber því fastlcga að vænta, að forustumönnum Iaunþega snúist hugur og þeir geri sér Ijóst, að mikilvægara er að hefja viðræður um undirbúning nýrra kjarasamninga en að iðka leik- sýningar. Leppríki Það voru hörmulcg tíðindi fyrir lýðræðisríkin, sem eru í bandalagi við Bandaríkin, þegar fréttir bárust af því, að bandarískur her hefði gert innrás á Grenada. Með því var sýnt, að Bandaríkin virða ekki sjalfstæði þjóða, þegar stjórn þeirra býður svo við að horfa. Gagnrýni sú, sem Bandaríkin hafa réttilega haldið uppi á yfirgangs- og ofbeldisstefnu Sovétríkjanna, hcfur orðið fyrir miklum hnekki. Þeim ferst ekki eins að gagnrýna hana og áður. Þótt innrás Bandaríkjanna væri hörmulegur atburður, er þátttaka litlu smáríkjanna á Karíbahafi í henni ennþá hörmulegri. Slík ríki ættu að telja það markmið sitt, að sjálfstæði ríkja væri haldið í heiðri. Það samræmist ekki slíkri af- stöðu að auðvelda yfirgangssömu stór- veldi innrás með því að tengja nafn sitt við hana. Þessi ríki hafa hins vegar sína af- sökun. Þau eru öll efnahagslega háð Bandaríkjunum. Flest þeirra hafa lít- inn eða engan efnahagslegan grundvöll, enda flest.orðið til á þann hátt, að gömlu nýlenduveldin hafa ekki viljað hafa af þeim fjárhagslega byrði. Þau verða því að treysta á Bandaríkin. Þetta sýnir það ljóst, hversu fjár- hagslegt sjálfstæði er mikilvægt. Pólit- ískt sjálfstæði er oftast ekki nema nafnið eitt, ef það byggist ekki á fjárhagslegu sjálfstæði. Þetta mætti vera fslendingum um- hugsunarefni. Erlendar skuldir þeirra eru orðnar svo miklar, að lítið má út af bera, t.d. vegna aflaleysis og tíma- bundins markaðshruns, ef þjóðin á ekki að verða fjárhagslega ósjálfstæð. Hiklaust má fullyrða, að þessi hætta muni stórmagnast, ef núverandi ríkis- stjórn tekst ekki að ná þeim árangri í efnahagsmálum, sem hún stefnir að. íslendingar þurfa að skilja hversu mikið er í húfi. Annars getur beðið þeirra svipað hlutskipti og smáríkj-' anna á Karíbahafinu. Þórarinn Þórarinsson, ritstjóri, skrifar

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.