Tíminn - 16.12.1983, Blaðsíða 21
jarðarfarir
FOSTUDAGUR 16. DESEMBER 1983
t
Móöir okkar
Sigurlaug Sveinsdóttir
frá Hiíð i Höröudal
Litlagerði 3
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 19. des. n.k. kl.
13.30.
Börnin
FÓLKÁFERÐ!
Þegar fjölskyldan ferðast
er mikilvægt
að hver sé á sínum stað
— með beltið spennt.
yUMFERÐAR
RÁÐ
Kirkjuritið
Kirkjuritið 3. og 4. hefti 49. árg. er nýkomið
út. A forsíðu er mynd af Marteini Lúther í
tilefni 500 ára afmælis hans, og í ritinu er
grein eftir dr. Gunnar Kristjánsson: Að finna
Lúther o'g sjálfan sig., og einnig ályktun
Prestastefnu 1983 um Lúthersárið. Sjónar-
horn, en þar undir eru margar smágreinar,
t.d. um Barnastarf og Æskulýðsstarf þjóð-
kirkjunnar eftir sr. Agnesi M. Sigurðardótt-
ur, og fl. Sagt er frá Prestastefnu 1983, herra
Pétur Sigurgeirsson biskup skrifar frásógn-
ina. Guðmundur Samúelsson arkitekt um
kirkjubyggingar í Þýskalandi. Margt fleira
efni er í ritinu, svo sem um kirkjulist,
minningarorð um sr. Þorgrím V. Sigurðsson
eftir dr. Jakob Jónsson, fréttir frá Prestafé-
lagi íslands o.fl.
- Sérrit um sjávarútvegsmál
■ Ritstjórnarspjall er um Gæðamál í
brennidepli, þá er Ratsjá, og er fjallað um
efni úr ýmsum áttum. Þátturinn Á döfinni
er um stöðuná á Bandaríkjamarkaði,
og hvort verðlækkunin á Bandaríkjamarkaði
hafi verið nauðsynleg. Grein er um útgerð-
ina, sem nefnist; Staðan er slæm í sjávarút-
veginum þegar á heildina er litið. Sagt er frá
notkun fiskikerja um borð í veiðiskipum og
sýningu í Bella Center sýningarhöllinni í
Danmörku, en þarvoru margar athyglisverð-
ar nýjungar sýndar. Sagt er frá fiskveiðum og
aflabrögðum.
(smar nefnist nýtt innflutningsfyrirtæki,
sem býður upp á byltingarkennd þráðlaus
upplýsingatæki frá Noregi. Grein er í ritinu
um skipasmíðar, og er þar sagt frá heimsókn
í skipasmíðastöð Þorgeirs og Ellerts á Akra-
nesi. Sagt er frá rekstri Farskips, og Skalla-
gríms hf. Grein er í blaðinu um Hansastaðinn
Hamborg og margar myndir þaðan. Margt
fleira efni er í ritinu, en ritstjóri er Steinar J.
Lúðvíksson.
Frá sýningu á jólaskrauti o.fl. í Þjóðminjasafni.
Bændajól og Borgarjól
í forsal Þjóðminjasafnsins hefur starfsfólk
þess sett upp dálitla sýningu á ýmsum
smámunum, sem tengjast jólunum og eru í
eigu safnsins sjálfs, Arbæjarsafns og einka-
eign. Þar má nefna jólakort frá því um
1890-1950, jólaskraut frá því um 1920-1960,
sýnishorn af heimagerðum jólatrjám og
myndir af jólasveinum.
Sýningin var opnuð almenningi á fimmtu-
dagskvöldið 15. des. kl. 8.30. Þár ræddi Árni
Björnsson þjóðháttafræðingur um breytingar
(Tímamynd Ámi Sæberg)
á íslenskum jólasiðum síðustu hundrað árin
frá bændajólum til borgarajóla.
Sýningin verður opin fram á þrettánda á
venjulegum opnunartíma safnsins, þriðju-
daga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga
frá kl. 13.30-16.00.
þórhildur
JL bhct islendingai kaupmánnahöfn
Þórhildur,
blað íslendinga í Kaupmannahöfn. 6. tbl. 1.
árg., er komiðút. Mikill hluti af efni blaðsins
er helgaður deilum íslendinga í Kaupnranna-
höfn, sem ekki er auðvelt að henda reiður á
fyrir ókunnuga. í blaðinu er viðtal við Hauk
Dór myndlistarmann, sem nú hefur búsetu á
gömlum búgarði í Danmörku ásamt fjöl-
skyldu sinni. Sagt er frá Islendingablöðum í
Skandinavíu, en auk Þórhildar eru gefin út 5
tímarit á vegum íslendinga f Skandinavíu.
Bera þau ólík nöfn, en athygli vekur nafn
það, sem (slendingafélagið í Óðinsvéum
hefur valið sínu blaði. Það heitir Þuríður og
er ekki ósennilegt að það komi Dönum
1 heldur undarlega fyrir sjónir!_
Hiynur,
4.-5. tbl. 31. árg., er kominn út. Að þessu
sinni er blaðið aðallega helgað 10 ára afmæli
LÍS. Skýrt er í máli og myndum frá 6.
landsþingi LÍS, sem haldið var að Bifröst
dagana 3. og4. sept. sl., en það var einnig 10
ára afmælishátíð LÍS. Þá er í blaðinu kynning
á aðildarfélögum LÍS. Margt fleira efni er í
blaðinu, en það er, eins og að líkum lætur,
helgað íslenskum samvinnustarfsmönnum.
Kveikt á jólatré í Hafnarfirði
Frederiksberg, vinabær Hafnarfjarðar í Dan-
mörku, hefur fyrir hver jól í rúman aldar-
fjórðung sent Hafnfirðingum veglegt jólatré
Jólatrénu frá Frederiksberg hefur verið kom-
ið upp á Thorsplani við Strangdötu og ljós
verða kveikt á því n.k. laugardag, þann 17.
desember, kl. 16.00. Við athöfnina leikur
Lúðrasveit Hafnarfjarðar og Karlakórinn
Þrestir syngur jólalög. Sendifulltrúi Dan-
merkur, frú Kersti Marcus, afhendir tréð og
ung stúlka af dönskum og íslenskum ættum
tendrar ljósin á jólatrénu. Einar i. Halldórs-
son, bæjarstjóri, veitir trénu viðtöku fyrir
hönd Hafnfirðinga. Jólasveinar verða á ferð
um bæinn á laugardaginn frá kl. 13.00 og
enda ferð sína við jólatréð á Thorsplani um
kl. 16:20, þar sem þeir hoppa og dansa
kringum tréð með börnum og fullorðnum.
Kveikt á jólatré í Kópavogi
Laugardaginn 17. des. kl. 16.00 vérður
kveikt á jólatrénu í Kópavogi. Dr. Esbjörn
Rosenbland sendiráðunautur mun afhenda
tréð sem er gjöf frá vinabæ Kópavogs í
Svíþjóð, Norrköping. Björn Ólafsson forseti
bæjarstjórnar mun veita trénu viðtöku fyrir
hönd bæjarbúa. Þá mun Skólahljómsveit
Kópavogs leika og Samkór Kópavogs syngur
nokkur lög. Jólasveiriar koma í heimsókn.
Jólatrénu hefur verið valinn staður á Borgar-
holtinu, þar sem það .hefur verið nokkur
undanfarin ár.
sundstadir
Reykjavík: Sundhöllin, Laugardalslaugin
og Sundlaug Vesturbæjar eru opnar frá kl.
7.20-20.30. (Sundhöllin þó lokuð á milli
kl.13-15.45). Laugardaga kl. 7.20-17.30.
Sunnudaga kl. 8-17.30. Kvennatímar I
Sundhöllinni á fimmtudagskvöldum kl.
21-22. Gufuböð I Vestubæjarlaug og Laugar-
dalslaug. Opnunartíma skipt milli kvenna og
karla. Uppl. I Vesturbæjarlaug I sima 15004,
í Laugardalslaug í síma 34039.
Kópavogur: Sundlaugin er opin virka daga
kl. 7-9 og 14.30 til 20, álaugardögum kl. 8-19
og á sunnudögum kl. 9—13. Miðasölu lýkur
klst. fyrir lokun. Kvennatímar þriðjudaga og
miðvikudaga.
Hafnarfjörður: Sundhöllin er opin á virkum
dögum kl. 7-8.30 og kl. 17.15-19.15 á
laugardögum 9-16.15 og á sunnudögum kl.
9-12.
Varmárlaug í Mosfellssveit er opin mánud.
til föstud. kl. 7-8 og kl. 17-18.30. Kvennatími
áþriðjud. ogfimmtud. kl. 19-21.30. Karlatím-
ar á miðvikud. kl. 19-21.30. Laugardaga opið
kl. 14-18, sunnudaga kl. 10-12.30. Sauna,
kvennatímar á þriðjud. og fimmtud. kl.
17-21.30, karlatimar miðvd. kl. 17-21.30 og
laugard. ki. 14.30-18. Almennir saunatímar í
baðfötum sunnud. kl. 10.30-12.30.
Sundlaug Breiðholts er opin alla virka
daga frá kl. 7.20-9 og 17-20.30. Sunnudaga
kl.8-13.30.
áaetlun akraborgar
Frá Akranesi
Kl. 8.30
kl. 11.30
kl. 14.30
kl. 17.30
I apríl og
sunnudögum
Frá Reykjavík
Kl. 10.00
kl. 13.00
kl. 16.00
kl. 19.00
kvöldferðir á
október verða
— í maí, júní og september
verða kvöldferðir á föstudögum og sunnu-
dögum. - I júlí og ágúst verða kvöldferðir
alla daga nema laugardaga.
Kvötdferðir eru frá Akranesi kl. 20.30 og frá
Reykjavik kl. 22.00.
Afgreiðsla Akranesi sími 2275. Skrifstof-
an Akranesi simi 1095.
Afgreiðsla Reykajvik, sími 16050. Sím-
svari i Rvík, simi 16420.
FIKNIEFNI -
Lögreglan í
Reykjavík, mót-
taka upplýsinga,
sími 14377
Halldór Þorsteinsson, Stóragerði 34,
Rcykjavík, sem andaðist 11. desember
sl., verður jarðsunginn í dag kl. 10.30
frá Fossvogskirkju. Hans verður nánar
getið í íslendingaþáttum síðar.
■ Baldvin Trausti Stefánsson, frá
Stakkahlíð, afgreiðslumaður á Seyðis-
firði verður jarðsunginn frá Fossvogska-
pellu í dag. Minningarathöfn fer fram í
Seyðisfjarðarkirkju í dag.
flokksstarf
Jólaalmanak SUF
Dregið hefur verið í jólaalmanaki SUF. Eftirfarandi
númer komu upp:
1. des.
2. des.
3. des.
4. des.
5. des.
6. des.
7. des.
8. des.
nr. 2200
nr. 2151
nr. 4025
nr. 804
nr. 9206
nr. 1037
nr. 1613
nr.8173
9 des.
10. des.
11. des.
12. des.
13. des.
14. des.
15. des.
16. des.
nr. 406
nr. 5912
nr. 4990
nr. 5944
nr.5498
nr. 8095
nr. 7456
nr. 6757
Jólahappdrætti
ins 1983.
Framsóknarflokks-
Dregið verður í jólahappdrættinu á Þorláksmessu 23. þ.m. og drætti
ekki frestað.
Þeir sem fengið hafa heimsenda miða eru vinsamlega beðnir að gera
skil sem fyrst.
Greiða má skv. meðfylgjandi gíróseðli í næsta pósthúsi eða
peningastofnun og einnig má senda greiðslur til skrifstofu happ-
drættisins Rauðarárstíg 18, Reykjavík.
Borgnesingar-Nærsveitarmenn
Spilum félagsvist í samkomuhúsi Borgarness töstudaginn 16. des.
kl. 20,30, síðasta kvöld í 3ja kvölda keppni.
Framsóknarfélag Borgarness
Til sölu
sem ný Olivetti rafmagnsritvél meö leiðrétt-
ingaborða.
Upplýsingar í síma 38614, e. kl. 17.00.
mitlMtlHTIU
Marteinn Lúlhor
1483 -1983
tímarit