Tíminn - 18.12.1983, Síða 32
32___
bækur
SUNNUÐAGUR 18. DESEMBER 1983
Msnútu
Wnun
KennethBlanchard
SpencerJohnson
Mínútu-stjómun
kemur öllum að gagni
Bókaútgáfan Vaka hefur gefið út metsölu-
bókina Mínútu-stjómun eftir Kenneth Bal-
anchard og Spenccr Johnson í þýðingu
Grétars Oddssonar. Bókin kennir á einkar
aðgengilegan hátt nýja stjórnunaraðferð,
sem nefnd hefur verið Mínútu-stjórnun. Hún
byggist á rannsóknum sem gerðar hafa verið
á því, hvernig árangursríkast er að haga
mannlegum samskiptum á vinnustöðum eða
í öðru samstarfi fólks.
í kynningu á bókarkápu segir:
Þessi athyglisverða stjórnunarbók er þegar
orðin margföid metsölubók víða um lönd.
Ástæðan er einfaldlega sú, að hún hefur ekki
brugðist. Hér er kennt hvernig á að stjórna
samstarfsmönnum með markvissum hætti;
hvernig á að virkja áhuga þeirra og hvetja þá
til dáða. Allir verða ánægðari og árangurinn
ótrúlegur.
Þetta er bók, sem gæti orðið ein besta
fjárfesting þín um langt skeið. Hún kynnir
þér leiðir til þess að auka stórlega árangur
þinn og samstarfsmanna þinna á örskömmum
tíma og það skiptir engu máli hvort vinnust-
aðurinn er stór eða lítill.
Bókin skorðast ekki einungis við atvinnu-
lífið, heldur má nota þessa aðferð til dæmis
í skólum og á heimilum. Efnið er sett fram í
söguformi og sýnt á einfaldan hátt á hvaða
meginatriðum aðferðin byggist. ( bókarlok
áttu svo að geta lagað hana að þínum eigin
aðstæðum.
MÍNÚTU-STJÓRNUN er sett og prentuð
í Steinholti hf., Prenttækni hf. prentaði
kápuna, sem Ragnheiður Kristjánsdóttir
hannaði, en Bókfell hf. annaðist bókband.
í-f*
tf
VERKAMANNABÚSTAÐIR í REYKJAVÍK
SUÐURLANDSBRAUT 30, REYKJAVÍK. SÍMI: 81240.
Umsóknir um íbúðakaup
Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík óskar eftir umsóknum um 74 íbúðir í Ártúnsholti og 31 íbúð
við Neðstaleiti í Reykjavík.
íbúöir þessar eru tveggja til fjögurra herbergja og veröa fyrstu íbúðirnar væntanlega afhentar síöla árs 1984
en þær síðustu haustið 1985.
Ennfremur er óskað eftir umsóknum um eldri íbúðir, sem koma til endursölu síðari hluta árs 1984 og
fyrri hluta árs 1985. Um ráðstöfun, verð og greiðsluskilmála þessarg íbúða gilda lög nr. 51/1980.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu V.B. Suðurlandsbraut 30, og verða þar einnig veittar allar
almennar upplýsingar.
Skrifstofan er opin mánudaga - föstudaga kl. 9-12 og 13-16
Umsóknum skal skila eigi síðar en 6. jan., 1984.
Vakin er athygli á að eldri umsóknir eru fallnar úr gildi.
Stjórn verkamannabústaða í Reykjavík
BILAPERUR
ODYR CÆÐAVARA FRA
MIKIÐ ÚRVAL .
ALLAR STÆRÐIR
AUGLÝSIÐ í TÍMANUM
64 kb. + Fullkomið ritvélalyklaborð (ekkert tannstönglapikk) + Forritanlegar hreyfimyndir (sprætur) + Hástafi/Lágstafi + Blokkgrafík Há-
upplausnargrafík + 16 liti + Innbyggt tengi fyrir sjónvarp og monitor + Innbyggt stýrikerfi fyrir diskettustöð og önnur jaðartæki + Inn-
byggðan skjástjóra + Hljóðgerfi með úttak fyrir magnara + Kost á fjölda forritunarmála og CP/M (BASIC innbyggð) + ÖFLUGAN BAK-
HJARL í LEIÐANDI TÖLVUFRAMLEIÐANDA, ÞEIM STÆRSTA Á SVIÐI EINKA- OG HEIMILISTÖLVA, SEM ÞÚ GETUR VERIÐ VISS UM
AÐ FER EKKI Á HAUSINN EFTIR JÓLAVERTÍÐINA. FRAMLEIÐENDUR FORRITA VÍSA VEGINN MEÐ AUKINNI ÁHERSLU Á FRAM-
LEIÐSLU FORRITA FYRIR COMMODORE.
FJÁRFESTU í FRAMTÍÐINNI MEÐ COMMODORE
F= ÁRMÚLA11 SfMI 81500
commodore
Tölvan sem öll
fjölskyldan hefur
beðið eftir
COMMODORE
64
Mest seldu heimilistölvurnar í
Bandaríkjunu
Hún er allt í senn:
Tölva viðskiptamannsins, nemandans, hinnar
hagsýnu húsmóður sem hugsar um heimilisbókhaldið -
skáksnillingur, hljóðfæri, kennari og afar fullkomið leiktæki.
Væntanlegt á næstunni:
íslensk útgáfa af frábæru ritvinnsluforriti og áætlunargerðarforrit sem er
öflugara en sjálft VISICALC. Ennfremur talgerfir og hljómborð sem gerir C-64
ígildi fullkomins skemmtara. Einnig fjöldi umtalaðra leikforrita, t.d. Miner og
Zaxxon og fyrsta teiknimyndaforritið fyrir heimiUstölvu, Lísa í undralandi.
Hvar annars staðar færðu allt þetta fyrir aðeins 14.700 kr.
nsl.os