Tíminn - 18.12.1983, Qupperneq 34
34
SUNNUDAGUR 18. DESEMBER 1983
■ Enginn maður var sjáanlegur við
hálfbyggðu íbúðarblokkina, þar sem
byggingarverkamennirnir voru löngu
flúnir. Baddawi, hinsta vígstöð Arafats
foringja Palestínuaraba hafði lengi legið
undir stöðugri stórskotahríð. Hver sem
gat leitaði skjóls í kjöllurum húsa eða
flúði upp í fjalllendið norðan við Líban-
on.
Tveir litlir vörubílar, annar rauður en
hinn blár, koma þjótandi að blokkinni
og á pallinum tróna eldflaugar. Þeir nota
stigana, sem enn er ekki búið að setja
þrepin á, sem veg er þeir aka eftir upp á
sjöttu hæðina. Ökumennirnir eru sár-
ungir. Þaðan skjóta þeir eldflaugum
sínum í suðurátt þar sem sveitir upp-
reisnarmannsins innan PLO, Abu
Mussa, hafast við og herja á Baddawi.
Ungu ofurhugarnir, sem fremur má
kalla börn en karlmenn, eru í hópi leifa
þess liðsafla sem Arafat hefur yfir að
ráða. Arafat ræður yfir um 1000
inönnum, sem hann notar til að vcrjast
þeim 15.000 mönnum sem eru á bandi
samsærisforingjans. „Þeir lauga hendur
sínar í blóði barna okkar og kvenna,“
segir Arafat, þar sem hann er kominn í
sjálfheldunni. „Fyrr dey ég, en að ég gefi
mig þeim á vald.“
Meira en 1000 manns, þar á meðal
fjöldi barna, lést í átökunum á milli
Palestínumanna á dögunum. Eftir að
menn Arafats bjuggust um íTripoli, sem
er næst stærsta borgin í Líbanon, líktist
baráttan meir fjöldaslátrun en nokkru
öðru. Um það bil 50 sprengikúlunt
rigndi á hverri mínútu yfir stöðvar
Arafats við höfnina. Tugir þúsunda af
íbúum Tripoli reyndu að flýja blóðbað-
ið.
Að vísu hefur fjöldi fyrirmanna, svo
sem páfinn, Honecker og forystumenn
Evrópuráðsins í Brússel reynt að hafa
þau áhrif á Hafez Assad í Sýrlandi að lífi
Arafats verði þyrmt, - þótt ljóst megi
verða að pólitískur ferill hans sé allur.
Fyrir skemmstu var hann óumdeildur
talsmaður 4-5 milljóna Palestínuaraba.
Eftir að hann tók þá áhættu að ræða
við stjórnarandstöðumenn í ísrael og
sendimenn Bandaríkjanna, vakti hann
grunsemdir meðal fylgismanna hins rót-
tæka Abu Mussa. „Við viljum vopnaða
frelsisbaráttu," er kjörorð Abu Mussa.
En hvort hann h'efur óskorað fulltingi
þeirra sem hann segist berjast fyrir
liggur honum víst í léttu rúmi, - til
dæmis þcirrar 1.2 milljónar Palestínu-
manna sem búa á hernámssvæði ísraels-
manna á Vesturbakkanum og á Gaza-
svæðinu.
„Bræður berjast gegn bræðrum, þeir
drekkja palestínsku byltingunni í blóði.
„Khaled Hassan situr í litlu arkitekts-
skrifstofunni sinni í bænum Ramallah á
vestur-bakkanum. Klukkustundumsam-
an hefur hann fylgst með arabiskum og
ísraelskum fréttum af átökunum í tveim-
ur sjónvarpstækjum.
Þarna birtist Abu Mussa, fullur sigur-
vissu. Með tilstyrk sýrlenskra vopna og
lybiskra peninga hefur hann haft yfir-
höndina sl. sex mánuði. Arafat kom líka
á skjáinn þar sem hann sat í hinsta vígi
sínu í Baddawi og þreyttri röddu sór
hann að Sýrlendingar skyldu ekki lifa
þann dag að sjá ósigur hans.
Kahled Hassan, synir hans og menn úr
nágrenninu sitja við sjónvarpstækin og
koma ekki upp orði fyrir æsingi. Aðeins
af og til heyrist einhver heita á Allah að
láta reiði sína koma yfir vitfirringana.
• ■
'Jr i-r j. jg K j
\ gg- j
I J
f