Tíminn - 05.04.1986, Síða 2
! 2 Tíminn
<
Laugardagur 5. apríl 1986
Heildsölubirgðir
Veljið það
besta
„MEGNASTA FIRRA“
- aö hasshundarnir séu lélegir
Sjómanriablaðið Víkingur hefur
birt grein, [rar sem m.a. er greint frá
því hversu auðvelt sé að leika á
hasshunda fíkniefnalögreglunnar.
Björgvin Björgvinsson hjá fíkni-
cfnadeildinni var spurður um þær
kröfur sem gerðar eru til hundanna,
áður en þeir eru settir í að leita að
fíknicfnum.
„Hundarnir ganga undir mjög
strangt próf þar sem þeir eru látnir
firina ýmsar gerðir af fíkniefnum,
sem eru falin með ýmsu móti. Prófið
sem hundarnir eru látnir ganga undir
er sembærilegt við þau próf sem
notuð eru á hinum Norðurlöndunum
og Englandi.
Við erum mjög ánægðir með út-
komuna hjá hundunum og höfum
ekki ástæðu til þess að ætla að
nokkuð fari fram hjá þeim,“ sagði
Björgvin.
Varðandi greinina í Víkingi sagði
Björgvin: „Petta er ntegnasta firra
og dæmigerðar staðhæfingar manna
sem hafa lent í því að missa sinn
innflutning út af glöggskyggni hund-
anna. Að okkar mati er það rugl sem
haft er eftir manninum." -ES
llllllll VEIÐIHORNIÐ 111
Dansmeyjarnar svífa í loftinu í sýningu Ejóðleikhússins. Tímamynd Sverrir
UMSJÓN:EGGERTSKÚLASON
Sá bjarti
er kominn
Dró 35 sjóbirtinga
Fyrsti dagurinn í Varmá við Hvera-
gerði gaf vel. Sex stangir voru úti
fyrsta apríl og veiddust 75 sjóbirting-
ar. Ólafur Hauksson veiðimaður úr
Reykjavík dró tæplcga helming af
aflanum, en hann fékk 35 sjóbirt-
inga. Faðir hans. Haukur Haralds-
son, fékk fimmtán og allir veiddu
eitthvað.
Veiðihornið hafði tal af Hauki, en
Itann hefur veitt í Varmá í þrjátíu ár.
„Þetta er sennilega með því besta
sem ég hef komist í. Það var ekkert
af þessu niðurgöngufiskur, en það er
trú okkar sem höfum veitt eitthvað
að ráði í læknum, að fiskur gangi í
hann strax upp úr áramótum. Hluti
aflans var heldur mjóslegnari en
nýgenginn fiskur, en þó var nýgeng-
inn birtingur innan um. Aðeinsfjórir
af þeim fiskum sem veiddust voru
regnbogasilungar," sagði Haukur.
Hann á pantaðan annan dag í dag,
og sagðist hann vera viss um að fá
eitthvað þó svo það yrði varla - í
líkingu við fyrsta daginn. Mjöggóðir
fiskar voru innan um í aflanum og
allt upp í fjögur pund. Flestir fisk-
arnir veiddust í hyljum rétt fyrir
neðan þjóðveginn en þeir stærri
voru neðar. Fiskurinn tók nokkurn
veginn hvað sem var. Sumir tóku
maðk, aðrir rækju. Litlir spinnerar
gáfu vel og einnig flugan.
Góð byrjun í Rangá
Sjóbirtingsveiði hófst í Rangám
fyrsta apríl. Þann dag veiddust sex
sjóbirtingar, allir á fjórða svæði,
sem er fyrir neðan brúna á þjóðveg-
inum og niður undir ármót. Ekki er
Veiðihorninu kunnugt um þyngd
aflans, en oft veiðist góður sjóbirt-
ingur í Rángám. Þriðja apríl fengust
sjö fiskar á þessu sama svæði. Lítið
hefur verið pantað af veiðileyfum
enn, en þau fást í Hellinum á Hellu.
þungavinnuvelar
tyrir
(S
Orkumikhr rafgeymar
ogviðar.
Fást hjá
sítni 18401
Ein
GARÐA-
PLAST
hefur verið notað
við kartöflurækt
með góðum
árangri.
Timothy Beilby.
Garðaplast
★ Eykur uppskeruna
★ Eykur gæði kartafl-
anna
★ Styttir vaxtartímann
Sunnudags-
tónleikar
Timothy Beilby fiðluleikari og
Christopher Collis píanóleikari
munu halda tvenna tónleika í Reykja-
vík nú í vikunni, þá fyrri í Norræna
lnisinu á mánudag kl. 20.30 og þá
síðari í Gerðubergi á fimmtudag-
inn kl. 20.30. Þeir félagar
eru báðir Bretar og menntaðir
í Birmingham School of Music.
Á efnisskránni eru sónötur eftir
Handel, Beethoven og Brahms, verk
cftir Aaron Copland, Prokofief og
Saraste.
Christopher Collis.
Þjóðleikhúsið og íslenski dans-
Ookkurinn frunisýna á sunnudags-
kvöldið kl. 20.00 balletsýninguna
GARÐA
HVAÐ^
u. L - L U i.
Stöðugir ferðalangar sent byggð er
upp á þrem balletum eftir Hollend-
ingin Ed Wubbe.
Wubbe er í hópi virtustu dans-
höfunda nútímabellets og var m.a. í
síðasta mánuði veitt æðstu verðlaun
sem hollenska ríkið veitir einum
listamanni ár hvert. Wubbe er hér á
landi og stjórnar sjálfur þessari upp-
færslu ásamt Ton Wiggers.
Dansararnir í sýningunni cru Ás-
dís Magnúsdóttir, Ásta Henriksdótt-
ir, Birgitte Heide, Guðmunda
Jóhannesdóttir, Guðrún Pálsdóttir,
Helena Jóhannsdóttir, Helga
Bernhard, Ingibjörg Pálsdóttir,
Katrín Hall, Lára Stefánsdóttir,
Ólafía Bjarnleifsdóttir, Sigrún
Guðmundsdóttir, Örn Guðmunds-
son og tveir erlendir gestir: Patrick
Dadey og Morio Mamiya.
Frumsýning balletsins cr sunnu-
daginn 6. apríl en önnur sýning er
fimmtudaginn 10. aprt'l.
Siglingamálastofnun ríkisins:
Skyndiskoðanir
í verstöðvum
Siglingamálastofnun ríkisins
hefur boðað til skyndiskoðunar í
fiskiskipum í verstöðvum á Suður-
og Vesturlandi.
Munu tvcir skipaskoðunarmenn
fara saman í hvcrt skip og mun
tilviljun ráða því hvaða skip verða
skoðuð í hverri verstöð. Tekin
verða til athugunar fjögur til scx
atriði í hverju skipi, auk þess sem
gengið verður eftir athugasemdum
sem gerðar hafa verið við aðal-
skoðun á skipinu, ef einhverjar
eru. Skoðunin stendur yfir vikuna
14. til 18. apríl. Síðar verða ver-
stöðvar annars staðar á landinu
teknar fyrir.
Magnús Jóhannesson hjá Sigl-
ingamálastofnun ríkisins sagði á
blaðamannafundi, sem haldinn var
til þess að kynna skyndiskoðanirn-
ar, að með því að skoða vertíðarflot-
ann í lok vertíðar væri vonast til þess
að þversnið fengist af ástandi skipa
á vertíð.
Samkvæmt könnun sem Land-
helgisgæslan gerði árið 1985 í 139
skipum er Ijóst að víða er pottur
brotinn í málurn fiskiskipa. Nægir
að nefna að 7,2 prósent af þeim
skipum sem skoðuð voru, reyndust
vera án haffæmisskírteina.
Magnús sagði að með skoðun af
þessari gerð væri sjómönnum veitt
meira aðhald, og einnig væri
skoðunin til þess fallin að menn
nýttu sér þann frest sem stundum
er veittur til þess að kippa einstök-
um málum í lag.
Alls eru 44 atriði sem eru á lista
skoðunarmannanna og verður val-
ið af handahófi hvað tckið er til
athugunar. Öll þau atriði sem
skoðuð verða, verða tekin föstum
tökum. Sem dæmi um atriði sem
verða skoðuð má nefna neyðarstýri
og ástand rafmótors, brunadælur
og stútar. hreinlæti og umgengni,
reykköfunartæki og fleira. Eftir-
litsbók verður könnuð í hverju
skipi.
-ES
DANSFLOKKURINN
FRUMSÝNIR BALLET