Tíminn - 05.04.1986, Qupperneq 3
Laugardagur 5. apríl 1986
Tíminn 3
Tillaga í borgarstjórn:
Borgin eignist 10% íbúða
í húsnæði fyrir aldraða
- sem reist er á vegum félagasamtaka
Helstu sérfræðingar íslendinga í alnæmisfræðum kynna niðurstöður sínar fyrir blaðamönnum í gær.
AIDS breiðist út á íslandi:
Yfir 20 íslendingar
mældust með mótefni
Einn utan áhættuhópa með mótefni
Gerður Steinþórsdóttir borgar-
fulltrúi Framsóknarflokksins lagði
fram í borgarstjórn eftirfarandi til-
lögu:
Borgarstjórn samþykkir að borgin
eignist að minnsta kosti 10% íbúða
í húsnæði fyrir aldraða sem reist er
á vegum félagasamtaka. Er bér átt
við þær byggingar sem borgin tekur
að sér að reisa og reka þar þjón-
ustukjarna.
1 greinargerð með tillögunni segir
að sú stefna hafi verið tekin upp á
þessu kjörtímabili að hvetja félaga-
samtök til að byggja söluíbúðir fyrir
aldraða. Borgin hefur komið til
móts við þau með því að byggja
þjónustukjarna sem vissulega eiga
að nýtast fleiri en íbúunum en veita
þeim þó mesta öryggið.
{ ljósi þessa er það öldungis eðli-
legt og sjálfsagt að borgin eignist á
móti hlut í þeim íbúðum sem byggð-
ar eru hverju sinni. Borgin hefur
úthlutað að minnsta kosti fjórunt
lóðum til félagasamtaka á þessu
kjörtímabili þar af var tveimur út-
hlutað á síðasta fundi borgarráðs
fyrir páska.
Gerður sagði í viðtali viðTímann,
að mikil þörf væri á leiguíbúðum
fyrir aldraða þar sem hægt væri að
veita fullorðna fólkinu nauðsynlega
þjónustu. t>ar sem borgin greiðir
þjónustukjarna viðkomandi bygg-
inga 100% og sér um að reka þá væri
ekkert eðlilegra en að hún eignaðist
einnig nokkrar íbúðir til að leigja
þeim eldri borgurum sem ekki hafa
efni á að kaupa slíkar íbúðir.
Samkvæmt nýbirtum tölum sem
Landlæknisembættið hefur sent frá
sér hafa 23 íslendingar mælst með
mótefni gegn alnæmisveiru. Af þeim
eru 2 sjúklingar með alnæmi, 8 með
forstigseinkenni og 13 einkennalaus-
ir með merki smits. Nær allir þessir
23 eru úr áhættuhópum, hommar/
bisexual og eiturlyfjaneytendur.
Aðeins einn heterosexual hefur
smitast og hefur hann að öllum
líkindum smitast erlendis, og ein
kona er í hópnum. Tekist hefur að
hindra að dreyrasjúklingar smituð-
ust og þakkaði landlæknir það miklu
eftirliti með blóðgjöfum.
Ef beitt er talnakúnstum sem
þykja áreiðanlegar má gera ráð fyrir
að 100-200 íslendingar hafi smitast
og ekki komið til rannsóknar. Mikið
hefur dregið úr því að fólk leiti til
lækna til að láta rannsaka blóðsýni.
Sú mikla umræða sem var í fjölmiðl-
unum fyrir nokkrum mánuðum er
nú að mestu þögnuð og taldi land-
læknir að fólk væri orðið andvara-
lausara fyrir sjúkdóminum sem þó
væri engin ástæða til eins og sjá má
á tölunum hér að ofan. Hann taldi
brýnt að fólk í áhættuhópum leitaði
til heimilislækna og léti þá taka
blóðsýni til að fullvissa sig um að það
bæri ekki sjúkdóminn eða, ef það
væri með sjúkdóminn, til að fá
leiðbeiningar um hvernig það geti
mætt þeirri staðreynd. Pó svo menn
beri sjúkdóminn þarf það ekki að
þýða að þeir þurfi að breyta lífsstíl
sínum svo nokkru nemi.
Alnæmi virðist nú hafa náð há-
marki í Bandaríkjunum, þar sem
sjúkdómsins varð fyrst vart. Þar er
nú minni aukning á alnæmistilfellum
en verið hefur. I Evrópu heldur
aukningin hins vegar áfram.
Enn hefur ekki fundist nein með-
ferð sem getur læknað eða hægt á
sjúkdóminum, þó sífellt berist fréttir
þess efnis. Enn sem fyrr er eina
lausnin á að komast hjá því að
smitast af honum að stunda skírlífi.
I
J.S.B.
Opnum
Breiðholti
4. apríl
TÍMAR
FYRIR ALLA
Stjórnarfundur
Dómarafélags Reykjavíkur:
Hraði endurskoðun
dómstólaskipunar
Stjórnarfundur Dómarafélags
Reykjavíkur hefur samþykkt að
beina þeim tilmælum til ríkisstjórn-
arinnar að Safnahúsið verði gert að
dómhúsi Hæstaréttar íslands.
Fleiri ályktanir litu dagsins ljós, og
m.a. vilja dómarar að heildarend-
urskoðun dómstólaskipunar í land-
inu verði hraðað. Þá vilja þeir að
sú endurskoðun feli einkum í sér:
Aðskilnað dómstarfa og umboðs-
stjórnar í sem ríkustum mæli. Lög-
töku frumvarps til laga um lög-
réttu.
Dómarafélagið hvetur einnig til
þess að hraðað verði endurskoðun
laga um meðferð opinberra mála,
einkum með það fyrir augum að
málsmeðferð á héraðsdómsstigi
verði munnleg í ríkara mæli og
hlutur ákæruvalds verði þá að sama
skapi meiri en nú er, að komið
verði á fullri greiningu á milli
lögreglustarfa og dómstarfa. Loks
benti fundurinn á að ákvarðanir
héraðsdóms hefðu beinlínis leitt til
hlutfallslegrar lækkunar launa
dómara, frá því sem var.
-ES
Líkamsrækt J.S.B. opnar nýjan sal í Hraunbergi við Gerðuberg.
Kerffi I. Fyrir konur á öllum aldri. Flokkar sem hæfa öllum.
Kerfl II. Rólegir tímar fyrir eldri konur eða þær sem þurfa að fara var-
lega meðsig.
Kerffi III. Sérstakurmegrunarflokkur.
KerfilV. Aerobic J.S.B.
Okkar útfærsla af þrektímum með góðum teygjum.
Eldfjörugir „púl“ tímar fyrir stelpur og stráka.
STURTUR - SAUNA - NÝ OG GLÆSILEG AÐSTAÐA
INNRITUN HAFIN
JASSBALLETTSKÓLIBÁRU
SUÐURVERI
BOLHOLTI
HRAUNBERGI
& 83730
SIN FÓN1UHL JÓMSVEITISLANDS - - STJÖRNUTÓNLEIKAR
HÁSKÓLABÍÓI FIMMTUDAGINN 10. APRÍL KL. 20:30
SÖNGSVEITIN FÍLHARMONÍA Einsöngvarar: Sylvia McNair Sigríöur Ella Magnúsdóttir Guöbjörn Guöbjörnsson William Sharp Stjórnandi: Guömundur Emilsson STABAT MATER EFTIR ANTONIN DVORÁK
Miðasala í bókaverslunum Sigfúsar Eymundssonar, Lárusar Blöndal og í ístóni