Tíminn - 05.04.1986, Síða 4
4 Tíminn
Shari sjáuni við á miðvikudögum í HÓTEL-sjónvarpsþáttunum með Nina Hagen og kavalerinn.
stutt, dökkt og krullaö hár.
VIÐ UTHLUTUN VIDEO-VERÐLAUNA:
Nina og Shari vöktu meiri
athygli en verðlaunahafarnir
Hin þekkta þýska söngkona
Nina Hagen og Shari Beiafonte-
Harper (dóttir Harrys Belafontc
- en gift Harper) drógu að sér
allra augu þegar þær mættu ný-
lega viö úthlutun „Videó-verð-
iauna" í Anteríku. Pað lá við að
gestum svelgdist á kampavíninu
þegar þær gengu ■ salinn. Nina
var klædd í eitthvað sem átti að
vera kjóll, en var nánasl smábol-
ur með mislöngum perlukeðjum
og snúrunt dinglandi niður um
leggina. A höfðinu hafði hún
einhvers konar vængi eða fjaðra-
skrautogskærbleikt sjal á hand-
leggnunt. Við hlið sér leiddi hún
kavalera sem heitir Robbie Ro-
berts og hafði sá blárautt ný-
premanenterað hár!
Shari var í mjög stuttum
skærbláum pall íettukjól með
pínupilsi og hafði látið lita hárið
á sér blátt í stíl við kjólinn! -
nema hún sé bara með bláa
hárkollu.
Brúðkaupsferðin bjargaðist
- meö nálarstunguaðferð!
Það er ekkert undarlegt þó eitt-
hvaö láti undan þegar annað eins
gengur á eins og í Rocky-myndun-
um enda fær hetjan á sig ótal
pústra og högg, og afleiöing-
arnar geta komið í Ijós síðar.
Brúðkaupsferðin hjá Sly Stall-
one og brúði hans, Brigitte Niels-
en, hafði nærri „farið í vaskinn"
þegar brúðguminn varð altekinn af
óþolandi kvöl í öxl og baki. Til að
bjarga við málunum lét hann senda
einkaþotu eftir nálarstungusér-
fræðingi til Kaliforníu, - en brúð-
hjónin voru stödd í Acapulco í
Mexíkó.
Þau höfðu gift sig 15. descmber
og flogiö til Hawaii, dvalist þar í
góðu yfirlæti um tíma, en svo
ætluðu þau að eyða síðustu viku
hveitibrauðsdaganna í Acapulco
og eiga þar reglulega rómantíska
daga, scnt ávallt yrðu geymdir í
minni.
Þá setti giktarskömmin heldur
betur strik í reikninginn. Talið
var að gömul meiðsli hefðu tekið
sig upp hjá leikaranum, enda er
það ekki ótrúlegt. Það er ekki svo
lítil áreynsla að leika í þessum
boxaramyndum, og þá er Rambo
ekki st'ður erfiður. Stallone var svo
nískur á þessa síðustu daga að
hann vildi alls ekki gefast upp og
fara heim, heldur gerði þessa úr-
slitatilraun til að fá bata með
nálarstunguaðferðinni. Þegar sér-
fræðingurinn Itafði haft Itann í
tveimur nálarstungutímum voru
verkirnir horfnir. „Hvílíkur léttir!"
sagði Rocky-hetjan og brúðhjónin
gátu nú snúiö sér að því að njóta
síðustu daganna á baðströndinni í
Acapuleo og sigla og synda.
Stallone-hjónin áttu sinn upp-
áhalds veitingastað þarna á strönd-
inni og eigendurnir urðu miklir
vinir þeirra. Veitingakonan Bibi
bakaði köku þegar haldið var upp
á að lækningin hafði heppnast svo
vel sem raun bar vitni. Kakan var
hjartalaga og var skreytt með brúð-
hjónastyttu. Síöan var tekin mynd
af gestgjöfunum og brúðhjónum
og tertunni svo sem sjá má hér á
síðunni.
Brúðhjónin
með vinafólki
sínu í Acapulco
í Mexíkó þegar
allt lék í lyndi
og nálarstungu-
sérfræðingur-
inn hafði lækn-
að Stallone af
bakkvölununi.
Brigitte Niels-
en (t.v.) hin
Ijóshærða
danska fyrir-
sæta neitar að
kalla sig frú
Stallone, þó
hún sé gift sín-
um hcittelsk-
aða Sylvester
Stallone.
Laugardagur 5. apríl 1986
ÚTLÖND llllllllllll
FRÉTTAYFIRLIT
OOTMARSUN, Hollandi:
Fjármálaráðherrar EBE rædd-
ust við um styrkingu gjaldmiðla
innan Efnahagsbandalagsins.
Skömmu áður hafði franski
frankinn lækkað á gjaldeyris-
mörkuðum vegna orðróms um
að franska stjórnin ætlaði að
fella hann gagnvart þýsku
marki.
SAMEINUÐU þjóðirnar:
ísrael bað formlega um að fá
aðgang að skýrslu S.Þ. um
Kurt Waldheim og önnur skjöl
sem máli skiptu, frá stríðs-
glæpanefnd samtakanna.
Waldheim neitar því að hafa
tekið þátt í starfsemi nasista á
stríðsárunum.
BEIRÚT: Skriðdrekar, stór-
skotalið og jarðsprengjur voru
notaðar í hörðum átökum milli
múhameðstrúarmanna og
palistínskra hersveita I nánd
við flóttamannabúðir
Palestínumanna við Beirut.
MOSKVA: Bandarískur
þingmaður sagði að Gorbac-
hev hefði sagt sér að hann
væri trúaður á að annar topp-
fundur yrði haldinn milli þeirra
Regans, og Gorbachev setti
engin skilyrði.
AÞENA: Grikkland sagðist
myndi stjórna rannsókn á
sprengingunni sem varð um
borð í bandarískri farþegaflug-
vél yfir Grikklandi, og neitaöi
að ræða um kenninaar um að
kvenskæruliði hefði komið
sprengju fyrir í vélinni.
PARIS: Jaques -Cirac, for-
sætisráðherra, tilkynnti að
hann myndi heimsækja Fíla-
beinsströndina og Vestur-
Þýskaland á næstu tveim
vikum. Talsmaður Ciracs sagði
að hann væri ekki að reyna að
espa Mitterrand forseta með
þessu.
WASHINGTON: The
Washington Post sagði aö
Bandaríkjastjórn ætlaði að láta
Grænhúfumenn þjálfa upp-
reisnarmenn í Nicaraqua, til
að berja á stjórninni þar.
PRETORÍA: Talið er að
a.m.k. 30 manns séu týndir
eftir að öryggissveitum lenti
saman við þúsundir manna í
„heimalandi“ suður-afrískra
blökkumanna í síðustu viku.
Embættismenn sögðu að 11
manns hefðu látist í átökum
við lögreglu í Bophuthat-
swana.