Tíminn - 05.04.1986, Side 5
Laugardagur 5. apríl 1986
llllllllllllllllllllllllll ÚTLÖND lllllllllllllllllllllllilllllllllllllM
Tíminn 5
Verkföll herja á Noreg:
Verkamenn í olíuiðnaði
leggja niður vinnu í dag
120 þúsund iðnverkamenn boða verkfall í næstu viku
Osló-Rcuter.
Olíuverkamenn og vinnuveitend-
ur héldu samningafund í gær til að
reyna að afstýra verkfalli sem hefjast
átti í dag og myndi lama alla norska
olíu og jarðgasvinnslu. Þegar síðast
fréttist höfðu viðræðurnar ekki borið
árangur.
Verkamenn á olíuborpöllunum í
Norðursjó, sem framleiða um eina
milljón tunna af hráolíu á dag,
hótuðu verkfalli og vinnuveitendur
hótuðu á móti að setja verkbann á
alla sem starfa að olíuiðnaði ef af
verkfalli verður. Verkamennirnir
krefjast 28% kauphækkunar svo þeir
nái launajöfnuði á við aðra verka-
menn sem vinna úti á sjó.
Fjármálaráðherra Norðmanna,
Rolf Presthus, sagði í samtali við
Reuters, að ríkisstjórnin myndi lík-
lega ekki grípa inní deiluna, vegna
hins lága olíuverðs nú, þrátt fyrir að
ríkisstjórnin komi til með að tapa
um 130 milljónum norskra króna á
dag, meðan verkfall stendur yfir.
Verkamenn á könnunarborpöll-
um eiga einnig í vinnudeilu en
vinnuveitendur þeirra vilja koma á
launalækkun, þar sem ekkert sé nú
að gera fyrir slíka palla vegna olíu-
verðhrunsins.
Noregur stendur einnig frammi
fyrir því að 120 þúsund verkamanna
í ýmsum iðngreinum fari í verkfall í
næstu viku. Samningafundur var
boðaður í dag en ekki var mikil
bjartsýni á að sú deila leystist.
Drukku sönn-
unargögnin!
Nombasa, Kcnya-Reutcr
Fimm Kenyabúar hafa verið
sektaðir fyrir að drekka heima-
brugg sem hafði verið geymt í
anddyri dómshúss og átti að not-
ast sem sönnunargagn í dóms-
máli.
Fimmmenningarnir, fjórir
karlmenn og ein kona, fundust í
kaffistofu í dómshúsinu, þar sem
þau höfðu uppi talsverða ölteiti
og gæddu sér á veigunum.
Að sögn lögreglu kom það
fram við réttarhöld um morgun-
inn að bruggið væri geyrnt í
anddyrinu. Nokkrir áheyrendur
hefðu greinilega notað tækifærið
og hnuplað víninu.
Pau voru sektuð um 1200 skild-
inga, (2500 krónur) fyrir að
drekka í dómshúsi. Dómarinn
sagöi að þau hefðu greinilega
ekki iðrast gerða sinna.
Enn er þjarmað að Waldheim:
Neitar öllum
ásökunum
Segist aldrei hafa komið nálægt
„hreinsunaraðgerðum“ nasista
VVashington-Rcutcr
fsraelsmenn hafa formlega óskað
eftir því við Sameinuðu þjóðirnar að
fá í hendurnar skýrslu um Kurt
Waldheim, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóra S.Þ. og önnur við-
komandi gögn frá stríðsglæpanefnd
samtakanna. Þetta er gert vegna
þess að sá orðrómur verður nú æ
háværari að Waldheim hafi verið
nasisti í stríðinu.
Waldheim hefur staðfastlega neit-
að öllum ásökunum sem á hann hafa
verið bornar varðandi þátttöku hans
í starfi nasista á stríðsárunum. Ffann
segir að allar tilraunir til að koma
þessum sökum á sig séu gerðar til
þess að reyna að hindra það að hann
verði kjörinn forseti Austurríkis
þann 4. maí n.k.
Waldheim sat fyrir svörum hjá
bandarískri sjónvarpsstöð í gær og
þar sagði hann að hann hefði engu
að leyna varðandi fortíð sína. „Ég
get fullvissað alla um að það er
ekkert á bak við þær sögur sem eru
á kreiki," sagði Waldheim. Hann
bætti við að hann teldi að þessar
ásakanir væru runnar undan rifjum
meðlima í sósíalistaflokki Austur-
ríkis og væru til þess gerðar að koma
í veg fyrir kosningu hans.
Hann varð spuröur um þær ásak-
anir að hann hefði verið viðriðinn
„hreinsunaraðgerðir" í Júgóslavíu
árið 1942 og svaraði Waldheim því
til að hann hefði aldrei verið viðrið-
inn neitt þvíumlíkt. „Þetta er allt
hluti af samsæri gegn mér,“ sagði
Waldheim.
Fyrrum kanslari Austurríkis,
Bruno Kreisky, sagði í gær að hon-
um þætti eðlilegt að Waldheim gerði
grein fyrir ákveðnum eyðum í lífi
sínu á stríðsárunum. Kreisky er
heiðursformaður í sósíalistaflokki
Austurríkis. Waldheim ber hinsveg-
ar allt af sér og hefur m.a. sagt að
sér væri alveg sama þótt gluggað
væri í leyniskjöl frá nasistatímunum
sem geymd eru hjá Sameinuðu þjóð-
unum. „Það er allt í lagi mín vegna,
ég hef ekkert að fela,“ sagði Wald-
heim í sjónvarpsviðtalinu. Hann
mun mæta á blaðamannafund í
Austurrfki í dag.
Svissnesk yfirvöld verjast ítölskum vínum:
ENGANDAUDADRYKK
TIL 0KKAR LANDS
Tollveröir hafa þegar gert
um 40 þúsund lítra upptæka
Berne, Sviss-Reuler.
Svissnesk yfirvöld hafa lagt hald á
40 þúsund lítra af ítölskum vínum
sem innihalda ólöglegt magn af
tréspíritus. Eins og kunnugt er þá
hefur komið í Ijós að nokkrir vín-
framleiðendur á Italíu hafa notað
þetta efni í of miklum mæli og hafa
þegar 15 manns látist á Ítalíu vegna
þessa. Svissnesk yfirvöld eru ekki á
því að hleypa þessum dauðadrykk
inn fyrir landamæri sín. Hafa toll-
verðir ströng fyrirmæli um að gera
öll vín sem framleidd eru í héraðinu
Piedmont á Ítalíu upptæk. Talsmað-
ur yfirvalda í Sviss segir að allar
prófanir á ítölskum vínum sem nú eru í
landinu hafi leitt í Ijós að þau voru í
góðu lagi.
Haglél drepur ellefu
Dhaka-Reuter þyngd, skullu á norðurhlua landsins
Risastór haglél eyðilögðu fjölda í fyrrinótt.
moldarhúsa, urðu 11 manns að bana Stormur, sem gekk yfir Daka,
og særðu 42 í Bangladesh. Kulna og Chittagong á mánudag
Haglélin. sem voru allt að kíló að varðl6aðbanaogsærðinálægt200.
Kurt Waldheim kom til íslands árið 1973 þegar hann var framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna.
Dóttur-dóttir Stalíns
til Bretlands:
Óvíst um
móðurhennar
Dóttirin mun stunda
nám í Bretlandi
London-Rculcr.
Bretar hafa veitt dóttur-dóttur
Josef Stalins, Olgu Peters, leyfi til að
stunda nám í Bretlandi. Olga stund-
aði nám í Bretlandi þar til fyrir um
einu og hálfu ári er hún fluttist mcð
móðursinni, Svetlönu, til Sovétríkj-
anna. Olga er 16 ára og fædd í
Bandaríkjunum. Móðir hennar hef-
ur ekki fengið vegabréfsáritun frá
Sovétríkjunum og ekki víst að hún
fái að fara þaðan þó líklegt sé talið
að hún vilji það.
Aðalfundur
Samvinnubankans
Aðalfundur Samvinnubanka íslands hf. verður
haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal, Reykjavík,
laugardaginn 12. apríl 1986 og hefst kl. 13.30
Auk venjulegra aðalfundarstarfa verður lögð
fram tillaga um heimild til bankaráðs um útgáfu
jöfnunarhlutabréfa og tillögur um breytingu á
samþykktum vegna nýrra laga um viðskiptabanka
og stofnun veðdeildar.
Aðgöngumiðar og atkvæðaseðlar til fundarins
verða afhentir í aðalbankanum, Bankastræti 7,
dagana 9.-11. apríl, svo og á fundarstað.
Bankaráð Samvinnubanka Islands hf