Tíminn - 05.04.1986, Síða 8
8 Tíminn
Laugardagur 5. apríl 1986
IHIHIIllllllllll Iþróttir lllllllHHHHIIIIiiiai■ilihiiilllHIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIII;::lll':. .;..:i!l.iMÍIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIii!!i; I. ■,a;liliiil;lllllllllllllllllllllllil;;!ii':l' Jili;ilillllllllllllllllllllll!!li!i''':' .iiii!ili„i;;;;iillllllllllllllllllllllllll!l!i: ..i;;iililllllllllllllllllllllllllllllllllllll!l!ll|i;i'!:!11'" ..;;;ÍÍÍIIIII;!3mííII|M1ÍÍI
Unglingalandslið íslands í körfuknattleik sem fer til Frakklands ásamt þjálfurum sínum þeim Jóni Sigurðssyni og
Birni Leóssyni. Tímamynd Sverrir
Evrópumeistarakeppni unglinga í kröfu:
Eru færir í flestan sjó
- valdir hafa verið tíu leikmenn sem flestir leika í Úrvalsdeildinni
íslenska unglingalandsliðið í
körfuknattleik er á leið til Frakk-
lands til þátttöku á Evrópumeistara-
móti unglinga í körfu. Með íslend-
ingum keppa Finnar, Danir, Svíar
og Frakkar. Spilað verður í borginni
La Baule sem er skammt frá Nantes.
Þjálfari liðsins Jón Sigurðsson og
aðstoðarþjálfarinn Björn Leósson
hafa valið 10 pilta til fararinnar. Þeir
eru:
Lögreglan í ísrael er nú að rann-
saka hugsanlegt svindl ígetraunaleik
þeirra ísraela. Þeir tippa í hverri
viku eins og Frónbúar og er tippað
á átta 1. deildarleiki og fimm 2.
deildarleiki. Hópur glæpona mun
Guðmundur L. Bragason, UMFG
Jón Örn Guðmundsson, ÍR
Kristinn Einarsson, UMFN
Teitur Örlygsson, UMFN
Ólafur Gottskálksson, ÍBK
Jóhannes Karl Sveinsson, ÍR
Guðjón Skúlason, ÍBK
Magnús ívar Guðfinnsson, ÍBK
Þessir leikmenn eru flestir fasta-
menn í úrvalsdeildarliðum á fslandi
og því færir í flestan sjó. Með liðinu
verður einn dómari en það er Krist-
björn Albertsson og fararstjóri verð-
ur Kristinn Albertsson.
Mótið hefst þann 7. apríl með leik
hafa mútað 2. deildar leikmönnum
til að fá hagstæð úrslit og þannig
hagnast um 16 milljónir á getrauna-
þátttöku sinni. Það er ólöglegt að
svindla og því vill löggan hirða þessa
menn.
gegn Finnum en því lýkur á fimmtu-
dag með leik gegn Frökkum.
Tveir reknir
Brasilíska knattspyrnusam-
bandið hefur ákveðið að vísa
lcikmönnunum Eder og Sidney
úr brasilíska landsliðshópnum
vegna agabrota. Eder, sem er 28
ára og varð heimsfrægur vegna
frammistöðu sinnar með landslið-
inu á Spáni, var rekinn af velli ■
vináttuleik gegn Perú um daginn.
Hann sló mótherja strax á 30.
mínútu leiksins. Sidney meiddist
í síðustu viku en hlýddi ekki
skipun læknis liðsins um að hvfla
sig og var hann því rekinn. I stað
þeirra kemur í landsliðshópinn
Edivaldo. Hann er 24 ára og
spilar útherja eins og Eder.
Magnús Holgi Matthíasson, Rice University
Jón Þór Gunnarsson, Haukum
Getraunasvindl
Húsnæöisstof nun ríkisins
Tæknideild Laugavegi 77. R. Sími 28500
ÚtboÓ
Framkvæmdanefnd um byggingu íbúða- og dvalarheimilis
aldraðra Eskifirði, óskar eftir tilboðum í uppsteypu og gera
fokhelt hús aldraðra Eskifirði.
Húsið verður 315 m2, 3177 m3.
Verkið skal unnið samkvæmt teikningum og útboðsgögnum
nr. Æ.06.01 úr teikningasafni tæknideildar Húsnæðisstofnun-
ar ríkisins og skal skila 15. nóv. 1986.
Afhending útboðsgagna er hjá bæjarskrifstofu Eskifjarðar og
hjá tæknideild Húsnæðisstofnunar ríkisins frá þriðjudeginum
8. apríl n.k. gegn kr. 5.000.00 skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á framangreinda staði eigi síðar en
þriðjudaginn 29. apríl 1986 kl. 11.00 og verða þau opnuð að
viðstöddum bjóðendum.
F.h. framkvæmdanefndar
Tæknideildar Húsnæðisstofnunar ríkisins
NBA körfuknattleikurinn:
Pétur spilaði með
Gerði 10 stig og er bjartsýnn á framhaldið
Pétur Guðmundsson spilaði í
fyrrinótt með L.A.Lakers í banda-
rísku NBA körfuknattleiksdeild-
inni. Pétur var með í 24 mínútur og
skoraði 10 stig auk þess sem hann
hirti ein 9 fráköst. Pétur sagðist vera
mörg ánægður með frammistöðu
sína og var nokkuð viss um að fá
samning hjá liðinu fram á vorið. Ef
það tekst þá mun Pétur verða með í
úrslitakeppninni í NBA deildinni
sem hefst þann 16. apríl. Lakers
unnu leikinn í fyrrinótt 135-105 en
spilað var gegn Sacramento Kings.
Af öðrum leikjum í fyrrinótt má
nefna að Mavs unnu Nuggets 115-
114ogRocketsunnuSpurs 136-110.
Heilbrigt líf - Hagur allra
- Ávarp Samaranch formanns Alþjóðaólympíu-
nefndarinnar í tilefni alþjóðaheilbrigðisdagsins 7. apríl
Þann 10. maí 1982 hlotnaðist mér
sú ánægja að ávarpa 38. þing Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
í Genf. Þá sagði ég, að grundvall-
armarkmið stofnananna okkar
tveggja væru svo lík, að það væri í
rauninni furða, að samstarf skyldi
ekki hafa tekist með þeim fyrr. Þið
hafið sett ykkur að markmiði „Heil-
brigði fyrir alla árið 2000“ en við
stefnum að „íþróttum fyrir alla“.
Eitt af grundvallaratriðum
stofnskrár Alþjóðaólympíunefndar-
innar er, að hún verði:
- að vinna að því að efla þá líkamlegu
og andlegu eiginleika, sem eru
grundvöllur íþrótta
og
- að efla skilning ungs fólks hvert á
öðru og vináttu þess með því að efla
íþróttaandann, svo að við mcgum
byggja betri og friðsamlegri heim.
Það er í þessum tilgangi, sem
Alþjóðaólympíunefndin hefur tekið
þátt í öllu því starfi, sem orðið getur
þessum hugsjónum til framdráttar.
Stofnandi nefndarinnar, Pierre de
Coubertin, beindi athygli okkar að
mikilvægi margbreytilegra og heilsu-
samlegra íþróttaiðkana almennings,
enda taldi hann þær einn hornsteina
hcilsu, jafnvægis og þjóðfélagslegra
framfara.
Sjóðir þeir, sem ólympíuncfndir
einstakra ríkja hafa aðgang að, hafa
gert Alþjóðaólympíunefndinni létt-
ara að útbreiða íþróttir og að fá fólk
til að skilja gildi góðrar heilsu.
Alþjóðaólympíunefndin hefur aukið
átak sitt á þessu sviði, og má í því
sambandi nefna stofnun nefndar til
eflingar einstaklingsíþrótta á síðasta
ári og samstarf hennar við Alþjóða-
heilbrigðismálastofnunina um skipu-
lag og framkvæmd „Heilsukapp-
hlaupsins“.
„Heilsukapphlaupið" er barátta,
sem miðar fyrst og fremst að því, að
þremur markmiðum sé náð: líkams-
þjálfun, réttri næringu og því, að
einstaklingurinn geri sér grein fyrir
ábyrgðinni, sem hann ber á heilsu
sinni.
Svo að þessi barátta beri þann
ávöxt, sem vonast er eftir um heim
allan og takast megi að ná markmið-
inu „Heilbrigði fyrir alla árið 2000“
þá þarf að koma til aðstoð ríkis-
stjórna allra ríkja og heilbrigðis-
málastofnana, sem á þeirra vegum
starfa, auk þeirrar aðstoðar, sem
áhugamannasamtök um iþróttir og
bætt heilsufar veita.
Loks langar mig til að leggja á ný
áherslu á það, sem ég sagði í ávarpi
mínu til fulltrúa aðildarþjóða Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar
á 38. þingi hennar, er ég bað um, að
þær tækju höndum saman við æsku
heimsins, svo að við gætum hert
eftirsóknina eftir betra lífi, hreysti
og góðri heilsu; það yrði eina
kapphlaupið, sem sigurvegarar einir
tækju þátt í.
Leikir á Reykjavíkurmótinu
Eins og kunnugt er þá er Reykja-
víkurmótið í knattspyrnu hafið.
Tveirleikireru búnir. IRogÁrmann
gerðu jafntefli 1-1 og Fram vann KR
1-0. Liðunum í mótinu er skipt í tvo
riðla og spila í A-riðli: Víkingur,
Valur, ÍR og Ármann en í B-riðli
spila KR, Fram, Þróttur og Fylkir.
Hér fylgir leikjaskráin:
6. apríl: Víkingur-Valur
8. apríl: Fram-Fylkir
10. apríl: ÍR-Valur
13. apríl: KR-Þróttur
15. apríl: Ármann-Víkingur
17. apríl: Fylkir-Þróttur
íslandsmót í borðtennis
Fyrri hluti Islandsmótsins í borð-
tennis verður um helgina. Keppt
verður á laugardag (í dag) og hefst
mótið kl. 13.30. Keppt er í tvíliða-
leikjum drengja, stúlkna og sveina
auk annars. Seinni hluti fslands-
mótsinsverðurhelgina26.-27. apríl.
20. apríl: Víkingur-ÍR
22. apríl: Fylkir-KR
24. april: Valur-Ármann
27. april: Þróttur-Fram
29. apríl: Lið 1 úr A gegn 2 úr B
1. maí: Lið 1 úr B gegn 2 úr A
4. maí: Lið 4 úr hvorum ríðli
5. maí: Lið 3 úr hvorum ríðli
6. maí: Leikur um þríðja sœtið
8. maí: Úrslitaleikurinn
Allir leikirnir hefjast kl. 20.30 og
eru spilaðir á gervigrasinu í Laugar-
dal.
Þingvallagangan
Sldðafélag Reykjavíkur gengst
fyrir Þingvallagöngunni á
sunnudaginn og hefst gangan
klukkan 12 á hádegi. Keppt verð-
ur í 42 kílómetra göngu og einnig
í 21 kflómetra göngu. Lagt verður
upp frá Flengingarbrekku við
Hveradali og komið í mark á
Nesjavöllum og í Almannagjá.
Um páskahelgina fór fram svokallað Hi-C mót í körfuknattleik en það var
unglinganefnd KKÍ og Vífilfell hf. sem stóðu að mótinu. Keppt var í 4. og 5
flokki karia, 3. flokki kvenna og minnibolta. Alls tóku um 30 lið þátt í mótinu
og gekk það vel fyrir sig. Vífilfell veitti verðlaun að móti loknu. Haukar unnu
keppnina í 3. flokki kvenna og minnibolta en ÍR vann 4. flokk karla og ÍBK
vann 5. flokk karla. Myndimar era af sigurvegurum Hauka í kvennaflokki og
IBK 1 5. flokkl karia. Tímamynd Sverrir