Tíminn - 05.04.1986, Blaðsíða 9
Tíminn 9
Laugardagur 5. apríl 1986
Illlllllllllllllll! MINNING llllllllllllll lllllllllllllillllllllll llllllllllllllllllllllUllllllllllllllllllllll llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Björn Stefánsson
- fyrrverandi skólastjóri
Fæddur 9. nóvember 1914.
Dáinn 30. mars 1986.
Látinn er eftir langvinn veikindi
Björn Stefánsson fyrrv. skólastjóri á
Ólafsfirði á 7Zaldursári. Með Birni
er til foldar hniginn einn hinn mæt-
asti maður, sem ég hef átt samskipti
við og unnið með um áratuga skeið.
Svo var hann grandvar í öllu að
fágætt er. AhugiTians á hvers kyns
framförum í verklegum efnum og
menningarmálum og þjóðrækni hans
mætti vera hverjum manni fyrir-
mynd, en ekki síður framganga hans
í opinberum málum og öllum félags-
málum þar sem háttvísi réði í orðum
og athöfnum um leið og í engu var
slakað á um stefnu og örugga mála-
fylgju. Lífsskoðun Björns var jafn-
fastmótuð og prúðmennskan var
honum eðlislæg. Og aldrei lá hann á
liði sínu. Athafnasemi hans og dugn-
aður gerði hann að afkastamanni í
öllum störfum, sem hann tók að sér.
Heilsteypt skapgerð og skoðanafesta
mótaði allt hans líf og olli því að eftir
hann hlaut að liggja merkt ævistarf.
Björn Stefánsson var fæddur í
Héðinsfirði árið 1914, en fluttist
ungur að aldri til Ólafsfjarðar og
vann þar allt sitt æviverk. Hann var
með sanni elskur að heimahögum
sínum, undi hvergi nema þar, og
vildi hag Ólafsfjarðar og Ólafsfirð-
inga í öllu. En þótt Björn væri
átthagakær og ynni heimabyggð
sinni allt er hann mátti, skorti hann
hvorki víðsýni í almennum málum
né menntaáhuga og fýsn til fróðleiks.
Sjálfur gekk hann menntaveg, var
útlærður kennari og stundaði fyrst
og fremst kennslu og skólastjórn sér
tíl lífsframfæris. Að þeim störfum
gekk hann ekki með neinni hálf-
velgju, heldur lagði sig þar allan
fram, ekki aðeins með því að rækja
kennsluskyldu sína í þröngum skiln-
ingi og standa vel í stöðu sinni sem
skólastjóri, heldur stundaði hann
sérmenntun og endurhæfingu í
kennarastörfum alla ævi að kalla
meðan heilsan leyfði. í því var hann
fyrirmyndarmaður eins og í svo
mörgu öðru.
Félagsmálaáhugi Björns var
margslunginn. Svo áhugasamur
kennari og uppeldisfrömuður sem
hann var hlaut áhugi hans að beinast
að æskulýðs- og íþróttamálum, enda
lagði hann mikið á sig fyrir þau
málefni. En af eðlilegum ástæðum
er mér kunnastur og minnisstæðast-
ur áhugi hans á stjórnmálum, því að
á því sviði lágu leiðir okkar saman
og þar kynntist ég honum best.
Björn var forystumaður framsókn-
armanna í Ólafsfirði um áratuga
skeið og naut mikils trausts í sinn
hóp og almennra vinsælda. Hann sat
lengi í bæjarstjórn Ólafsfjarðar og
gegndi óteljandi öðrum nefndar- og
trúnaðarstörfum í þágu bæjarfélags-
ins. Hann var einnig aðalforystu-
maður samvinnumanna í Ólafsfirði
og varla mun ósérplægni hans og
sönn félagshyggja hafa komið betur
í ljós en í þeirri baráttu, sem sam-
vinnumenn hafa orðið að heyja á
þeim stað. í þeirri orrahríð var
Björn Stefánsson jafnan ótrauður
og trúr hugsjón sinni og sannfær-
ingu, þótt ekki brygðist honum hátt-
vísi og menningarleg framganga í
þeim viðskiptum.
Ljúft er mér að geta starfa Björns
Stefánssonar í þágu Kjördæmis-
sambands framsóknarmanna í
Norðurlandskjördæmi eystra. Við
stofnun sambandsins vorið 1960,
sem leiddi af breyttri kjördæmaskip-
an, sem framsóknarmenn voru þá
lítt hrifnir af, var Björn kosinn í
fyrstu stjórnina ásamt fleiri mætum
mönnum, og þá var lagður sá grund-
völlur að starfi kjördæmissambands-
ins og fyrirkomulagi kjördæmis-
þinga, sem haldist hefur óbrevtt að
öllu verulegu til þessa dags. Fyrstu
ár sambandsins og reyndar meðan
heilsa hans leyfði var Björn tíðum
fulltrúi á kjördæmisþingum, tók þar
mikinn þátt í störfum og kynnti sig
mjög að góðu. Um nokkurt skeið
var Björn með kjörbréf sem einn af
þremur varaþingmönnum Fram-
sóknarflokksins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra, en ekki tók hann sæti
á Alþingi.
Björn Stefánsson kvæntist eftirlif-
andi konu sinni, Júlíönu Jónsdóttur
frá Eiðum í Grímsey, 18. júlí 1944
og áttu þau alla tíð heima á Ólafsfirði
og ólu þar upp myndarlegan hóp
velgefinna barna sinna. Heimili
Björns og Júlíönu hef ég fengið að
kynnast nokkuð á ferðum mínum til
Ólafsfjarðar. Ýkjulaust held ég því
fram að það heimili sé eitt hið
nettasta og þrifalegasta sem ég hef
séð. Snyrtimennskan hjá þeim hjón-
um átti varla sinn líka, en þá er
reyndar nauðsynlegt að taka það
fram að falleg heimili og þrifnaður
hefur mér virst vera áberandi og
ánægjulegt einkenni í Ólafsfirði. Nú
gætu menn freistast til að halda, að
þau Björn og Júlíana hafi búið í
veglegu húsi og haft rúmt um sig. En
svo var ekki. Húsið var gamalt og
íbúð þeirra á jarðhæðinni enginn
breiðvangur. En svo var öllu vel
fyrir komið og slík var umgengnin
að þar virtist nægt húsrými og nóg af
öllu og ekki tiltökumál að hýsa
næturgest, ef ekki fleiri en einn
þegar svo stóð á. Matarmenning
húsfreyju og snyrtimennska hennar
í framreiðslu fór ekki fram hjá
gestum og hversu allt fór þarna
lipurlega fram í þröngri stofu, þótt
matargestir væru margir.
Nú eru leiðarlok hjá Birni Stefáns-
syni. Vinir hans og samherjar munu
ætíð geyma minningu hans í þakklát-
um huga og þakka honum samfylgd-
ina. Ekkju hans og börnum sendi ég
samúðarkveðju mína og konu
minnar.
Ingvar Gíslason.
„Flýt þér, vinur, í fegra heim;
krjúptu að fótum friðarboðans
ogfljúgðu á vængjum morgunroðans
meira að starfa guðs um geim".
Þessar ljóðlínur eftir Jónas Hall-
grímsson komu í huga mér þegar ég
settist niður í þeim tilgangi að skrifa
fáein kveðjuorð vegna útfarar
Björns Stefánssonar, fyrrverandi
skólastjóra, sem lést á Hornbrekku
í Ólafsfirði 30. mars s.l. á 72.
aldursári.
Þessi vísuorð eiga vel við Björn
sem var annálaður fyrir heiðarleika.
snyrtimennsku og vinnusemi. Þessir
eiginleikar gerðu hann að frábærum
stárfsmanni og embættismanni, enda
voru honum falin ýmis trúnaðarstörf
á lífsleiðinni og í framhaldi af því
finnst manni alveg sjálfsagt að Björn
glími við ný viðfangsefni í annarri
tilveru og fái „meira að starfa guðs
um geim“.
Ekki er ætlunin að rekja hér
æviferil Björns, enda þekkja aðrir
þann þátt betur og eru færari að
fjalla um hann, en ég vil þakka fyrir
góða viðkynningu og vinsemd í minn
garð og fjölskyldu minnar þau ár
sem við þekktumst.
Ég hitti Björn fyrst árið 1974.
Kynnin hófust með þéttu handtaki
og brosi sem náði líka til augnanna.
Mér féll strax vel við manninn.
Síðan liðu árin. Við hittumst stöku
sinnum en ekki oft fyrr en ég fluttist
til Ólafsfjarðar ásamt fjölskyldu
minni. Þá kynntist ég Birni betur,
enda komum við hjónin og synirnir
oft á heimili þeirra Björns og Illu í
Aðalgötu 20 og nutum þar mikillar
gestrisni og vináttu eins og svo
margir aðrir.
Þar hefur oft verið margt um
manninn og gestkvæmt, enda þurfti
Björn oft að taka menn með sér
heim í mat og kaffi. Þá var gott að
eiga góða konu.
Við Björn ræddum margvísleg
málefni og það var bæði fróðlegt og
skemmtilegt, enda ekki komið að
tómum kofanum hjá honum. Tvisvar
ókum við út í Ólafsfjarðarmúla. Þar
fórum við okkur hægt, Björn sagði
mér hin og þessi örnefni og rakti
sögu vegagerðar fyrir Múlann. Þetta
eru mér ógleymanlegar ferðir og
fyrir þær vil ég þakka.
Að leiðarlokum er bjart yfir tilver-
unni. Bjart vegna þess hvegotterað
geta rifjað upp góðar minningar og
vitnað til farsæls ævistarfs.
Því vil ég aftur gera orð Jónasar
Hallgrímssonar að mínum þar sem
hann segir í einu kvæða sinna:
„Gráti því hér enginn
göfugan föður,
harmi því hér enginn
höfðingja liðinn;
fagur var hans Iffsdagur,
en fegri er upp runninn
dýrðardagur hans
hjá drottni lifanda. “
En þrátt fyrir þennan fallega kveð-
skap þá fylgir líka söknuður og að
sjálfsögðu mestur hjá þeim sem best
þekktu Björn.
Við þjónin vottum Illu, börnunum
og aðstandendum öllum okkar
dýpstu samúð og þökkum innilega
fyrir vinsemd á liðnum árum.
Valtýr Sigurbjarnarson.
Árin líða, vinir og samferðamenn
hverfa yfir móðuna miklu og við
stöndum eftir fátækari en áður.
Björn Stefánsson fyrrverandi skóla-
Stjóri í Ólafsfirði er látinn, hann
andaðist í sjúkradeild Hornbrekku á
páskadag.
Björn var fæddur að Vík í Héðins-
firði 9. nóvember 1914. Þaðan flutt-
ist hann með fjölskyldu sinni að
Vatnsenda í Ólafsfirði árið 1922, þar
ólst hann síðan upp og starfaði til
fullorðinsáranna eða þar til mögu-
leikar sköpuðust til að ganga inn á
menntabrautina.
Hann stundaði nám við Héraðs-
skólana að Laugarvatni og Reyk-
holti. Kennaraprófi lauk hann frá
Kennaraskóla íslands árið 1942,
sama ár gerðist hann kcnnari við
Barnaskóla Ólafsfjarðar og gegndi
því starfi óslitið til ársins 1960 er
hann tók við skólastjórn þess skóla
og var skólastjóri til ársins 1977 er
hann varð að hætta störfum vegna
heilsubrests.
Þann 18. ágúst 1944 giftist Björn
eftirlifandi eiginkonu sinni Júlíönu
Jónsdóttur ættaðri frá Grímsey, hún
var þá ekkja og átti eina dóttur
Rakel Jónsdóttur sem búsett er í
Reykjavík. Þau Björn og Júlíana
eignuðust síðan saman fjögur börn
þau eru: Jón Þór verkfræðingur
búsettur á Álftanesi, Stafán héraðs-
læknir í Ólafsfirði, Ermenga Stefan-
ía kennari búsett á Hellissandi og
Hörður læknir dvelur við framhalds-
nám í Svíþjóð.
Þótt aðalstarf Björns væri helgað
Barnaskóla Ólafsfjarðar við kennslu
og síðar skólastjórn gaf hann sér
tíma til að sinna félags- og sveita-
stjórnarmálum enda hlóðust á hann
fjölmörg ábyrgðar- og trúnaðarstörf,
þar má þá t.d. nefna að hann var
formaður Framsóknarfélags Ólafs-
fjarðar í aldarfjórðung, og sat í
Bæjarstjórn Ólafsfjarðar fyrir það
félag í 8 ár. Fyrsti formaður íþrótta-
bandalags Ólafsfjarðar. í fram-
kvæmdanefnd byggingar Félags-
heimilisins Tjarnarborgar. Formað-
ur skátafélagsins Útverðir. Formað-
ur stjórnar Sparisjóðs Ólafsfjarðar í
8 ár. Björn var einlægur samvinnu-
maður og studddi af alhug sam vinnu-
félög, hann var íormaður stjórnar
Kaupfélags Ólafsfjarðar frá 1957 til
1977 og lagði fram mikið starf í þágu
þess félags.
Þegar hugmyndir vöknuðu um
gerð vegar fyrir Ólafsfjarðarmúla
var Björn þar í fararbroddi áhuga-
og baráttumanna, honum var falin
verkstjórn við fyrstu tilraunina til að
gera veg fyrir Múlann, en það verk
var unnið í sjálfboðavinnu og fyrir
samskotafé.
Ýmsum fleiri trúnaðarstörfum
gegndi Björn enda ósérhlífinn og
lagði mikla alúð við allt sem honum
var trúað fyrir, hann var einstaklega
vandvirkur og mikið snyrtimenni,
skilaði engu verkefni frá sér nema
mjög vel frá gengnu. Samviskusemi
Björns var einstök, hann mátti
hvergi vamm sitt vita og var ekki í
rónni fyrr en allt sem hann var að
fást við stemmdi nákvæmlega, það
sem hann tók að sér að gera og lofaði
stóð eins og stafur á bók, hann hefur
því áreiðanlega sett sér boðorðið
„orð skulu standa". Það var því gott
að eiga Björn fyrir samherja og
samstarfsmann, fyrir það færi ég
honum nú að leiðarlokum mínar
innilegustu þakkir. Fyrir hönd
Bæjarstjórnar Óláfsfjarðar færi ég
honum einnig þakkir fyrir mikil og
óeigingjörn störf í þágu byggðarlags-
ins.
Við Þórgunnur vottum eftirlifandi
eiginkonu, börnum, tengdabörnum
og barnabörnum innilega samúð.
Blessuð sé minning mæts manns.
Ármann Þórðarson.
SAMVINNUr" tryggingarL ÁRMÚLA 3 108 RFIYKJAVIK SÍM! (91)681411 V
Útboð
Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðir sem skemmst hafa í umferðaróhöppum.
Mazda 626 diesel árgerð 1986
Mitsubishi Lancer árgerð 1986
Subaruj 10 GL4 WD árgerð 1985
Skoda 105 árgerð 1985
Opel Ascona árgerð 1984
Mazda 323 árgerð 1983
Daihatsu Runabout árgerð 1983
Toyota Carina árgerð 1979
Subaru 1600 árgerð 1978
Volvo 244 DL árgerð 1977
Toyota Corolla árgerð 1976
Saab 99 árgerð 1976
Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9, mánudaginn 7. apríl 1986 kl. 12-16. Á sama tíma:
í Borgarnesi: Range Rover árgerð 1974
í Keflavík: Mazda 626 árgerð 1981
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga, Ármúla
3, Reykjavík eða umboðsmanna þriðjudaginn 8. apríl 1986 kl. 12. fyrir kl. 12,
Útboð
Hreppsnefnd Hveragerðishrepps óskar eftir tilboð-
um í jarðvinnu og steypuvirki skólphreinsistöðvar
við Varmá ásamt girðingu umhverfis svæðið.
Helstu magntölur eru:
Gröftur: 1370 m3
SteypaS250: 26 m3
Girðing: 305 m
Útboðsgögn verða afhent frá og með þriðjudegin-
um 8. apríl n.k. á skrifstofu Hveragerðishrepps,
Hverahlíð 24, Hveragerði og á Verkfræðistofu
Sigurðar Thoroddsen hf., Ármúla 4, Reykjavík
gegn 2000 kr. skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Hveragerðishrepps
fyrir kl. 11.00, föstudaginn 18. apríl n.k. og verða
þau þá opnuð þar að viðstöddum þeim bjóðendum
sem þess óska.
VERKFRÆÐISTOFA SIGURÐAR THORODDSEN HF
VERKFRÆÐIRÁÐGJAFAR FRV
Sjúkraliðar
Sjúkraliða vantar að dvalar og sjúkradeild Forn-
brekku Ólafsfirði.
Umsóknarfrestur til 24. apríl 1986 upplýsingar
gefur forstöðumaður í síma 96-62480.