Tíminn - 05.04.1986, Qupperneq 12
12 Tíminn
Orðsending frá
Lífeyrissjóði
verslunarmanna
Lífeyrissjóður verslunarmanna sendi í mars yfirlit
til allra sjóðfélaga um greiðslur til sjóðsins þeirra
vegna á síðasta ári, 1985.
Yfirlit þessi voru send á heimilisföng, sem sjóðfé-
lagar höfðu 1. desember 1985 samkvæmt
þjóðskrá.
Þeir sjóðfélagar, sem fengið hafa sent yfirlit, en
hafa athugasemdir fram að færa, svo og þeir
sjóðfélagar, sem telja sig hafa greitt til sjóðsins á
síðasta ári en ekki hafa fengið sent yfirlit, eru
beðnir um að hafa samband við viðkomandi
vinnuveitanda eða skrifstofu.
Lífeyrissjóður verslunarmanna
Útboð
Tilboð óskast í innréttingar í íbúðir fyrir aldraða að
Flúðum.
Um er að ræða þrjár 64 ferm. íbúðir og skal verkinu
lokið fyrir 1. júní 1986.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu Hrunamanna-
hrepps, Flúðum og hjá Skúla Norðdahl arkitekt,
Víðimel 55, Reykjavík, gegn 5000 kr. skilatrygg-
ingu.
Tilboðin verða opnuð að viðstöddum þeim bjóð-
endum sem þess óska, föstudaginn 18. apríl kl.
16.00 á skrifstofu Hrunamannahrepps.
Réttur er áskilinn að taka hvaða tilboði sem er, eða
hafna öllum.
Nánari upplýsingar gefur oddviti Hrunamanna-
hrepps í síma 99-6617.
Konur Árnessýslu
Kvöldvaka verður haldin fimmtudaginn 10. apríl að
Eyrarvegi 15, Selfossi.
Skemmtiatriði og kaffi á könnunni.
Hittumst sem flestar og verum hressar í vetur.
Nýir félagar velkomnir.
Félag framsóknarkvenna Árnessýslu
Aðalfundur
„Framnes hf.“
veröur haldinn i húsi félagsins, Hamraborg 5, Kópavogi, fimmtudag-
inn 10. april n.k. kl. 20.30. Dagskrá samkvæmt 16. grein félagslaga.
Hluthafar mæti vel og stundvíslega.
Stjórnin
FRAMSOKN
TIL FRAMFARA
Skrifstofan í Eiðsvallagötu 6 er opin
virka daga kl. 16.30 - 18.30.
Síminn er 21180
og það er alltaf heitt á könnunni.
Hittumst hress.
Framsóknarfélögin á Akureyri
Laugardagur 5. apríl 1986
MINNING illlllllllllllllllllllllli
Stefán Ketilsson
bóndi, frá Minni-Ólafsvöllum
Hann kvaddi hljóðlega, með hóg-
værð og æðruleysi, snemma að
morgni 25. mars. Nývaknaður af
nætursvefni, tilbúinn fyrir löngu að
hlýða kallinu, hvenær sem það
kæmi. Farinn að þrá hvíldina. Og
hvíldin kom.
Þannig var lífi Stefáns Kristins
Ketilssonar lifað í 87 ár, æðrulaus og
af hjarta lítillátur, gerði ekki kröfur
til annarra, en skilaði sínu langa
dagsverki með stöðugri vinnu frá
blautu barnsbeini til 79 ára aldurs,
er hann varð að lúta í lægra haldi
fyrir þrálátum sjúkdómi, og fæturnir
báru hann ekki lengur. Þá varð
sjúkrahúsið heimili hans um sinn.
Fæddur 24. apríl 1899 að Norður-
garði, Skeiðum. Foreldrar Stefáns
voru Ketill bóndi Jónsson og kona
•hans, Stefanía Stefánsdóttir. Fimm
systkini eignaðist Stefán, þrjú kom-
ust upp, Kristín, Margrét og Jón
Ágúst, en tvö létust ung, á fyrsta ári
og tveggja ára. Nú er Jón Ágúst einn
eftir, sjúklingur að Reykjalundi.
Ævikjör eru mönnum misjöfn
búin. Vistin á „Hótel Jörð“ (T.G.)
er eins konar fjölbrautaskóli, og
námsbrautirnar eru margar, sumar
virðast sumum þungar, aðrar léttar,
en þungt eða létt er afstætt hugtak,
og fer ekki síður eftir viðhorfi nem-
andans, hvort ofaná verður. Æðru-
leysi var eitt af aðalsmerkjum Stef-
áns Ketilssonar, og var það vel. Það
hjálpaði honum til að taka því, sem
að höndum bar, og gera betra úr
öllu.
Þegar Stefán var 7 ára varð Ketill
faðir hans að bregða búi vegna
langvarandi veikinda. Stefáni var þá
komið fyrir að Hvítárholti í Hruna-
mannahreppi, og þar var hann í rúm
4 ár. Þá sameinaðist fjölskyldan á
ný, er Ketill hafði fengið bata, og
hóf búskap að Auðsholti í Biskups-
tungum, en 1920 flutti Ketill að
Minni-Ólafsvöllum, Skeiðum, ög
bjó þar unz hann hætti búskap vegna
aldurs, og flutti til Reykjavíkur.
Sveitin, búskapur ogskepnur, sér-
staklega sauðkindin, voru líf og yndi
Stefáns. Hannhófbúskapmeðföður
sínum að Minni-Ólafsvöllum, er
hann hafði aldur til, og eftir að Ketill
hætti, tók Stefán við jörðinni einn.
Hann kvæntist lífsförunauti sínum
í 31 ár, Magneu Narfadóttur frá
Hafnarfirði, þann 9. maí 1938, en
hún andaðist 2. maí 1969. Magnea
var dugnaðarkona, og hún deildi
lífinu með Stefáni í meðbyr jafnt
sem mótbyr á meðan ævin entist.
Þau voru barnlaus.
Það varð hlutskipti bóndans og
dýravinarins Stefáns Ketilssonar að
þjást af heymæði lengstan hluta
ævinnar, og það svo, að hann varð
að hætta búskap árið 1946 og flytja
á mölina. Stefán var laghentur og
smiður góður, og stundaði húsa-
smíði í Reykjavík. en sveitin dró
hug hans stöðugt fast til sín. Hann
gat ekki unað lífi daglaunamanns í
Reykjavík lengur en 5 ár. 1951
keyptu þau Magnea húsin á jörðinni
Roðgúl á Stokkseyri, og hófu þar að
nýju búskap, og bjó Stefán þar til
1970, er hann varð að hætta vegna
veikinda, þá 71 árs, og orðinn ekkill.
Nokkru eftir andlát Magneu flutti
Stefán til frænda síns, Guðmundar
Valdimarssonar, sem nú er látinn,
og konu hans, Sigríðar Gísladóttur,
að Sætúni, Stokkseyri, og átti hann
heimili sitt hjá þeim og fjölskyldu
þeirra í 11 ár, og var hann mjög
þakklátur þeim hjónum og öðru
heimilisfólki í Sætúni fyrir þessi
góðu ár.
Stefán fékk bata veikinda sinna,
og þá fór hann fljótlega að vinna í
Hraðfrystihúsi Stokkseyrar hf., og
bætti enn 8 vinnuárum við, en varð
þá að láta af stöfum endanlega
vegna nýrra veikinda. Hann dvaldi á
Sjúkrahúsi Suðurlands, Selfossi,
seinustu 6 árin, og naut þar bestu
umönnunar lækna og starfsfólks.
Hann gat lengst af haft fótavist, og
átti betri stundir inni á milli.
Stefán var blíðlyndur og hafði
yndi af börnum. Hann laðaði börn
til sín án fyrirhafnar, og naut slíkra
tækifæra í ríkum mæli, þegar þau
gáfust. Hann hafði skoðanir á þjóð-
málum og öðrum málum, og lét þær
í ljós, án þess að reyna að koma
þeim inn hjá öðrum. Hann gat verið
kíminn og glettinn, þegar svo bar
við, og einnig fastur á sínu, ef það
átti við. Um trúmál var hann fámáll,
en gerði sér vel grein fyrir því, að
Lífið er einnig til skrifað með stórum
staf. Hann var vammlaus maður.
Stefán verður jarðsettur í dag,
laugardaginn 5. apríl, að Ólafsvöll-
um, Skeiðum, við hlið konu sinnar.
Minning um góðan dreng lifir.
Sigurður Gunnarsson
Guðbjörg Indriðadóttir
Brúnastöðum
Fædd 10. júlí 1941
Dáin 25. mars 1986
Öllum er ætlað að starfa á ákveðn-
um sviðum. Sumir skipta oft um
starf, aðrir ekki. Stundum er fólk
skyndilega kallað til annarra starfa -
fyrirvaralaust - burt úr þessum
heimi. Við stöndum eftir ráðþrota
°g spyrjum. Hvers vegna? Svipti-
byljir mannlegrar tilveru eru utan
þess sjónmáls, sem þekking okkar
nær til.
Guðbjörg á Brúnastöðum var
skyndilega kölluð brott. Kölluð frá
heimili sínu og fjölskyldu. Hún, sem
enn átti svo margt ógert. Við slíka
frétt finnst manni sem sól sígi í ægi
á dagmálum.
Ég kynntist Guðbjörgu fyrir fimm
árum og naut vináttu hennar, sem
var traust og fölskvalaus. Hún átti
svo margt að miðla öðrum. Sam-
verustundirnar urðu ekki ýkja marg-
ar - raunar alltof fáar. En þær voru
allar ánægjulegar og eftirminnilegar
-en umfrarn allt inniiegar. Alltafvar
hlakkað til næstu samfunda.
Guðbjörg hafði næmt fegurðar-
skyn og unni sveitinni sinni með
fannfergi á vetrum og bláberja-
brekkum á sumrum.
Það er sómi hverri sveit að hafa átt
slíka dóttur.
En milli fjörs og feigðar er aðeins
eitt fótmál. Nú er vinkonan úr
Fljótunum horfin til nýrra starfa.
Þar mun hún umvefja alla sinni
einlægu hlýju og í návist hennar mun
öllum líða vel.
Ríkharður, við Konni sendum þér
og fjölskyldu þinni innilegar samúð-
arkveðjur. Biðjum að faðir ljóss og
lífs veiti ykkur styrk.
Veginn framundan þekkjum við
ekki, en megi minningin um ástvin-
inn horfna verða ykkar leiðarljós.
Helga Bjarnadóttir.
Bílkó bætir þjónustuna
Þarna geta bíleigendur sprautað bíla sína sjálfir og sparað með því fjárútlát.
Bílaþjónustan Kópavogi hf., sem
ekki fyrir löngu flutti sig um set að
Smiðjuvegi 36 í rúmgott og bjart
húsnæði, hefur nú bætt þjónustuna
við bíleigendur enn frekar með því
að taka í notkun hundrað fermetra
fullkominn sprautuklefa fyrir þá
bíleigendur sem vilja sprauta bíla
stna sjálfir.
Sprautuklefi þessi er búinn öllu
því sem þarf til að tryggja sem
bestan árangur sprautunar, bæði
með yfirþrýstingi til að hindra ryk-
myndun og eins góðri loftræstingu.
Bíleigendur sem vilja vinna bíla
sína undir sprautun sjálfir geta
einnig fengið bíla sína sprautaða gegn
föstu gjaldi og eru þeir Sigurður
Óttar Hreinsson bifreiðasmiður og
Sævar Hallgrímsson bílamálari
mönnum til aðstoðar í því efni.
Einnig taka þeir að sér að vinna bíla
undir sprautun og fullvinna fyrir þá
sem þess óska.
Bílaþjónustan selur öll lakkefni
sem þarf til sprautunar á staðnum frá
„Valentine" og eru þau á hagstæðu
verði. „Blöndunarbar" er á staðnum
svo ekki eru vandkvæði á að fá rétta
litinn á bílinn.
Enn sem fyrr eru til sölu á staðnum
smávörur til bíla, öll bón- og
hreinsiefni ásamt kveikjuhlutum í
flestar tegundir bíla.
Alls geta 20 bílar verið samtímis í
húsnæði Bílkó að Smiðjuvegi 36 og
góð aðstaða til þrifa eða smærri og
stærri viðgerða og er lyftuaðstaða til
reiðu fyrir þá sem þess þurfa.
Aðaleigandi og framkvæmdastjóri
Bílaþjónustunnar Kópavogi hf. er
Vilhjálmur Þorláksson.
(Fréttatilkynning)