Tíminn - 05.04.1986, Qupperneq 14
14 Tíminn
IÐNSK0UNNIREYKJAVÍK
Iðnskóladagurinn er
í dag laugardag
Iðnskólinn í Reykjavík á Skólavörðuholti
verður opinn almenningi í dag laugardag
frá kl. 10-16, þar gefst tækifæri til að kynna
sér nám í löggiltum iðngreinum, tölvu-
tækni og tækniteiknun.
Nemendur veröa aö störfum í öllum verklegum greinum
og gestum gefst kostur á að ræöa viö nemendur og
kennara.
Atvinnufyrirtæki sækjast eftir tæknimenntuðu fólki, sem
hefur haldgóöa undirstöðumenntun.
í Iðnskólanum í Reykjavík miðast námsmarkmiöin við
að uppfylla þessar kröfur.
Komið í dag á Iðnskóladaginn og kynnið ykkur skóla-
starfið. Við munum leitast við að veita sem gleggstar
upplýsingar.
Kaffihlaðborð í matsal
Iðnskólinn í Reykjavík________________
k^RARIK
^ RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Deildarstjóri tölvudeildar
Rafmagnsveitur ríkisins auglýsa lausttil umsóknar
starf deildarstjóra tölvudeildar.
í starfinu felst:
- Stjórnun tölvudeildar.
- Skipulagning og áætlanagerð varðandi daglegan
rekstur.
- Stefnumörkun í tölvuvæðingu og notkun tölva.
- Ráðgjöf fyrir notendur.
Leitað er að manni með staðgóða þekkingu á
tölvumálum og/eða menntun á tölvusviði. Starfs-
reynsla er áskilin.
Upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður fjár-
málasviðs.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, aldur
og fyrri störf sendist starfsmannadeild eigi síðar
en 21. apríl nk.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi118
105 Reykjavík
Hiutabréf til sölu
Til sölu eru um það bil 28% af hlutafé í Hótel
Blönduós hf. Hlutabréfin eru í eigum sölufélags
A-Húnvetninga, Blönduósi og skal skila kauptil-
boðunum til Árna S. Jóhannssonar framkvæmda-
stjóra Húnabraut 4 Blönduósi í síma 95-4200 fyrir
30. þessa mánaðar. Seljanda skal heimilt að taka
hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.
Sölufélag A-Húnvetninga Blönduósi.
ST. JÓSEFSSPÍTALI
LANDAKOTI
Starfsstúlkur/menn
Okkar vantar starfsstúlkur/menn í eldhús, á
ganga og á röntgendeild.
Upplýsingar veitir ræstingastjóri alla virka daga milli
kl. 10.00-16.00 í síma 19600-259.
Reykjavík 3.4.1986.
Jörð óskast
Jörð óskast í skiptum fyrir 120 fermetra nýstandsetta íbúð á
2 hæðum.
Tilboð leggist inn á auglýsingadeild Tímans Síöumúla 15,
merkt 10.
MINNING
i' ,'Ot' ’i'iUb'j'.W.I
Laugardagur 5. apríl 1986
Olafur Sveinsson
Fæddur 5. júní 1902
Dáinn 5. mars 1986
Útför hans var gerð frá Fossvogs-
kirkju 17. mars.
Nú á vordögum lést Ólafur Sveins-
son hálfníræður að aldri. Hann var
einn þeirra eldhuga sem ellin virtist
ekki ná miklum tökum á, hugur hans
sfopinn fyrir heimspólitíkinni og
velfarnaði dagsins til hinstu stundar.
Hann var einn þeirra sona aldamóta-
kynslóðarinnar sem ekki hafði verið
mulið undir.
Barnsskóm sínum sleit hann á
Fljótsdalshéraði við leik og störf
sem uppeldi þeirra tíma byggði á.
Strax á unglingsárunum voru honum
fengin störf þau sem buðust til sjós
og Iands við hlið hinna fullorðnu þar
sem handaflið og kjarkurinn réð oft
hvernig til tókst.
En nýir tímar voru í nánd - nýir
frelsismótandi tímar voru þá þegar
mættir með vonina í farangrinum -
vonina um réttlátari skiptingu lífs-
gæðanna samhliða fögnuði yfir verk-
tækninni og öllu því sem létt gæti
mannshöndinni þrældóm fyrri tíma.
Ólafur Sveinsson varð strax sjálf-
kjörinn í fremstu víglínu í átökum
þessara lífsviðhorfa.
Kreppuárin urðu því ungum hug-
sjónamönnum mikil þolraun. Þeim
sem stóðu í eldlínunni - þegar
lífstilveran virtist ekki alltaf ætla áð
ganga upp. En sumum voru ókunn
þau hugtök að gefast upp eða hopa.
Ólafur tókst ekki á við lífið ein-
samall. Lífsförunautur hans Lilja
Júlíusdóttir var sá virki styrkur og
stoð sem hvergi hvikaði. Sín fyrstu
hjúskaparár hófu þau á Siglufirði.
f>ar fæddust þeim börnin þeirra þrjú
og heimili þeirra óx og styrktist.
Með þeim dvaldi alla tíð til hárrar
elli móðir Lilju frú Friðbjörg Júlíus-
dóttir, sem nú er látin.
Þau hjón Ólafur og Lilja áttu sér
draum um sveit og frelsi og þau létu
drauminn rætast. Árið 1944 byggðu
þau upp eigin gróðrastöð að Víði-
gerði í Biskupstungum. Þarræktuðu
þau garðinn sinn í þess orðs fyllstu
merkingu. Á þeim árum naut ég
gestrisni þessara elskulegu hjóna.
Þar var gott að stíga í hlað. Ég hafði
aðeins þekkt þau úr fjarlægð af
vörum foreldra minna. Milli Siglu-
fjarðar og Reykjavíkur var nægilega
langur vegur til þess að aðeins voru
farnar ferðir brýnna erinda. Lilja
hafði komið sem barn til dvalar á
foreldraheimili föður míns, ljósgeisli
sem þar yljaði með tilveru sinni. Því
var mjög kært með þeint föður
mínum alla tíð.
Á sumarferðum mínum í Víði-
gerði minnist ég daganna í glöðum
hópi æskufólks þegar við stöllur
lásum um „Sölku og Uglu“ í annað
og þriðja sinn án þess að þreytast
nokkru sinni á að tengja þær og máta
við kvenímyndina fram á við - með
sín önnur kitlandi og óljósari lífs-
munstur upp á vasann en tíðkast
höfðu. Þá var vor í lofti. Sérstaklega
minnist ég þó húsbóndans þar sem
hann sat fyrir miðju langborðinu í
eldhúsinu og hvatti til umbúðalausra
orðræðna og hló sínum sérstæða
snritandi hlátri sem varsvo samofinn
persónuleikanum og sagði svo mikið
um gáska og mýkt.
En tímar liðu, börnin iiurfu að
heiman og Ólafur og Lilja fluttu til
Reykjavíkur. Við Sogaveginn stend-
ur viðarhús umlukt stórum sígræn-
um trjám. Þar ræktuðu þau garðinn
sinn í nýju lífsformi ævikvöldsins.
Þau tóku heilshugar þátt í öllunt
þeim góðu stundum sem buðust.
Ólafur Sveinsson kvaddi þennan
heim í sama stíl og hann hafði lifað
lífi sínu. Sinn síðasta dag annaðist
Ólafur störf hversdagsins að vanda,
engu var breytt, en að kvöldi var
hann allur. Hann varð bráðkvaddur
að iieimili sínu, honum hafði því
orðið að sterkri ósk sinni að þurfa
aldrei á hjálp né hjúkrun í eili að
halda.
Síðast þegar við Ólafur hittumst
ræddum við rétt ókomna nýtíma
með sínum ógnum og með sínum
tilboðum sem fyrr, mættir með sína
fjarmiðlun inn á gólf til hvers og eins
með nýju gildismati á hlutunum.
Ólafur var þakklátur fyrir að hafa
lifað „gullöld hinna síðari" eins og
hann orðaði það. Blessuð sé minning
þessa mannkostamanns.
Elsku Lilju og börnum hennar
Ingibjörgu, Ásdísi og Kristjáni.
tengdabörnum, barna- og barna-
barnabörnum votta ég dýpstu samúð
mína. Einnig votta ég samúð mína
Skarphéðni Njálssyni, Keflavík,
fóstursyni þeirra hjóna.
Hólmfríður Árnadóttir.
Framboðslistar til
bæjarstjórnarkosninga
Eskifjörður
Framboðslisti Framsóknarfélags
Eskifjarðar (B-listinn) við bæjar-
stjórnarkosningar á Eskifirði 31. maí
1986.
1. Jón Ingi Einarsson, skólastjóri,
Lambeyrarbraut 8. F. 20.08.48.
2. Gísli Benediktsson, bankafull-
trúi, Strandgötu 21 A. F. 23.08.50.
3. Júlíus Ingvarsson, skrifstofu-
stjóri, Túngötu 11 B. F. 17.02.43.
4. Þorbergur Hauksson, verkamað-
ur, Svínaskálahl. 17. F. 11.11.54.
5. Þorsteinn Sæmundsson, kaupfél-
agsstj., Bleiksárhlíð34. F. 14.11.53.
6. Kristín I. Hreggviðsdóttir, hús-
móðir, Helgafelli 3, F. 29.06.45.
7. Magnús Pétursson, rafvirkja-
meistari, Strandgötu 3 C. F.
30.08.47.
8. Guðni Þór Elísson, vélstjóri,
Fffubarði 2. F. 26.05.56.
9. Davíð Valgeirsson, bifreiða-
stjóri, Túngötu 1. F. 21.05.40.
10. Sigrún Jónsdóttir, húsmóðir,
Bakkastíg 3 A, F. 09.09.59.
11. Jón B. Hlöðversson, sjómaður,
Strandgötu 59. F. 12.03.62.
12. Óli Fossberg, verkamaður,
Túngötu 2, F. 13.05.36.
13. Guðni R. Guðnason, stýrimað-
ur, Hlíðarendavegi4B. F. 02.11.63.
14. Geir Hólm, húsasmíðamcistari,
Hátúni 9. F. 09.01.33.
Listinn í Sandgerði
Listi Framsóknarflokksins í Mið-
neshreppi til sveitarstjórnakosning-
anna hefur verið samþykktur, og er
á þessa leið:
1. Sigurjón Jónsson, fiskiðnaðar-
maður.
2. Berglind Bergsdóttir, húsmóðir
3. Óskar Guðjónsson, málara-
meistari
4. Stefanía Jónsdóttir, húsmóðir
5. Gylfi Gunnlaugsson, skrifstofu-
stjóri
6. SigurðurSteingrímsson, vélstjóri
7. Hrefna Yngvadóttir, húsmóðir
8. Einar Friðriksson, fiskverkandi
9. Guðmundur Einarsson, bifreiða-
stjóri
10. Sigurður Guðmundsson, iðn-
verkamaður
11. Gunnar Haraldsson, sjómaður
12. Jón Frímannsson, vélgæslumað-
ur
13. Sigurbjörn Stefánsson, bóndi
14. Magnús Sigfússon, húsasmiður.
Framboðslisti framsókn-
armanna á Siglufirði
1. Skarphéðinn Guðmundsson,
kennari
2. Ásgrímur Sigurbjörnsson, um-
boðsmaður
3. Freyr Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri
4. Guðrún Hjörleifsdóttir, hús-
móðir
5. Ásdís Magnúsdóttir, skrifstofu-
maður
6. Steinar Ingi Einarsson, húsa-
smiður
7. Aðalbjörg Þórðardóttir, verslun-
armaður
8. Sveinbjörn Ottesen, framleiðslu-
nemi
9. Sveinn Þorsteinsson. húsasmiður
10. Karolína Sigurjónsdóttir, verka-
kona
11. Sveinn Björnsson, verkstjóri
12. Kolbrún Daníelsdóttir, deildar-
stjóri
13. Bjarney Þórðardóttir, húsmóðir
14. SverrirGuðjónsson, húsasmiður
15. Guðrún Ólöf Pálsdóttir, skrif-
stofumaður
16. Halldóra S. Jónsdóttir, húsmóðir
17. Sverrir Sveinsson, veitustjóri
18. Bogi Sigurbjörnsson, skattstjóri
Listinn var samþykktur á félags-
fundi þann 2. apríl s.l. Núverandi
fulltrúar gáfu ekki kost á sér aftur,
þeir Sverrir Sveinsson og Bogi Sigur-
björnsson.
Nýlega samþykkti bæjarstjórn Kópavogs að veita Svanhildi Kristjónsdótt-
ur 150 þúsund krónur sem viðurkenningu fyrir frábæran árangur í
spretthlaupum.
Svanhildur er 18 ára nemandi í Menntaskóianum í Kópavogi, ættuð úr
Bolungarvík. Hún hefur stundað æfingar og keppir fyrir Breiðablik í
Kópavogi.'Svanhildur stefnir að þátttöku í Ólympíuleikunum 1988.
Iþróttaráð Kópavogs kaus hana sem afreksmann ársins 1985 og
Rotaryklúbbur Kópavogs valdi hana sem íþróttamann ársins 1985.
Myndin er tekin við það tækifæri er bæjarstjórn afhenti henni
viðurkenninguna.