Tíminn - 13.06.1986, Blaðsíða 1

Tíminn - 13.06.1986, Blaðsíða 1
ISFILM H.F. mun gera barnamynd fyrir sjónvarpiö í sumar. Verkiö var boðið út og sóttu níu aðilar um en ísfilm var með lægsta tilboðið rúma eina milljón króna. Myndin heitir „Elías og Örninn" og hefur Viðar Víkingsson gert kvikmyndahandrit- iö eftir sögu Guðrúnar Helgu Sederholm. Þórhallur Sigurðsson mun leikstýra. MEIRIHLUTI hefur verið myndað- ur í Vestmannaeyjum eftir að meirihluti Sjálfstæðismannaféll þar í kosningunum. Framsóknarflokkur, Alþýðuflokkur og Al- bvðubandalaa hafa komið sér saman um samstarf á þessu kjörtímabili. Páll Zoph- oníasson mun gegna starfi bæjarstjóra áfram fyrst um sinn. HÆSTIRÉTTUR tekur fyrir í dag mál Sigurðar Adolfs Frederiksen sem dæmdur var til 17 ára fangelsisvistar fyrir morð er framið var við Skemmuveg í Kópavogi og íkveikju um borð í Boða GK þar sem tvær manneskjur voru um borð. Dómur Sigurðar er sá þyngsti er dæmdur hefur verið síðan Geirfinnsmálið vartekið fyrir. STÓRBÓK Þórbergs Þórðarsonar var mest selda sögubókin á Islandi í maí. Blómin á þakinu eftir Ingibjörgu Sigurðar- dóttur yar mest selda barnabókin og Fuglar íslands eftir Hjálmar R. Bárðarson var mest selda bókin í flokki annarra bóka samkvæmt talningu Kaupþings er tekur saman slíka lista mánaðarlega. ÞYRLA Landhelgisgæslunnar TF- GRÓ, var kölluð út í fyrrinótt og beðin um að flytja sjúkling frá Búðardal og til Reykjavíkur. Þyrlan lenti við Borgarspítal- ann 2 tímum og 20 mínútum eftir að ósk um aðstoð barst stjórnstöð Landhelgis- gæslunnar. Flugáhöfnin var ekki á vakt en var ræst út og brást svo skjótt við eins og tíminn gefur til kynna. VISITALA framfærslu hækkaði um 0,66% í mánuði og er nú 170,16 stig. Þetta samsvarar 23, 9% árshækkunar miðað við síðustu 12 mánuði, 12,6% miðað við síðustu þrjá mánuði og 8,2% miðað við síðasta mánuð. Af þessari hækkun stafa 0,2% af hækk- un á verði matvara, einkum eggja og mjólkurafurða, en að öðru leyti af verð- hækkun ýmissa vöru og þjónustuliða. PÁLL VALSSON fékk styrk úr Minningarsjóði dr. phil. Jóns Jóhannes- sonar prófessors. Páll vinnur nú að kandid- atsritgerð um skáldskap Snorra Hjartar- sonar og er þar fjallað um einkenni Ijóða Snorra og hvaða nýmæli hann hefur fært í íslenska Ijóðagerðagerð. Minningar- sjóðurinn er eign Háskóla íslands. SOLVEIG Georgsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Listasafns ASÍ. Sól- veig er 36 ára gömul, þjóðhátta, list- og fornleifafræðingur. Ellefu sóttu um þetta starf sem Þorsteinn Jónsson gegndi áður. PAN-HÓPURINN umdeildi hef- ur nú verið sakaður um að stunda vændi samfara sýningarstörfum. Bæði DV og Helgarpósturinn segjast í gærhafaörugg- ar heimildir fyrir þessu, og birta bæði blöðin viðtöl við Hauk Haraldsson fram- kvæmdastjóra hóþsins þar sem hann tekur ekki ólíklega í það að útvega rekkjunauta gegn gjaldi, bæði kvenkyns og karlkyns. JARÐBORANjR rikisins munu í sumar aðeins bora fyrir Hitaveitu Reykja- víkur á Nesjavöllum og er þar aðallega um að kenna fjárskorti. Verkefni Jarðbor- ana felast aðallega í því að bora eftir vatni fyrir laxeldisstöðvar víða um land. KRUMMI Það væri næst að tala um sögulegar ósættir Alþýðubandalag- Alþjóða hvalveiðiráðið: Grænt Ijós gefið á vísindaveiðar Samkomulag náðist um tillögu um tilhögun á sölu afurða hvala sem veiddir eru í vísindaskyni á fundi Alþjóðahvalveiðiráðsins í gær. „Það varð samkomulag um ályktun, sem við sættum okkur við og gengur út á það að skorað er á viðkomandi ríkisstjórnir með til- vísun til 8. gr. stofnsamnings sem kveður á um hvað skuli gera við afurðirnar, að afurðimar af hval- veiðum í vísindaskyni eigi fyrst og fremst að nota til „staðarneyslu“ (local consumption)", sagði Hall- dór Ásgrímsson í samtali við Tímann í gær. Halldór sagði að þetta setti á okkur þær skyldur, að nota afurðirnar til „staðarnotkun- ar“ að svo miklu leyti sem hægt væri, en benti jafnframt á að ekki hafi verið skilgreint nákvæmlega hvað hugtakið „staðarneysla" þýddi. „Það verður að hafa í huga að fellt var út ákvæði þar sem bannað var að verslað yrði með þessar afurðir á alþjóðlegum markaði, og, málið verður að skoðast í því ljósi,“ sagði Halldór ennfremur. Tillagan var samþykkt sam- hljóða þegar hún var loksins borin fram, en áður höfðu miklar umræð- ur átt sér stað á göngum og lokuð- um fundum. Aðspurður sagði Halldór að eng- in raunveruleg umræða hafi átt sér stað á fundinum sjálfum um rann- sóknaráætlun Islendinga, mestur tíminn hafi farið í þessa tillögu sem að lokum hafi verið samþykkt. Ýmis mál liggja enn fyrir fundin- um, en um þau mun ekki vera neinn ágreiningur og er búist við að fundarstörfum ljúki um hádegis- bilið í dag, föstudag. Sá sérstæði atburður gerðist á fundinum í gær að bandaríski vís- indamaðurinn Roger Payne, sem sat fundinn sem fulltrúi eyríkisins Barbuda & Antigua, var rekinn af fundinum. Hann reyndist ekki hafa fullnægjandi umboð stjórnar Bar- buda & Antigua. Payne neitaði hins vegar að víkja úr sæti sínu þrátt fyrir eindregin tilmæli forseta og samdóma álit fundarins. Málið var leyst á þann hátt eftir að hlé hafði verið gert á fundinum að hann fékk að sitja sem fulltrúi ýmissa vísindastofnana sem hafa áheyrnarfulltrúa á fundinum. -BG Hljómsveitin The Shadows hélt sína fyrstu tónleika hérlendis í gærkvöldi í veitingahúsinu Broadway, en hún niun halda eina sex tónleika á vegum Listahátíðar og Ólafs Laufdal áður en hún hverfur aftur heim til Englands. The Shadows gcrðu það gott hér á árum áður bæði einir sér og með Cliff Richard, og þeir gerðu það líka gott í gærkvöldi og léku á gítarana sína undir áköfum fagnaðarlátum áhorfenda. Á myndinni má sjá þá Bruce Welch, Hank Marvin höfuðpaur og aðalgítarleikara og Wayne Dobson sem ekki er alvöru skuggi enda spilar hann á bassa. Tímamynd-Péiur Ritstjórn Þjóðviljans er föst ofan í skúff u „Ef Svavar Gestsson verður ritstjóri Þjóðviljans þá tel ég að það væri mjög góöur kostur fyrir blaðið og hreyfinguna vegna þess að ég hef trú á því að hann hafi þá þjóðfélagslegu yfirsýn og víð- sýni til að bera að hann geti lyft Þjóðviljanum upp úr þeirri þröngsýni sem hefur einkennt hann að undanförnu," sagði Ás- mundur Stefánsson, forseti ASÍ, er Tíminn leitaði álits hans á hugmynd innan Alþýðu- bandalagsins um að gera flokks- formanninn að ritstjóra. Ásmundur sagði að Þjóðviljinn hefði að undanförnu ekki verið það málgagn fyrir hreyfinguna er honum væri ætlað. Ritstjórn hans hefði einungis túlkað sjónarmið einangraðs hóps innan flokksins og ekki gert eðlilega grein fyrir þeim hugmyndum og umræðum sem uppi eru í hreyfingunni. Og þar sem núverandi ritstjórn virtist ekki geta lyft sér upp fyrir skúffu- barminn og litast um væri annað- hvort að fá þar inn fólk úr öðrum skúffum flokksins eða að fá þar mann í ritstjórastól sem gæti tryggt það að fleiri raddir heyrð- ust í blaðinu. Aðspurður um afstöðu blaðamanna Þjóðviljans sagði Ásmundur að Þjóðviljinn væri málgagn ákveðinnar hreyfingar og það konri því fleirum en blaðamönnum blaðsins við hvað gerist á blaðinu. Ásmundur lýsti furðu yfir því er Tíminn hafði eftir áhrifamanni innan Alþýðubandalagsins í gær en sá kom fram með þá kenningu að Ásmundur væri að koma höggi á Svavar með því að ota honunt í ritstjórastólinn því Svavar fengi með því á sig svip Stalíns. Ás- mundur sagðist ekki sjá neitt rökrænt samhengi í þessu og taldi Ijóst að þessi maður væri snældu- ruglaður. Fundur í útgáfustjórn Þjóðvilj- ans verður haldinn á mánudaginn og þá mun koma í ljós hvort Svavar muni taka áskorun flokks- systkyna sinna um að taka sæti ritstjóra blaðsins. Hver svo sem niðurstaða þess fundar verður er ljóst að þeir félagar í Alþýðu- bandalaginu sem hafa lýst óánægju sinni með ritstjórn Þjóð- viljans munu ekki sætta sig við hana óbreytta. Blaðamenn Þjóðviljans héldu fund í gærmorgun þar sem þeir fjölluðu um stöðuna. Enginn blaðamanna lýsti yfir ánægju sinni með hugsanlega inngöngu Svavars en margar óánægjuradd- ir heyrðust og gáfu nokkrir blaða- menn það í skyn að þeir myndu ganga út ef flokkurinn sendi þeim nýjan ritstjóra. Átökin um Þjóðviljann eru nú komin upp á yfirborðið eftir að hafa kraumað undir niðri um langan tíma og sýnt er að þau muni riöla ýmsu innan Alþýðu- bandalagsins. - gse

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.