Tíminn - 13.06.1986, Blaðsíða 11
Tíminn 15
Föstudagur 13. júní 1986
llllllllllllllllllllllllllll ÍÞRÓTTIR lllilllllllllllllllllllllllllllllllliilllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllilllllllllllllllllliilllllllllllllllllill^
Tímamynd-Pélur
Eitt marka Valsstúlknanna í uppsiglingu. Þau urðu sex áúur en yfír lauk í gærkvöldi
ísiandsmótið í knattspyrnu - 1. deild kvenna:
Lauflétt hjá Valsstúlkum
Valsstúlkurnar unnu léttan sigur í
ÍBK í 1. deild kvenna á Valsvclli við
Hlíðarenda í gærkvöldi. Lokatölur
urðu 6-0 eftir að staðan í leikhlci
Itafði verið2-0. Hera Ármannsdóttir
var atkvæðamikil í leiknum og gerði
þrennu. Kristín Arnþórsdóttir,
Ragnheiður Sigurðardóttir og Ingi-
björg Jónsdóttir skoruðu einnig.
í Kópavogi áttu UBK og Haukar
að spila. Þar mætti dómari ckki fyrr
en hálftíma of seint. Haukunum
Iíkaði það ckki og vildu ekki spila.
Varð úr að dómarinn flautaði leikinn
af 1-0 fyrir Blika!!
í fyrrakvöld unnu ÍA-stúlkurnar
KR l-()meðmarki Karitas Jónsdótt-
HM í knattspyrnu:
Brassar í stuði
- unnu léttan sigur á N-írum 3-0 og hafa ekki tapað stigi
Brasilíumenn sýndu mikið sjálfs-
traust og öryggi í leik sínum er þeir
sigruðu N-íra 3-0 í lokaleik sínum í
D-riðli. Þeir sýndu líka Zico. Hann
kom inná í síðari hálfleik og virðist
vera að ná sér af meiðslum sínum.
Brassar hafa nú unnið alla leiki sína
í riðlakeppninni og virðast verða
sterkari með hverjum leik. Það var
Careca sem skoraði tvívegis í gær en
Josimar skoraði eitt ntarkanna.
N-írar voru slappir og átti Pat
„Spilum tii sigurs“
Sepp Piontek, þjálfari danska
landsliðsins í knattspyrnu sagði í
Mexíkó í gær að Danir myndu spila
til sigurs í leiknum gegn Þjóðverjum
í dag. „Vissulega höfum við hugsað
út í það hverjum við mætum annað
væri fáránlegt. En ég get fullvissað
þig um að við munum spila til sigurs
þó eflaust verði Marokkó f höfðinu
á leikmönnum," sagði Piontek.
Geri Danir jafntefli eða vinni þá
sigra þeir E-riðil og mæta Spánverj-
um í 16-iiða úrslitum. Vinni þeir
Spánverja mæta þeir hugsanlega
Sovétmönnum. Það lið sem verður í
2. sæti í E-riðli leikur hinsvegar
gegn Marokkó fyrst og ef sigur
vinnst þá sennilega gegn Mexíkó.
Virðist það auðveldari kostur fljótt
á litið.
ö
Jennings, sem spilaði sinn 119.
landsleik og varð 41 árs í gær ekki of
góðan leik auk þess sem hann og
miðverðir írska liðsins virtust vera á
skjön hvor við annan.
Mörkin tvö sem Careca gerði
koma honum í hóp markahæstu
manna með 3 mörk. Þess má geta að
Brassar fengu ekki á sig mark í
riðlakeppninni og mæta Pólverjunt í
16-liða úrslitunum.
Opið kvennamót
Fyrsta opna kvennamótið hjá
Golfklúbbi Suðurnesja verður
haldið í dag föstudaginn 20. júní
og hefst kl. 16:00. Leiknar verða
18h. m/án forgj. Skráning í inótið
verður í skólanum í síma 92-2908
fimmtud. 19. júní frá kl. 15.00-
21.00. Öll verðlaun eru gefín af
KOSTA BODA og eru mjög
vegleg.
Meistaramótið
Meistaramót Islauds í frjáls-
íþróttum, fyrri liluti, fer fram á
Laugardalsvclli 21.-22. júní nk.
Keppt verður í tugþraut karla og
sjöþraut kvenna, 10 kílómetra
hlaupi karla og 5 km kvenna, og
4x800 metra boðhlaupi karla.
Mótið er að þessu sinni í umsjá
frjálsíþróttadeiídar ÍR og þurfa
þátttökutilkynningar að berast
Jóhanni Björgvinssyni, Unufelli
33, eða skrifstofu FRÍ, á þar til
gerðum keppnisspjöldum, í síð-
asta lagi 18. júní nk. Þátttöku-
tilkynningu fylgi þátttökugjöld,
sem er krónur 200 á grein og 400
fyrir boðhlaup.
HM í knattspyrnu:
Caldere með tvö
- í léttum sigri Spánverja á Alsír í grófum leik
Spánverjar unnu Alsírbúa 3-0 í
D-riðli í gærkvöldi og tryggðu sér
þar með annað sætið í riðlinum og
leik við sigurvegarana í E-riðli í
16-liða úrslitum HM í Mexíkó.
Leikurinn í gær var grófur og ekki
áferðarfallegur. Spánverjar voru þó
mun betri og skoruðu öll mörkin í
lciknum. Caldere skoraði tvívegis
áður en Olaya bætti því þriðja við.
Þessi úrslit senda Alsírbúa heim
ásamt N-írunt en bæði liðin fengu
eitt stig í riðlinum. Spánverjarsýndu
í gær að þeir verða ekki auðsigraðir
í 16-liða úrslitunum en líklegt er að
þeir mæti Dönum.
Markakóngar
Markahæstu leikmenn á HM í
Mexíkó fyrir leikina í dag (V-
Þýskal. - Danmörk, Uruguay -
Skotland).
Elkjær Larsen og Altobelli með
4 mörk.
Jorge Valdano, Gary Lineker,
Careca með 3 mörk.
HM í knattspyrnu:
Hverjir mæta hverjum?
- Mætast Brassar og Danir í úrslitaleik? Þaö er möguleiki
Nú er nokkuð Ijóst hvaða lið
mætast í 16-liða úrslitunum á HM í
Mexíkó. í dag ræðst hvernig liðin
raða sér í E-riðli en við munum gefa
okkur að Danir vinni riðilinn, V-
Þjóðverjar verði í öðru sæti og
Uruguay verði í þriðja. Ef þetta
verður þá raðast 16-liða úrslitin á
þennan hátt:
Mexíkó-Búlgaría spila á Aztec-
leikvangnum í Mexíkó þann 15. júní
og sama dag mætast f Leon Sovétrík-
in og Belgía.
Þann 16. júní spila síðan
Argentína og Uruguay í Puebla og
Brasilía mætir Pólverjum sama dag
í Buadalajara.
Á þjóðhátíðardaginn 17. júní
spila ítalir og Frakkar á Olympíu-
leikvangnum í Mexíkó og Marokkó
mætir V-Þjóðverjum í Monterrey.
Að lokum spila 18. júní England
og Paraguay á Aztecleikvangnum og
Danmörk og Spánn í Queretaro.
Hér er greinilega um margar frá-
bærar viðureignir að ræða og verður
gaman að fylgjast með þeim á skján-
um hjá Barna Fel., en hann mun
sýna alla leikina beint nema leik
Marokkó og V-Þýskalands sem
verður sýndur laugardaginn 21. júní..
Nú til að leika sér örlítið lengur þá
ætlar Tíminn að í 8-liða úrslitunum
leiki saman eftirtalin lið. Lesendur
geta síðan spáð í áframhaldið eða
sett önnur lið í sæti þeirra sem fyrir
eru:
Brasilía-Ítalía
V-Þýskaland-Mexíkó
Danmörk-Sovétríkin
Argentína-England
Það er sjálfsagt að halda enn
áfram og nú er komið að undan-
úrslitunum. Segjum bara svo að
Argentína mæti Dönum og Brassar
mæti V-Þjóðverjum. Þá er góður
möguleiki á úrslitaleik á milli Dana
og Brassa!!!
Grænfoður
heyog
votney
Rúlluvél frá CLAAS skarar framúr, einföld, örugg og bindur í fasta og vel gerða
og jafna bagga, en það er sérstaklega þýðingarmikið.
CLAAS baggarnir verða vel lagaðir og þéttir.
Fyrirliggjandi R-34 baggastærð 1,2 x 0,9 m
R-44 baggastærð 1,2 x 1,2 m.
Öryggi í fóðuröflun
Kaupfélögin /sbúnabardeild
og
ÁRMÚLA3 REYKJAVÍK SÍMI 38900