Tíminn - 14.06.1986, Blaðsíða 3
Laugardagur 14. júní 1986
Tíminn 3
Steingrímur Hermannsson:
„Þetta gengur ekki,
þetta er óþolandi“
- boðar hert viðurlög við skattsvikum
„Þetta verður rætt og skoðað í
tengslum við fjárlagagerðina og ég
vona að eitthvað liggi fyrir nú fyrir
haustið," sagði Steingrímur Her-
mannsson þegar Tíminn spurði hann
hvort aðgerða væri að vænta í hertri
innheimtu skatta á næstunni. Stein-
grímur hefur lýst því yfir að ein
leiðin til þess að bæta stöðu ríkis-
sjóðs í tengslum við gerð fjárlaga
Borgarastyrjöld í Alþýðubandalaginu
vegna Þjóðviljans:
Svavar inn
og margir út
Það er nú orðið ljóst að Svavar
Gestsson verður ritstjóri Þjóðviljans
eftir helgi svo framarlega sem hann
kærir sig um það. Vissir hópar innan
Alþýðubandalagsins róa að því öll-
um árum að koma honum þar inn og
einhverjum af ritstjórninni út. Út-
gáfustjórn Þjóðviljans kemur saman
á mánudaginn og þá mun endanleg
ákvörðun um þetta mál verða tekin.
Svavar Gestsson hefur ekkert viljað
tjá sig um þetta mál en hann sagði í
samtali við Tímann á miðvikudaginn
að hann mundi íhuga þetta mjög
gaumgæfilega ef flokkssystkfni hans
gengju á eftir honum.
Á Þjóðviljanum eru menn með
blendnar tilfinningar gagnvart Svav-
ari sem hugsanlegum ritstjóra.
Nokkrir blaðamenn, m.a. Óskar
Guðmundsson og Sigurdór Sigur-
dórsson, hafa lýst því yfir að þeir
muni ganga út ef Svavar kemur inn.
Fjölmiðlum hefur borist bréf sem
tilgreint er að sé frá öðru starfsfólki
Þjóðviljans en blaðamönnum. Þar
er því lýst yfir að þetta fólk fagni því
ef Svavar verði ritstjóri. Tímanum
er kunnugt að margt af þessu fólki
finnist sem verið sé að egna því gegn
blaðamönnum í pólitískum leik,
enda er þetta bréf ekki undirskrifað
af persónum heldur einungis til-
greint að það sé frá starfsfólki hinna
ýmsu deilda. Tíminn hefur heimildir
fyrir því að Guðrún Guð-
mundsdóttir, framkvæmdastjóri
Þróunarfélagiö:
Einhugurum
nýja stjórn
Framhaldsaðalfundur Þróunarfé-
lagsins var haldinn í gær, en eina
hlutverk fundarins var að kjósa
stjórn, varastjórn og endurskoðend-
ur. Þessu var frestað á aðalfundi
félagsins fyrir nokkru vegna óeining-
ar um skipan stjórnarinnar. Aðeins
kom fram ein tillaga á fundinum um
skipan stjómar, en hana bám upp
Steingrímur Hermannsson forsætis-
ráðherra, Jóhannes Nordal seðla-
bankastjóri, og Björn Þórhallsson
varaforseti ASÍ og fráfarandi for-
maður stjórnar Þróunarfélagsins. í
stjórn félagsins voru kjörnir sam-
hljóða og án atkvæðagreiðslu: Dag-
bjartur Einarsson sem er fulltrúi
sjávarútvegs, Guðmundur G. Þórar-
insson sem er fulltrúi ríkisins, Ólafur
Davíðsson sem er fulltrúi iðnaðar-
ins, Ólafur B. Thors sem er fulltrúi
þjónustugreina, og Jón Sigurðarson
sem er fulltrúi Sambandsins. Vara-
menn voru kjörnir, Stefán Pálsson
bankastjóri Búnaðárbankans, Björn
Jósef Arnviðarson og Valgerður
Sverrisdóttir.
Þjóðviljans og eiginkona Ásmundar
Stefánsdóttur, hafi staðið á bak við
þetta bréf. - gse
fyrir næsta ár og til að vega upp á
móti fjárlagahallanum í ár sé að
herða innheimtu á sköttum og að
sú leið verði reynd áður en hugað
verður að öðrum tekjuöflunarleið-
um. „Eftir þá skýrslu sem birt var
rétt fyrir lok Alþingis þar sem segir
að skattsvik séu eitthvað yfir 3
milljarðar, en þetta var ein ýtarleg-
asta athugun sem á þessu hefur verið
gerð, þá tel ég mjög ríka ástæðu til
að leita allra leiða til að ná þessu inn.
Það næst kannski aldrei allt, en ég er
þeirrar skoðunar að stórhækka eigi
viðurlög og jafnvel beita aðferðum
eins og t.d. sviptingu verslunarleyfis
og þess háttar ef um ítrekuð brot er
að ræða. Þetta gengur ekki, þetta er
óþolandi og ég held að það sé hægt
að ná inn betur en gert hefur verið.
Þótt margir fjármálaráðherrar úr
mörgum flokkum hafi útaf fyrir sig
haft uppi viðleitni til þess að ná
þessum tekjumöguleika, þá held ég
að hægt sé að gera ennþá betur,“
sagði Steingrímur. - BG
VEIÐIHORNIÐ
Stærsti flugulaxinn
Stærsti
ennþá
flugulaxinn -
Þórður Ásgeirsson forstjóri Olís
hefur landað stærsta flugulaxinum
sem Veiðihornið hefur frétt af í
suntar. Fiskurinn sem vó 19,5 pund
tók Þingeying í Hólmataglinu í
Þverá í Borgarfirði fyrr í vikunni.
Fiskurinn var grálúsugur og viður-
eignin mjög fjörug að sögn Þórðar
þegar Veiðihornið hafði samband
við hann i gær. “Þetta var mjög
góður dagur. Ég fékk tvo til viðbót-
ar, sem voru einnig grálúsugir,"
sagði Þórður. Vel sat í laxinum og
stóð viðureignin milli forstjórans
og stórlaxins í rúmar fjörutíu og
fimm mínútur, og hafði forstjórinn
betur eins og áður sagði.
Vel hefur veiðst í Þverá og
Kjarrá það sem af er sumrinu.
Liðlega 160 laxar eru komnir á
land og flestir yfir tíu pund. Vart
hefur orðið við smærri fisk síðustu
daga.
14 punda múrinn
Norðurá hefur heldur sett niður
eftir góða byrjun. Áin er köld, og
hefur hitastig vatnsins farið niður í
þrjár gráður. Ríflega níutíu laxar
eru komnir á land, og verður það
að teljast frekar dræm veiði. Fimnt
fjórtán punda laxar hafa veiðst en
enn hefur engum tekist að ná til
stærri fiska þó vitað sé að hugur
flestra veiðimanna standi til þess.
Níu punda urriði í Litluá
Fyrstu níu dagana sem veitt var
í Litluá í Kelduhverfi veiddust 850
silungar, mest urriðar. Fiskurinn
er vænni nú en síðustu ár að sögn
Margrétar Þórarinsdóttur veiði-
varðar. Sá stærsti er níu punda
urriði og einnig hafa veiðst tveir
átta punda. Mikil ásókn er í veiði-
leyfi í Litluá.
Átján pundari úr Blöndu
Veiði í Blöndu hefur verið góð,
ef miðað er við byrjun síðustu ár.
38 laxar eru komnir á land. Þar af
veiddust 18 í fyrradag og var sá
stærsti 18 pund. Honum landaði
Gestur Guðmundsson sem er ann-
áluð aflakló að sögn Norðan-
manna. Sigurður Kr. Jónsson á
Blönduósi sagði í samtali við Veiði-
hornið í gær að þetta væri dræm
veiði miðað við hvernig það hefði
gerst best. „Ég man þegar við
opnuðum ána sumarið 1978, þá
komu á land 56 laxar á fjórar
stangir. Það er alvöru veiði sem
hægt er að tala um.“ sagði Sigurð-
Yfirheyrslur halda
áfram yfir Hermanni
Björgvinssyni
Vitnaleiðslur
eftir helgina
„Hreint loft hrein
samviska“ segir á
skilti í dómsslnum
Yfirheyrslur í máli ákæruvaldsins
gegn Hermanni Gunnari Björgvins-
syni héldu áfram í allan gærdag.
Olöf Pétursdóttir sakadómari í
Sakadómi Kópavogs yfirheyrð-
Hermann. Bornar voru undir hann
lögregluskýrslur sem innihalda fram-
burð hans, og Ijósrit af tékkum frá
viðskiptavinum hans og honum. All-
ir tékkarnir voru bornir undir Herm-
ann og hann staðfesti þá með þessum
orðum: „Ég kannast við hann.“
Þar sem málið er mjög viðamikið
tekur það langan tíma í flutningi og
vitnaleiðslur hefjast ekki fyrr en
þann átjánda. Búist er við dómi
rúmlega viku síðar.
Hermann var mjög snyrtilegur
þegar hann mætti í réttarsalinn í
gærmorgun. Klæddur svartri þunnri
sumarblússu með vfnrautt bindi og
hvít og rauðröndóttri skyrtu. Hann
virtist vera vel á sig kominn brúnn
og sællegur. _ES
Framtíðin á hjólum
Hann minnir á eitthvað úr Tom
Swift bókunum, þessi tilraunabíll
frá Subarú, sem verður til sýnis hjá
Ingvari Helgasyni um helgina. Svona
bílar eru ekki fjöldaframleiddir enn,
en hann er hér í tilefni af því að 10
ár eru liðin síðan Ingvar Helgason
fór að flytja inn Subarubíla til
íslands. Tímamynd: - Sverrir)
Fjárlagahalli næstu 2-3 ár
- fjárlagarammi fyrirliggjandi
Friðrik Sophusson varaformað-
ur Sjálfstæðisflokksins segir í einu
dagblaðanna í gær að ákveðnar
hugmyndir hafi verið ræddar og
samþykktar í ríkisstjórninni varð-
andi fjárlagagerð fyrir næsta ár.
Þegar Tíminn innti Steingrím Her-
mannsson forsætisráðherra nánar
eftir þessum hugmyndum sagðist
hann undrandi á því ef varafor-,
maður Sjálfstæðisflokksins væri að
tjá sig um þetta á opinberum
vettvangi. Steingrímur sagði, að
eins og venja væri á þessum árstíma
hafi fjármálaráðherra lagt fram
allra fyrstu hugmyndir um fjárlaga-
•ramma og að þessar hugmyndir
væru nú til meðferðar. Hann benti
hins vegar á að þær væru algert
trúnaðarmál enn sem komið væri
og því ekki hægt að ræða þær í
fjölmiðlum. Ráðuneytin væru búin
að skila sínuni tillögum og ríkis-
stjórnin að setja ákveðinn ramma.
„Bæði fjármálaráðherra og ég
höfum bent á, að þeim halla sem
kom á fjárlögin í ár vegna aðgerð-
anna í vetur verður ekki öllum náð
niður strax á næsta ári, það tekur
um 2-3 ár,“ sagði Steingrímur.
Nú er Ijóst að hallinn á fjárlögum
í ár verður eitthvað á þriðja
milljarð, en áætlaður halli var 1,5-
1,6 milljarður. Skuld ríkissjóðs við
Seðlabankann var um 6,6 milljarð-
ar í apríllok, en mun í maílok hafa
verið komin niður í 4,7 milljarða
einkum vegna þess að þá kom inn
erlent lán. Aðspurður um þennan
yfirdrátt ríkissjóðs hjá Seðlabank-
anum sagði Steingrímur að hann
sveiflaðist alltaf talsvert til og að gert
væri ráð fyrir að hann færi lækkandi
seinni Filuta ársins. „Ríkissjóðurer
með erlendar lántökur vegna ým-
issa framkvæmda á vegum ríkis-
sjóðs, þó ekki hafi verið tekin lán
upp í hallann sem á honum er. Það
er mjög erfitt að meta stöðu ríkis-
sjóðs á líðandi stundu þar sem
Seðlabankinn greiðir út fyrir ríkis-
sjóð og síðan kemur kannski ein af
þessum lántökum inn eftir nokkra
daga og þá breytist staðan aftur,“
sagði Steingrímur ennfremur.
Forsætisráðherra sagði aðspurð-
ur að ekki væri ástæða til haust-
kosninga. „Ég lít þannig á, að
okkur beri rík skylda til þess að
standa við þá samninga sem við
gerðum í febrúar og sýna að við
náum þeim markmiðum sem þar
eru sett. Þetta merkir þó ekki að
ég sé ragur við að ganga til kosn-
inga í haust ef það yrði niðurstað-
an, en ég vil nú heldur standa við
gefin loforð," sagði Steingrímur að
lokum. -BG