Tíminn - 04.10.1986, Side 3
Laugardagur 4. október 1986
Tíminn 3
Bílainnflutningsmetið löngu slegið:
Gamla metið lá
strax í ágúst!
- 14000 bílar sennilega fluttir inn á árinu
Pegar í ágústlok var búið að flytja bílainnflutningur hefur áður mestur
álíka marga bíla til landsins eins og orðið á heilu ári og þá miðað við
BfXafdöldi á hverja 1000 fjbua
600
1
r 200
0
Rr
Hröð fjölgun bfla í hlutfalli við fólksfjölda sést glöggt á þessari mynd.
Þannig hefur bflafjöldi t.d. hlutfallslega tvöfaldast frá árunum 1970- ’71
og þar til á síðasta ári.
Hjálmfríður Þórðardóttir, starfsmaður Dagsbrúnar t.v. afhendir Vilfríði
Þórðardóttur 200 þúsund króna gjöf til Kvennaathvarfsins.
Kvennaathvarfið:
Fær 200 þúsund
frá Dagsbrún!
Verkamannafélagið Dagsbrún
hefur afhent Kvennaathvarfinu 200
þúsund króna peningagjöf. Gjöfin
var afhent af starfsmanni Dagsbrún-
ar, Hjálmfríði Þórðardóttur og sagði
hún það von stjórnar Dagsbrúnar að
þetta framlag verði öðrum verka-
lýðsfélögum hvatning til frekari
stuðnings við Kvennaathvarfið.
Fyrir hönd Samtaka um kvennaat-
hvarf tók Vilfríður Þórðardóttir við
peningunum og þakkaði þann hlý-
hug og skilning sem byggi að baki
þessari höfðinglegu gjöf. Vilfríður
sagði að enn skorti á að rekstur
athvarfsins sé tryggur þrátt fyrir
allan þann stuðning sem því hafi
hlotnast að undanförnu.
Tvö önnur verkalýðsfélög hafa
fært Kvennaathvarfinu 50 þúsund
króna peningagjafir fyrr á þessu ári;
Iðja, félag verksmiðjufólks í
Reykjavík og Félag bókagerðar-
manna.
Konur safna undirskriftum undir friðaryfirlýsingu:
AFHENDA REAGAN OG
G0RBATSJ0V USTANA
Undirskriftasöfnun er nú hafin
meðal íslenskra kvenna undir yfir-
lýsingu sem komið verður til leiðtoga
stórveldanna Mikhail Gorbatsjov og
Ronald Reagan á fundi þeirra hér á
landi, þar sem skorað er á þá að
semja um stöðvun vígbúnaðar-
kapphlaupsins og um afvopnun.
Fyrstar til að skrifa undir urðu
fimmtán konur sem þekktar eru af
störfum sínum í verkalýðshreyfingu.
stjórnmálum, félagsmálum kvenna,
kirkjunni, listum og vísindum. En
mar-kmiðið er að fá a.m.k. 1.000
fslenskar konur til að skrifa undir
yfirlýsinguna.
Konur frá fjölmörgum löndum
heims bundust óformlegum samtök-
um fyrir leiðtogafundinn í Genf á
síðasta ári með það að markmiði að
safna undirskriftum undir þessa yfir-
lýsingu fyrir leiðtogafundinn sem
halda á í Washington síðar á þessu
ári. Samlökin hafa fengið nafnið
„Women for a meaningful summif'
eða „Konur sem vilja árangursríkan
leiðtogafund." Meðal forystukvenna
eru Coretta King, Joanne Wo-
odward, Margarita Papandrceou og
bandarísku þingmennirnir Barbara
Boxer og Patricia Schröder.
HEI
Arlegur bílainnflutningur árin 1971 til 1985 samkvæmt tölum frá
Bílgreinasambandinu. Tíminn bætti við stöðunni í ágústlok 1986, sem þá
þegar var orðið eitt af fjórum metinnflutningsárum þótt fjórir mánuðir
væru þá enn eftir til áramóta.
almestu toppárin þrjú: 1974,1981 og
19821, þegar innflutningurinn losaði
10 þús. bíla. Samkvæmt Hagtíðind-
um var búið að flytja inn 7.210 bíla
• á miðju ári. í júlí og ágúst bættust
við tæplega 2.800 bílar þannig að
innflutningurinn var kominn í um 10
þús. bíla í ágústlok. Ekki er fráleitt
að ætla að a.m.k. 4 þús. bílar bætist
við þá fjóra mánuði sem þá voru
eftir af árinu.
Um síðustu áramót voru skráðir
bílar á landinu rúmlega 117 þús.,
eða 485 bílar á hverja 1000 íbúa og
hafði það hlutfall hækkað um nær
50%, eða úr 327 bílum á 1000 íbúa
árið 1975. Afskráningar ónýtra bíla
hafa undanfarin ár verið um 4 þús.
Er því ekki fjarri lagi að bílaflotinn
verði í kringum 127 þús. um næstu
áramót, eða um 525 bílar á hverja
UXX) íbúa. Mega nú Bandaríkjamenn
líklega fara að verja titil sinn sem
mesta bílaþjóð heims.
- HEl
LATTU SKYNSEMINA RÁÐA
0G FÁÐU ÞÉR
FRAÐÆRAN I SNJO OG HALKU
Þeir eru reynaar uppseldir núna, en ef þú
bregður skjótt við, getur þú fengið bíl úr nœstu
sendingu.
Og verðið - þú trúir því varla
Frá kr. 78.000,- til kr. 82.000,-
Athugaðu hvaða notaðan bíl þú getur fengið fyrir sömu
upphæð. En mundu að Trabant er með ábyrgð.
Notaður bíll getur verið sjálfur kötturinn í sekknum.
INGVAR HELGASON HF.
Sýningarsalurinn/Rauðagerði, simi 33560