Tíminn - 04.10.1986, Qupperneq 10
10 Tíminn
Laugardagur 4. október 1986
vTIR
Landsliöið:
Mikil verkefni framundan
UMFN og Valur
í baráttunni
I>jálfarar úrvalsdeildarliöanna
eru llestir sammála um að það
verði Valur, Njarðvík, ÍBK og KR
sem komi til með að leika í úrslita-
keppninni í vor en Haukar gætu
einnig blandað sér í toppbaráttuna.
Minnsta telja þeir möguleika
Fram, nýliðanna í úrvalsdeildinni.
Af fjórum efstu liðunum telja þeir
flestir að baráttan um íslandsmeist-
aratitilinn standi fyrst og fremst
milli núverandi meistara, UMFN
og Vals.
Eins og við sögðum frá í gær hafa
Einar Bollason og Gunnar Þorvarð-
arson verið endurráðnir þjálfarar
íslenska landsliðsins til næstu þriggja
ára.
Mikil verkefni bíða landsliðsins á
þessu tímabili og er stefnt að því að
leika í kringum eitthundrað leiki á
tímabilinu. Þar af eru 12-15 sterk
mót erlendis.
Lokatakmarkið er úrslitakeppni
Evrópumeistaramótsins sem vcrður
í júní 1989. Ljóst er að gífurlega
vinnu og velvild heilladísanna þarf
til að komast' þangað en miðað við
framfarir liðsins undanfarin ár cr
það þó hugsanlegt að það takist.
Stefnt er að því að sami hópurinn
geti æft saman allt tímabilið og
vcrður hann valinn með það fyrir
augum. Ekki er reiknað með Pétri
Guðmundssyni, hann fær ekki leyfi
FIBA til að keppa með landsliðinu
þar sem hann er atvinnumaður.
Hinsvegar virðist allt benda til að
ívar Webster fái lcyfi til að keppa
mjög fljótlega. Gangi það ekki í
gegn verður liann löglegur árið 1988
þar sem hann hefur verið íslenskur
ríkisborgari nógu lengi.
Gunnar Þorvarðarson hefur fært
sig yfir bæjarmörkin á Suður-
nesjunum og þjálfar nú „erkifénd-
urna“ ÍBK. Hann segir takmark
Keflvíkinga að komast í úrslita-
keppnina. Tiltölulega litlar breyt-
ingar hafa orðið á liði ÍBK síðan í
fyrra, Magnús Guðfinnsson er far-
inn til Bandaríkjanna en Gylfi
Þorkelsson og einn af ungu Kefl-
víkingunum, Falur Harðarson hafa
bæst í hópinn.
Lidin:
UMFN
KR
Hardari refsing við
ásetningsvillum
Samþykkt var að brcyta refsingu
við ásetningsvillu á heimsþingi
FIBA í Barcelona í júlí sl.
Áður var refsingin tvö vítaskot
en nú er það innvarp frá hliðarlínu
auk vítaskotanna. Nú geta lið ekki
lengur hagnast á því að brjóta af
sér á lokasekúndum lciks og treyst
á að hitt liðið misnoti vítaskotin
því hinir halda knettinum eftir scm
áður.
Þá hefur agareglum KKÍ verið
breytt. Agancfndin fjallar nú ein-
göngu um kærur á lcikmenn eða
starfsmcnn vcgna brottvísana af
lcikvelli. Dómarar hafa komið sér
saman um hert viðurlög við hvers-
konar mótmælum og grófum leik.
Lcikmanni sem brýtur af sér á
grófan hátt verður samstundis vís-
að af leikvelli.
Lcikmanni sem fær tvær tækni-
villur í sama leiknum verður vísað
af leikvclli og hann jafnframt kærð-
ur til aganefndar KKÍ.
Lið UMFN er ekki ólíkt því sem
það var í fyrra nema hvað tveir
leikmenn hafa farið og yngri menn
komið í staðinn. Að sögn Vals
Ingimundarsonar þjálfara er stefnan
sett á titilinn en Njarðvíkingar eru
núverandi Islandsmeistarar.
Miklar breytingar hafa orðið á
liði KR frá fyrra ári, Birgir
Mikaelsson og Páll Kolbeinsson
hafa farið til náms í Bandaríkjun-
um og Guðmundur Björnsson farið
í Þór. Helsta vandamál KR-inga er
lítil meðalhæð en þrátt fyrir það
stefna þeir á úrslitakeppnina. KR
varð Reykjavíkurmeistari í haust,
sigraði Val 60-59 í úrslitaleik.
Valur
Haukar
Valsmönnum er spáð góðu gengi
í vetur þrátt fyrir að þeir hafi tapað
fyrir KR í úrslitaieik Reykjavíkur-
mótsins. Liðið er líkt skipað og í
fyrra og má búast við að baráttan um
íslandsmeistaratitilinn verði milli
þeirra og UMFN.
Haukaliðið hefur breyst mikið
síðan í fyrra og er stærsta breytingin
sú að ívar Webster er farinn frá
liðinu en einnig er raikill missir að
Kristni Kristinssyni. Inn í liðið hafa
komið efnilegir ungir menn og er
ætlun þeirra að standa sig í vetur og
er stefnan sett á úrslitakeppnina.
FRá ,
JRl)hS0LUNNl.
r
>-
ui
*
c/>
s
co
r
iu
X
co
s
B°0UNftHBREF.
t,GSTU ««lENt)UR.
' mun kunmu« «LftT
HSF1>-EShN Tim;De— 1 KELl VID REnf' ALU KJÖ1 HANSA
vEROUR mestu ^ules S(B1 ei6;th ^ «akRSTIS t
A ÞAD jafnt v ARA 06 BR,'6DBSTRa Fai A0 NftS't rRA«.
nu fer 1 HtjNR Tl;;rftKjuT u^kjutþessa
ARSHhT1[), MI ARS1NS ÞEsa
eess ur;“;r °6 stttta- ;;rR?;;ftRsftR .
EJONDSTu. L1t> fyrir þft L J»Lh. -i
HRRLvsiN5hR. AFft SW6^ vlD N58Tft Kj;;; ar ^ RSS8a
,'J«5TKAURMftNN
co
2:
co
*
m
-<
co
2
co
m
-<
Bestu KVEDJU
afurdaSaum
X
CO
i
co
X
m
Fyrirliðar fyrstudeildarliðanna í handknattleik 1986-87. Talið frá vinstri: Ingimar Haraldsson
Haukum, Friðrik Þorbjörnsson KR, Friðjón Jónsson KA, Björn Jónsson Breiðablik,
Guðmundur Guðmundsson Víkingi, Egill Jóhannesson Fram, Hannes Leifsson Stjörnunni,
Geir Sveinsson Val og Þorgils Óttar Mathiescn FH. Á myndina vantar fyrirliða Ármenninga.
Guðmundur heldur á sigurlaunum bikarmcistara HSÍ, en á borðinu eru önnur verðlaun sem
keppt verður um í vetur, íslandsbikarinn sem Reykjavíkurborg gaf á 200 ára afmælinu, Gullskór
Hummel sem besti alhliða leikmaðurinn lilýtur. Það eru leikmennirnir sjálfir sem kjósa hann
en skórinn er gefinn að heildverslun Ólafs H. Jónssonar. Loks eru verðlaun fyrir besta
markvörðinn, besta sóknarleikmanninn og besta varnarleikmanninn. Það eru einnig leik-
mennirnir sjálfir sem velja þá bestu en bikararnir eru gefnir af Eiinskipafélagi íslands.
Tímaniynd Pctur.
Laugardagur 4. október 1986
Tíminn 11'
Fram
Búast má við að róðurinn reyn-
ist Frömmurum þungur í vetur,
þeir eru nýliðarnir í deildinni en
ekki er nein uppgjöf í liði þeirra.
Stefnan hjá Fram er að halda
deildarsætinu. Helsta breytingin
hjá Fram er sú að Símon Ólafsson
hefur ekki hafið æfingar og er allt
eins líklegt að hann verði ekki
með í vetur.
Fyrstu leikirnir
Fyrsti leikurinn í körfunni var
í gærkvöld milli UMFTI og KR.
Sagt verður frá honum á þriðju-
dag. í dag leika Fram og Valur og
á sunnudag Haukar og Fram og
Valur og ÍBK.
Þýskaland:
Asgeir og Atli
í eldlínunni
Ásgeir Sigurvinsson og félagar hjá Stuttgart keppa í
dag gegn Núrnberg í þýsku 1. deildinni.
Fyrir þessa umferð er Stuttgart í 4. sæti með 11 stig,
tveimur stigum á eftir efsta liðinu, Bayern Múnchen.
Núrnberg er hinsvegar í næst neðsta sæti með aðeins þrjú
stig.
Atli Eðvaldsson og Uerdingen keppa gegn Hamburg.
Uerdingen er fyrir umferðina í 8. sæti með 9 stig en
Hamburg í 2. sæti með 12 stig.
Efsta liðið, Múnchen keppir gegn Bochum sem hefur
9 stig eins og Uerdingen.
Búist við
spennandi
keppni
Búist er við að keppnin í 1. deild
karla í handknattleik verði jöfn og
spennandi í vetur, liðin hafa sjald-
an eða aldrei mætt betur undirbúin
til Ieiks. Nokkur gagnrýni hefur þó
komið fram á skipulag deildarinn-
ar, landsliðið talið hafa of mikinn
forgang. Þá koma tvö hlé sem
mönnum er illa við, fyrsl í þrjár
vikur um mánaðamótin okt.-nóv.
og síðan aftur kringum jólin. Þetta
kemur sér illa fyrir félögin og erfitt
er að halda fullri keyrslu ef svona
göt myndast.
Þá hefur einnig verið nefnt að
gott væri fyrir þjálfara að Bogdan
héldi þjálfaranámskeið, hann er
færasti þjálfari sem hér hefur verið
og mikið hægt af honum að læra þó
menn séu ekki alltaf sammála öllu
sem hann cr að gera.
1. deild kvenna:
Fyrstu leikirnir
HöU 12.10 15.15 Armann - Í.B.V.
HÖ114.10 14.00 Valur - K.R.
Höll 4.10 15.15 Fram - Stjarnan
Haínarfj. 4.10 14.00 F.H. - Víkingur
Seljas. 8.10. 20.00 KR - Fram
Vestm. 7.10 20.00 Í.B.V. - Valur
Hafnarfj. 8.10. 21.15. F.H.-Ármann
Seljas. 8.10 21.15 Víkingur - Sjaman
HöU 12.10 21.15 Valur - F.H.
Höll 11.10 15.15 Fram - Í.B.V.
Digranes 12.10 21.15 Stjarnan - K.R.
Höll 19.11 19.15 Armann - Víkingur
Fyrstu leikirnir
Digranes 8.10. 21.30 Stjarn. - Ármann
Hafnarfj. 8.10. 20.00 Haukar-Valur
Höll 8.10. 20.00 Víkingur - K.R.
HöU 8.10. 21.15 Fram - K.A.
Digranes 8.10. 20.15 U.B.K. - F.H.
Höll 12.10. 20.00 K.R. - Fram
Höll 11.10. 14.00 Valur - Víkingur
Höll 12.10. 14.00 Ármann - Haukar
Digranes 11.10 15.15 U.B.K.-Stjarnan
Hafnarfj. 11.10. 14.00 F.H. - K.A.
Hafnarfj. 22.10 20.00 Haukar-U.B.K.
Höll 22.10. 20.00 Víkingur-Ármann
Höll 22.10. 21.15 Fram - Valur
Akure. 22.10. 20.00 K.A. - K.R.
Digranes 22.10 20.00 Stjarnan - F.H.
KR
Miklar breytingar liafa orðið á liði
KR síðan í fyrra og spáir Ólafur
Jónsson þjálfari því að þeir endi unr
miðja deild. Hann segist búast við
að deildin verði bæði jöfn og
skemmtileg í vetur þó flestir okkar
bestu handknattlciksmenn leiki
erlendis.
ÍÞRÓTTIR
UMSJÓN:
Víkingur
Liðin
Valur
í iiði Vfkings hala nú orðið kyn-
slóðaskipti og cr meðalaldur liðs-
manna 22 ár. Ekki er því gott að geta
sér til um árangur þeirra Víkinga í
sumar. Guðntundur Guðmundsson
fyrirliði telur þó raunhæft að áætla
að þeir nái 4.-5. sæti.
• BLAÐAMAÐUR
Jón Pétur Jónsson þjálfari Vals
scgir það ekkcrt launungarmál að
stefnan sé $ett beint á fyrsta sætið.
Hins vegar segist hann vera óánægð-
ur mcð þau hlé sem gerð eru á
deildinni og einnig það hve landslið-
ið er látið ganga mikið fyrir. í liði
hans eru fjórir landsliðsmcnn og
truflar landsliðsundirbúningurinn
því Valsliðið vcrulega.
Jón Pétur segir árangur Valsliðs-
ins í haust hafa verið „allt of góðan"
en segir þá hafa æft vel í haust.
Fram
Stjarnan
Lið Stjörnunnar er sennilega betur
undirbúið fyrir þctta íslandsmót en
nokkru sinni fyrr. Páll Björgvinsson
þjálfari segir liðið stcfna hátt og
kcmur það ekki á óvart því þjálfar-
arnir spáðu Stjörnunni sigri í skoð-
anakönnun í síðustu viku. Ekki vildi
Páll ncfna sæti, sagðist ætla að láta
verkin tala.
Liðið hóf æfingar 20. júlí og síðan
hcfur verið æft 5-6 sinnurn í viku.
Viggó Sigurðsson þjálfari scgist
bjartsýnn, hann sé nteð ungt og
efnilegt lið. FH varð í 5. sæti í fyrra
og cr stcfnan sett ofar í ár.
Breiðablik
Geir Hallsteinsson þjállári
Brciðabliks scgir lið sitt fullkomlega
tilbúið í slaginn í I. deild en Breiða-
blik kom upp úr annarri deild í vor.
Það cina sem hann hræöist er að
leikmennirnir hafi ekki nægilcga trú
á sjálfum sér.
Blikarnir vcrða stcrkir í Digrancsi
en takmark þeirra cr að sigra cinn
leik í einu og ná góðu sæti.
Breiðablik hóf æfingar I. júlí og
cins og Stjarnan hafa þeir líklcga
aldrei æft betur.
Per Skaarup frá Danmörku
þjálfar Fram í vetur. Þetta er hans
fyrsti vetur sem þjálfari en hann
segist hafa liaft marga og misgóða
þjálfara sem hann hafi lært mikið
af. Lið Fram segir hann að sjálf-
sögðu stefna á toppinn og telur það
raunhæft takmark.
Ekki segist hann hafa séð öll 1.
deildarliðin leika en líst ntjög vcl á
þau scm hann hcfur séð, segir þau
sóma sér vel í dönsku dcildinni.
KA
Lið KA hcfur æft stíft í haust en
Þorlcifur Ananíasson liösstjóri
segir þá hafa vantaðæfingaleiki. Þó
hafi þeir farið í æfingafcrðir til
Vcstmannacyja og Færcyja.
KA liöið kom á óvart í fyrra með
því að ná 4. sæti cn cícki telur
Þorleifur þá verða svo ofarlcga
núna, miklar brcytingar hafi orðið
á liðinu síðan í fyrra.
Evrópukeppnin í knattspyrnu:
Juventus gegn
Real Madrid
í gær var dregið í 2. umferð Evrópumótanna í
knattspyrnu. Eins og frani hcfur komið féllu öll
íslensku liðin út í 1. umfcrð,töpuðu 30-0 samtals.
Stórleikur umferðarinnar verður viðureign Juventus
og Real Madrid, aðal risanna í Evrópuknattspyrnunni.
Þá eru fleiri stórleikir á dagskrá, t.d. viðureign
Anderlecht sem Arnór Guðjohnsen leikur með og
Evrópumeistaranna Steua Búkarest svo og leikur
Celtic og Dynamo Kiev.
Eftirtalin liö drógust saman:
Evrópukeppni meistaraliða:
Real Madrid (Spáni) - Juventus (ítaliu)
Vitkovice (Tékk.) - Porto (Portúgal)
Rosenborg (Nor.) - Rauða Stjarnan (Júgóslavíu)
Bayern Múnchen (V-Þ.) - Austria Vín (Austurriki)
Anderlecht (Belgíu) - Steua Búkarest (Rúmeníu)
Celtic (Skotland) - Dynamo (Sovét.)
Bröndby (Danm.) - Dynamo Berlin (A-Þ)
Besiktas (Tyrkl.) - Nicosia (Kýpur)
Evrópukeppni bikarhafa:
Lokomotiv (A-Þ) - Rapid Vín (Austurríki)
Zaragoza (Spáni) - Wrexham (Wales)
Vitosha (Búlgaria) - Welez Mostar (Júgósl.)
Torpedo Moskva (Sovét) - Stuttgart (V-Þ)
Katowice (Póll.) - Sion (Sviss)
Benfica (Portúgal) - Bordeaux (Frakkl.)
Tirana (Albaniu) - Malmö (Svíþj.)
Ajax (Holland) - Olympiakos (Grikkl.)
Evrópukeppni félagsliða (UEFA):
Groningen (Holl.) - Xamax (Sviss)
Beveren (Belgiu) - Atletico Bilbao (Spáni)
Rangers (Skotlandi) - Boavista (Portúgal)
Widzew Lodz (Póll.) - Uerdingen (V-Þ) )
Legia Varsjá (Póll.) - Inter Milano (ítaliu)
Atletico Madrid (Spáni) - Guimaraes (Portúgal)
Feyenoord (Holl.) - Gladbach (V-Þ)
Ghent (Belgiu) - Studentesc (Rúmeníu)
Raba Eto (Ungverjal.) - Torino (Ítalíu)
Dukla Prag (Tékk.) - Leverkusen (V-Þ)
Bercelona (Spáni) - Sporting (Portúgal)
Hajduk Split (Júgósl.) - Trakia Plovdiv (Búlg.)
Tyrol (Austurr.) - Liege (Belgíu)
Göthenburg (Svíþj.) - Brendenburg (A-Þ)
Spatrak Moskva (Sovét.) - Toulouse (Frakkl.)
Dundee Utd. (Skotl.) - nni Craiova (Rúmeníu)
Liðin sem nefnd eru á undan leika heimaleik sinn á
undan. Fyrri leikurinn fer fram 22. okt. en sá síðari 5.
nóv.
n HAPPDRÆTTI HJARTAVERNDAR
1986
1. VINNINGUR
2. VINNINI
l:A ■WWS'l’0
'W*-*
L> ’ U
v ’jHlg
•*9œíhv;t •, v
,vt.;■ - .•
' . •
, ■**
Til íbúðakaupa kr.
1.000.000.-
Kr. 850.000.-
Audi, árgerð 1987, með vökvastýri, lituð rúðugler.
Verðmæti vinninga 3 milljónir 750 þús. þ.
Skattfrjálsir vinningar
DREGIÐ VERÐUR 10. OKTÓBER NK.
★ Stœrsti vinningurinn er að upphœð UXXJJXX) króna.
★ Lcegsti vinningur er að upphœð 75ÁXX) kr.
★ Býður nokkur betur? Att þú betri
kost ef heppnin er með?
★ Nú tökum við á með Hjartavemd því gott hjarta er gulli betral ★ Við frestum aldrei drœtti!
Freistið gæffunnar — þannig leggur þú góðu máleffni lió.