Tíminn - 04.10.1986, Page 13
Laugardagur 4. október 1986
!Tíminn 13
MINNING
llllllílllllllll
llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
11!
Illllll11"
Arni Sæmundsson
hreppstjóri Stóru-Mörk
að rækta garðinn minn. Sá garður
sem afi og amma ræktuðu bar ríku-
legan ávöxt. Amma uppskar, því
öllum hennar nánustu þótti vænt um
hana og hlúðu að henni þegar svo
bar undir. Amma lagði grunninn að
því bróðurþeli sem einkennir hennar
nánustu en slíkt er ekki sjálfgefið.
Hún átti marga og góða vini sem
sumir komu til hennar um langan
veg.
Þessar fátæku myndir eru einungis
ágrip þeirra heilsteyptu góðu minn-
inga um ömmu sem búa í brjósti
mínu en þeim verður ekki lýst með
orðum. Eg kveð ömmu mína með
söknuði, blessuð sé minning hennar.
Þorsteinn Guðnason
Það mun mörgum vera ljúfur
draumur að rifja upp æskuminningar
séu þær góðar. Þegar ég frétti að
Ágústa á Vatnsleysu væri dáin þyrl-
uðust upp myndir leiftursnöggt í
huga. Og nú þegar ég reyni að festa
á blað minningarorð um Ágústu,
sem var ein allra besta vinkona mín,
finnst mér reyndar, að hún hafi alltaf
verið sem mín önnur móðir, sem
hægt var að stökkva í fangið á ef
eitthvað bjátaði á.
Lífið á Vatnsleysu einkenndist af
nánu og kærleiksríku samfélagi.
Æskuárin liðu með ógnarhraða í
söng og gleði, þó alltaf með alvöru
lífsins að bakgrunni óg aldrei bar
skugga á. Og nú er síðasti stofninn
fallinn, sem stóð undir búskap á
Vatnsleysu í rúma hálfa öld. En
stofnarnir báru greinar, sem enn
bera ávöxt.
Ágústa var fædd í Skálholtsvík í
Strandasýslu 28. ágúst árið 1900, ein
fimm barna hjónanna Hjálmfríðar
Árnadóttur og Jóns Þórðarsonar,
bónda þar. Þriggja vikna gamalli var
henni komið í fóstur til sæmdarhjón-
anna Jensínu Pálsdóttur og Einars
Einarssonar, Gröf í Bitru. Þar ólst
hún upp við mikið ástríki, ásamt
einkasyni hjónanna og annarri fóst-
ursystur. í engu fann hún annað en
hún væri þeirra eigið barn.
Ágústa naut ekki meiri menntunar
en títt var um unglinga af hennar
kynslóð. En með einstökum áhuga
bætti hún við með sjálfsnámi í skóla
reynslunnar og með lestri góðra
bóka ekki síst ljóðabóka. Hún varð
gagnmenntuð kona og var sama við
hvern hún talaði eða um hvað hún
ræddi, á flestu kunni hún skil.
Ung að árum fór Ágústa til
Reykjavíkur í atvinnuleit. Þar vann
hún við sauma, sem kom að góðum
notum síðar meðan öll föt voru
unnin heima. En á vordögum árið
1921 vantaði Þorstein Sigurðsson á
Vatnsleysu kaupakonu. Var hann
þá farinn að búa þar ásamt foreldrum
sínum. Réðst Ágústa til hans og
varð báðum til hinnar mestu gæfu.
Ágústa var fríð sýnum, ekki hávax-
in, prýdd eindæma fallegu glóbjörtu
hári, geislandi af lífsgleði og kapp-
söm til vinnu. Þorsteinn, húsbónd-
inn, var glæsimaður og ólgaði af
framkvæmdahug og háleitum hug-
sjónum. Það var fljótlega ljóst, að
þau felldu hugi saman og opinber-
uðu trúlofun sína. En stóra stundin
rann upp hinn 18. nóvember, er
Ágústa og Þorsteinn ásamt Kristínu
systur hans og Erlendi Björnssyni
gengu í heilagt hjónaband í Torfa-
staðakirkju. Þessi hjón voru stofn-
arnir í litla samfélaginu á Vatns-
leysu, sem ég minntist á í upphafi
þessa máls. Rætur stóðu djúpt og
allar í samfélagi bænda. Ekki var
árennilegt að hefja búskap á þessum
árum, í hönd fóru miklar efnalegar
þrengingar hjá þjóðinni. Oft var
baráttan hörð en unga fólkið efldist
við átökin og hafði ávallt sigur.
Þegar byltingar urðu á flestum svið-
um á fimmta áratugnum voru Vatns-
leysuhjónin vel í stakk búin til að
takast á við nýja tíma. Öll hús yfir
fólk og fé voru endurbyggð. Með
vélvæðingu tókst að margfalda rækt-
aðar lendur. Þá voru vinnufúsar
hendur barna þegar farnar að leggja
lið.
Á þessum árum var Þorsteinn
orðinn áhrifamaður í samvinnufé-
lögum bænda, sem síðar leiddi hann
til formennsku í Búnaðarfélagi
íslands. Ágústa stuðlaði að því með
ráðum og dáð, að hann gæti sinnt
störfum sínum að félagsmálum, sem
á hann hlóðust. Hún axlaði æ fleiri
byrðar. Ég hef áður sagt. að Ágústa
var sómi íslenskra húsfreyja, er hún
fyrir hönd sinnar stéttar stóð við hlið
manns síns við ýmis opinber tæki-
færi. Á hún þakkir skildar af hálfu
bændastéttarinnar.
Vatnsleysuheimilið var mcnning-
arreitur í orðsins fyllstu merkingu.
Þar var bókakostur góður, tónlist og
söngur í hávegum höfð. Smekkvísi,
snyrtimennska og höfðinglegar veit-
ingar Ágústu gerðu það aðlaðandi
enda var gestkvæmt og margt rætt.
Dvaldist gestum oft lengur en ætlað
hafði verið, því menn gleymdu
gjarnan stund og stað. Um slíkar
samverur eiga sveitungar og vinir
margar minningar. Biskupstungna-
menn sakna vinar við fráfall Ágústu
og einnig Þorsteins og þakka öll
afreksverkin, sem þau unnu sveit
sinni og gleði þá, sem þau sáðu í
hjörtu samferðamanna sinna. Yfir
þeim hvíldi höfðingleg reisn, sem
aldrei mun gleymast.
Ágústa og Þorsteinn áttu barna-
láni að fagna. Þau eignuðust 9 börn,
en af þeim lést Þorsteinn í bernsku
og var foreldrunum það þung raun.
Þau sem lifa eru: Ingigerður, banka-
starfsmaður í Reykjavík, Sigurður,
bóndi á Heiði, kvæntur Ólöfu Bryn-
jólfsdóttur; Steingerður, skrifstofu-
maður í Reykjavík, gift Guðna Þor-
finnssyni, sem nú er látinn, Einar
Geir, forstjóri í Garðabæ, kvæntur
Ingveldi Stefánsdóttur, Bragi, bóndi
á Vatnsleysu, kvæntur Höllu Bjarna-
dóttur, Kolbeinn, kaupmaður í
Reykjavík, kvæntur Erlu Sigurðar-
dóttur, Sigríður, Snyrtifræðingur í
Reykjavík, sem gift var Grétari
Kristjánssyni, Viðar, skrifstofumað-
ur í Reykjavík, kvæntur Guðrúnu
Gestsdóttur.
Ágústa var mikilhæf móðir, ör-
uggur vinur og félagi barna sinna,
gladdist yfir velgengni þeirra. Þá voru
barnabörnin henni mikil gleðiljós.
Ágústa uppskar einnig margfaldlega
í umhyggju þeirra og ástúð.
Sigurganga Ágústu og Þorsteins
stóð í 52 ár, en hann lést skyndilega
11. október 1974. Það varð Ágústu
mikið áfall að missa lífsförunautinn
trausta, sem veitti henni fullkomna
lífsfyllingu og leysti með henn'i hvern
þann vanda, sem að höndum bar.
En ljós j>uðs lýsti Ágústu fram á
veginn. Agústa átti enn eftir nokkur
góð ár, naut þeirra í faðmi fjölskyldu
og vina og gat miðlað af reynslu sinni
og fróðleik.
Vatnsleysa var Ágústu heilagt vé,
þar átti hún heima frá fyrsta degi, er
hún kom þangað sem kaupakona.
Hin síðustu ár dvaldist hún oft til
skiptis hjá börnum og tengdabörn-
um. Hugur hennar leitaði þó alltaf
heim, þar sem hún naut umhyggju
Braga sonar síns og Höllu tengda-
dóttur sinnar. Síðustu árin átti hún
við vanheilsu að stríða og varð öðru
hverju að dveljast á sjúkrahúsi,
einkum síðasta árið. Fyrstu daga
septembermánaðar síðastliðins
dvaldist hún heima í nokkra daga.
Þegar hún fór þessa ferð voru Bisk-
upstungurnar baðaðar dýrðarljóma
og verða vart fegurri. Þegar heim
kom, leit hún fyrst á garðinn, sem
hafði verið þeim hjónum friðarreitur
og veitt þeim ómælda ánægju. Sprot-
arnir, sem þau höfðu fyrst sett niður
í garðinn, voru orðnir feiknastór tré,
sem breiddu limið út mót fóstru
sinni, blómin voru enn ekki fallin.
Mistillinn minnti þó á haustið, lita-
dýrð hans minnti á allt það fegursta,
sem mannsaugað fær litið. Ágústa
vissi, að þessi djásn náttúrunnar sæi
hún ekki oftar. Hún kveið því ekki,
hún hafði alla tíð haft Jesú Krist að
leiðtoga lífs síns eins og hún hafði
heitið við altari á fermingardegi
sínum. Hún lést á sjúkrahúsinu á
Selfossi 25. sept., farin að líkams-
kröftum þó andlegri reisn héldi hún
til hinstu stundar. Ágústa verður
lögð til hinstu hvílu í kirkjugarðinum
á Torfastöðum við hlið manns síns.
f kirkjunni á Torfastöðum hafði hún
átt sínar helgustu gleðistundir. Þar
voru ltka sorgir sefaðar í bæn og
tilbeiðslu. Þar hafði söngur þeirra
hljómað í áratugi við allar athafnir,
sem þar fóru fram.
Fyrir hönd vesturbæjarsystkina og
fjölskyldna okkar sendi ég ástvinum
öllum innilegar samúðarkveðjur.
Ágústu kveðjum við með virðingu
og þökk fyrir allt það, sem hún gaf
okkur með lífi sínu.
Björn Erlendsson.
Fæddur 30. nóvember 1909
Dáin 28. september 1986
Að lýsa sínum nánustu er erfitt og
alltaf hlutdrægt, en getur gefið
mynd, sem aðrir þekkja síður.
Faðir okkar var hæglætismaður,
sem ekki bar tilfinningar sínar á
torg, en hlýjuna mátti samt skynja,
þó ekki væru mörg orð þar um höfð.
Þessi fáu orð sögðu oft mikið.
Hann var bóndi og vann starf sitt
sem slíkur. Ekki síður vann hann
fyrir bændur, því hann trúði á félags-
legt framtak, var enda ósínkur á
tíma sinn og heilsu í þess þágu. Það
var ekki ósjaldan að sest var við
skriftir þegar aðrir tóku sér hvíld að
dagsverki loknu. Það voru oftast
skriftir er snertu hans félagslegu
embætti. Þau voru líka mörg dags-
verkin, sem fóru í ferðir á aðra bæi
varðandi þetta félagsmálavafstur.
Fundirnir voru líka ófáir, sem sækja
varð.
Við krakkarnir ergðum okkur oft
yfir þessu, þegar við vorum sett í
verk, en hann farinn á fund eða bæi.
Með aldrinum og aukinni lífsreynslu
varð okkur það ljóst, að hér var í
reynd um fórnfúst starf að ræða, sem
sjaldnast gaf nokkuð í aðra hönd í
mynd peninga. Honum var vel ljóst
að við búum í samfélagi og það
krefst fórna að viðhalda því og bæta.
Það sannaðist hinsvegar á honum,
að á slíka menn hlaðast oft fleiri
félagsleg störf en góðu hófi gegnir og
væri æskilegt að dreifa þeim á fleiri
herðar. Okkur ber í grun, að hann
hafi ekki endilega verið valinn í
þessi störf af því að hinir hafi viljað
losna við þau, heldur hafi honum
verið treyst fyrir þeim. Hann gerði
örugglega sitt besta.
„Ber er hver að baki nema sér
bróður eigi“, var sagt um gamlan
nágranna okkar, Björn úr Mörk og
þótti tvírætt hrós.
Hitt orkar ekki tvímælis að móðir
okkar, Lilja Ólafsdóttir tók oft að
sér hlutverk húsbóndans, þegar
hann var af bæ. Þetta var ekki alltaf
auðvelt með mikla ómegð, því við
systkinin erum níu. Fyrri hluta
ævinnar vann hann á búi foreldra
sinna í Stóru-Mörk, Sæmundar Ein-
arssonar, hreppstjóra og konu hans
Guðbjargar Jónsdóttur, er stundaði
auk þess sjóróðra eins og þá tíðkað-
ist. Árið 1943 gerðist hann bóndi í
Stóru-Mörk.
Hin félagslegu störf hans voru
margþætt.
Hreppstjóri í Vestur-Eyjafjalla-
hreppi 1943-1984 í hreppsnefnd
1954-1962. Hann sat í stjórn Jarð-
ræktarsambands Eyfellinga og
Mýrdælinga og síðar ræktunarsam-
bandinu Hjörleifi 1950-1986. For-
maður Búnaðarfélags Merkurbæja
í Vestur-Eyjafjallahreppi 1946-
1984. Hann var í stjórn Skógræktar-
félags Rangæinga frá 1946, hann var
formaður skólanefndar 1967-1986
endurskoðandi Kaupfélags Rang-
æinga 1976-1983, fulltrúi á aðalfund-
um Sláturfélags Suðurlands og
Mjólkurbús Flóamanna frá 1943-
1984.
Eitt þeirra starfa, sem mikinn
tíma tók var starf í skattanefnd,
mikið starf síðara hluta vetrar og
ekki erum við viss um að þar hafi
hann nokkuð nálgast laun þeirra
sem í dag telja fram fyrir menn, cf
þau voru þá nokkur. Auk þessara
starfa var hann sláturhússtjóri í
Djúpadal í meira en 40 ár. Þetta
starf gaf nauðsynlegar aukatekjur til
að halda svo stórri fjölskyldu uppi,
enda var hér- lagður dagur við nótt
meðan á slátrun stóð. Það skipulags-
og verkstjórastarf, sem hann vann
þarna var ekki unnið með neinum
hávaða eða bægslagangi, en það
virtist þó ganga snurðulaust, eins og
af sjálfu sér. Sláturhúslifið minnti á
heimilislíf og þeir sem þvf lifðu voru
eins og stór fjölskylda, að minnsta
kosti áður fyrr, meðan búið var á
staðnum. Hann var þarna eins og
húsbóndi á stóru heimili, fyrstur á
fætur og síðastur í rúmið, leit eftir
öllu á sinn hægláta hátt og stýrði
mönnum til verka að því er virtist
fyrirhafnarlaust. Hitt má vera að
þessi stjórnunaraðferð, sem er svo
þægileg fyrir starfsmenn, reyni all
nokkuð á stjórnandann og má vera
að hluti af því magasári sem hrjáði
hann í mörg ár hafi átt rætur þar.
Sem faðir og heimilisfaðir var
hann rólyndur og hlýr og sýndi oft af
sér hægláta kímni. Okkur börnunum
verkstýrði hann þannig, að oft var
frekar fylgt fordæmi, en hlýtt fyrir-
mælum. Samvistir okkar með hon-
um voru fyrst og fremst í starfi eins
og títt er í sveitum.
Hann veitti sér ekki mikinn mun-
að utan þess að lesa bækur. Hann las
mikið, þó oft væru stopular stundir til
slíks, en líklega hefur hann ekki oft
lagst til svefns án þess að líta í bók.
Á fyrri árum las hann oft upphátt
fyrir okkur. Á síðari árum hafði
hann mest garnan af ævisögum og
ræddi oft um efni þeirra, sérstaklega
ef um samferðarmenn var að ræða.
Hann tók lífinu eins og það kom
með æðruleysi og dauðanum líka.
Blessuð sé minning hans.
Börnin
Árni Sæmundsson var einn af
dyggustu starfsmönnum Sláturfélags
Suðurlands í áratugi, en hann tók
við starfi sláturhússtjóra í sláturhúsi
S.S. í Djúpadal haustið 1939 og
gengdi hann því með miklum ágæt-
um í 46 haust, eða samfleytt þar til
húsið var lagt niður eftir sláturtíð
haustið 1984, ásamt sláturhúsinu á
Hellu þegar nýja sláturhúsið á
Hvolsvelli tók við hlutverki hinna
húsanna haustið 1985.
Árni ólst upp á sveitaheimili, en á
þeim tímum voru miklar hræringar
eftir ýmsa erfiðleika í afurðasölu-
málum bænda, sem urðu m.a. til
þess að bændur á Suðurlandi stofn-
uðu Sláturfélag Suðurlands árið
1907.
Árni hafði staðfasta trú á því, að
afurðasala bænda væri best komin í
höndum Sláturfélags Suðurlands og
fyrir það og hagsmuni Rangæinga
starfaði hann af einstakri alúð í
nærri hálfa öld. Sláturfélag Suður-
lands þakkar fyrir það að hafa notið
starfskrafta Árna Sæmundssonar.
Við vottum aðstandendum ein-
læga sarnúð og kveðjum góðan
starfsmann með þakklæti og virð-
ingu.
F.h. starfsfólks og
stjórnar Sláturfélags
Suðurlands,
Matthías Gíslason.
r
BÍLALEIGA
Útibú í kringum landið
REYKJAVÍK:.91-31815/686915
AKUREYRI:.....96-21 fl 5/23515
BORGARNES:.........93-7618
BLÖNOUÓS:.....95-4350/4568
SAUÐÁRKRÓKUR:...95-5913/5969
SIGLUFJÖRÐUR:.....96-71489
HÚSAVÍK:....96-41940/41594
EGILSSTAÐIR:.......97-1550
VOPNAFJÖRÐUR:.97-3145/3121
FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: . 97-5366/5166
HÖFN HORNAFIRÐI:...97-8303
interRerrt
EIGENDUR YAMAHA VÉLSLEÐA
Úrval varahluta á lager - hagstætt verð.
Félagsmenn L.Í.V. fá 10% staðgreiðsluafslátt.
/SBÚNADARDEILD YAMALUBE ■ 2
^sambahdsins o//a/7 frá YAMAHA