Tíminn - 04.10.1986, Qupperneq 14
SAMVINNUr tryggingarL ÁRMÚLA 3 108 REYKJAVÍK SÍMl (91)681411 " Útboð
Tilboð óskast í eftirtaidar bifreiðiir hafa í umferðaróhöppum. sem skemmst
Ford Fiesta árgerð 1986
Lada 21043 árgerð 1986
Subaru E 10 4W árgerð 1986
Lada 1600 árgerð 1985
Daihatsu 1000 4W árgerð 1985
MMC Tredía 1600 GLS árgerð 1985
Lada 2107 árgerð 1984
Datsun Cherry 1500 GL árgerð 1983
Daihatsu 850 Cap Van árgerð 1983
Honda Civic árgerð 1982
MMC Galant 1600 GL árgerð 1980
Toyota Cressida DL árgerð 1980
Toyota Cressida GL árgerð 1980
Masda 929 L árgerð 1980
Dodge B 300 Van árgerð 1979
Chevrolet Sport Van árgerð 1979
Lanzer A 75 DL árgerð 1977
Chevrolet Nova árgerð 1969
Bifreiðirnar verða sýndar að Höfðabakka 9
Reykjavík, mánudaginn 6. október 1986 kl. 12-16. Á sama tíma: í Keflavík
Mazda 626 1600 Á Sauðárkróki: árgerð 1980
Daihatsu Charmant Á Egilsstöðum: árgerð 1982
Opel Corsa árgerð 1985
Tilboðum sé skilað til Samvinnutrygginga, Ármúla
3, Reykjavík, eða umboðsmanna fyrir kl. 12, þriðjudaginn 7/10 1986.
ífji LAUSAR STÖEXJRHJÁ
.LffiJ REYKJAVIKURBORG
1. Staöa forstööumanns viö leikskólann Lækja-
borg v/Leirulæk.
2. Fóstrur og aðstoðarfólk á hin ýmsu dagvistar-
heimili í borginni.
3. Sérstaklega vantar nú fóstrur og aöstoðarfólk í
heilar og hálfar stööur á dagheimilin Laufás-
borg, Laufásvegi 53-55, Ægisborg, Ægissíðu
104 og Valhöll, Suðurgötu 39 og leikskólann
Kvistaborg v/Kvistaland.
Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjón-
arfóstrur á skrifstofu Dagvistar í símum 27277 og
22360, einnig forstööumenn viökomandi heimila.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds
Reykjavíkurborgar Pósthússtræti 9, 6. hæö í
sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást.
RAFMAGNSVEITA REYKJAVÍKUR
Verkfræðingar
Tæknifræðingar
Rafmagnsveita Reykjavíkur óskar eftir aö ráöa
byggingarverkfræðing eða tæknifræðing til að
veita forstöðu byggingadeild fyrirtækisins.
Starfið er aðallega fólgið í eftirliti með nýbygginga-
framkvæmdum og umsjón með viðhaldi bygg-
inga.
Nánari upplýsingarveitirstarfsmannastjóri í síma
686222.
Umsóknarfrestur er til 13. október nk.
14 Tíminn
Laugardagur 4. október 1986
Heimsmeistararnir í útsláttarkeppni og handhafar Rosenblumbikarsins halda stoltir á honum meðan þjóðsöngur
Bandaríkjanna er leikinn: Frá vinstri eru Kit Woolsey, Bob Lipsitz, Ed Manfield, Peter Boyd, Steve Robinson og
Neil Silverman. IVIeð þeim á myndinni er Jaime Ortiz-Patino fyrrverandi forseti Heimssambandsins og Dick Goldberg
fjármálastjóri sambandsins. Mvnd gsh
Heimsmeistaramótið í Flórida:
Bandaríkjamenn hirtu
öll gullverðlaunin 5
- Spilið sjálft vann stærsta sigurinn
Bandaríkjamenn hirtu öll gull-
verðlaunin á heimsmeistaramótinu í
bridge sem lauk um helgina á Sherat-
onhótelinu á Miami Beach í Florida
en alls var keppt í fimrn greinum
bridgeíþróttarinnar.
Heimsmeistaramótinu lauk með
keppni í tvímenning og þar urðu
sigurvegarar Eric Rodwell og Jeff
Meckstroth frá Bandaríkjunum. Sig-
ur þeirra kom ekki á óvart því þeir
hafa undanfarin ár verið taldir
mynda eitt sterkasta bridgepar í
Ameríku og þar með heiminum.
Rodwell og Meckstroth urðu heims-
meistarar í sveitakeppni árið 1981,
þá aðeins 24 og 25 ára gamlir.
íslendingar muna sjálfsagt eftir Ro-
dwell sem spilaði hcr á bridgehátíð
s.l. vetur.
Austurrísku Evrópumeistararnir
Wolfgang Meinl og Heinrich Berger
urðu í öðru sæti í tvímenningnum og
Ástralíumennirnir Steve Burgess og
Paul Marston enduðu í 3. sæti. Þeir
leiddu mótið eftir tvær umferðir af 5
í úrslitakeppninni en síðan tóku
Rodwell og Meckstroth forustuna
og eftir það var sigur þeirra aldrei í
hættu.
Ekkert íslenskt par náði inn í úrslita-
keppni tvímenningsins sem 48 pör
spiluðu í. Heiðri Norðurlandanna
var haldið uppi af þrem sænskum
pörum sem spiluðu í úrslitunum og
þar urðu Sundelin og Flodqvist í 8.
sæti.
Norðurlöndin fengu hinsvegar góða
fullrúa í úrslitum kvennaflokksins í
tvímenning en þar urðu dönsku
stúlkurnar Bettína Kalkerup og
Charlotte Palmlund í öðru sæti á
eftir Bandaríkjamönnunum Jacqui
Mitchell og Amalya Kearse. Margir
kannast sjálfsagt við Bettínu sem
komið hefur hingað á einar tvær
bridgehátíðir. Pó þær Mitchell og
Kearse hafi vakið mesta athygli;
Jacqui var þarna að fá fullt hús í
heimsmeistaramótum kvenna og
Amalya er fyrsti þeldökki spilarinn
sem vinnur til verðlauna í heims-
meistaramótum í bridge; þá þóttu
dönsku stúlkurnar spila einstaklega
vel og vandvirknislega. Dönsku stór-
spilararnir af karlkyninu sem tóku
þátt í mótinu voru hinsvegar ekki
svipur hjá sjón.
Fimm íslensk pör tóku þátt í
tvímenningskeppninni en alls tóku
um 400 pör þátt í mótinu. 330 pör
spiluðu í milliriðlum og úr þeim
komst 151 par í undanúrslitin. Tvö
íslensk pör komust áfram í undan-
úrslitin, Sigurður Sverrisson og Jón
Baldursson og Þórarinn Sigþórsson
Heimsmeistararnir í tvímenning kvenna, Amalya Kearse og Jacqui Mitcheii
hlusta á þjóðsönginn. Dick Goldbcrg og Ortiz-Patino eru einnig á myndinni.
Ortiz-Patinio lét nú af störfum sem forseti Alþjóða bridge-sambandsins eftir
10 ára farsælt starf og allir voru á einu ináli um að honum væri það einna
helst að þakka að bridge nýtur nú jafnmikillar virðingar um allan heim og
raun ber vitni. Við forsetaembættinu tók Denis Howard lögfræðingur frá
Ástralíu. Mynd B.E.
Guðmundur
Hermannsson
FRÉTTASTJÓRI
og Þorlákur Jónsson. Guðlaugur
Jóhannsson og Örn Arnþórsson og
Björn Theódósson og Jakob R.
Möller fóru síðan í mót sem spilað
var meðfram undanúrslitunum, eins-
konar upptökumót þar sem 6 pör
komust áfram í úrslitin, í viðbót við
þau 42 pör sem komust úr undanúr-
slitunum. Engu af íslensku pörunum
tókst að ná í úrslitin. Björn Eysteins-
son og Guðmundur Hermannsson
slepptu upptökumótinu enda þá
búnir að spila samfleytt í 8 daga án
hvíldar en fóru síðan í aukamót sem
spilað var samhliða úrslitakeppn-
inni. Þar hófu 80 pör keppni og
Björn og Guðmundur enduðu í 28.
sæti.
íslendingarnir á mótinu muna
sjálfsagt betur eftir sveitakeppninni
sem haldin var fyrri vikuna. íslending-
arnir spiluðu í tveim sveitum og þeir
Örn, Guðlaugur, Sigurður og Jón
náðu þeim frábæra árangri að kom-
ast í hóp sex ósigraðra sveita. Mótið
fór þannig fram að 140 sveitir byrj-
uðu í útsláttarkeppni og um leið og
sveitir töpuðu leik fóru þær í monr-
adkeppni sem spiluð var samhliða
en þar höfðu 30 sveitir hafið þátttöku
svo alls spiluðu 170 sveitir í mótinu.
Örn og félagar hans unnu alls 5
leiki í útsláttarmótinu og voru þá
komnir í 6 liða úrslit. Á þeirri leið
unnu þeir m.a. pólska sveit sem
skipuð var þeirn Wilkotz og Frenkiel
en þeir unnu þetta mót þegar það
var haldið fyrst árið 1978. Þær sex
sveitir sem eftir voru ósigraðar voru
Örn, frönsk sveit undir forustu Jose
Damiani en liðsmenn þeirrar sveitar
unnu sumir þetta mót árið 1982 og
Ólympíumótið 1980, og fjórar
bandarískar sveitir undir forustu
Mike Becker, Stelios Touchtidis,
Steve Robinson og Chip Martei.
Örn spilaði við Robinson og þá loks
urðu íslendingarnir að lúta í lægra
haldi.
Sveitirnar þrjár sem unnu í 6 liða
úrslitunum komust áfram í un.dan-
úrslitin, þær þrjá sem töpuðu fóru í
sérstaka míníútsláttarkeppni með
þeirn fimm sveitum sem efstar voru
á því augnabliki í monradkeppninni.
Þar lenti Örn á móti þýskri sveit í
fyrstu umferð, tapaði og var þar með
úr leik í toppbaráttunni. Sveit undir
forustu góðkunningja íslendinga frá
Pakistan, Zia Mahmood, vann míní-
útsláttinn og var þar með fjórða
sveitin í úrslitunum.
Undanúrslitaleikirnir voru báðir
spennandi og þó aðallega leikur
Beckers og Zia. Beckersveitin var
fyrirfram talin vera sigurstranglegust
á mótinu en í henni spiluðu Becker