Tíminn - 04.10.1986, Blaðsíða 16
16 Tíminn
Framsóknarfélag
Garðabæjar
heldur fund aö Goðatúni 2, mánudaginn 6. október kl. 20.30.
Fundarefni kjördæmisþing og fleira.
Stjómin
Seltirningar
Aðalfundur Framsóknarfélags Seltjarnarness
verður haldinn mánudaginn 6. okbóber kl. 20.30 í
félagshemili Seltjarnarness.
Dagskrá
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing og flokksþing
3. Húsnæðiskaup
4. Önnur mál
Félagar fjölmennið. Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin
Keflavík
Aðalfundur Framsóknarfélags Keflavíkur verður
haldinn fimmtudaginn 9. október kl. 20.30 í
Framsóknarhúsinu við Austurgötu.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðaifundarstörf
2. Magnús Haraldsson ræðir bæjarmálin
3. Jóhann Einvarðsson ræðir stjórnmálaviðhorfið.
4. Önnur mál.
Félagar fjölmennið, nýir félagar velkomnir
Stjórnin
Konur í Árnessýslu
Aöalfundur Fólags framsóknarkvenna í Árnessýslu veröur haldinn
fimmtudaginn 9. október kl. 20.30 aö Hótel Örk í Hveragerði (austur
dyr).
Erindi flytur Lára V. Júlíusdóttir, form. Kvenréttindafélags íslands og
talar um „Konur í kosningaham."
Venjuleg aöalfundarstörf - Önnur mál.
Nýir félagar velkomnir.
Gott kaffi - Mætið allar.
Stjórnin.
FUF
Aðalfundur FUF Reykjavík verður haldinn þriðjudaginn 14. október
kl. 20.15.
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Norðurland vestra
skoðanakönnun
Dagana 18. til 19. október nk. ferfram skoðanakönnun í Norðurlandi
vestra um val frambjóðenda til þátttöku í prófkjöri framsóknarmanna
sem ákveðið hefur verið í nóvember nk.
Stjórn kjördæmissambands Norðurlands vestra
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Hittumst að Rauö-
arárstíg 18, mánu-
daginn 6. október
kl. 3-5 e.h.
Formaður
_______________________________________________________________________________________________________________ Laugardagur 4. október 1986
lllllllllllllll DAGBÓK lllllllllllllllllllllllllllllllllllillllllllllllllílllllllllllll
Messur í Reykjavíkurprófasts-
dæmi sunnud. 5. október
Árbxjarprcslakall
Barnasamkoma í Foldaskóla í Grafar-
vogshverfi laugardaginn 4. okt. kl. 11
árdegis. Sunnudag: Barnasamkoma í
safnaðarheimili Árbæjarsóknar kl. 10:30
árdegis. Guðsþjónusta í safnaðarheimili
Árbæjarsóknar kl. 14. Organleikari Jón
Mýrdal. (Ath. breyttan messutíma) Sr.
Guðmundur Þorsteinsson.
Áskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðsþjónusta
kl. 14. Garðar Cortes syngur einsöng.
Nýr messuskrúði tekinn í notkun. Fagnað
framkvæmdum utan kirkjudyra. Kaffisala
safnaðarfélags Ásprestakalls eftir messu.
Sr. Árni Bergur Sigurbjörnsson.
Bústaðakirkja
Barnasamkoma kl. 11. Elín Anna Ant-
onsdóttir og Guðrún Ebba Ólafsdóttir
leiða starfið með presti og organista.
Messa kl. 14. Organisti Guðni Þ. Guð-
mundsson. Æskulýðsfélagsfundur þriðju-
dagskvöld. Félagsstarf aldraðra miðviku-
dagseftirmiðdag. Sr. Ólafur Skúlason.
Digranesprestakall
Barnasamkoma í safnaðarheimilinu við
Bjarnhólastíg kl. 11. Guðsþjónusta í
Kópavogskirkju kl. 14. Sr. Þorbergur
Kristjánsson.
Dómkirkjan kl. IX
Laugardag 4. okt.: Barnastarf Dómkirkj-
unnar hefst í kirkjunni kl. 10:30. Sóknar-
prestarnir. Sunnudag 5. okt. kl. 11.
Prcstvígsla. Biskup íslands hr. Pétur
Sigurgeirsson vígir eftirtalda kandidata í
guðfræði: Flosa Magnússon, sem settur
hefurverið prestur í Bíldudalsprestakalli.
Guöna Gunnarsson sem ráðinn hefur
verið til starfa sem skólaprestur á vegum
kristilegrar skólahreyfingar. Gunnar E.
Hauksson sem skipaður hefur verið prest-
ur í Þingeyrarprestakalli. Hjört Magna
Jóhannsson, scm skipaður hefur verið
prestur í Útskálaprestakalli. Kristján E.
, Þorvarðarson sem ráðinn hefur verið
annar farprestur þjóðkirkjunnar og mun
gegna prestsþjónustu á Eskifirði fyrst um
sinn. Sighvat Karlsson, scm skipaður
hefur vcrið prestur í Húsavíkurpresta-
kalli. Vígslu lýsirsr. Lárus Þ. Guðmunds-
son prófastur. Vígsluvottar auk Itans eru:
Sr. Bragi Friðriksson prófastur. Sr. Þórar-
inn Þór prófastur og sr. Ólafur Jóhanns-
son. Altarisþjónustu annast sr. Hjalti
Guðmundsson dómkirkjuprestur ásantt
biskupi. Dómkórinn syngur. Organleik-
ari Jón Stcfánsson. Sr. Hjalti Guðmunds-
son.
Elliheimilið Grund
Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Lárus Halldórs-
son.
Fella- og Hólakirkja
Barnaguðsþjónusta - Kirkjuskóli kl. 11.
Ragnheiður Sverrisdóttir. Ferming og
áltarisganga kl. 14. Organisti Guðný
Margrét Magnúsdóttir. Sr. Hreinn Hjart-
arsön.
Fríkirkjan í Reykjavík
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Guðspjallið í
myndum. Barnasálmar og smábarna-
söngvar. Afmælisbörn boðin sérstaklega
velkomin. Framhaldssaga. Við píanóið
Pavel Smid. Fermingarbörn komi til
skráningar í Fríkirkjunni laugardaginn 4.
okt. Sr. Gunnar Björnsson.
Grensáskirkja
Barnasamkoma kl. 11. Messa kl. 14.
Altarisganga. Fcrmdar verða Helga
Björg Ragnarsdóttir, Fiskakvtsl 18 og
Steinunn H. Blöndal, Hvassaleiti 15,
Reykjavík. Organisti Árni Arinbjarnar-
son. Sr. Halldór S. Gröndal.
Hallgrímskirkja
Messa kl. II. Altarisganga. Sr. Ragnar
Fjalar Lárusson. Barnasamkonta á sama
tíma í safnaðarheimilinu. Kvöldmcssa kl.
17. Altarisganga. Sr. Karl Sigurbjörns-
son. Þriðjudag 7. okt.: Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10:30.
Landspítalinn
Guðsþjónusta kl. 10. Sr. Ragnar Fjalar
Lárusson.
Háteigskirkja
Fcrmingarmessa á vegum Seljasóknar kl.
10:30. Messakl. 14. Sr. TómasSveinsson.
Minni á kökusölu í Blómavali á vegum
kvenfélags Háteigssóknar, laugardag kl.
13:00 til ágóða fyrir altaristöflusjóð.
Borgarspítalinn
Messa kl. 10. Sr. Sigfinnur Þorleifsson.
Kársnesprestakall
Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 11
árdegis. Sr. Árni Pálsson.
Langholtskirkja
Óskastund barnanna kl. II. Söngur,
sögur, myndir. Sverrir Guðjónsson og
Þórhallur Heimisson sjá um stundina.
Guðsþjónusta kl. 14. (Ath. brcyttan
messutíma). Prestur sr. Sigurður Haukur
Guðjónsson. Organisti Jón Stefánsson.
Sóknarnefndin.
Laugurneskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11. Messa kl. 14.
Altarisganga. Mánudaginn 6. okt. Æsku-
lýðsstarf kl. 18. Fundur í kvenfélagi
Laugarnessóknar kl. 20. Þriðjudag 7.
okt.: Bænaguðsþjónusta kl. 18. Tónlist
frá kl. 17:50. Ritningarlestur - fyrirbænir
- altarisganga. Sóknarprestur.
Neskirkja
Laugardag kl. 15-17. Samverustund aldr-
aðra. Gestir: Egill Ólafsson hljómlistar-
maður og Tinna Gunnlaugsdóttir leik-
kona. Sr. Guðmundur Óskar Ólafsson.
Sunnudag: Barnasamkoma kl. 11 árdcgis.
Sr. Frank M. Halldórsson. Guðsþjónusta
kl. 14 (Ath. breyttan tíma). Orgel- og
kórstjórn Reynir Jónasson. Sr. Guð-
ntundur Óskar Ólafsson. Þriöjudag og
fimmtudag: Opið hús fyrir aldraða í
safnaðarheimilinu frá kl. 13-17. Miðviku-
dag: Fyrirbænamessa kl. 18:20. Sr. Guð- _
mundur Óskar Ólafsson.
'Seljasókn
Laugardag 4. okt. Guðsþjónusta í Selja-
hlíð kl. 11 f.h. Sunnudag: Fermingarguðs-
þjónusta í Háteigskirkju kl. 10:30. Guðs-
þjónusta í Ölduselsskóla fellur niður
vegna fermingarinnar. Þriðjudag 7. okt.:
Fundur í æskulýðsfélaginu í Tindaseli 3,
kl. 20.
Seltjarnarneskirkja
Kl. 11. Fyrsta barnaguðsþjónusta vetrar-
ins. Kynning á barnaefninu, fjölbreyttur
söngur. Foreldrar hvattir til að koma
með. Kl. 14. Guðsþjónusta. Organisti
Sighvatur Jónasson. Prestur Sr. Solveig
Lára Guðmundsdóttir. Kaffisopi á eftir.
Mánudagó. okt. kl. 20, verður stofnfund-
ur unglingaklúbbs kirkjunnar á Seltjarn-
arnesi. Allir unglingar 13-15 ára velkomn-
ir. Verum með. Sóknarprestur.
Fríkirkjan í Hafnarfirði
Barnasamkoma kl. 11. Guðsþjónusta kl.
14. Orgel- og kórstjórn Þóra Guðmunds-
dóttir. Sr. Einar Eyjólfsson.
Fermingarbörn í Reykjavíkur-
prófastsdæmi sunnud. 5. okt.
Fella- og Hólakirkja.
Fermingar og altarisganga sunnudag-
inn 5. okt. kl. 14. Prestur sr. Hreinn
Hjartarson.
Gísli Guðmundsson, Austurbergi 32
Hermann Ragnarsson, Kaldaseli 2
Magnús Ragnar Magnússon, Kötlufelli 5
Sigurður Hlíðar Dagbjartsson, Erluhól-
unt 3
Grensáskirkja
Ferming og altarisganga sunnudaginn 5.
okt. kl. 14. Prestur sr. Halldór S.
Gröndal.
Helga Björg Ragnarsdóttir, Fiskakvísl 18
Steinunn H. Blöndal, Hvassaleiti 15
Hátcigskirkja
Fernting Seljasóknar í Hátcigskirkju
sunnud. 5. okt. kl. 10:30. Prestur sr.
Valgeir Ástráðsson.
Anna María Einarsdóttir, Þrándarseli 3
Jón Ingi Sigvaldason, Kögurseli 24
Steinunn Ketilsdóttir, Þjóttuseli 6.
Eyfirðingar
Árlegur kaffidagur Eyfirðingafélagsins
verður sunnudaginn 5. október í Súlnasal
Hötel Sögu.
Kvcnnadeild Eyfirðingafélagsins.
Kaffisala í Ásprestakalli
Munið kaffisöluna éftir mcssu á
morgun, sem verður kl. 14.00.
Safnaðarfélag Ásprestakalls
Ljóðalestur í Norræna húsinu
Á sunnudag S. okt. kl. 17.00 les breska
Ijóðskáldið KEITH BOSLEY upp Ijóð úr
nýjustu Ijóðabók sinni „A CHILTERN
HÚNDRED", og einnig les hann Ijóða-
þýðingar sínar m.a. úr Kalevala og ljóð
eftir portúgalska Ijóðskáldið Camöes,
sem uppi var á 16. öld.
Keith Bosley er fæddur 1937 og er
Ijóðskáld og þýðandi. Hann Itcfur unnið
við að þýða Kalevala Ijóðabálkinn og
mun bókin væntanlega verða gefin út
1989 hjá Oxford University Press. Ljóða-
bók hans „A Chiltern Hundred" fjallar
um Chiltern hverfið í London, en þar býr
höfundur. Keith Bosley er gíftur finnskri
kou, Satu Salo, hörpuleikara og eru þau
stödd hér á landi vegna norrænu tónlistar-
daganna.
Háskóli íslands,
óskabarn eða öskubuska?
er yfirskrift fundar sent Bandalag há-
skólamanna gengst fyrir sunnudaginn 5.
október næstkomandi kl. 14:00 í stofu
101 í Odda, húsi félagsvísindadeildar
Háskóla íslands.
Fundurinn hefst með setningarávarpi
formanns BHM Gunnars G. Schram, en
að því loknu verða erindi þriggja fram-
sögumanna, en þeir eru Friðrik Pálsson,
forstjóri S H, Ingjaldur Hannibalsson,
forstjóri Álafoss og Þorsteinn Gylfason
dóscnt. Aö loknum framsöguerindum
verða pallborðsumræður framsöguntanna
þar sem þeir svara einnig fyrirspurnum.
Umræðustjóri verður Guölaugur Þor-
valdsson, ríkissáttasemjari.
Fundur þessi er hluti af hatlðahóldum
vegna 75 ára afmælis Háskóla íslands.
Hann er öllunt opinn og cru áhugamenn
um háskólamálefni eindregið hvattir til
að koma á fundinn.
Fyrsta
málfræðiritgerðin
Mímir.félag stúdenta í íslenskum fræð-
unt við Háskóla Islands. mun gangast
fyrir nokkrum fyrirlestrum á laugardög-
unt fram að jólum. Sá fyrsti verður í dag.
og ræðir þá Svcrrir Tóntasson unt Fyrstu
málfræðiritgerðina og íslenska menntun
á 12. öld. Fyrirlesturinn verður í Odda,
hefst kl. 14 og er opinn öllu áhugafólki.
Háskólaerindi á 75
ára afmæli H.Í.:
Mánudagur 6. októbcr. Dr. Konrad
Zuse, verkfræðingur, V-Þýskalandi:
„Um uppruna tölvunnar**
Dr. Konrad Zuse er kunnur uppfinn-
ingamaöur og smíöaöi m.a. hina fyrstu
forritastýröu gagnavinnsluvél í heimi.
Hann cr viöurkenndur sem einn hinn
helsti frumkvööull „tölvubyltingarinnar“.
Fyrirlesturinn veröur fluttur á þýsku, í
'stofu 101 í Odda og hefst kl. 17.00.
Háskólaerindi á 75 ára
afmæli H.í.
Sunnudagur 5. október. Dr. Jónas
Kristjánsson, forstöðumaður Stofnunar
Árna Magnússonar á íslandi: „Áfangar í
Eddukveðskap“
1 fyrirlestrinum verður m.a. fjallað um
aldur Eddukvæða og uppskriftir þeirra,
en fyrirlesarinn hefur lengi fengist við
rannsóknir á Eddukvæðum. Á það skal
minnt, að bókaútgáfan Lögberg mun, í
samvinnu við Stofnun Árna Magnússon-
ar, gefa út vandaða Ijósprentaða útgáfu
Konungsbókar Eddukvæða og verður sú
útgáfa tengd 75 ára afmæli Háskólans.
Erindið er flutt í stofu 101 í Odda og
hefst kl. 17.00.
Haustmót Taf Ifélags Reykjavík-
ur hefst á sunnudaginn
Haustmót Taflfélags Reykjavíkur 1986
hefst næstkomandi sunnudag, 5. okt. og
verður teflt í húsakynnum félagsins að
Grensásvegi 44-46.
Umferðir tferða þrisvar í viku, á sunnu-
dögum kl. 14.(X) og á miðvikudögum og
föstudögum kl. 18.30. Biöskákadagar
veröa inn á milli.
Lokaskráning í aöalkeppnina er í dag,
laugard. 4. okt. kl. 14.00-18.00 og er
öllum heimil þátttaka.
Keppni í flokki 14 ára og yngri á
haustmótinu hefst laugard. 11. október.
Keppnin tekur þrjá laugardaga, þrjár
umferðir í senn. Bókaverölaun verða
fyrir a.m.k. fimm efstu sæti.
Fundur FEF:
Hvað veist þú um Féiagsmálastofnunina?
Félag einstæðra foreldra efnir til fyrsta
félagsfundar vetrarins n.k. ntánudags-
kvöld, 6. október, og verður rælt um
starfsemi Félagsmálastofnunar Reykja-
víkur. Fundurinn verður í Skeljahelli,
Skeljanesi 6 kl. 21.00.
Erla Þórðardóttir félagsráðgjafi og
Aðalsteinn Sigfússon barnasálfræðingur
„kynna starfsemi stofnunarinnar og þá
þjónustu og aðstóð sem einstæðir foreldr-
ar og börn þeirra geta leitað þar eftir
þegar vandi steðjar að“, eins og komist er
að oröi í féttatilkynningu frá FEF.
Fundarstjóri verður Hrafn Jökulsson.
Kaffi og meðlæti verður á borðum. Áður
en fundarefnið verður tekið fyrir verður
vetrarstarf FEF kynnt í stórum dráttum.
Norrænir tónlistardagar:
Langholtskirkja á laugardag:
Verðlaunaverk Hafliða Hallgrímssonar.
Islenska Hljómsveitin fagnar fimm ára
starfsafmæli um þesar mundir. f tilefni af
afmælinu kemur hljómsveitin fram á
lokatónlcikum Norrænna tónlistardaga.
Tónleikarnir verða haldnir í Langholts-
kirkju í dag, laugard. 4. okt. kl. 17.00.
Einleikarar verða þau Sigrún Eðvalds-
dóttir fiðluleikari og Guðni Franzson
klarinettuleikari, en Guðmundur Emils-
son stjórnar. Tónleikarnir eru haldnir í
samvinnu við Tónskáldafélag Islands. Á
efnisskrá eru fjögur tónverk, þar á meðal
verk Hafliða Hallgrímssonar, Poemí, en
fyrir það hlaut Hafliði tónskáldaverðlaun
Norðurlandaráðs. Að auki leikur hljóm-
sveitin Lamento eftir Anders Hillborg
Concertino nr. 4 cftir Holewa og verk
eftir Heininen. Tónskáldin verða við-
stödd tónleikana, - að Paavo Heininen
frátöldum. Aðgöngumiðar verða seldir
við innganginn.
Grafik eftir Önnu-Evu Bergman
í anddyri Norræna hússins
Sunnud. 5. okt. kl. 14.00 veröuropnuö
sýning á grafikmyndum eftir norsku lista-
konuna Önnu-Evu Bergman í anddyri
Norræna hússins. Hér er um aö ræöa
sýningu á tréristum unnum á árunum
1957 til 1976.
Anna-Eva Bergman hefur stundaö
myndlistarnám í Osló og París. Hún er
fædd 1909 í Stokkhólmi, en hefur búiö í
Frakklandi síöan 1952. Hún hefur haldið
sýningar í Osló, Helsinki og París. Hún
hefur einnig haldið sýningar á myndvefn-
aöi, og sýndi myndvefnaö ásamt manni
sínum, þýska listamanninum Hans
Hartung, í Picasso-safninu í Antibes
1985. Verk hennar er í eigu fjölda safna
víöa um heim, m.a. á Listasafn íslands
verk eftir hana.
Sýningin í Norræna húsinu verður opin
dagl. kl. 09.00-19.(X), nema sunnud. kl.
12.00-19.00 og stendur til 28.október.
Aðgangur er ókeypis.
Myndlistarsýning
á Kjarvalsstöðum
Guðrún Kristjánsdóttir opnar sýningu
á verkum sínuin á vesturgangi Kjarvals-
staða í dag, laugardag, kl. 14.(H).
Á sýningunni, sem er sölusýning, eru
50 verk, flest unnin á þcssu ári og því
síðasta.
Flest verkin eru „samsett" (collage) úr
handgerðum pappír. sem hún hcfur gert
sjálf. og máluðu taui.
Sýningin verður opin daglega dagana
4.-19. október kl. 14-22.
Guðrún Kristjánsdóttir er 36 ára Reyk-
víkingur. Hún var við nám í Myndlista-
skóla Reykjavíkur og listaskóla í Aix-en-
Provencc í Frakklandi um nokkurra ára
skeið. Hún heíur tekið þátt í samsýningu
F.I.M. 1983, Kvennasýningunni „Hér og
nú" á fyrra ári og „Reykjavík í myndlist"
á Kjarxalsstöðum á þessu ári.
Sýningin sem Guðrún opnar nú er
hennar fyrsta einkasýning.