Tíminn - 04.10.1986, Qupperneq 20
Vertu í takt við
AUGLYSINGAR 1 83 00
HANDKNATTLEIK og körfuknattleik hófust í
gærkvöld. Á íþróttasíðum bls. 10-11 er fjallað um veturinn framundan I
báðum greinum.
Læknisþjónusta á leiötogafundi:
Skurðstofur til taks
meðan á fundi stendur
- og vaktir allan sólarhringinn
„Við munum vera með sérstakan
viðbúnað og við gcrum ráð fyrir að
sérfræðingar, læknar sem og hjúkr-
unarfólk verði hér í húsinu á bund-
inni vakt meðan á þessu stcndur.
Einnig er gcrt ráð fyrir því að þaö
verði ávallt skurðstofa til taks ef þörf
krcfur. Við munum cinnig gera sér-
stakar ráðstafanir með sjúkrabíla,
en þann þátt á raunar enn cftir að
skipuleggja," sagöi Jóhannes Pálma-
son framkvæmdastjóri Borgarspítal-
ans í gær þegar Tíminn spurði hann
um viðbúnað vegna leiðtogafundar-
ins. Jóhannes sagði að til tals hefði
komið að það yröi staðsettur
sjúkrabíll allan tímann l'yrir utan
fundarstaðinn scm væri til taks ef
þörf krefði. „Síðan verðum við með
þjónustu hér í gegnum slysadeildina
og munum gefa út símanúmer fyrir
allt fylgdarlið til að hringja í ef upp
koma einhver læknisfræðileg vanda-
mál," sagði Jóhannes ennfremur.
Enn liggja ekki fyrir hvaða sér-
stöku óskir muni koma fram frá
læknum lciðtoganna en við þeim má
búast fljótlcga cftir helgina.
„Miðað viö reynslu undanfarinna
ára má búast við að fulltrúar leyni-
þjónusta ríkjanna vilji skoða að-
stöðuna á spítölunum, því allt bygg-
ist þetta á því að komast sem fljótast
með viðkomandi á áfangastað ef
eitthvað óvænt kem'ur fyrir. Pessir
öryggisvcrðir hafa enn ekki komið,
en mér þykir ótrúlegt annað en þeir
geri það, sérstaklega Bandaríkja-
menn viö þekkjum minna til Sov-
étmanna, en t.d. nú síðast í surnar
þcgar dóttir Reagans var hér þá kom
til okkar hcil sendinefnd frá banda-
rísku leyniþjónustunni.
Þegar Tíminn spurði Jóhannes
hvað fælist í því að hafa skurðstofu
til taks, sagði hann að þcir væru með
margar skurðstofur í gangi og ein
þeirra yrði tekin frá og höfð til reiðu
ef eitthvað óvænt kæmi upp. „Út-
lendingar eru í svona tilfellum
smeykir við byssur, og þá verður
þessi skurðstofa tilbúin ef það þarf
að veita einhverjum af þessum topp
leiðtogum þá þjónustu að fara inn á
skurðstofu. Pessi skurðstofa verður
því ekki notuð fyrir almenning rétt
á meðan á þcssu stendur og sömu
ráðstafanir eru gerðar með skurð-
stofu á Landspítalanum," sagði Jó-
hannes. - BG
!'“■ vi.vnMia uviiauiaima uu nuiuiiu ui luuuMin iu au mcu iciuiuguiuiiuinum ug engmn my nu :
hreyfa sig í tengslum við fundinn svo ekki séu sprottnir upp menn með sjónvarpsvélar, hljóðnema og myndavélar.
Þessi mynd var tekin þegar fundur Bandaríkjamanna, Sovétmanna og íslendinga um undirbúning fundarins
hófst í gær í Borgartúni 6. rímllnlylld Svcrrir
Ekkert ákveðið
með fundarstað
- á sameiginlegum fundi fulltrúa leiötoganna og
íslensku embættismannanefndarinnar í gær
Þetta er ekki tungiið að koma upp heldur sólin að hníga til viðar séð frá
Ægissíðunni, að mcstu leyti hulin af tunglinu. Tímamynd-Sverrir
Sólmyrkvinn í gær:
„HVAD GERDIST
EIGINLEGA?“
- spurði grandalaus áhorfandi
Þcim sem í gær varð auðið að sjá
tungl skyggja á sólu mun lcngi vera
atburðurinn minnisstæður. Fyrr á
öldum hafa sólmyrkvar vakið ugg
og óhug meðal fólks, þegar ekki
var vitað um hina raunverulegu
ástæðu þessa stórkostlega náttúru-
undurs sem menn sjá. Laust fyrir
klukkan 18.00 í gærkvöld flykktust
Reykvíkingar út á Seltjarnarnes og
Ægissíðu til að njóta þess, sem
hrelldi forfeðurna og varð kveikjan
að sögum um kraftaverk, reiði
guðanna og sönnun bölsýnismanna
um að heimsendir væri í nánd.
Dálítið skýjað var á himni þeg-
ar sól hvarf á bak við tungl, sem
fremur en að draga úr magnaði
upp áhrifin og atburðurinn varð
ævintýralegri og fegurri fyrir vikið.
Margir komu saman þar sem út-
sýni var gott og Ijósmynduðu eða
rýndu til himins gcgnum margföld
sólgleraugu eða, eins og Tíminn
hafði bent á, í gcgn um Ijósmynda-
filmu.
Þeirsem ekki fóru um loftin urðu
að þessu sinni af almyrkvanum,
en tungl huldi samt sem áður
mikinn hluta sólar, áður en hún
scttist. Birtubrigði sólmyrkvans
voru sérkennileg og yfir Reykjavík
voru greinileg Ijósaskiptin, svo að
ekki hefur annað eins sést lengi. Á
skýin sló einkennilegum roða-
bjarma og himinninn varð fjólublár
að lit. Skömmu síðar dimmdi
snögglega og ungur maður við
Ægissíðuna vatt sér aðTímamönn-
um og spurði: „Hvað gerðist eigin-
lega?" Sá verður betur vakandi
næst þegar sól myrkvast að öllu
leyti yfir íslandi eftir 40 ár, 2026.
Þór
Fulltrúar bandarísku og sovésku
leiðtoganna áttu sinn fyrsta fund
með íslensku embættismanna-
nefndinni í gær og átti þar m.a. að
ákveða fundarstað leiðtoganna urn
næstu helgi.
Ekkert var þó ákveðið um fund-
arstað, en nokkrir staðir koma til
greina, svo sem Höfði, Hótel Saga
og sendiráð beggja stórveldanna í
Reykjavík. Ekki var búist við því
að fundarstaður yrði ákveðinn fyrr
en í dag eða jafnvel síðar, því
fulltrúar leiðtoganna þurfa að
skoða alla mögulcika, ræða þá við
ríkisstjórnir landa sinna og taka
ákvörðun að því loknu, að sögn
Yngva S. Yngvasonar, ráðuneytis-
stjóra í Utanríkisráðuneytinu.
Hann sagði einnig að á morgun
yrði haldinn annar fundur um
málið, ef fulltrúar annars leiðtog-
ans óskuðu þess.
Ekki er Ijóst hvenær Reagan og
Gorbatsjov koma til landsins, en
fulltrúar þeirra komu í gær. Þó cr
búist við því að Reagan komi á
fimmtudaginn. Ekki er hcldur ljóst
hve margir verða í sendinefndum
forseta Bandaríkjanna og aðalrit-
ara Sovétríkjanna. Hins vegar
bendir allt til þess að Reagan búi í
bandaríska sendiráðinu á meðan á
dvöl hans stendur og Gorbatsjov á
Hótel Sögu ásamt sendinefnd
sinni.
ABS
SKIP 0G EINKAHUSNÆDI
LEYSA HÚSNÆDISVANDA
Um 700 beiðnir frá erlendum
frétta- og biaðamönnum eru nú til
úrvinnslu hjá Ferðaskrifstofu rtkis-
ins að sögn Þórunnar Ingólfsdóttur
deildarstjóra í gær. Það sem í boði
er af húsnæði fyrir þetta fólk er
rúmlega 300 herbergi frá einkaaðil-
um og gisting í skipi með 200
klefum, en skipið heitir Bolettc og
er norskt. Skipið kemur til landsins
frá Kristjánssand um hádegið á
þriðjudag 7. október og fer síðan
aftur 14. október. Það er Eimskipa-
félagið sem sér um lciguna á þessu
skipi. Ferðaskrifstofan Atlantik hef-
ur einnig ákveðið að bjóða gistirými
á skipi sem hún hefur tekið á leigu
og eins hafa borist fréttir af því, að
ferja frá Eistlandi, George Ots hafi
verið kölluð af sinni reglubundnu
leið og að hugsanlegt sé að hún verði
send hingað til að hýsa sovéska
borgara sem hingað koma.
Hjá Þórunni Ingólfsdóttur hjá
Ferðaskrifstofu ríkisins fengust þær
upplýsingar að framboð af einka-
húsnæði hafi verið mjög mikið og 15
manna skoðunarhópur hafi valið úr
það húsnæði sem frambærilegt þótti,
en mikið af því húsnæði sem í boði
var reyndist ónothæft. „Á hverju ári
erum við með svona gistingu í heima-
húsum og okkur þótti rétt að marka
stefnu í verðlagningu og ákveðið var
að verð fyrir eins manns herbergi
með morgunverði yrði 1600 kr.. en
2.400 kr. fyrir tveggja manna her-
bergi," sagði Þórunn. Hún sagði
ennfremur að mjög mikið framboð
væri af íbúðum og að á skrá hjá þeim
væru um 130 íbúðir. Fcrðaskrifstofa
ríkisins treystir sér þó ekki til að
annast íbúðaviðskipti, með tilheyr-
andi ábyrgðum og trvggingum.
Ferðaskrifstofan er þannig einungis
milligönguaðili í þeim viðskiptum. »
Til Ferðaskrifstofu ríkisins hafa
að auki borist boð frá fólki sem vill
leigja skrifstofuhúsnæði með hvers-
kyns hjálpartækjum, Ijósritunarvél-
um, telexaðstöðu o.fl. og einnig
vilja margir lcigja bíla með og án
bílstjóra. Að sögn Þórunnar hefur
starfsfólki ekki gefist tækifæri til að
fara í gegnum ogsinnaslíkum tilboð-
um.
Reikna má með að húsnæðisþörf-
inni sé nú að mestu eða öllu leyti
fullnægt. Þannig var mesti straumur-
inn af fyrirspurnum til Feðaskrif-
stofu ríkisins búinn í gær, þó þangað
væru engu að síður enn að berast
þangað erindi.
Laugardagur 4, október 1986