Tíminn - 08.11.1986, Page 5
Tíminn 5
19. flokksþing Framsóknarflokksins
Frískleg byrjun á
Framsóknarþingi
Það var líf og fjör meðal fulltrúa á nítjánda flokksþingi Framsóknarflokksins sem hófst í gær. Yfir 500
fulltrúar víðs vegar af landinu sækja þingið. Skýrsla flokksstjórnar og fyrsta lotan í almennum umræðum
var á fyrsta degi þingsins.
Mikil þátttaka var í almennu umræðunum og voru ræður málefnalegar. Síðari hluta dagsins hófust störf
í hinum ýmsu nefndum þingsins og munu þær starfa fram eftir kvöldi.
Tíminn tók nokkra þingfulltrúa tali til að heyra í þeim um flokksþingið og baráttuna framundan.
Sveinn Bernódusson Vestfjöröum:
„Það er að lifna
yfir flokknum“
Hrólfur Ölvirsson Suðurlandi.
Hrólfur Ölvirsson
Suöurlandi:
„Verður
starfsamt
flokksþing“
Hrólfur Ölvirsson Suðurlandi
sagðist sjá fram á starfsamt og öflugt
þing. enda væri það vel sótt og vel
undirbúið.
Helstu mál þessa þings taldi Hrólf-
ur verða þau mál sem kæmu til með
‘að verða efst á baugi í komandi
kosningabaráttu, sérstaklega
byggðamálin. Menningar- og
menntamál yrðu einnig mjög til
umræðu enda þyrfti þingið nauðsyn-
lega að taka á þeim málum í Ijósi
síðustu aðgerða Sverris Hermanns-
sonar menntamálaráðherra.
Hrólfur var fullviss um að staða
flokksins væri sterk, enda hið sterka
afl í núverandi ríkisstjórn, scm hcfði
unnið það þrekvirki að kveða næst-
um niður verðbólgudrauginn.
Stöðuna í Suðurlandskjördæmi
kvað Hrólfur góða enda vel mannað-
ur listi framsóknarmanna þar í boði,
sem mundi höfða til ungs fólks.
Fulltruur á 19. flokksþingi Framsóknarflokksins fylgjast með umræðum í
gær. Þingið stcndur fram á sunnudag. A mvndinni má meðal annars sjá þá
fulltrúa sem Landssamband framsóknarkvenna sendi á fundinn.
Vilhjálmur Hjálmarsson frá Brekku:
„STERK STAÐA
FLOKKSINS"
„Að sjálfsögðu mun þetta þing
bera keim af þeim kosningum sem
framundan eru," sagði Sveinn
Bernódusson frá Bolungarvík. Það
sem af væri þinginu þá hefur um-
ræðan vcrið góð og umfram allt
málefnaleg. Sveinn sagði að helstu
mál þingsins yrðu eflaust atvinnu-
mál og þá út frá byggðamálunum,
en á þeim þyrfti svo sannarlega að
taka.
Þá sagði Sveinn að staða Fram-
sóknarflokksins væri ekki sterk;
því bæði fengi flokkurinn neikvæða
umfjöllun í fjölmiðlum og forystu-
menn flokksins væru ckki nógu
harðir í að halda fram sínum
málum.
Ekki kvaðst Sveinn vera svart-
sýnn á framtíðina, baráttan væri
rétt að byrja. Staðan í Vestfjarða-
Sveinn Bernódusson Vestfjörðum.
kjördæmi væri góð eftir atvikum
og aðalatriðið væri að ná samstöðu
um sterkan framboðslista.
Jón Á. Eggertsson Vesturlandi:
„Þingið þarf að
ræða kjaramálin"
Það er greinilegur sóknarhugur f
fólki sagði Jón Á. Eggertsson úr
Borgarnesi og ekki væri verra hversu
fjölmennt þingið væri.
Efnahagsmál og byggðamál yrðu
meginmál þingsins. Þá væri Ijóst að
kjaramál kæmu til með að vera
ofarlega á baugi enda brýnt að ræða
þau mál. Það væri Ijóst að nauðsyn-
legt er að bæta kjör hinna lægstlaun-
uðu.
Varðandi stöðu Framsóknar-
flokksins í dag sagðist Jón ekki trúa
öðru en fólk mundi meta unnið
starf. Flokkurinn er í sókn um allt
land og hún mun halda áfram voru
lokaorð Jóns Á. Eggertssonar. Jón Á. Eggertsson Vesturlandi.
Hilmar Þ. Hilmarsson Reykjanesi:
„Þarf að bæta
áróðursstöðuna"
Þórhalla Snæþórsdóttir Austurlandi:
Qtofnir í i riAff hinn((
„oieimr 11 guu piny
Valdimar Guömannsson Noröurlandi vestra:
„Málefni bænda
skyggja á“
Vilhjálmur Hjálntarsson fyrrver-
andi menntamálaráðherra var
mættur á þingið hress að vanda.
Hann sagði að honum litist bara
vel á þingið, sem byrjað hefði með
glæsilegri samkomu í Háskólabíói
í fyrrakvöld. Yfir þingbyrjun ríkti
greinilega ánægjublær og umræður
væru jákvæðar. Flokksþing væru
ávallt mjög örvandi fyrir almennt
flokksstarf og hvert þing hefði sinn
tiltekna blæ.
Vilhjálmur taldi að gjörðir ríkis-
stjórnarinnar yrðu líklegast megin-
umræðuefnið. Alltaf væri uppi ein-
hver gagnrýni en almennt væri
góður tónn í mönnum.
Þá taldi hann að ýmiss konar
framtíðarmál yrðu mikið til um-
ræðu á þinginu og nefndi í því
sambandi fíknicfnamál, unihverf-
ismál og heimsfriðinn.
Vilhjálmur Hjálmarsson frá
Brekku (Tiniamynd Sverrir)
Vilhjálmur sagði að staða flokks-
ins væri sterk í dag, því almenning-
ur mæti þann mikla árangur sem
unnist hefði í baráttunni við verð-
bólguna. -ÞÆÓ
Ungur maður af Suðurnesjum,
Hilmar Þ. Hilmarsson var ánægður
með það sem var af þinginu. Þetta
væri vel undirbúið þing, enda væri
það mikilvægt fyrir flokkinn.
Hann sagði að það þyrfti að verða
áherslubreyting hjá flokknum í fjöl-
miðlamálum, því koma þyrfti boð-
skapnum til fólksins. Þingið væri
kjörinn vettvangur slíkrar umræðu.
Hilmar sagði að flokkurinn ætti
örugglega meira fylgi en skoðana-
kannanir sýna, enda hefði forsætis-
ráðherra látið ríkisstjórnina vinna
vel.
Varðandi stöðuna í Reykjanesi
sagði Hilmar að menn væru bjartsýn-
ir og sannfærðir um sigur í næstu
kosningum. Steingrímur Hermanns-
son hefði sýnt það með ákvörðun
sinni að Framsóknarflokkurinn væri
„Þetta er mitt fyrsta þing og mér
líst vel á það," sagði Þórhalla Snæ-
þórsdóttir Egilsstöðum. Þing sem
þetta væri nauðsynlegt, því saman
kæmi fólk af öllu landinu og ræddi
mörg brennandi mál.
Umræðurnar sagði hún einkenn-
ast nokkuð af frantboðsræðum
þeirra, sem kæmu úr kjördæmum
þar sem ekki hefði verið gengið frá
framboðsljstum.
Þórhalla var hvergi bangin við
framtíðina og sagði að staða flokks-
ins væri sterk og á uppleið. Fram-
sóknarmenn á Austfjörðum væru
ákveðnir í að gera enn betur í
komandi kosningum en þeim síð-
ustu.
Valdimar Guðmannsson bóndi að
Bakkakoti í Vestur-Húnavatnssýslu
sagði að þingið væri vel sótt og lofaði
góðu um framhaldið. Þó sagði Valdi-
mar að málefni bændastéttarinnar
og hvcrnig að hcnni hefði verið
vegið kænti til nteð að skyggja á
þinghaldið. „Réttmæt og hörð gagn-
rýni væri uppi á aðgerðirnar í land-
búnaðarmálum enda blasir við að
ntargar bújarðir fari í eyði.“
Frarhsóknarflokkurinn hefurslak-
að á byggðastefnunni og þeir þing-
menn sem harðast hafa varið stefn-
una virðast á undanhaldi innan
flokksins sagði Valdimar ákveðinn.
Almenn deyfð væri úti á Iands-
byggðinni og staða Framsóknar-
flokksins væri þar ekki sterk. Valdi-
mar kvaðst þó ekki svartsýnn á
framhaldið, en þá þyrfti að grípa til
nauðsynlegra ráðstafana þegar í
stað.
Valdimar Guðmannsson frá Bakka-
koti.
ekki síður flokkur þéttbýlis en dreif-
býlis.
Hilmar Þ. Hilmarsson, Reykjanesi
Þórhalla Snæþórsdóttir Austur-
landi.