Tíminn - 16.04.1987, Síða 6
6 Tíminn
Páskablað
Vísir að íslenskum
atvinnudansflokki
í listgrein sem
hefur orðið
útundan segir
Bára Magnúsdóttir
afmælishófi sem Jazzballet-
skóli Báru hélt á Hótel Sögu
fyrir skömmu tilkynnti Bára
Magnúsdóttir formlega stofnun
íslenska jazzballetflokksins. Til-
gangurinn er að litið verði á
jazzballet sem viðurkennda list-
grein og flokkurinn geti í sam-
vinnu við leikhúsin og íslensku
óperuna tekið þátt í sýningum.
Einnig að flokkurinn geti unnið
sjálfstætt að uppfærslu söng og
danssýninga svo framarlega sem
hann fái aðstöðu til þess. Fram
að þessu hefur jazzballettflokkur
Báru sett á svið fjölda dans og
söngleikja við mjög þröngar að-
stæður, þá á öldurhúsum borgar-
innar.
Bára Magnúsdóttir hefur unn-
ið ötulega að því að koma þess-
ari listgrein á framfæri fyrir dauf-
um eyrum ráðamanna. Það var
ekki fyrr en hún skrifaði
Menntamálaráðuneytinu bréf
þar sem hún fékk góðar undir-
tektir Kristins Hallssonar full-
trúa í Menntamálaráðuneytinu
að skriður komst á málið. í
framhaldi af því hafði Bára sam-
band við forráðamenn íslensku
óperunnar og Leikfélag Reykja-
víkur; Magnús Kjartansson
hljómlistarmann og Hermann
Ragnar Stefánsson forseta
Dansráðs íslands. Allir þessir
aðilar sýndu málinu áhuga og
eru þessa dagana að vinna að
tilnefningu fulltrúa í undirbún-
ingsnefnd. Bára sagði í samtali
Bára Magnúsdóttir tilkynnir
formlega stofnun íslenska
jazzballetflokksins.
Kristinn Hallsson fulltrúi
Sverris Hermannssonar sem
ekkl átti heimangengt.
Islenskur
J azzballetflok
formlega stofnaður
Allir í rétta röð. Hafnarfjörður, Garðabær og Mosfellssveit.
Nýtt og fullkomið tölvustýrt símaborð tryggir snögga sím- Höfum opnað nýjar biðstöðvar við Ásgarð í Garðabæ,
svörun og afgreiðslu eftir réttri röð. Þegar þú hringir í Hreytil Esso-stöðina við Reykjavíkurveg í Hafnarfirði og við Þverholt
og heyrir lagstúf, veistu að þú hefur náð sambandi við í Mosfellssveit. Þetta tryggir enn betri þjónustu.
skiptiborðið og færð afgreiðslu von bráðar. Höfuðborgarsvæðið er nú eitt gjaldsvæði.
Nú getur Hreyfill ekið þér frá Laxnesi
að Bessastöðum eða frá Austurvelli í Straumsvík
á innanbæjartaxta Reykjavíkur
\ UREVFILL /
68 55 22
við Helgarblaðið að lengi hefði
verið draumur sinn að koma á
fót slíkum flokki atvinnudansara
hér. Erlendis væru starfandi
leikhús þar sem dansarar settu
upp söngleiki á borð við Cats og
Evitu, auk þess að setja á svið
nútímadansa sem sérstaklega
væru samdir fyrir viðkomandi
dansflokka. Bára vildi meina að
almenningur gerði sér ekki grein
fyrir hvaða möguleika dans-
flokkur eins og pessi hefði að
bjóða; þau gætu rauninni
dansað, sungið og leikið. Hún
nefndi að nafnið jazzballet væri
villandi og sagði í því sambandi
að réttara orð væri dansleikhús
sem væri bein þýðing á viðlíka
list sem þrífst erlendis. í því
sambandi sagði Bára að þar
væru dansarar menntaðir frá
skólum eins og School of Art og
Musical Theather. Sjálf sótti
hún skóla sem ber nafnið Art
educational og sýnir að ótvírætt
er litið'á þessa dansgrein sem list
erlendis.
Með stofnun þessa flokks
sagðist Bára vera m.a. að hvetja
íslenska danshöfunda til að
semja verk sérstaklega fyrir
flokkinn. Hvað varðar skipulag
og rekstur, þá sagðist hún stefna
að því að fá erlendan þjálfara og
flokkurinn yrði skipaður tæp-
lega 20 dönsurum. Allir dansar-
ar ættu kost á að þreyta inn-
tökupróf og þá að sjálfsögðu
aðrir sem stunda dans ekki ein-
göngu hjá sér, enda væri þessi
flokkur ekki hennár séreign þó
svo hún hafi verið hvatamaður
að því að koma honum á laggirn-
ar.
Bára sagðist vera bjartsýn á
hvernig til tækist og allir sem
hún hefði rætt við hefðu tekið
mjög vel í þetta framtak og í
rauninni hefði boðsgestum
hennar komið mjög á óvart
hversu fjölhæfir dansararnir
væru. Að lokum sagðist Bára
vonast til að þetta yrði aðeins
vísirinn að því að efla menning-
arlíf okkar og þessi listgrein fái
að dafna og njóta þeirra virðing-
ar sem hún á skilið. -BD.