Tíminn - 16.04.1987, Side 19
Páskablað
frosti og snjókomu. í jólaleyfinu
voru gerðar hér nokkrar lagfær-
ingar, eins og ég sagði þér um
daginn, m.a. tókst að stöðva
lekann í miðstöðvarklefa mötu-
neytishússins, sem orðinn var
allmikill. Eins var skipt um
nokkra ofnkrana sem láku,
þannig að nú er hvergi sjáanleg-
ur leki af miðstöðvarkerfinu og
er það að sjálfsögðu mjög
ánægjulegt. En eftir viðgerðina
brá svo við, að þeir ofnar sem
áður hitnuðu, hættu því, þannig
að undanfarna daga hafa allir
ofnar þar verið kaldir. Strákun-
um þykir þetta að vonum heldur
leiðinlegt. Verst þykir þeim að
fara fram úr á morgnana og eins
segja þeir að það fari illa með
tannburstana að frjósa í glösun-
um. En ég á von á Brodda í
kvöld að athuga miðstöðina,
hvað sem út úr því kemur.
Lekinn í „bakaríinu“ hefur
aukist talsvert þótt salernin á
miðhæðinni hafa enn ekki verið
tengd. Ég hef sagt stúlkunum að
hnoða ekki eða hræra deig undir
lekanum meðan ekki er vitað
hvers eðlis hann er. Næsta skref
er að brjóta upp vatnsleiðslu í
salernisgólfinu. Því það er nú
hald manna að hún sé ryðguð í
sundur. Strákarnir, tæplega 60
að tölu, þurfa því enn að komst
af með tvö salerni og eru þar
neðri-hæðarbúar fremur óhress-
ir yfir því að þurfa að standa í
biðröð uppi í risi, auk þess sem
þeir kvarta sáran yfir kulda á
salernunum. Sem betur fer hafa
þau samt haft undan. Annað
stíflaðist reyndar í dag, en ekki
alvarlega og náði ég stíflunni
auðveldlega úr, - en menn gæta
þess vandlega þessa dagana að
styggja ekki kokkinn.“
(Skýringar: Broddi er pípulagn-
ingarmaður. Bakaríið á neðstu
hæð er beint undir salernunum
á miðhæð. Þegar salernum á
miðhæð er lokað þurfa íbúar þar
að fara upp í rishæð.)
En auðvitað hefur margt ann-
að gerst í framkvæmdamálum
við stóran skóla og viðskiptum
hans við ríkið og það eru ekki
aðeins bilaðar leiðslur, heldur
einnig nýbyggingar og aðrar
framkvæmdir.
Til gamans svona að lokum
eru hér birtar skólareglur þær
sem skrifaðar voru inn í gerða-
bók eftir brunann 1960 og þar
með endurnýjaðar. Þessar regl-
ur eru mun frjálslegri núna.
Daglegir hættir og skólareglur
Virkir dagar:
Kl. 07:35 Morgunhringing.
Kl. 07:50 Fyrsta kennslu-
stund.
Kl. 08:35 Morgunverður,
ræsting herbergja.
Kl. 09:00-11:25 Þrjár kennslu-
stundir. Nemendum er skylt að
mæta í kennslustundum. Fjar-
vera án leyfis viðkomandi
kennara telst skróp, nema veik-
indi eða aðrar frambærilegar
ástæður séu fyrir hendi. Nem-
endum ber að koma stundvís-
lega í kennslustundir, umsjónar-
menn færa bekkjarbækur, svo
sem form þeirra segir fyrir um.
Nemendur eiga að vera snyrti-
lega klæddir og gæta þess að
bera ekki for og óhreiningi inn f
stofurnar. Tyggigúmmí, bréfa-
skriftir og samtöl í kennslu-
stundum er bannað. Of seint
Tíminn 19
BORGARA
FLOKKVRim
STORHATID
B0BBY HARRIS0N
flytur lag sitt,
STANDBYME,
sem hann tileinkar
Borgaraflokknum
og Albert
Guðmundssyni .
á *-,*.«*
Ávarp
Albert
BRESKA HLJOMSVEITIN Guðmundsson
MARMALADE
Miðaverð kr. 1.000.- Fordrykkur innifalinn.
Broadway21. Vestmannaeyjum 22. Selfossi 23. april
Lög aftopp 10 lista:
Reflections of my life
OB LA Dl. - OB LA DA -
Loving things - Radancer
- Rainbow og fleiri. ..
telst hver sá nemandi koma,
sem ekki kemur fyrr en kennsla
er byrjuð.
Kl. 11:40-12:15 Útivist. Nem-
endum er skylt að vera úti
þennan tíma hvern virkan dag,
nema laugardaga, ef veður
hamlar ekki. Hver nemandi fær
útivistarnúmer og merkja um-
sjónarmenn við inni í gamla sal
um leið og nemendur koma
þangað til útivistar. Nemendur
eiga að hafa skjólgóð útiföt og
útiskó. Kennarar líta eftir úti-
vistinni, að hún sé rækt, klæðn-
aði o.s.frv.
Kl. 12:30 Miðdegisverður.
Nemendur mæti stundvíslega til
matar og mega ekki vera á
útiskóm í borðstofu. Matur er
borinn á eitt langborð og sækja
nemendur hann þangað, einn
fyrir hvert borð nema þegar
skipt er í flokka, en þá sækir
hver nemandi sinn mat á lang-
borðið, einn flokkur í einu eftir
því sem eftirlitskennari segir
fyrir um. Ekki er staðið upp frá
neinu borði fyrr en allir nemend-
ur við það borð hafa lokið við að
matast, þá ganga þeir snyrtilega
frá mataráhöldum og bera þau
til starfsstúlknanna í uppþvotta-
herberginu. Ekki er gert ráð
fyrir að skipt verði í flokka
nema við kvöldmat.
Kl. 13:00 Fimmta kennslu-
stund. (Sleppt útlistunum á
hvaða bekkir eiga að mæta í
hana).
Kl. 15:30 Síðdegisdrykkur.
Hann er á dálítið mismunandi
tímum eftir því hvernig stendur
á kennslustundum.
Kl: 16:30-19:00 Lestrartími.
Þennan tíma eiga allir nemend-
ur, nema þeir sem þá eru í
kennslustundum, að nota til
lestrar og heimavinnu. Piltar í
verknámsdeild og eldri deild,
sem flestir búa í fjölbýlisstofum,
eru skyldugir að lesa í sérstakri
lesstofu sem starfrækt verður á
þessum tíma undir eftirliti
kennara.
Kl. 19:30 Kvöldverður.
Kl. 21:30 Lokun húsa. Kenn-
arar annast það til skiptis. Er
nemendum þá skylt að vera
komnir inn. Kennarar fara þá
um vistir pilta og ganga úr
skugga um að enginn hafi lokast
úti. Gert er aðvart um lokun
með hringingu.
Kl. 22:30 Þá er hringt til
háttatíma og talið í heimavist
kvenna, en það annast handa-
vinnukennari þeirra. Eftir þann
tíma skal allt vera hljótt í skólan-
um.
Helgar:
Kl. 19:00 á laugardögum.
Kvöldmatur.
Kl. 20:30 Kvöldkaffi. Annað-
hvert laugardagskvöld verður
væntanlega dansleikur frá
kvöldkaffitíma til kl. 23.30 eða
24:00 ef viðkomandi eftirlits-
kennarar (en þeir verða jafnan
tveir á laugardagskvöldum)
leyfa og fjör er í dansinum. Hitt
laugardagskvöldið verði leitast
við að hafa eitthvað til dægra-
styttingar. Lokun það laugar-
dagskvöldið kl. 23:00 eða síðar
ef eitthvað það er á dagskrá sem
gengur lengra fram á kvöldið.
Eftir lokun verður herbergis-
ganga eins og önnur kvöld.
Kl. 11:00 á sunnudögum.
Matur. Morgunverður enginn á
sunnudögum. KaffLog kvöld-
matur á sama tíma og virka
daga.
Kl. 20:30 (eða 21:00) Kvik-
myndasýningar eða annað þess
háttar.
Kl. 22:00 Lokun og herbergis-
ganga.
Almennar reglur:
1. Heimsóknir milli kynja í her-
bergi alveg bannaðar.
2. Útvarp aðeins leyft eftir kl.
16:00 á laugardögum. Sama
gildir um segulbandstæki og
grammófóna. Þó er nemend-
um í fjölbýlisstofum (eldri
deild og verknámsdeild)
Úr skólalífinu
heimilt að hafa útvarpstæki
kl. 21:30-22:30.
3. Heimsóknir af staðnum eru
háðar samþykki skólastjóra.
4. Til að taka á móti gestum
þarf leyfi skólastjóra nema
foreldrar séu.
5. Dvöl í aðkomubílum, enda
þótt heima yið skóla sé, er
bönnuð nema foreldrar séu
þar.
6. Tóbaks- og áfengisneysla er
bönnuð.
7. Póstur (bréf) verður jafnan
afhentur í borðstofu. Böggla
vitji nemendur til skóla-
stjóra.
Eftirfarandi reglubrot valda taf-
arlausri brottvísun úr skóla:
A. Brugg áfengis.
B. Næturdvöl í herbergi gagn-
stæðs kyns.
En nú eru breyttir tíma og
öldin önnur. Þróunin heldur
áfram í skólamálum eins og
öðru. En menntun er máttur og
það er gaman að fylgjst með
ungu fólki sem er að fikra sig
eftir þeirri braut.
S.H.