Tíminn - 03.10.1987, Blaðsíða 13
Laugardagur 3. október 1987,
Ttminn 13
ÍÞRÓTTIR
Dregið í 2. umferð Evrópukeppninnar í knattspyrnu:
Real Madrid mætir Porto
- Kalmar gegn Sporting - Wismut Aue mætir albönsku liði - Sparta Prag keppir gegn Anderlecht
Evrópumót
unglinga-
liðaí
frjálsum
íþróttum
Unglingalandslið drengja í
frjálsum íþróttum (19 ára og
yngri) keppir í dag við nokkur af
bestu félagsliðum Evrópu auk
unglingalandsiiðs Lúxemborgar.
Keppni þessi var upphaflega milli
þriggja félaga frá Englandi, Hol-
landi og Belgíu en er nú opin
öllum félögum í Evrópu og auk
þess mega landslið fámennustu
þjóðanna taka þátt í keppninni.
Þau félög sem keppa í ár eru:
Landslið íslands, landslið Lúx-
emborgar, RFC Liege Belgíu,
AAC Amsterdam Hollandi,
Shaftesburi Harriers Englandi,
Houtlalnd AC Belgíu, Stade
Clermotois Frakklandi, O. Her-
akles Grikklandi, LC Bruhl Sviss,
FC Bayer Urdingen V-Þýska-
landi, KA 2 IF Karlskrona Sví-
þjóð og Birchfield Harriers Eng-
landi.
í fyrra var keppt í London og
tókst íslenska liðinu þá ekki að
sigra neitt lið en í ár er stefnt að
því að vinna Lúxemborg. Keppn-
in verður í Amsterdam.
íslenska landsliðið er þannig
skipað: Jón A. Magnússon HSK,
Einar Einarsson Á, Friðrik Lar-
sen HSK, Steinn Jóhannsson FH,
Finnbogi Gylfason FH, Björn
Pétursson FH, Frímann Hreins-
son FH, Ólafur Guðmundsson
HSK, Friðrik Steinsson UMSS,
Einar Kristjánsson FH, Haukur
Guðmundsson HSK, Bjarki
Viðarsson HSK, Ágúst Andrés-
son UMSS, Jón A. Sigurjónsson
KR, EinarFreyr Jónsson UMSB,
Kristinn Guðlaugsson FH.
Reuter
Dregið var í 2. uniferð Evrópu-
keppninnar í knattspyrnu í gærmorg-
un. Stórleikur 2. umferðar verður án
efa leikur Real Madrid og Porto í
Evrópukeppni meistaraliða og má
segja að Real fái ekki heimsins
léttustu mótherja í ár því Porto eru
núverandi Evrópumeistarar. Real
sló sem kunnugt er ítölsku meistar-
ana Napoli út í 1. umferð.
Ti! gamans má velta fyrir sér
hvaða mótherja íslensku liðin hefðu
fengið ef þau hefðu komist í 2.
umferð. Wismut Aue dróst gegn
albönsku Iiði, Vlora, sem sló Partiz-
an Belgrad frá Júgóslavíu út í fyrri
umferð. Peirgeta kannski bara hrós-
að happi Valsmenn að það verða
leikmenn Wismut Aue sem þurfa að
keppa á móti þessu liði sem fæstir
hafa heyrt um hér á landi. Aue
leikur fyrri leik sinn á heimavelli.
Skagamenn hefðu lent í klóm fornra
fénda, Kalmar dróst nefnilega á
móti Sporting Lissabon sem fóru illa
með ÍÁ í Evrópukeppninni í fyrra.
Framarar áttu aldrei möguleika á að
komast áfram en mótherjar Sparta
Prag eru engir aðrir en Arnór Guð-
johnsen og félagar í Anderlecht.
Guðmundur Steinsson bíður eftir
hornspyrnu ásamt varnar- og mark-
manni Sparta Prag. Arnór Guð-
johnsen og félagar í Anderlecht
glíma við Sparta Prag í 2. umferð
Evrópukeppninnar. Ovíst er þó að
Arnór leiki, hann hefur verið meidd-
Ur Sem kunnugt er. Tímamynd: Pjetur
Önnur umferð Evrópukeppninnar
verður þá svona:
Evrópukeppni meistaraliða:
Xamax (Sviss)-Bayem Munchen (V-Þ)
Real Madrid (Sp.)-Porto (Portúgal)
Bordeaux (Frakkl.)-Lilleström (Nor.)
Árhus (Danm.)-Benfica (Portúgal)
Glasgow Rangers-Gornik Zabrze (Póll.)
Sparta Prag (Tékk.)-Anderlecht(Belg.)
Rapid Vín (Austurr.)-PSV (Hollandi)
Steua (Rúmeníu)-Omonia (Kýpur)
Evrópukeppni bikarhafa:
Shkoder (Albaníu)-Rovaniemen (Finnl.)
Ofi Crete (Grikkl.)-Atalanta (íta.)
i Young Boys (Sviss)-Den Haag (Holl.)
Real San Seb. (Sp.)-Dyn. Minsk (Sov.)
Kalmar (Svíþjóð)-Sporting (Portúgal)
Hamburg (V-Þ)-Ajax (Hollandi)
St. Mirren (Skotl.)-Mechelen (Belg.)
Marseille (Frakkl.)-Hadjuk (Júg.)
Evrópukeppni félagsliða:
Dundee Utd. (Skotl.)-Vitkovice (Tékk.)
Bremen (V-Þ)-Spartak Moskva (Sovét.)
Sportul (Rúmenía)-Bröndby (Danm.)
Inter (Ítalíu)-Turun (Finnl.)
Beveren (Belgíu)-Guimaraes (Portúg.)
AC Milano (Italíu)-Espanoi (Spáni)
Wismut Aue (A-Þýskal.)-Vlora (Alban)
Aberdeen (Skotl.)-Feyenoord (Holl.)
Chaves (Portúg.)-Honved (Ungverjal.)
Verona (Ítalíu)-Utrecht (Hollandi)
Dortmund (V-Þ)-Velez Mostar (Júg.)
Barcelona (Spáni)-Dyn. Moskva (Sov.)
Toulouse (Frakkl.)-Leverkusen (V-Þ)
Panathinaikos (Grikkl.)-Juventus ({)
Rau^a Stjarnan (Júg.)-Brugge (Belg.)
Vitoria (Rúm.)-Dyn. Tbilisi (Sovét.)
Leikið verður heima og heiman, liðið
sem nefnt er á undan leikur á heimavelli
21. okt. en síðari leikirnir verða 4. nóv.
Evrópukeppnin í handknattleik:
Víkingur og Breiðablik leika
síðari leiki sína um helgina
Víkingar og Breiðabliksmenn
leika um helgina síðari leiki sína í
Evrópukeppninni í handknattleik.
Víkingar unnu stórsigur á Liverpool
í fyrri Ieiknum og eru öruggir áfram
en Blikar eru nánast úr leik eftir
stórtap gegn HIK í Kaupmanna-
höfn.
Breiðablik og HIK keppa í Digra-
nesi í dag kl. 17.00. HIK er eitt
sterkasta félagslið Danmerkur og
mun Per Skárup telja það sterkasta
lið sem Danir hafa eignast í 10-15 ár,
ekkert minna. Meðal leikmanna
liðsins er Michael Fenger sem á að
baki 120 A-landsleiki. HIK keppti
gegn Rauðu Stjörnunni frá Júgó-
slavíu í Evrópukeppni meistaraliða
í fyrra og tapaði samtals 49-52. Árið
á undan vann liðið belgískt lið í
fyrstu umferð en tapaði 40-42 sam-
tals fyrir Barcelona í 2. umferð.
Víkingar ætla sér stórsigur á Liv-
erpool sem mun ekki vera sterkt
handknattleikslið. Víkingar eru aft-
ur á móti í Evrópukeppni 11. árið í
röð. Kristján Sigmundsson mark-
vörður verður erlendis og missir af
leiknum en hann hefur leikið alla
hina leikina. Leikur Víkinga og
Liverpool hefst kl. 20.30.
Síðasta
sumarsins
Norðdekk rally, síðasta rall-
keppni sumarsins hófst við
Gúmmívinnustofuna Réttarhálsi
2 kl. 6.00 í morgun. Leið öku-
manna liggur um Kaldadal, sér-
leiðir í Borgarfirði, Kaldadal til
baka og endað á Esjuleið um kl.
14.00. Bíiarnir koma í endamark
við Gúmmívinnustofuna kl. 16.00
og þar mun sigurvegurunum
fagnað.
Þó úrslit í íslandsmeistara-
keppninni séu þegar Ijós - þeir
feðgar Jón Ragnarsson og Rúnar
Jónsson hafa þegar sigrað - verð-
ur örugglega hart barist. Bílarnir
sem keppa eru 28 talsins og eru
þar á meðal 6 óbreyttir bflar og
ein kvenáhöfn.
Fyrsta
raquet-
mótið
Fyrsta raquetballmót vetrar-
ins, Stjörnu-Wilson mótið, hefst
í Veggsport á morgun kl. 13.00.
Verðlaun á mótinu eru gefin af
Austurbakka hf. Þátttaka til-
kynnist í Veggsport (19011) eða
Dansstúdió Sóleyjjar (667701)
fyrir kl. 13.00 í dag.
Liverpool
á toppinn?
AUar líkur eru á að Liverpool
snari sér á topp ensku 1. deildar-
innar eftir leiki helgarinnar. Liv-
erpool vann Derby 4-0 í vikunni
og er komið í 2. sæti, þremur
stigum og tveimur leikjum á eftir
QPR. Liverpool á heimaleik á
móti Portsmouth en QPR skýst
milli borgarhverfa og keppir við
Wimbledon.
AUKIN BÍLAÞJÓNUSTA ESSO
, SJÁLFVIRKAR
BIIAÞVOTTASTOÐVAR
i REYKJAVlK, HAFNARFIRÐI,
KEFLAVlK OG AKUREYRI
Við bjóðum nú fullkominn bílaþvott og bón
í sjálfvirkum bílaþvottastöðvum á fjórurnstöðum
á landinu:
Skógarseli, Breiðholti Lækjargötu, Hafnarfirði
öðinni, Keflavík Veganesti, Akureyri
Olíufélagið hf