Tíminn - 24.10.1987, Blaðsíða 5

Tíminn - 24.10.1987, Blaðsíða 5
Laugardagur 24. október 1987 Tíminn 5 Örtröð í konuríkinu. Um 15% söluaukning á vodka: Afengisneysla aukist um 8*9% á tveim árum Áfengissala ÁTVR er um 5% meiri á þessu ári en á sama tíma á síðasta ári, mælt í hreinu alkóhóli. Það er í kringum 4% neysluaukn- ing á mann frá sama tíma 1986, en þá varð einnig rúmlega 4% aukn- ing í áfengisneyslu á mann að meðaltali, samkvæmt upplýsingum frá ÁTVR. Sala á sígarettum hefur einnig aukist nokkuð milli ára, eftir að hafa farið minnkandi árin 1985 og 1985. Vodkadrykkja íslendinga er rúmlega 15% meiri það sem af er þessu ári heldur en á sama tíma í fyrra. í lok september var ÁTVR búið að selja um 565 þúsund lítra af vodka sem var nærri 80 þús. lítra aukning milli ára. í þessu magni eru tæplega 226 þús. lítrar af hreinu alkóhóli, enda fá landsmenn nú orðið yfir 37% af öllu sínu alkóhóli úr vodka, sem ’nlýtur því að geta kallast orðið þjóðardrykkur á íslandi. Heildarneysla hreins alkóhóls fyrstu 9 mánuði ársins eru um 605 þús. lítrar, sem er aukning úr um 577 þús. lítrum á sama tíma 1986. Val manna á áfengistegundum hefur í mörgum tilvikum breyst verulega milli ára. T.d. hefur neysla á gini aukist um 55%, sala á bitterum aukist um 33%, á freyði- víni um 20%, á koníaki um 19%, rommi um 16%, rauðvínum um 8% og viskí um 5%. Sala á vermúti hefur hins vegar minnkað um 20%, og litlu minna á genever. Þá hefur sala á íslenska brennivíninu minnkað um rúmlega 7% og hvít- vínum um 6%. I framangreindar tölur vantar öll áfengiskaup sem áhafnir skipa og flugvéla flytja inn í landið og sömuleiðis það sem ferðamenn kaupa í fríhöfninni ogerlendis. En nær þriðjungi fleiri hafa nú farið í utanlandsferðir heldur en í fyrra. í frétt frá ÁTVR kemur ekki fram hvað landsmcnn hafa borgað fyrir allt þetta áfengi. Áfcngisvarn- arráð upplýsir á hinn bóginn að sumarmánuðina júlí, ágúst ogsept- ember hafi menn rcitt af hcndi rúmlega 936 milljónir króna vegna áfengiskaupa, en 700 milljónir kr. sömu mánuði 1986. Mun því vægt áætlað að landsmenn hafi borgað um 3.000 milljónir króna fyrir áfengi á tímabilinu ef einnig er reiknað með nærri tvöföldun á verði þess hluta scm selt er í veitingahúsunum. í lok septembcr var búið að selja um 16,5 milljón pakka af sígarett- um, scm var allt að 5% söluaukn- ing milli ára. Rciknað á núverandi vcrði í smásölu rnundu 16,5 milljón sígarettupakkar kosta tæplcga 2.000 milljónir króna. Samtals hafa landsmcnn því snarað út scm svarar um 5.000 milljónum króna fyrir áfengi og tóbak fyrstu 9 mánuði ársins, sem svarar til um 20.400 kr. á hvert mannsbarn í landinu, eða um 9 þús. kr. að meðaltali á hvcrja fjölskyldu. -HEI Útgeröarmenn á Suöurnesjum áhyggjufullir: Þegar búið að selja Dagstjörnuna? Aðstandendur útgerðarfélagsins Eldeyjar hf. á Suðurnesjum hafa nú miklar áhyggjur af því að togarinn Dagstjarnan KE 3 verði seldur norð- ur í land, nánar tiltekið til Útgerðar- félags Akureyringa, en samkvæmt heimildum blaðsins Fiskifrétta á aðeins eftir að skrifa formlega undir kaup ÚA á skipinu og er kaupverðið sagtábilinu 170-180 milljónirkróna. Einn viðmælandi Tímans á Suður- nesjum, sagði að það „væri mjög óæskilegt ef hún færi héðan“ og bætti við að hann vonaðist til að aðstandendur Eldeyjar gætu séð til þess að skipið færi hvergi. Útgerðarfélaginu hefur hins vegar ekki verið boðið skipið til kaups, enda hefur það ekki umboð til að fjárfesta í skipum, enn sem komið er a.m.k. Dagstjarnan KE 3, sem áður hét Rán, var smíðuð í Englandi 1969, verður seld á nauðungaruppboði, ásamt togaranum Keili, en báðir þessir togarar eru í eigu sama útgerð- arfélags. Uppboðið fer fram í des- ember, og verður þá útgerðarfélagið Eldey hf. væntanlega formlega stofnað og getur boðið í togarann, eða togarana. -SÓL Notaðar dráttarvélar til sölu Zetor 5211 50 ha. árgerö 1983 Zetor 5011 50 ha. árgerö 1982 Ursus C362 65 ha. árgerö 1981 Ursus C360 60 ha. árgerö 1980 IMT 549 51 ha. árgerö 1986 IMT 567 4WD 65 ha. árgerö 1985 Ursus C362 m/ámoksturst. 65 ha. árgerö 1981 j Vélarnar eru til sýnis að Bíldshöfða 8 | Góð greiðslukjör Vélaborg Bútæknihf. Sími 686655/686680

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.