Tíminn - 24.10.1987, Blaðsíða 19
Laugardagur 24. október 1987
Tíminn 19
Eritreumenn önnum kafnir við að
halda í gangfæru ástandi flota af
Fiat og Mercedes flutningabílum,
sem eiga að flytja nauðsynlegan
varning yfir víglínuna. Meðan ég
beið á sjúkrahúsi, sem Eritreu-
menn reka í rústum Suakin, talaði
ég við ungan aflimaðan Eritreu-
mann, sem hafði orðið fórnarlamb
amerískrar jarðsprengju frá þeim
dögum þegar Bandarfkin studdu
Haile Selassie Eþíópíukeisara,
sem steypt var af stóli 1974. Meðan
við töluðum saman pússaði maður-
inn svört leðurstígvél, sem stungið
hafði verið á gervilimi í eigu vina
hans á sjúkrahúsinu.
Þegar vörubíllinn kom héldum
við í átt til Eritreu eftir strönd
Rauðahafsins. Við fórum um þorp,
þar sem kofum hafði verið komið
upp í skyndi en ekki var stingandi
strá að sjá, og um tjaldþyrpingar
endinu voru stráfelldir. Keisarinn
beitti hungursneyð sem vopni á
þann hátt að matvælaaðstoð var
ekki leyfð á svæðum þar sem
mótspyrna gegn stjórn ríkisins var
öflug.
1974 steypti herforingjastjórn,
Dergud, undir forystu herforingja
að nafni Mengistu Haile Mariam,
Selassie af stóli og kom á marxisku
stjórnarfari. Nýja stjórnin valdi að
byggja orðstír sinn á því að brjóta
andstöðuna í Eritreu á bak aftur,
rétt eins og keisarinn áður. Rök-
semdafærsla byltingarstjórnarinn-
ar var sú sama og keisarans, ef
Eritrea hlyti sjálfstæði ætti Eþíópía
engan aðgang að sjó.
Þegar komið var fram á árið
1977 munaði minnstu að Eritreu-
menn hefðu rekið eþíópisku her-
mennina af höndum sér og í leið-
inni tekið herfangi geysilegt ma>n
Hermenn frelsishers Eritreu, E.P.L.F., hafa barist fyrir aðskilnaði lands síns
frá Eþíópíu undanfarin 25 ár og liggja vígstöðvarnar um þessa 200 mílna
löngu skotgröf, sem Eþíópíumönnum hefur aldrei tekist að leggja undir sig
hirðingjanna sem klæddust skær-
lituðum jökkum og báru sverð eins
og á dögum krossfaranna.
Á palli bílsins lá ungur hermaður
í frelsisher Eritreu. Hann var
lamaður fyrir neðan mitti og nýrun
voru farin að gefa sig. Nú var aftur
verið að flytja hann til baka, þessa
löngu leið til sjúkrahússins í her-
bækistöðvunum í fjöllunum við
Orotta. Hann fékk oft áköf kvala-
köst við ofsafenginn hristinginn á
- Fyrri hluti -•
bílnum. En það virtist ekki skipta
máli hvaða sársauka ósléttur veg-
urinn leiddi fram í þeim helmingi
skrokks hans sem hann gat enn
fundið til í, aldrei hækkaði hann
röddina mikið yfir hálfgert taut.
Ég skammaðist mín fyrir vanlíðan
mína þar sem ég sat í svitabaði í
þrengslunum í framsætinu.
Við komum til Orotta í dagrenn-
ingu, í þann mund sem fyrsta
Antonov flugvél Eþíópíumanna
renndi sér yfir fjallatoppana á eftir-
litsflugi.
.... og þá komu Rússar
til sógunnar
Eritrea var ítölsk nýlenda frá
1890 en Bretar náðu landinu á sitt
vald 1941 og héldu þar yfirráðum
til 1952, þegar Sameinuðu þjóðirn-
ar gerðu Eritreu að sambandsríki
Eþíópíu undir stjórn Haile Selass-
ie, hins smávaxna „ljóns Júda“.
Hann var álitinn hetja á Vestur-
löndum, en heima fyrir var hann
harðstjóri.
1962 lagði keisarinn Eritreu und-
ir sig með valdi og lagði niður
sambandsríkjaformið. Amhariska,
ríkismálið, varlögboðið. Hirðingj-
ar og múhameðstrúarmenn á lágl-
af vopnabúnaði Eþíópíumanna. Þá
komu Rússar til sögunnar. Sovéski
sjóherinn skaut af fallbyssum á
bækistöðvar Eritreumanna í
grennd Massawa, hafnarborgar á
strönd Rauðahafsins. Sovéskir
skriðdrekar, hergögn og flugvélar
tóku þátt í árásinni. Austur-Þjóð-
verjar mættu á staðinn til að skipu-
leggja eþíópisku öryggissveitirnar.
Meira en 10.000 Kúbanir voru
sendir til að taka þátt í bardagan-
um, ásamt stórskotaliðsmönnum
og skriðdrekasveitarmönnum Suð-
ur-Jemens.
Eritreumenn hörfuðu til bæki-
stöðva sinna í norðurhluta landsins
og yfirgáfu borgir sínar til að
hindra að þær yrðu lagðar í rúst,
að þeirra eigin sögn. 1978 byggðu
Eritreumenn langa línu af styrkt-
um skotgröfum. Síðan hafa Eþíóp-
íumenn gert átta meiri háttar árásir
en mistekist að komast endanlega
yfir skotgrafirnar. Á þessum tíma
hefur baráttan beinst að frelsisher
Eritreu, skammstafað E.P.L.F.,
sem við fyrstu sýn er bara ein af
þessum óskiljanlegu skammstöfun-
um, sem Afríkumenn berjast og
deyja fyrir án þess að vita hvað
tákna og rugla Vesturlandamenn í
ríminu.
Lifað og starfað inni
í fjallshlíðum
I dagsbirtu líkist Orotta helst
löngum yfirgefnum dal með brött-
um hlíðum og gæti verið á af-
skekktum stað í Ástralíu eða Ariz-
ona. Sama svipmót er á öllum
svæðamiðstöðvum Eritreumanna.
íbúðarhús og skrifstofur eru yfir-
leitt sprengjuheld steinskýli, sem
grafin eru inn í fjallshlíðina. Þök
þeirra og inngangar eru dulbúnir
úr lofti séð með trjástofnum, mold
eða hinum alls staðar nálægu þyrni-
trjám. Sólbakaðar hlíðarnar gefa
enga hugmynd um að þúsundir
Eritreumanna búi og vinni beint
undir fótunum á manni. Satt að
segja venst maður því fljótlega að
leiðsögumaðurinn bendi á hrauk
undir þyrnitré og segi sem svo:
„Þarna undir er efnahagsáætlunar-
nefndin!“
Fyrstu næturnar mínar í Orotta
snæddi ég máltíðirnar, geitakjöt
og pasta, við borð miðaldra Eritr-
eumanns, sem kallaður er Saleh.
Saleh var áður sveitarstjóri, en
hafði snúist á sveif með Eritreu-
mönnum skömmu fyrir 1980. Saleh
beið eftir því að sonur hans kæmi
í Ieyfi. Sonur hans var með árásar-
sveitum Eritreumanna, sem sífellt
færa sig úr stað og starfa hinum
megin víglínunnar, suður af Or-
otta.
Þegar fór að skyggja á degi
hverjum fékk Saleh lánaða bæna-
mottu, skrautlega mjög hjá upplýs-
ingadeild E.P.L.F., lagði hana á
malarþakta jörðina og bað í áttina
til Mekka.
Leiðsögumaður minn þennan
mánuð sem ég ætlaði að vera í
Eritreu var grannur gamall her-
maður, kallaður Fessaha. Þegar
við böðuðum okkur að næturlagi
við blys í lækjarsprænum, sá ég ör
eftir sárin sem Fessaha hafði hlotið
í hermennskunni, eftir sprengju-
brot á hálsinum, djúpt ör eftir
byssukúlu undir herðablaðinu og á
síðunni bar hann blá-hvítan upp-
drátt sem merki um áverka.
Mörg voru þau kvöldin sem
Fessaha leiðbeindi mér niður, und-
ir lág þakskeggin þar sem birgðir
herráðsins af AK-47 sjálfvirkum
rifflum voru geymdar, gegnum
tjöld og inn í nýtískuleg húsakynni
einhverrar hersveitar E.P.L.F.
Kannski vorum við komnir inn í
ljósmyndadeild njósnadeildarinn-
ar, eða inn í hellinn þar sem
fréttablaðið Events, sem kemur út
tvisvar í viku, er gefið út. Eða
kannski var það stílabókadeildin,
en á kápum bókanna er mynd af
brosandi hirðingjastúlku og
slagorðið: Berjumst gegn ólæsi.
Aflimaðir menn með ólífugreinar
milli tannanna, hvíldu á hækjum
sínum og störfuðu við flóknu ítöl-
sku heftingarvélina.
Þarna er líka bíódeild sem
Frakki með túrban á höfði og
kallast Hillal stjórnar. Upphaflegt
nafn hans er Christian Sabatier og
hann er búinn að vera í Eritreu
síðan 1976. Þar hefur hann komið
upp filmusafni um Eritreustríðið
og þjóðfélagið þar. Á mynd-
bandavinnustofu Hillals inni í
klettinum vinna 50 manns og þar
eru myndirnar fullunnar frá upp-
hafi til enda.
Hillal skýrði mér frá því að það
sé því sem næst ómögulegt að fá
leyfi til að taka mynd eða kvik-
mynd af forystumönnum Eritr-
eumanna. Meðal annars vegna
þess sagði Hillal að þeir óttast að
vekja upp ævafornan trúarlegan
ágreining milli kristinna, andatrú-
ar- og múhameðstrúarmanna, en
hver hópur um sig gæti fengið þá
hugmynd að hann ætti ekki nógu
marga fulltrúa í forystusveitinni.
Forystumennirnir virðast of niður-
sokknir í styrjöldina til að velta
mikið fyrir sér hvernig leita megi
eftir meiri stuðningi umheimsins.
Þó að þeir séu þjóðernissinnaður
hópur sem berst gegn marxiskum
stjórnvöldum, sem njóta stuðnings
Rússa, standa þeir á því fastar en
fótunum að notast sjálfir við sígilda
marxiska frasa, sem ekki virðist
bera með sér lýðræðislega dreif-
ingu valds innan hreyfingarinnar
og eykur þeim ekki vinsældir hjá
vestrænum stjórnvöldum.
Sérkennilegt sjúkrahús
Nærri vinnustofu Hillals er hið
sérkennilega sjúkrahús í Orotta,
stór keðja af sprengjuskýlum og
hellum sem ná næstum 5 mílur eftir
hrjóstrugum dal. Sjúkrahúsið er
skipulagt að vestrænni fyrirmynd,
þar eru sprengjuskýli fyrir tauga-
sjúkdóma, bæklunarskurðaðgerð-
ir, hjarta- og æðasjúkdóma, fæð-
ingar og kvensjúkdóma og aðrar
sérgreinar innan læknisfræðinnar.
Byrjendanámskeið - Framhaidsnámskeið
Landssamband framsóknarkvenna í samvinnu við Samband ungra
framsóknarmanna býður hér með upp á hin vinsælu námskeið í
sjálfsstyrkingu, fundarsköpum, fundarhaldi og framkomu í sjónvarpi.
Alls 5 kvöld eða 1 helgi.
Einnig framhaldsnámskeið 4 kvöld eða helgi þar sem boðið verður
upp á leikræna tjáningu, framsögn, ræðumennsku og sjónvarpsfram-
komu. Reyndir hressir leiðbeinendur taka að sér leiðsögnina.
Ef þið hafið áhuga þá hringið sem fyrst í síma 91-24480 og pantið
námskeið. Góð fjárfesting fyrir gott verð.
LFK og SUF
Framsóknarfólk Austurlandi athugið
28. kjördæmisþing framsóknarmanna á Austurlandi, verður haldið á
Hótel Höfn, Hornafirði dagana 30. og 31. október n.k. og hefst kl.
20.00.
Gestir þingsins verða: Steingrímur Hermannsson, Guðmundur
Bjarnason, Sigurður Geirdal, Guðrún Jóhannsdóttir frá L.F.K. og
Guðmundur Gylfi Guðmundsson frá S.U.F.
Nánari upplýsingar í síma 97-11584. KSFA.
í
Kópavogur
Kópavogsbúar. Steingrímur Hermannsson utanríkisráðherra ræðir
stjórnmálaviðhorfin á fundi í Hamraborg 5, miðvikudaginn 28. október
kl. 20.30.
Fundarstjóri: Skúli Sigurgrímsson, bæjarfulltrúi.
Fjölmennum og tökum með okkur gesti.
Framsóknarfélagið í Kópavogi
Kópavogsbúar
Skrifstofa Framsóknarfélaganna, Hamraborg 5, 3. hæð er opin alla
virka daga kl. 10-12, sími 41590.
Opið hús alla miðvikudaga kl. 17-19.
Starfsmaður: Einar Bollason
Tökum höndum saman og hefjum öflugt vetrarstarf.
Heitt á könnunni. Framsóknarfélögin.