Tíminn - 24.10.1987, Side 18
18 Tíminn
Rangæingar
Aöalfundur Framsóknarfélags Rangæinga veröur haldinn I Kaffistofu
K.f. Rangæinga, Hvolsvelli, miövikudaginn 28. október kl. 21.00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Kosníng fulltrúa á kjördæmisþing.
Önnur mál
Jón Helgason ráöherra, Guðni Ágústsson alþingismaður, Ólafía
Ingólfsdóttir starfsm. KSFS koma á fundinn.
Nýir félagar velkomnir.
Stjórnin
Ólafía Jón Guðni
Konur Árnessýslu
Aðalfundur félags framsóknarkvenna I Árnes-
sýslu verður haldinn að Eyrarvegi 15 Selfossi,
mánudagskvöldið 26. október n.k. kl. 21.00.
Venjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál.
Gestur fundarins verður Valgerður Sverris-
dóttir alþingismaður.
fyfætum eldhressar í byrjun vetrarstarfs.
Stjórnin
Aðalfundur
Aðalfundur Framsóknarfélags Árnessýslu verður haldinn að Brautar-
holti á Skeiðum sunnudaginn 25. október nk. kl. 21.00. Dagskrá
samkvæmt félagslögum. Kynntar verða tillögur að breytingum á
lögum kjördæmissambandsins.
Stjórnin
Vesturland
Skrifstofa kjördæmissambandsins Brákarbraut 1, Borgarnesi verður
opin á mánudögum og miðvikudögum kl. 13.00-17.00. Sími 71633
og sími utan skrifstofutíma 51275.
Stjórnin
Framsoknarfólk Suðurlandi
28. Kjördæmisþing Framsóknarfólaganna á Suðurlandi verður haldið
helgina 7.-8. nóv. n.k. á Kirkjubæjarklaustri og hefst kl. 14
laugardag.
Nánar auglýst síðar.
KSFS
Suðurland
Skrifstofa Kjördæmissambands Framsóknarfélaganna á Suðurlandi,
Eyrarvegi 15, Selfossi, er opin alla þriðjudaga og fimmtudaga frá kl.
13-17 sími 2547.
Heimasími starfsmanns er 6388.
Framsóknarmenn eru hvattir til að líta inn eða hafa samband.
Framsóknarfólk Austurlandi athugið
28.kjördæmisþing framsóknarmanna á Austurlandi, sem vera átti á
Hótel Höfn, Hornafirði dagana 9. og 10. október nk. verður frestað 'til
30. og 31. október nk. og hefst kl. 20.00. Nánari upplýsingar í síma
97-11584. KSFA
............. ■*
Austfirðingar - Árshátíð
Árshátíð KSFA verður haldin á Hótel Höfn
laugardaginn 31. október og hefst kl. 20.
Fjölbreytt skemmtiatriði. fyieðal þeirra er fram
koma eru Jóhann Már Jóhannsson, Jóhannes
Kristjánsson og Karlakórinn Jökull, auk ýmiss •
konar heimalagaðra atriða.
Borðapantanir á Höfn í síma 81446 - Kristín
- og í síma 81787 - Sverrir - eða á skrifstofu
KSFA, Egilsstöðum I síma 11584.
KSFA
Árnesingar
Hin árlega framsóknarvist Framsóknarfélags Árnessýslu hefst föstu-
daginn 23. október kl. 21.00 I Aratungu, föstudaginn 30. okt. í
Félagslundi og lýkur 13. nóvember að Flúðum.
- Aðalvinningur er ferðavinningur frá Samvinnuferðum-Landsýn. Heild-
arverðmæti vinninga 75.000 kr.
Allir velkomnir : Stjórnin
Laugardagur 24. október 1987
Mæður með nýfædd börn sín á einni fæðingardeildinni. Sjúkrahús í Eritreu eru byggð úr leir eða grjóti og gerð
ósýnileg úr lofti með alls kyns dulbúnaði
ERITREA
- landið sem hefur barist fyrir
sjálfstæði í 25 ár
Issayas Afewerki er kosinn foringi frelsishers Eritreu samkvæmt kosninga-
kerfi þar sein sérhver fullvaxinn Eritreumaður hefur kosningarétt
Yfirleitt er hljótt í alþjóðlegum
fjölmiðlum um hið hrjáða land
Eritreu, þar sem aðskilnaðarsinnar
hafa barist fyrir frelsi lands síns
undan oki stjórnar Eþíópíu undan-
farin 25 ár og orðið að horfast í
augu við hungur og annað harð-
ræði. í vor dvaldist ástralski rit-
höfundurinn Thomas Keneally í
Eritreu í fjórar vikur og skrifaði
um dvöl sína þar fróðlega grein
sem birtist nýlega í The New York
Times Magazine. Útdráttur úr
henni fer hér á eftir og verða
lesendur vonandi nokkru fróðari
um ástandið í Eritreu og orsakir
þess á eftir.
Það eru ekki aðeins þurrkar
sem valda hungursneyð
- þar koma líka styrjaldir
við sögu
í sérhverju sjúkrahúsi í Eritreu,
en þau eru öll byggð úr leir, sá ég
hanga á vegg sama veggspjaldið.
Það sýnir tvö börn, annað þeirra
vannært og hitt ber merki eggja-
hvítuskortssjúkdómsins kwashi-
orkor, sem veldur hinu dæmigerða
útliti fórnarlambs hungursneyðar,
útblásna kviðinn. Textinn á þess-
um myndum, sem alls staðar voru
nálægar, var yfirleitt á tigrinya eða
tigre, aðalmálunum í Eritreu,
landsvæði sem liggur meðfram
strönd Rauðahafsins og tilheyrir
nú Eþíópíu. Um alla Eritreu er
sterk tilfinning um að það sé jafn-
vel óhjákvæmilegt að hungursneyð
bíði eins og ræningi í næsta dal,
eða handan við hornið, á næsta
regntíma, sem aldrei má treysta.
í hvert skipti sem hungursneyð
ríkir í Afríku sjáum við líka van-
næringu og kwashiorkor á sjón-
varpsskjánum okkar. Við sáum
slíkar myndir í hungursneyðinni
miklu 1984-1985 og nú lítur út fyrir
að okkur verði sýndar slíkar mynd-
ir aftur á komandi ári, vegna
þurrka og engisprettuplágu á svæð-
inu. Myndirnar, og oft textinn sem
fylgir, gefa okkur þá hugmynd að
Afríku sé ekki viðbjargandi:
En það eru ekki aðeins þurrkar
sem valda hungursneyð; þar koma
líka styrjaldir við sögu. í 25 ár hafa
íbúar Eritreu staðið í styrjöld í
þeim tilgangi að vinna frelsi frá
Eþíópíumönnum. Markmið Eþí-
ópíumanna í þeirri styrjöld hefur
verið að útrýma aðskilnaðarsinn-
um í Eritreu. Það er styttra síðan
Rússar komu til sögunnar á svæð-
inu, þar sem þeir styðja tilraunir
marxistastjórnar Eþíópíu í því að
leggja Eritreumenn að velli.
Þegar rætt er um hungursneyð á
þessu svæði leitum við skýringa á
því hvort eigi meiri sök á henni
heitur blær stríðsátaka eða glóð-
heitur gusturinn frá Sahara. Blaða-
menn og starfsmenn hjálparstofn-
ana í Eritreu sögðu mér að þar
mætti sjá afleiðingar allra þátta,
hörkulegrar stjórnmálabaráttu á
svæðinu, afskipta risaveldis, lang-
varandi stríðsátaka.
Vel skipulögð hjálpar-
starfsemi Eritreumanna
sjálfra - fer fram
að næturlagi
Til að komast til „frjálsrar" Er-
itreu varð að koma norðan að, um
Súdan. Þar lá bylting í loftinu og
var mikill órói og kviksögur á
kreiki.
Fluginu, sem ég ætlaði með til
Port Súdan, í grennd landamæra
Eritreu, var aflýst vegna óvissunn-
ar, en engar skýringar voru gefnar.
Þegar ég loks komst til Port
Sudan og hafði mín fyrstu kynni af
skipulagi Eritreumanna, hvarf
hugmyndin um hina stríðshrjáðu
og hjálparvana Afrikumenn út í
veður og vind.
Eritreumenn höfðu komið á fót
sínu eigin kerfi til að útdeila að-
stoðinni. Það kerfi var starfrækt að
næturlagi - til að forðast sprengju-
árásir Eþíópíumanna - og var
dreift matvælum og öðrum nauð-
synjum til Eritreumanna báðum
megin víglínunnar. Hún var í formi
200 mílna langrar styrktrar skot-
grafar sem skilur að svæði sem
Eritreumenn ráða yfir og það sem
Eþíópíumenn eru allsráðandi á.
Árangur þeirra sem þessu kerfi
stjórna er enn athyglisverðari þeg-
ar haft er í huga að þeir stjórna
aðgerðum úr sprengjuskýlum og
steinkofum neðanjarðar, beint
undir skotmörkum MIG sprengju-
flugvéla eþíópiska flughersins.
I niðurníddu hafnarborginni Su-
akin, sunnan við Port Sudan, sem
er stórt samsafn af upphrófuðum
kofum úr spýtum og bárujárni, eru