Tíminn - 12.11.1987, Side 7

Tíminn - 12.11.1987, Side 7
Fimmtudagur 12. nóvember 1987 Tíminn 7 Sparifjareigendur borguðu um 500 milljónir í „geymslugjald“ fyrir sparifé sitt ________til banka 1986, en það dugar ekki til og bankaráðherra segir: Eiginfjárstaða banka lagfærð með vaxtamun Þrátt fyrir að bankar og sparisjóðir hafi tekið sér að meðaltali 8-9% hærri vexti af útlánum en þeir borga á innlánsfé, a.m.k. síðustu 2 ár, hefur það ekki dugað til að þeim tækist að fullnægja lagaákvæðum um eiginfjárstöðu. Þessi vaxtamunur er þó meiri en hjá bönkum í nágrannalöndunum. Á árinu 1986 náðu bankarnir þessum vaxtamun m.a. með því að greiða rúmlega 1% mínusvexti á öll innlán að meðaltali- sem í raun þýðir að þeir hafi tekið um 500 milljóna kr. „meðgjöf“ eða „geymslugjald“ af fjármununum sem þeim voru fengnir til ávöxtunar og ekki er búist við að sú „meðgjöf“ lækki í ar Upplýsingar um þennan 8-9% vaxtamun, og að hann sé meiri en í nágrannalöndunum komu m.a. fram í svari viðskiptaráðherra við fyrirspurnum Svavars Gestssonar, á Alþingi, um raunávöxtun innlána og útlána í bankakerfinu og hvað sé „óhæfilegur vaxtamunur milli inn- og útlána“. Og síðan segir: „Þann vaxtamun sem hér er, verður að skoða í ljósi slakrar eiginfjárstöðu banka og sparisjóða. Með nýjum lögum um banka og sparisjóði var að því stefnt að þessar stofnanir styrktu stöðu sína með auknu eiginfé. Töluverður vaxtamunur um hríð kann að vera nauðsynlegur til að bankar og sparisjóðir geti fullnægt ákvæðum laga um eiginfjárstöðu“. „Meðgjöf“ í stað ávöxtunar í ljósi þess að þrátt fyrir þennan mikla vaxtamun skila bankarnir engri raunávöxtun að meðaltali á þá fjármuni sem landsmenn leggja þar inn til ávöxtunar - þó það komi ekki fram í svari ráðherrans - virðist af því mega ráða að hann leggi blessun sína yfir að banka- kerfið safni í tæpa sjóði sína nt.a. með nokkurskonar „meðgjöf" eða „geymslugjald" sem þeim er leyft að taka af því fé sem landsmenn fela þeim til ávöxtunar. En sam- kvæmt upplýsingum sem Tíminn fékk í Seðlabankanum var „meðal- ávöxtun" allra innlána bankakerf- isins um 13,5% á síðasta ári á sama tíma og lánskjarvísitalan hækkaði um 14,7%, sem þýðir að þeir hafa að meðaltali skilað rúmlega 1% mínusvöxtum á innlánin. Og tæp- ast var búist við að útkoman yrði öllu skárri í ár. 1.200 milljóniraf sparifjáreigendum á 2 árum Rúmlega 1% mínusvextir þýða með öðrum orðum, að þvert ofan í öll gylliboð bankanna um svo og svo mikla ávöxtun á innlán, vantar yfir 500 milljónir króna á, að bankakerfið skili landsmönnum til baka jafnvirði þeirra u.þ.b. 50 milljarða króna sem þeir fólu því að „ávaxta" fyrir sig á árinu 1986. í ár geta landsmenn allt eins reikn- að með að þurfa að „borga banka- kerfinu“ um 700 millj. kr. „meðgjöf" til viðbótar. Þetta 1.200 milljóna króna „geymslugjald“ bankanna á 2 árum svarar til nær 5.000 kr. á hvern landsmann að meðaltali, sem hinir illa stöddu bankar geta þá notað til að styrkja slaka eiginfjárstðu sína. Margar, smáar og óhagkvæmar Veigamestu skýringuna á hinum mikla vaxtamun inn- og útlána telur viðskiptaráðherra þá, að rekstrareiningar í bankakerfinu séu margar og smáar og því óhag- kvæmar. Önnur skýring liggi „hugsanlega“ í því að verulegur hluti innlána séu veltiinnlán sem „beri lága vexti, að minnsta kosti ef miðað er við verðbólgu. Því má Jón Sigurðsson, bankamáiaráð- herra, segir að bankakerfið þurfí að geta fengið fé sparifjáreigenda að láni á mun betri kjörum en bankarnir lána þetta fé síðan sjálfír sínum viðskiptavinum, til þess að þeir geti fullnægt ákvæðum laga um eiginfjárstöðu. ætla að vaxtamunurinn minnkaði nokkuð af sjálfu sér ef verðbólga hjaðnaði“, segir ráðherra, sem tel- ur það ásamt endurskipulagningu Kópavogsbúar Fimmtudaginn 12. nóv. verða til viðtals að Hamraborg 5, kl. 20.30: Jóhann Einvarðsson þingmaður Skúli Sigurgrímsson bæjarfulltrúi Níels Árni Lund varaþingmaður Heitt á könnunni, fjölmennið og tekiö með ykkur gesti. Létt rabb í notalegu umhverfi efiir andann. Framsókn - stöðugleiki Framsóknarfélögin Kópavogsbúar Skrifstofa Framsóknarfélaganna, Hamraborg 5, 3. hæö er opin alla virka daga kl. 10-12, símí 41590. Opið hús alla miðvikudaga kl. 17-19. Starfsmaður: Einar Bollason Tökum höndum saman og hefjum öflugt vetrarstarf. Heitt á könnunni. Framsóknarfélögin. Kópavogur Aðalfundur fulltrúaráðs framsóknarfélaganna verður haldinn að Hamraborg 5, mánudaginn 16. nóv. n.k. kl. 20.30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Gestur fundarins: Guðmundur Bjarnason heilbrigðis- og trygg- inga-málaráðherra. Fulltrúar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega. Stjórnin. Kjördæmisþing í Reykjanesi Kjördæmisþing framsóknarmanna í Fteykjaneskjördæmi verður hald- ið sunnudaginn 29. nóv. 1987 kl. 10 að Garðaholti í Garðabæ. Stjórnin. mennum sparisjóðsbókum á 16,7% vöxtum haldi verðgildi sínu. Það svarar til þess að verðgildi 1 milljónar á slíkri bók rýrni um 5.000 kr. á hverjum mánuði. Á þessum „ávöxtunarkjörum“ er í kringum fjórðungur af öllum inn- lánum bankakerfisins, sem bank- arnir taka því af um 80 millj. kr. í „meðgjöf" á mánuði - að ekki sé nú minnst á þá milljarða sem liggja á hlaupareikningum á miklu lakari vöxtum. Erlendir „bestukjara- vextir“ um 5% í svari við fyrirspurn um raun- vexti útlána í helstu viðskiptalönd- um fslendinga segir ráðherra best- ar heimildir liggja fyrir um svokall- aða “bestukjaravexti" (prime rate). Þeir séu þó háðir þeim annmarka að smærri fyrirtæki og einstaklingar þurfi yfirleitt að sæta hærri vöxtum, gagnstætt því að hér gildi yfirleitt sömu vextir fyrir alla á sams konar lánum. Þessir vextir voru algengastir frá 6,7% upp í 7,8% á síðasta ári (6,9% að meðal- tali), en frá 4% (5% að meðaltali) og upp í 7,3% að meðaltali í Evrópulöndum framan af þessu ári. - HEI Árnesingar Lokaumferð hinnar árlegu framsóknarvistar Framsóknarfélags Árnes- sýslu verður föstudaginn 13. nóvember kl. 21, að Flúðum. Ávarp kvöldsins flytur: Ólafía Ingólfsdóttirformaður Félags framsóknarkvenna í Árnessýslu. Aðalvinningur er ferðavinningur frá Samvinnuferðum-Landsýn. Heildarverðmæti vinninga er kr. 75.000,- Allir velkomnir. Stjórnin. fíangæingar Spilum félagsvist á Hvoli sunnudaginn 15. nóv. kl. 21.00. Góð verðlaun. Framsóknarfélag Rangæinga Kjördæmisþing framsóknarmanna í Norðuriandskjördæmi vestra verður haldið í Félagsheimilinu á Blönduósi dagana 28.-29. nóv. n.k. Þingið hefst á laugardag kl. 13. Dagskrá auglýst síðar. TÖLVUNOTENDUR Við t Prentsmiðjunni Eddu hönnttm, setjum og prentum allar gerðír eyðublaða fýrir tölvuvinnslu. Smiðjuvegi 3, 200 Kópavogur. Sími 45000 bankakerfisins mikilvægustu fors- endur þess að draga úr mun á vöxtum af inn- og útlánum til frambúðar. Af rúmlega 1% mínusvöxtum af innlánum að meðaltali og hins vegar 8-9% vaxtamun má ráða að raunávöxtun útlána bankakerfisins hafi að meðaltali verið um 7-8% á síðasta ári. Of háir útlánsvextir Ráðherra telur engan vafa leika á því að raunvextir útlána séu nú hærri hér á landi en þeir hafi lengi verið „og hærri en staðist fær til lengdar“, en einmitt um þessar mundir er sérlega erfitt að leggja á þá öruggt mat“. Þó eru nefnd dæmi um frá 7% til 11% raunvexti á skuldabréfum, víxlum og yfirdrátt- arlánum nú 1. október, miðað við 24,5% reiknaða verðbólgu. Um 80 milljónir á mánudi Þar er m.a. miðað við það að 32,2% ársávöxtun á almennum skuldabréfum skili 7% raunvöxt- um. Benda má á, að reiknað á sama mælikvarða vantaði rúmlega 6% á að peningar geymdir á al-

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.