Tíminn - 21.01.1988, Blaðsíða 6

Tíminn - 21.01.1988, Blaðsíða 6
6 Tíminn Fimmtudagur 21. janúar 1988 Umboðsmenn Tímans: Kaupstaður: Nafn umboðsmanns Heimili Simi Hafnarfjörður Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195 Garðabær Ragnar Borgþórsson Hamraborg 26 641195 Garður Brynja Pétursdóttir Einholti 3 92-27177 Keflavlk GuðríðurWaage Austurbraut 1 92-12883 Sandgerði Davíð Á. Guðmundsson Hjailagötu 1 92-37675 Njarðvík Kristinn Ingimundarson Faxabraut 4 92-13826 Akranes Aðalheiður Malmqvist Dalbraut 55 93-11261 Borgarnes Inga Björk Halldórsdóttir Kveldúlfsgata 26 93-71740 Stykkishólmur Erla Lárusdóttir Silfurgötu 25 93-81410 Grundarfjörður Anna Aðalsteinsdóttir Grundargötu 15 93-86604 Hellissandur Ester Friöþjófsdóttir Háarifi 49 93-66629 fsafjörður Jens Markússon Hnífsdalsvegi 10 94-3541 Bolungarvlk Kristrún Benediktsdóttir Hafnargötu 115 94-7366 Flateyri Guðrún Kristjánsdóttir Brimnesvegi 2 94-7673 Patreksfjörður JónaAlexandersdóttir Strandgötu 15 94-1336 Bfldudalur HelgaGísladóttir Tjarnarbraut 10 94-2122 Þingeyri Karitas Jónsdóttir Brekkugötu 54 94-8131 Hólmavik ElísabetPálsdóttir Borgarbraut 5 95-3132 Hvammstangi BaldurJessen Kirkjuvegi 95-1368 Blönduós Snorri Bjarnason Urðarbraut 20 95-4581 Skagaströnd Ólafur Bernódusson Bogabraut 27 95-4772 Sauðárkrókur Guðrún Kristófersdóttir Barmahlíð 13 95-5311 Siglufjörður Guðfinna Ingimarsdóttir Hvanneyrarbraut 54 96-71555 Akureyri Jóhannes Þengilsson Kambagerði 4 96-22940 Svalbarðseyri Þröstur Kolbeinsson Svalbarðseyri 96-25016 Dalvik Brynjar Friðleifsson Ásvegi 9 96-61214 Ólafsfjörður Helga Jónsdóttir HrannarbyggðS 96-62308 Húsavík Ásgeir Guðmundsson Grundargarði 7 96-41580 Reykjahlíð lllugiMárJónsson Helluhraun15 96-44137 Raufarhöfn Ófeigurl. Gylfason Sólvöllum 96-51258 Þórshöfn Kristinn Jóhannsson Austurvegi 1 96-81157 Vopnafjörður Einar Ólafur Einarsson Hamrahlíð 32 97-31124 Egilsstaðir Páll Pétursson Árskógar13 97-1350 Seyðisfjörður Sigriður K. Júlíusdóttir Botnahlíð 28 97-21365 Reyðarfjörður Marínó Sigurbjörnsson Heiðarvegi 12 97-41167 Eskifjörður Björgvin Bjarnason Eskifjörður Fáskrúðsfjörður ÓlafurN. Eiríksson Hlíðargötu8 97-51239 Stöðvarfjörður SvavaG. Magnúsdóttir Undralandi 97-58839 Djúpivogur ÓskarGuðjón Karlsson Stapa, Djúpavogi 97-88857 Höfn Ingibjörg Ragnarsdóttir Smárabraut 13 97-81255 Selfoss Margrét Þorvaldsdóttir Skólavöllum 14 99-2317 Hveragerði Lilja Haraldsdóttir Heiðarbrún 51 99-4389 Þorlákshöfn ÞórdísHannesdóttir Lyngberg 13 99-3813 Eyrarbakki Þórir Erlingsson Túngötu 28 99-3198 Stokkseyri FriðrikEinarsson Iragerði6 99-3211 Hvolsvöllur Bára Sólmundardóttir Sólheimar 99-8172 Vík Pétur Halldórsson Sunnubraut5 99-7124 Innkaupastofnun Rey kjavíku rborgar Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar, fyrir hönd Bygg- ingardeildar, óskar eftir tilboðum í byggingu þjónustu- húss fyrir tjaldbúðir í Laugardal. Húsið er að flatarmáli 223 m2 að rúmmáli 595 m3. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri að Fríkirkju- vegi 3, Reykjavík gegn kr. 15.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 10. febrúar kl. 11. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR Frikirkjuvegi 3 - Simi 25800 Fiskeldi Staða sérfræðings í fiskeldi við Bændaskólann á Hólum er laus til umsóknar. Verkefni: Kennsla, rannsóknir og leiðbeiningar. Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf, sendist landbúnaðarráðuneytinu, Rauð- arárstíg 25, 150 Reykjavík, fyrir 20. febrúar n.k. Upplýsingar um starfið gefur Jón Bjarnason, skólastjóri, í síma 95-5961. Landbúnaðarráðuneytið 19. janúar 1988 POST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar að ráða að Gufuskálum flokks- stjóra rafeindavirkja Boðið er upp á þjálfunarnámskeið í Bandaríkjunum að reynslutíma loknum. Húsnæði ásamt húsgögnum er til reiðu á staðnum. Upplýsingar hjá stöðvarstjóra Gufu- skálum í síma 93-66604. Ferskfisksölur erlendis: 110 krónur fyrir kílóið af ýsunni Þau voru fjögur skipin sem seldu afla sinn í Bretlandi í síðustu viku, þrjú þeirra lönduðu í Hull og eitt í Grimsby. Þetta voru Engey RE, Sveinn Jónsson KE, Haukur GK og Hjörleifur RE. Engey seldi rúm 148 tonn og fékk fyrir 12,5 milljónir, sem gerði meðal- verð upp á 83.98 krónur. Sveinn Jónsson seldi rúm 90 tonn, fékk fyrir rúmar 7,5 milljónir eða meðalverð upp á 83.54 krónur. Haukur seldi rúm 73 tonn, fékk fyrir tæpar 6 milljónir og meðalverð upp á 80.87 krónur. Hjörleifur seldi svo rúm 82 tonn, fékk fyrir tæpar 5,5 milljónir, eða meðalverð upp á 66.55 krónur. Samtals seldu þessi fjögur skip rúm 394 tonn og fengu fyrir 31,5 milljónir. Heildarmeðalverðið var 79.67 krónur. Rúm 176 tonn voru þorskur, 166 tonn ýsa og 25 tonn voru af grálúðu. Meðalverð þorsks var 75.64 krónur, ýsu 87.96 krónur og grálúðunnar 79.66 krónur. Fyrir þorskinn fengust 13,3 milljónir, ýsu 14,6 milljónir og grálúðuna 2 millj- ónir. Þá voru seld tæp 186 tonn af fiski í gámum til Bretlands í síðustu viku og fengust 15,8 milljónir fyrir það magn. Meðalverðið var 84.97 krónur. Af þessum 186 tonnum, voru 135 tonn af þorski, 23 tonn af ýsu, 8 tonn af ufsa, 4 tonn af karfa, hálft tonn af kola og blandaður afli var upp á tæp 15 tonn. Meðalverð þorsksins var 84.60 krónur, ýsu 109.76 krónur, og geri aðrir betur, og 41.00 króna á kílóið af ufsa. Tvö skip seldu afla sinn í Þýska- landi í vikunni sem leið. Vigri RE seldi rúm 155 tonn í Bremerhaven, fékk fyrir 14,3 milljónir, eða meðal- verð upp á 91.75 krónur. Snæfugl SU landaði einnig í Bremerhaven, seldi 182 tonn, fékk fyrir 13 milljón- ir, eða meðalverð upp á 71.58 krónur. Skipin seldu samtals 40 tonn af þorski, 71 tonn af ýsu og 154 tonn af karfa. Meðalverð þorsks var 62.33 krónur á kílóið, ýsu 69.96 krónur og karfa 98 krónur. -SÓL Ungmennafélag íslands ályktar: Harmar vinnubrögð við endurskoðunina Stjórn Ungmennafélags íslands ályktaði á fundi sínum nýlega að skora á Alþingi að fresta afgreiðslu lagasetningar um Félagsheimilasjóð og íþróttasjóð, enda var ekki haft samráð við þá aðila sem mest um varðar, svo sem ÍSÍ, UMFÍ, íþrótta- nefnd og íþróttafulltrúa ríksins. Ennfremur segir í ályktun Ung- mennafélagsins: „Stjórnin varar við því að sjóðirnir verði lagðir niður án þess að tryggt sé hvernig að áframhaldandi upp- byggingu verði staðið. Þrátt fyrir að sjóðirnir hafi ekki haft úr miklum fjármunum að spila, hafa þeir gert mörgum félögum kleift að koma upp eigin aðstöðu og hefur framlag þeirra oft ýtt undir það að ráðist hefur verið í þessar framkvæmdir." Þá skorar stjórn UMFÍ á Alþingi að fresta afgreiðslu þessa máls og undirbúa það betur í nánu samstarfi við alla hagsmunaaðila. -SÓL Hlíf í Hafnarfirði: Heimilar stjórn boðun verkfalls Verkamannafélagið Hlíf í Hafnar- firði hefur heimilað stjórn og trúnað- armannaráði félagsins, að boða vinnustöðvun, ef þörf krefur, til að knýja fram samninga. Þetta var samþykkt á almennum fundi í Hlíf 14. janúar s.l. í ályktun fundarins er lögð áhersla á að lág- markslaun megi ekki vera undir 42.000 krónum á mánuði. Fram kemur að allt tal um að þjóðfélagið þoli ekki svo mikla hækkun lág- markslauna, sé hræsni þeirra manna sem á árinu 1987 stóðu að miklum hækkunum á launum betur settra launþega. í lok ályktunar Hlífar segir að þjóðfélaginu sé fyrst veru- lega hætt þegar frjálshyggjustefna atvinnurekenda og stjórnvalda ætli fólki sem vinnur framleiðslustörf undirmálslaun. óþh Geir Geirsson, lögg. endursk. Endurskoðendur sameinast Geir Geirsson, löggiltur endur- skoðandi, sameinaði endurskoðun- arskrifstofu sína nú um áramótin fyrirtækinu Endurskoðunarmiðstöð- in hf. N. Manscher. Geir hefur um árabil verið einn helsti endurskoð- andi fyrirtækja samvinnumanna í landinu. Meðal annars er hann endurskoðandi Sambands ísl. sam- vinnufélaga, Samvinnubankans, nokkurra dótturfyrirtækja Sam- bandsins og allmargra kaupfélaga. f samtali við Tímann sagði Geir að hann teldi að hann gæti með þessari breytingu veitt viðskiptavin- um sínum betri þjónustu en ella. Þróunin í endurskoðunarþjónustu stefndi nú öll í þá átt að menn slægju sér saman og sköpuðu sér þar með aukna möguleika á sérhæfingu og verkaskiptingu. Hann kvaðst gera ráð fyrir að vinna áfram fyrir alla sömu aðila og áður, þrátt fyrir þessa breytingu, og sagðist myndu verða áfram persónulega í forsvari gagn- vart öllum viðskiptavinum sínum. -esig Utvegsbankinn hf. NYIR ADSTOÐ AR BANKA- STJÓRAR f tengslum við endurskipulagn- ingu Útvegsbankans hefur bankaráð Útvegsbankans ákveð- ið að fulltrúar bankastjóra, þau Kristín Steinsen og Jakob Ár- mannsson skuli hér eftir bera starfsheitið aðstoðarbankastj óri. Kristín Lilja Steinsen er 30 ára viðskiptafræðingur. Hún lauk viðskiptafræðinámi við Hf árið 1982, en meistaraprófi MBA frá London Business School 1986. Kristín Lilja var deildarstjóri verðdeildar Kaupþings hf. 1982- 1984, en starfaði hjá Morgan Stanley Int. í London og New York þar til hún hóf störf sem fulltrúi bankastjóra hjá Útvegs- banka íslands hf. Jakob Ármannsson hefur starf- að um langt skeið sem sérfræðing- ur í erlendum viðskiptum á veg- um Útvegsbankans. Hann er 48 ára kvæntur Signýju Thoroddsen sálfræðingi. -HM

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.