Tíminn - 21.05.1988, Blaðsíða 4

Tíminn - 21.05.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn Laugardagur 21. maí 1988 GJÖGUR, //YTRA-v ÍARFJALt 8JARNARFEú|., OALVfi * AMBl-.íi eniívfk aufás 5 Afekógiir X Faqriskpgur \{ RíMAR /34)\ Hjanéyl Möðrbveljír * Í8lá i iiandáLÍ Espthóii« » /,v ®J Framkvæmdir á vegum Vegagerðar ríkisins í sumar: Eyjafjörður og nágrenni Silungurinn var ginkeyptur fyrir agni bryggjupollanna á Sauðárkróki, sem köstuðu fyrir hann öngli í höfninni um daginn. Sól og blíða ríkti um allt land og töldu hinir ungu fiskimenn, að við slíkar aðstæður tæki silungurinn best. Annan fisk, sem hlypi á færið hjá þeim, nenntu þeir ekki að hirða. Hér sýna aflaklærnar hróðugar fenginn á bryggjunni, Gunnar Andri Gunnarsson til vinstri og Jóhannes Atli Hinriksson til hægri. þj (Tíminn: Pjetur) Vélskóla íslands slitið: 16 þreyttu lokaprófið Vélskóla íslands var slitið nú fyrir skömmu. 200 ncmendur voru á haustönn og 180 á vorönn. Um áramótin luku 26 nemendur rétt- indanámi fyrir undanþágu vélstjóra og 16 þreyttu lokaprófið, tóku fjórða stig. Eftir vorönn ljúka 9 nemendur 1. stigs námi, og verða vélaverðir, 9 nemendur ljúka 2. stigs námi, verða vélstjórar og 24 nemendur ljúka 4. stigs námi, verða vélfræðingar. Starfið í skólanum hefur verið með hefðbundnu sniði í vetur. Starfsvika, árshátíð og skrúfudagar voru haldnir, skólablaðið Skrúfan kom út og námskeið tekin við slysa- varnaskóla Slysavarnafélagsins. Á efri hæð húss skólans hefur verið í undirbúningi bókasafn og lesstofa, en ætlunin er að koma upp viðamiklu bókasafni fyrir sjómanna- skólann í siglingafræði og vélstjórn- unarfræðum. Ráðinn verður bóka- vörður í fullt starf. Vélstjórafélagið heiðraði nem- endur sem staðið hafa sig sérstaklega vel í félagsmálum og afhenti Helgi Laxdal, formaður félagsins, Hall- mundi Hallgrímssyni verðlaun í þeim efnum. LÍÚ gaf verðlaun fyrir besta árangur i vélfræðifögum og hlaut Pórir Sigurjónsson þau. Úr verðlaunasjóði Steingríms Pálssonar hlaut Haraldur Unnarsson verðlaun fyrir bestan árangur í íslensku. -SÓL Töluverðar framkvæmdir verða á vegum Vegagerðar ríkisins í sumar, eins og önnur sumur. Tíminn mun næstu vikur birta staðbundin kort með upplýsingum um þau verk sem þar verða framkvæmd og verður fyrsta kortið helgað Eyjafirði og nærliggjandi sveitum. Ólafsjarðarvegur (82): Byrjað verður á 3.15 km. löngum jarðgöngum með 0.25 km. löngum forskálum, um Ólafsfjarðarmúla. Fjárveiting fyrir verkið nemur 120 milljónum króna en það verður boðið út í apríl. Tilboð verða opnuð 25. maí. Skilafrestur verks- ins verður til mars 1991. Norðurlandsvegur (1): Þar verður lagt á 9 km. langan kafla milli Hörgárdalsvegar og Krossastaða, á þessu ári og því næsta, með tveimur 5 metra löng- um brúm. Fjárveiting fyrir verkið nemur 13.5 milljónum króna. Það var boðið út í desember 1987 og var samið við lægstbjóðanda, Arn- arfell hf. frá Skagafirði. Samnings- upphæðin hljóðar upp á 26.2 mill- jónir króna sem er88.2% af áætlun og er skilafrestur 1. september Norðurlandsvegur (1): Bundið slitlag verður lagt á 2.8 km. langan kafla í Ljósavatnsskarði, um Sigríðarstaði og4.5 km. langan kafla frá Stórutjörnum að Krossi. Fjárveiting fyrir verkið nemur 8.5 milljónum króna og vcrður það unnið af vinnuflokki Vegagerðar- innar í júní. Norðurlandsvegur (1), Leíruvegur: Lagt verður á 3 km. langa tengingu við Eyjafjarð- arbraut eystri, frá Eyrarlandi að Þórustöðum. Drottningarbraut verður breikkuð, ljós og akreina- skipting verða sett á vegamót við Drottningarbraut og frágangi við Leiruveg verður lokið. Fjárvciting nemur 30 milljónum króna. Teng- ingin við Eyjafjarðarbraut eystri var boðin út í desember á síðasta ári og var samiö við lægstbjóðanda, Halldór Baldursson frá Akureyri. Annað verður unnið af vinnuflokki Vegagerðarinnar í júní. Skilafrest- ur á útboðinni vinnu er 15. ágúst 1988 og var samningsupphæðin 9 milljónir króna, eða 81.8% af áætl- un. Eyjafjarðarbraut vestri (821): Boðinn var út 8.2 km langur kafli 1987 frá Hvammi að Miðbraut. Fjárveiting nemur 10 milljónum króna. Samið var við lægstbjóðanda, Fossverk hf. frá Selfossi og vann verktakinn u.þ.b. 75% af verkinu á síðasta ári. Samningsupphæðin er21.1 milljón króna, eða 79.2% af kostnaðar- áætlun. Skilafrestur verksins er 1. ágúst á þessu ári. Þar verður einnig lagt bundið slitlag og er fjárveiting fyrir það verk 6.7 milljónir króna. Það verð- ur unnið af vinnuflokki Vegagerð- arinnar í ágúst. Miðbraut (823), frá Eyja- fjarðarbraut vestri að Brúnalaug: Bundið slitlag verður lagt á 1.2 km. langan kafla frá Hrafnagili að Brúnalaug. Fjárveiting fyrir verkið nemur 0.8 milljónum króna og verður það unnið af vinnuflokki Vegagerðarinnar í ágúst. Grenivíkurvegur (83): Lagt verður á tvo kafla um Fagra- bæ og Noll, samtals 0.9 km. að lengd. Fjárveiting nemur 4.6 mill- jónum króna og verður verkið unnið af vinnuflokki Vegagerðar- innar í september. Kleifarvegur(803): Geng- ið verður frá um 1.4 km. löngum kafla frá flugvelli að Sólheimum og verður hann lagfærður. Fjárveiting nemur 2 milljónum króna og verð- ur verkið unnið af vinnuflokki Vegagerðarinnar í júlí. Finnastaðavegur (824): Lagður verður 2.3 km. langur kafli frá Finnastöðum að Gilsbakka. Fjárveiting nemur 6.3 milljónum króna. Vcrkið var boðið út í mars 1988 og samið við lægstbjóðanda, Arnarfell hf. frá Skagafirði. Skila- fresturer I. nóvemberáþessuári. JIH NES Urðir X , jfek Ttjngnahryggs Isi í l l

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.