Tíminn - 21.05.1988, Blaðsíða 12

Tíminn - 21.05.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminn Laugardagur 21. maí 1988 ISAMVINNUMAL |||| Gróska í útflutningi I stuttu máli má segja að það liggi Ijóst fyrir að mikil gróska sé nú í útflutningi fiskafurða á vegum Sjávarafurðadeildar Sambandsins, þótt aðstæður séu misjafnar á einstökum mörkuðum. Þetta er það sem álykta má að loknum aðalfund- um Félags Sambandsfiskframleiðenda (SAFF) og sölufyrir- tækjanna Iceland Seafood Corporation í Bandaríkjunum og Iceland Seafood Limited í Bretlandi, sem haldnir voru í Reykjavík 17. og 18. maí. Vandamál eru vissulega ýmis, en í heild ganga sölumálin átakalítið fyrir sig. Sjávarafurðadeild Á aðalfundi SAFF flutti Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra ávarp, og þeir Tryggvi Finnsson stjórnarformaður og Sigurður Markússon framkvæmdastjóri fluttu skýrslur um starfsemi liðins árs, Árni Benediktsson fram- kvæmdastjóri ræddi þar einnig um stöðu frystihúsanna, og Benedikt Sveinsson aðstoðarframkvæmda- stjóri ræddi nokkra þætti sölumál- anna. Það kom fram í skýrslum á fundinum að á síðasta ári flutti Sjávarafurðadeild út afurðir að cif-verðmæti 7.425 miljónir króna, og var það 6,5% meira en árið áður. Útflutt magn nam alls 66.420 tonnum, sem var 3,8% minna en árið 1986. I'ar af voru frystar afurðir 6.547 miljónir, og var krónuupphæðin4,l% hærrienárið áður, en magnið, alls 52.783 tonn, var 3,8% minna. Útflutningur á skreið og hertum hausum var 574 miljónir á móti 441 miljón árið áður. Magnið var 4.545 tonn á móti 4.822 tonnum árið 1986. Aft- ur dróst útflutningur á mjöli veru- lega saman, varð aðeins 6.230 tonn á móti 8.029 tonnum árið á undan. Cif-verðmætið 1987 varð 98 milljónir á móti 118 miljónum 1986. Þá bættist deildinni ný útflutn- ingsafurð á árinu þar sem var ferskur lax. Sjávarafurðadeild er útflytjandi fyrir íslandslax hf. og raunar fleiri laxeldisstöðvar. Voru flutt út á árinu 164 tonn, að cif-verðmæti um 50 miljónir króna. Segja má að vcltuaukning hjá deildinni hafi orðið með allra minnsta móti á árinu 1987, og varð raunar nokkur samdráttur í magni þótt verðmætið í krónum hafi auk- ist. Fyrir þessu eru ýmsar ástæður, og er þar fyrst að nefna fastgcngis- stefnuna sem reynst hefur Sjávar- afurðadeild, og þó einkanlega framleiðendum hennar, þung í skauti. í öðru lagi er að nefna óvenju mikinn útflutning á árinu 1986 og mikinn samdrátt birgða á því ári, sem hefur áhrif á saman- burðinn við árið 1987. Aukin framleiðsla Þrátt fyrir erfiðar rekstrarkring- umstæður á árinu 1987, m.a. vegna stóraukins útflutnings á ferskum fiski, tókst SAFF-húsunum að auka framleiðslu frystra afurða um 10,5%. Varð hún 54.700 tonn, samanborið við 49.500 tonn árið á undan. Þá starfaði Umbúða- og veiðarfæradeild Sjávarafurð- adeildar með hefðbundnum hætti, og á árinu var áfram unnið að ýmsum þróunarverkefnum á veg- um Sjávarafurðadeildar, eins og áður í náinni samvinnu við Fram- leiðni sf. Á árinu 1987 námu endurgreiðsl- ur Sjávarafurðadeildar til SAFF- húsanna samtals 53,5 miljónum króna. Þar af var endurgreiddur tekjuafgangur 13,8 miljónir og vextir af séreignarsjóðum 39,6 miljónir. Hlutdeild Sjávarafurða- deildar í öllum útflutningi lands- manna var 13,0% á síðasta ári, en af útflutningi allra sjávarafurða var hlutdeild hennar 16,7%. Hlutdeild Sjávarafurðadeildar í útflutningi landsmanna á freðfiski var 32,9% á síðasta ári. Þá gerðist það 1987 í fyrsta skipti í mörg ár að meira magn af freð- fiski var selt til Evrópu heldur en til Bandaríkjanna. Hjá Sjávaraf- urðadeild fóru þannig 18.600 tonn til Bandaríkjanna eða 42% af út- flutningnum, en 20.300 tonn til hinna ýmsu Evrópulanda. Þá hefur á síðustu árum orðið veruleg aukn- ing á útflutningi til Asíulanda, einkum til Japan. Fráleit stefna Miklar umræður urðu á fundin- um um afkomu frystingarinnareins og hún horfir við á þessu ári. Fram kom að rösklega 5% tap varð á frystihúsum innan SAFF á liðnu ári, miðað við fyrirliggjandi uppgjör, og að þrátt fyrir nýaf- staðna gengisfellingu sé frystiiðn- aðurinn enn rekinn mcð 6,6% halla. Á það var bent að á sama tíma og genginu hefði verið haldið föstu hefði allur innlendur til- kostnaður hækkað stórlega, og af- Frá aðalfundi SAFF. greiddi fundurinn málið með eftir- farandi ályktun: „Aðalfundur Félags Sambands- fiskframleiðenda, haldinn í Reykjavík þriðjudaginn 17. maí 1988, telur þá stefnu fráleita að litlar sem engar hömlur séu hafðar á innlendum kostnaði, en gengi íslensku krónunnar sé bundið og gengisskráningin sé oft og tíðum ekki í neinu samræmi við kostnað- inn sem er því samfara að afla erlends gjaldeyris. Fundurinn telur að tvennt komi til greina: 1. Að allur innlendur kostnaður sé háður sömu takmörkunum og gengisskráningin, eða 2. Að gengisskráningin sé óháð afskiptum stjórnvalda, þannig að tekjumyndun útflutningsgreinanna sé jafn frjáls og önnur tekjumynd- un í þjóðfélaginu. Verð gjaldeyris ráðist eingöngu af framboði og eftirspurn, enda er það í fullu samræmi við stjórnarsáttmála nú- verandi ríkisstjórnar, þar sem tek- ið er fram að framboð og eftirspurn skuli ráða verðmyndun í landinu. Fundurinn leggur til að tekið verði upp samstarf allra helstu útflytjenda um hvernig að því verði staðið að tryggja að erlendur gjald- eyrir verði aldrei afhentur undir kostnaðarverði." Þá samþykkti fundurinn ályktun um stofnun sérstakrar þróunar- deildar innan Sjávarafurðadeildar. Var þar ákveðið að húsin legðu henni til 0,2% af andvirði frystra afurða sinna, gegn jafnháu fram- lagi frá Sjávarafurðadeild og sölu- fyrirtækjunum erlendis. Einnig var samþykkt ályktun þess efnis að stjórn SAFF beiti sér fyrir stofnun hagsmunasamtaka með þátttöku allra fyrirtækja í fiskvinnslu. Nýr skólastjóri við Bréfaskólann Birna Bjarnadóttir, sem veriö hefur skólastjóri Bréfaskól- ans undanfarin tíu ár, lætur af því starfi í næsta mánuöi. í starfið hefur verið ráðin Guðrún Friðgeirsdóttir kennari, og tekur hún við hinn 1. júní. Þetta var meðal þess sem fram kom á ársfundi fulltrúaráðs Bréfa- skólans sem haldinn var nýlega. Þar kom einnig fram að skólinn flutti á síðasta ári, og er aðsetur hans núna að Suðurlandsbraut 32. Á árinu innrituðust 946 nemendur í bréfa- nám skólans, og eru það heldur fleiri en árið á undan er þeir voru 826. Skólinn hefur nú á boðstólum bréfa- nám í 36 námsgreinum og annast um 20 kennarar yfirferð námsbréfa. Auk þess selur skólinn námsefni til sjálfsnáms í fjölmörgum tungumál- um. Talsvert hefur verið unnið að endurskoðun og endurnýjun á náms- efni skólans nú undanfarið. Þar á meðal má nefna að innan tíðar er væntanlegt hjá skólanum nýtt efni í þýsku, ensku, algebru, vélritun og bókfærslu. Einnig hefur skólinn nú undanfarið annast kennslu fyrir ófaglært starfsfólk almenningsbóka- safna og gefið út námsefni til þeirra nota. Á fundinum hafði dr. Sigrún Stef- ánsdóttir framsögu um fræðsluvarp og framtíð fjarkennslu á íslandi. Urðu þar miklar umræður um það efni, m.a. um mögulegt samstarf Sjónvarpsins og Bréfaskólans á þvf sviði. Eigendur Bréfaskólans eru Sam- band ísl. samvinnufélaga, sem á 30%, Menningar- og fræðslusam- band alþýðu, Bandalag starfsmanna ríkis og bæja. Farmanna- og fiski- mannasamband íslands, Kven- félagasamband íslands og Stéttar- samband bænda, sem eiga 10% hver, en 20% eignaraðild er óráðstafað. f stjórn skólans sitja Jón Sigurðsson, formaður, Þráinn Hallgrímsson, varaformaður, Jónas Guðmunds- son, ritari, Örlygur Geirsson, Har- ald Holsvík, Stefanía María Péturs- dóttir, Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir og Hákon Sigurgrímsson. -esig Ný söluskrifstofa í Frakklandi Hjá Iceland Seafood Corporation varð nær 10% söluaukning, og varð heildarsala fyrirtækisins 172,4 miljónir dollara. Talsverðir erfið- leikar steðja þó að þar vegna lækkandi verðs á fiskblokk og birgðasöfnunar af þeim sökum. Er ljóst að í Bandaríkjunum verður að halda uppi öflugu sölustarfi á yfirstandandi ári til að viðhalda sölunni. Sala Iceland Seafood Limited í Hull í Bretlandi varð 40,2 miljónir sterlingspunda. Jókst hún um 17,8% frá árinu á undan, og af- koma fyrirtækisins var góð. Fram- kvæmdastjóri er Sigurður Á. Sig- urðsson, en sölustjóri með aðsetur í Hamborg er Helgi Sigurðsson. Framundan er nú að gera enn frekara söluátak í Frakklandi, og hefur verið ákveðið að setja þar upp nýja söluskrifstofu, í borginni Boulogne-sur-Mer. Sölustjóri þar hefur verið ráðinn Höskuldur Ás- geirsson, og er gert ráð fyrir að skrifstofan taki til starfa með haust- Stjórnarkjör Tryggvi Finnsson, Húsavík, var (Tímamynd: Gunnar.) endurkjörinn formaður stjórnar SAFF, og einnig var endurkosinn Jóhann A. Jónsson á Þórshöfn. í stað Bjarna Grímssonar á Þing- eyri, sem ekki gaf kost á sér, var kosinn Jakob Kristinsson á Bíldu- dal. Áfram sátu í stjórninni Her- mann Hansson, Höfn íHornafirði, varaformaður, Ríkharð Jónsson, Reykjavík, ritari, Guðmundur Pálmason, Akranesi, og Pétur Olgeirsson, Vopnafirði. Erlendur Einarsson fyrrverandi forstjóri lét nú af störfum í stjórn- um beggja sölufyrirtækjanna. Voru honum af því tilefni þökkuð löng og farsæl störf að málefnum þeirra, ekki síst Iceland Seafood Corporation, en í stjórn þess hefur hann setið frá 1955 og sem formað- ur allt þar til á síðasta ári. Stjórn Iceland Seafood Corpor- ation skipa nú þeir Guðjón B. Ólafsson, formaður, Sigurður Markússon, William D. Boswell lögfræðingur í Bandaríkjunum, Marteinn Friðriksson, Sauðár- króki, og Hermann Hansson, Höfn í Hornafirði. Stjórn Iceland Seafood Limited skipa þeir Guðjón B. Ólafsson, formaður. Sigurður Markússon, Sigurður Á. Sigurðsson, Tryggvi Finnsson, Húsavík, og Guðni Jónsson, Grundarfirði. -esig PLÖTUR llllllllllllllllli Stjörnugjöf frá einni til fimm='A'*iU/2 The Christians - The Christians: Það vantar eitt- hvað á plötuna! Ég er nú dálítið svekktur yfir að komast ekki á tónleika Listahátíð- ar í sumar. f staðinn fyrir að horfa á hljómsveit eins og The Christi- ans, verð ég að flatmaga á sólar- ströndu og drekka bjór. Nóg um það og snúum okkur að plötu The Christians. Mikið ofsalega finnst mér hún góð. Þetta er svona plata sem maður hlustar á aftur og aftur. Pæliði t.d. í lögum eins og Hoover- ville! Þetta er náttúrlega bara dálít- ið gott lag. Eða þá Born Again! En samt er eitthvað að. Það getur ekki verið nálin í plötuspilar- anum, því hún er ný. Það gætu verið hátalarnir, en þetta er bara á þessari plötu, svo það er útilokað. Mér dettur einna helst í hug að þetta sé einfaldlega einhver tóm- leiki á plötunni. Það er ekkert að eða neitt svoleiðis, heldur vantar eitthvað. Neista, glæður eða síð- ustu sundtökin eftir 200 metrana. Þá vantar svo ofboðslega lítið upp á frábæra plötu, en klikka og leggja árar í bát. Lagasmíðarnar eru lunknar. Textarnir eru á köflum stórkostleg- ir, en eins og áður sagði, þá vantar eitthvað til að þetta smelli algjör- lega saman, eins og flugvélamódel með Uhu lími. Ég hika samt ekki við að mæla með plötunni við alla þá sem unna góðri tónlist. Ég hika heldur ekki við að mæla með komandi tónleik- um í sumar. Þessi hljómsveit er of góð til að fara í súginn. -SÓL

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.