Tíminn - 21.05.1988, Síða 13
Tíminn 13
Laugardagur 21. maí 1988
llllllllllllllll IPRÓTTIR .................................. ................ .............. ..........lill, ......... ..... ............... ............. ■r|l|l||:|i Ellllili. ..............................
Leiftursmenn fyrir ofan íslandsmeistara Vals eftir markalaust jafntefli:
Mátti vart í milli sjá
hvorir væru betri
Frá Erni I’órarinssyni fréttaritara Tímans:
Leiftur og Valur skildu jafnir 0-0
í 1. deildinni á Ólafsfirði í gærkvöld.
Þrátt fyrir að ekki hafi verið skorað
í gærkvöld fengu bæði liðin ágæt
marktækifæri sem ekki nýttust enda
var leikurinn mjög fjörugur. Leikin
sóknarknattspyrna allan tímann
þannig að um 1000 áhorfendur fengu
talsvert fyrir aurana sína þrátt fyrir
að mörkin hafi vantað.
Eins og áður sagði fengu bæði
liðin marktækifæri og mátti vart á
milli sjá hvort var sterkara þrátt fyrir
að Valsmenn væru ívið meira í sókn.
Bæði lið björguðu á marklínu í
leiknum og um miðjan fyrri hálfleik
stóðu Valsmenn fyrir opnu marki
Leifturs eftir að Þorvaldur mark-
vörður hafði reynt úthlaup en ekki
tókst Valsmönnum að nýta þetta
færi til að skora.
í byrjun síðari hálfleiks vildu
Leiftursmenn fá vítaspyrnu þegar
Herði Benónýssyni var brugðið inni
í vítateig Valsmanna. Dómarinn sá
hinsvegar ekkert athugavert og lét
leikinn halda áfram við mikinn kurr
hinna fjölmörgu áhorfenda. Liðin
skiptust síðan á um að sækja og
fengu bæði upplögð marktækifæri
en ýmist vörðu markverðirnir eða
skotskórnir brugðust.
Hjá Leiftri áttu Halldór Guð-
mundsson og Guðmundur Garðars-
son ágætan leik. Guðmundur fékk
það erfiða hlutverk að gæta Jóns
Gunnars Bergs skæðasta sóknar-
manns Vals og tókst það nokkuð
vel. Af öðrum Valsmönnum var
Þorgrímur Þráinsson mjög góður í
vörninni og braut niður margar
Norðurlandamót heyrnarlausra í handknattleik:
fslendingar sigruðu
Norðurlandameistara
íslenska liðið á Norðurlandamóti
heyrnarlausra í handknattleik sigr-
aði Norðmenn með 26 mörkum
gegn 25 á mótinu sem hófst í gær-
kvöldi í Seljaskóla. Norðmenn eru
núverandi Norðurlandameistarar.
Þá unnu Svíar öruggan sigur á
Dönum, 24 mörk gegn 14.
íslendingar keppa við Svía í dag
og á morgun við Dani. - HA
sóknarlotur Leiftursmanna. Dómari
var Baldur Scheving.
Leikurinn fór fram í blíðskapar-
veðri. Áhorfendur komu víðsvegar
að af Norðurlandi, alla leið frá
Húsavík. Einnig fjölmenntu Akur-
eyringar á lcikinn.
íslandsmeistararnir máttu sætta sig við annað stigið á Ólafsfirði í gærkvöldi.
Leiftursmenn eru með tvö stig eftir tvær umferðir en Valsmenn aðeins eitt.
íslandsmótið í knatt-
spymu,3.og4. deild:
Stjörnu-
sigur
Stjörnumenn sigruðu Reyni frá
Sandgerði með einu marki gegn
engu í fyrsta leik 3. deildarinnar
í knattspyrnu í gærkvöldi. Leikið
var í Sandgerði og skoraði Ingólf-
ur Ingólfsson (eldri) sigurmark
Garðbæinga um miðjan síðari
hálfleik.
I 4. deildinni unnu Hvatberar
Létti 4-2 í gervigrasvellinum í
Laugardal en í fyrrakvöld urðu
úrslit þau að Ármann vann Hafn-
ir 2-1 og Ægirtapaði fyrir Skotfél-
aginu, 1-2. - HÁ
Knattspyrna:
Monaco
franskur
meistari
Monaco tryggði sér í gærkvöldi
franska meistaratitilinn í knatt-
spyrnu. Réttara væri reyndar að
segja að Bordeaux hefði tryggt
þeim titilinn því það lið tapaði 0-1
fyrir Nantes í gærkvöldi meðan
Monacomcnn höfðu það náðugt.
Munurinn á liðunum er nú 5 stig
þegar 3 umferðir eru eftir. Þetta
er fyrsti meistaratitill Monaco í 6
ár. - HÁ/Reuter
Úrslitakeppnin í NBA-körfuboltanum:
Stórliðin eiga í
vök að verjast
- Lakers töpuðu sjötta leiknum og Celtics þurfa tvo sigra
Stórlið bandaríska atvinnumanna-
körfuboltans, Los Angeles Lakers
og Boston Celtics þurfa á allri snilli
lcikmanna sinna að halda til að
komast áfram í úrslitakeppni deild-
anna. Boston Celtics eru 1-3 undir í
undanúrslitaviðureigninni gegn At-
lanta Hawks og eftir tap í fyrrakvöld
eru LA Lakers og Utah Jazz jöfn,
3-3. Hreinn úrslitaleikur þar. Því var
spáð fyrirfram að þessi tvö stórlið
færu - eins og svo oft áður - í
úrslitaleikinn en nú er orðið Ijóst að
til beggja vona getur brugðið mcð
það. Celtics þurfa að vinna báða
leikina sem eftir eru á móti Hawks
og Lakers lendir í hreinum úrslita-
leik gegn Jazz.
1 Vesturdeildinni tryggðu Dallas
Mavericks sér sæti í úrslitaleik deild-
arinnar með 108-95 sigri á Denver
Nuggets í fyrrakvöld. Dallas unnu
þar með 4-2. Utah Jazz vann LA
Lakers sama kvöld 108-90.
I Austurdeildinni standa Detroit
Pistons vel að vígi gegn Chicago
Bulls, eru með 3-1 forystu og sem
fyrr sagði er staðan sú sama hjá
Átlanta Hawks og Boston Celtics,
3-1. Þau lið sem fyrr sigra í fjórum
leikjum halda áfram í úrslitaleik
deildanna. Sigurvegarar í austur- og
vesturdeildinni keppa svo til úrslita heimsmcistaratitilinn eins og Banda-
um bandaríska meistaratitilinn í ríkjamenn kalla hann gjarnan.
körfuknattleik atvinnumanna, - HÁ/Reuter.
Celtics og Lakers hafa leikið til úrsita um bandaríska meistaratitilinn í
atvinnumannaboltanum oftar en nokkur önnur lið. Nú eiga þau bæði í
erfiðleikum ■ undanúrslitum ■ deildunum
fþróttaviðburðir
Hvítasunnu-
helgarinnar
Knattspyrna
Undankeppni Ólympíueikanna:
ÍSLAND P0RTÓGAL LAUGARDALSVEI.I.I
Þriðjudaginn 24. maí kl. 20.(K)
1. deild:
Völ$ungur-lA Húsavik lau kl. 14.00
Vikingur-KA Gervigras lau. - 15.00
Pór-l'rani Akureyri lau. - 14.00
2. deild:
KS-Tindastóll Siglufirði lau. - 14.00
Víðir-Fylkir Garði lau. - 14.00
iBV-Þróttur Vestm.eyj. lau. - 14.00
3. deild:
Grótta-UMFN Grcttuvelli lau. - 14.00
ÍK-Afturelding Kópavogsv. lau. — 14.00
UMFG-Leiknir Gnndavik lau. — 14.00
lBÍ-Víkverji Isafirði lau - 17.00
4. deild:
Ernir-Haukar Selfossi lau. - 14.00
Augnabl-Snæí Kópavogsv. lau. - 17.00
UMFS-Hverag. Ðorgamesi lau. - 14.00
Fyrirt.-Vík.ó. Gervigras lau. - 17.00
Keppni landshlutaúrvalslida:
3. og 4 flokkur:
Oervigrasinu lau. frá kl. 9.15 til kl. 13.30,
Framvelli lau. frá kl. 13.45 til 15.30 og á
Þróttarvelli lau. frá kl. 16.30 til kl. 18.30
Keppnin er liður i undirbúningi fyrir val á
liði talands sem keppir á NM drengja-
landsliða i sumar.
íþróttir
fatlaðra
Norðurlandamót heyrnarlausra í hand-
knattleik í íþróttahúsi Seljaskóla:
Laugardagur:
Noregur-Danmörk kl. 14.00
Ísland-Svíþjóð -15.45
Sunnudagur:
Noregur-Svíþjóð -14.00
Ísland-Danmörk - ~ 15.45
Norðmenn eru núverandi Norðurlanda-
meistarar.
1. deildar knatt-
spyrnan um helgina:
Akureyrar-
liðin með
í spiiið
Annarri iimferð 1. deildar
karla á íslandsmútinu ■ knatt-
spyrnu lýkur í dag. Akureyrarlið-
in tvö, Þór og KA, leika þá sína
fyrstu leiki í mótinu en innbyrðis
leik þcirra í fyrstu umferð var
frestað þar sem enginn grasvöllur
á Akureyri varekki leikfær. Þórs-
arar fá Framara ■ hcimsókn norð-
ur en KA-menn keppa við Vík-
inga á gervigrasinu. Þá fara
Skagamenn til Húsavíkur þar sem
þeir mæta Völsungum. Til gam-
ans má rifja upp úrslit i leikjum
þessara liða í fyrra. Leikur Vík-
inga og KA verður ekki með í
þcirri upptalningu, Víkingar
komu upp úr 2. deild ■ fyrra.
Þór og ÍA hófðu betur í fyrra
Þörsarar unnu Framara 3-1 í
fyrri leiknum sem var á Valbjarn-
arvellinum og var það raunar
þriðja árið í röð sem Þórsararnir
lögðu íslandsmeistarana í fyrstu
umferð. Ekki varð hrossið feitara
sem sunnanmenn riðu frá viður-
eigninni á Akureyri því þá varð
niðurstaðan 4-1 Þörsúrum í hag.
Völsungar skoruðu eitt mark í
báðum leikjunum á móti ÍA í
fyrra en það dugði skammt því
Skagamenn gerðu tvisvar tvö og
unnu báða leikina. - HA