Tíminn - 21.07.1988, Blaðsíða 4
4 Tíminn
Fimmtudagur 21. júlí 1988
Ótrúlegur næmleiki hallamæla Norrænu eldfjallamiðstöðvarinnar:
Kröf lumælar nema
hreyfingar sjávar
Tölvan sem hallamælirinn er tengdur við. Tíminn: Gunnar
íslenskir hallamælar eru
notaðir til mælinga á breyt-
ingum sem eiga sér stað á
yfirborði landsins í því um-
róti sem nú ríkir á Kröflu-
svæðinu. Mælarnir eru gíf-
urlega næmir, jafnvel svo
að þeir mæla hreyfingu sé
þrýst á steinvegg sem mælir-
inn er festur við.
Mælarnir eru byggðir upp á þann
veg að meters langir pendúlar
hanga inni í röri, í olíu til að drepa
allar sveil'lur. Þegar jörðin breytir
um halla færist pendúllinn til.
Hallamælirinn sjálfur cr svo tcngd-
ur við tölvu sem safnar gögnum frá
honum á tveggja mínútna frcsti og
geymir þau.
Að sögn Ægis Þórs Jónssonar
verkfræðings hjá Norrænu eld-
fjallamiðstöðinni skynjar mælirinn
auðveldlega hreyfingu á pcndúln-
um upp á einn míkrómctcr, scm cr
einn milljónasti úr mcter.
Norræna eldfjallamiðstöðin cr
til húsa í Jarðfræöihúsi Háskóla
íslands.
„Það er því töluvcrt crfitt að
eiga við niælana því aö þeir eru svo
nákvæmir. Tilraun var gcrð til að
festa mæli á einn vegg hcrna í
húsinu. Það sýndi sig hins vegar að
hann var alls ekki nógu stöðugur
því ef sólin skein á húsið þá breytti
það sér, en vcggirnir þenjast út
skíni sól á þá,“ sagði Ægir.
„Núna erum við með mælir í
holu hcrna niðri í kjallara sem
vcriö er aö prófa og á honum sjást
grcinilcga allar ölduhrcyfingar úti
við ströndina," bætti hann við.
Smíði mælanna hófst fljótlcga
cftir lok Kröfluclda árið 1975 en
eftir að þeir hófust varð Ijóst að
miklar hallabrcytingar urðu á jarð-
skorpunni innan Kröfluöskjunnar.
Þá vaknaði áhugi á að mæla halla-
breytingar sem orðið höföu á jarð-
skorpunni með síritandi hallamæl-
um, en í Ijós kom að slíkir mælar
voru ekki á hverju strái ogerlendir
mælar gífurlega dýrir.
Starfsmenn Norrænu eldfjalla-
stöðvarinnar hófu því athugun á
smíði slíkra mæla og eftir þróun og
miklar endurbætur urðu til þeir
mælar sem notaðir eru í dag. IDS
Ægir Þór Jónsson vil mælinn í kjallara Norrænu eldfjallamiðstöðvarinnar.
Listahátíð:
Hvorki gróði
nétap
Ekki liggur fyrir endanlegt upp-
gjör á 1 istahátíö fyrr en sýningu á
verkum Marc Chagall lýkur um
miðjan ágúst næstkomandi, að sögn ,
Jóns Þórarinssonar framkvæmda-
stjóra hátíðarinnar.
Að sögn Jóns er þó hægt að segja
fyrir víst að hvorki liafi veriö umtals-
veröur gróöi né umtalsvcrt tap á
listahátíð að þessu sinni. IDS
Engin veiði
í augsýn
Mikill meirihluti þcirra 60-80
norsku og færeysku loðnubáta sem
hafa leitað að loðnu norður við Jan
Mayen hefur snúið aftur heim á leið,
eftir árangurslitla leit. Aðeins ein
lítil loðnutorfa fannst, austan megin
við miðlínuna milli íslands og
Grænlands. Örfáir bátar voru skildir
eftir vestan megin í von um að torfan
gengi vestur eftir. Það er því ekki
útlit fyrir að íslensku loðnubátarnir
haldi á miðin á næstu vikum, þar
sem þeir hefja ekki veiðar fyrr en
norsku bátarnir hafa fundið eitthvert
magn af loðnu.
Sjórinn fyrir norðan er nú kaldari
en venjulega, og munar um tveimur
gráðum.
Að sögn Hjálmars Vilhjálmssonar
hjá Hafrannsóknastofnun hefur ver-
ið mikill rekís á svæðinu og lítur út
fyrirað hann hafi aukist frá því í vor.
„Það er svo að sjá að loðnan hafi
ekki gengið eins ákveðið norður á
leið í ætislcit eins og undanfarin ár
og lent undir ísnum í norðvestan- og
vestanáttinni" sagði Hjálmar.
Þessi torfa sem Norðmenn fundu
var nokkrar sjómílur innan við mið-
línuna, skammt norðvestur af Kol-
beinsey. -SÓL
íslenska unglingalandsliðið í skák.
Unglingalandsliðið í skák:
Fjögurra landa keppni
í dag hófst í Tjele Efterskole í
Hammershöj í Danmörku skák-
keppni milli unglingalandsliða
fslands, Noregs, Svíþjóðar og Dan-
merkur. Keppt er á 10 borðum,
fyrstu sex borðin eru ætluð skák-
mönnum f. 1968 og síðar, en á
fjórum neðstu borðunum verða
skákmenn f. 1972 og síðar. íslenska
liðið hefur verið valið og er það
þannig skipað:
1. Þröstur Þórhallsson, T. R. Eló- stig 2455
2. AndriÁssGrétarsson.T.R. - - 2265
3. DavíðÓlafsson.T.R. - - 2250
4. TómasBjörnsson.T.R. - - 2220
5. SnorriBcrgsson.T.R. - - 2150
5. TómasHermannsson.S.A. - - 2125
Varam. Magnús Pálmi
Örnólfsson.U.M.F.B. - 2090
7. HannesH.Stefánsson.T.R. - - 2430
8. SigurðurDaðiSigfúss.,T.R. - - 2195
9. ÞrösturÁrnason.T.R. - 2195
10. RúnarSigurpálsson.S.A. - 1900
Fararstjórar verða Ólafur H.
Ólafsson og Hilmar Thors.
Þetta er í annað sinn, sem keppni
af þessu tagi fer fram. í fyrra sigruðu
Svíar naumlega eftir harða og tví-
sýna baráttu við íslendinga. Öll
löndin tefla fram öflugum skák-
mönnum að þessu sinni og má búast
við, að alþjóðlegir skákmeistarar
verði á 1. borði. Það stefnir því í
tvísýna og spennandi keppni og er
ógerningur að spá um úrslitin.