Tíminn - 21.07.1988, Blaðsíða 10
,10 Tíminnj
Fimmtudagur 21. júlí 1988
illllllllllllllllll AÐUTAN llllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllll
Metnaðarfullur saksóknari
í New York tekur upp
baráttu við Mafíuna
Rudolph Giuliani er saksóknari bandaríska ríkisins á
Manhattan og hann er staðráðinn í því að nafn hans verði
þekkt um Bandaríkin þver og endilöng fyrir hraustlega
baráttu gegn glæpum. Hann hefur því tekið upp eitt málið
á fætur öðru sem hefur verið líklegt til að koma nafni hans
í fréttirnar og nú hefur hann tekist á við það mál sem engum
dómsyfirvöldum í Bandaríkjunum hefur til þessa tekist að
ráða við. Hann hefur lagt til atlögu við sjálfa mafíuna og
meint yfirráð hennar yfir stærstu verkalýðssamtökum
Bandaríkjanna, „Teamsters’ Union“. Þar fetar hann m.a.
í fótspor Roberts Kennedys sem háði heilagt stríð gegn
þessum illu öflum þegar hann gegndi embætti dómsmála-
ráðherra en tókst ekki að ráða niðurlögum þeirra. Rudolph
Giuliani hefur nú höfðað mál þar sem yfirvöld eru í raun
að gera tilraun til að ieggja „Teamsters’ Union“ undir sig.
Hörð viðbrögð
verkalýðsfélaganna
og bréfið frá Dukakis
Líklcgt er talið að þessari máls-
sókn fylgi fleiri atlögur saksóknara
að meintum áhrifamætti mafíunnar
í verkalýðsfélögum. Mcðlimir
nefndarsem Reagan forseti skipaði
fyrir tveimur árum til að rannsaka
skipulagða glæpastarfsemi hafa
haldið því fram að þrenn önnur
stór bandarísk verkalýðssamtök,
þ.e. samtök verkamanna, hótel-
starfsmanna og hafnarverka-
manna, séu lítið betur sett en
samtök vöruflutningabílstjóra.
Ákærur Giulianis á „Teamsters’
Union" orsökuðu mikið pólitískt
fjaðrafok og verkalýðsfélögin
hleyptu af stokkunum auglýsinga-
herferð um gjörvöll Bandartkin
þar sem málssókn Giulianis var
lfkt við aðgerðir yfirvalda í fylgi-
ríkjum Sovétríkjanna til að kæfa
frjálsa verkalýðshreyfingu eins og
Samstöðu í Póllandi.
Til að sýna hversu mikils verka-
lýðsfélögin mega sín pólitískt hafa
þau birt bréf frá Michael Dukakis
forsetaframbjóðanda demókrata,
þar sem hann lætur í ljós „alvarleg-
Aðalskotspónn saksóknarans um
þessar mundir er Jackie Presser,
núverandi formaður samtaka vöru-
flutningabflstjóra, sem hefur verið
kærður fyrir að vera liandbendi
mafíunnar.
komast á framfæri í fjölmiðlum
með því að halda háværa blaða-
mannafundi og gefa út harðorðar
yfirlýsingar.
Rudolph Giuliani er sonur eig-
anda pitsustaðar í Brooklyn og
gefur bæði nafn og starf föður hans
til kynna að hann er af ítölsku
bergi brotinn. Hann er 44 ára að
aldri. Um skeið velti hann því fyrir
sér að verða prestur í kaþólsku
kirkjunni og sýnir enn gömlu heim-
kynnunum sínum og vinum tryggð.
Einn nánasti vinur hans frá æskuár-
Rudolph Giuliani saksóknari í New
York berst harðri baráttu gegn
glæpum en er umdeildur maður.
unum, Alan Placa, kaþólskur
prestur sem líka hefur stundað
laganám. gistir í íbúð Giulianis á
Manhattan a.m.k. eina nótt í viku
hverri.
En þveröfugt við Mario Cuomo,
ríkisstjóra í New York, sem líka er
af ítölskum ættum en virðist hafa
forðast að vekja þjóðarathygli
vegna hræðslu við að verða bend-
laður við mafíuna, hefur Giuliani
byggt frægð sína á því að takast á
við þennan óvin sem sífellt er
tengdur ítölsku þjóðerni.
Embætti Giulianis lagði í rúst
„pitsutengslin”, vel skipulagða
áætlun mafíunnar til að dreifa
heróíni frá Sikiley um Bandaríkin
og nota pitsustaði sem skjól fyrir
starfsemina.
„Ragnarök“
Það var eftir að Giuliani las
sjálfsævisögu Josephs Bonnano
(„Joe Bananas"), yfirmannseinnar
af fimm alræmdum mafíu-„fjöl-
skyldum” í New York, sem nú er
sestur í helgan stein, að hann fékk
hugmyndina að stríðsáætluninni
um djörfustu atlögu yfirvalda fyrr
og síðar að skipulagðri glæpastarf-
semi. Sú atlaga leiddi til þess að
yfirmenn allra mafíufjölskyldn-
anna, sem gengu undir nafninu
„nefndin" í mafíuhópnum, voru
ákærðir fyrir samsæri í glæpastarf-
semi.
Rudolph Giuliani er mikill óp-
eruunnandi og er þess vegna nær-
tækt að líkja herferð sinni gegn
mafíunni við Niflungahring
Wagners. „Nú erum við stödd í
113síðna ákæruskjal
Málssókn Giulianis fyllir 113síð-
ur og var lagt fyrir alríkisdómstól í
New York fyrir skcmmstu. Þar cr
því haldið fram að „Teamsters’
Union”, 1.6 milljón manna samtök
vöruflutningabílstjóra, hafi gert
„samning við djöfulinn”, mcð öðr-
um orðum við mafíuna.
í ákærunni kemur fram að valda-
miklir menn í mafíunni hafi stjórn-
að kosningum tvcggja síðustu
formanna samtakanna og „hafi á
valdi sínu og beri mútur á“ stjórnir
mikilvægra deilda samtakanna og
lífeyrissjóða.
í ákæruskjalinu kemur líka fram
að með því að „rcka herferð
óttans” hafi mafíunni tekist að
ræna almenna meðlimi verkalýðs-
samtakanna þcim rétti að velja
sjálfir forystumenn sína, en til
þessarar hcrferðar má nt.a. rekja
20 morð auk „minniháttar” mis-
ferlis á borð við mútur. sprengjutil-
ræði, þjófnaði og fjárkúganir.
Saksóknarinn hefur lagt þá
beiðni fyrir dómara að skipaður
verði trúnaðarmaður stjórnvalda
til að skipuleggja og hafa eftirlit
með nýjum kosningum á forystu-
mönnum verkalýðsfélaganna.
ar efasemdir” um málssóknir yfir-
valda í þeim tilgangi að ná tökum
á verkalýðsfélögum sem eru undir-
lögð glæpastarfsemi.
Umdeildur saksóknari
En það má búast við því að allt
þetta pólitíska uppnám veröi að-
eins til að örva Giuliani til frekari
framkvæmda, en hann er þegar
orðinn þekktur um öll Bandaríkin
fyrir umdeildar árásir sínar á laga-
legum grundvelli á skipulagða
glæpastarfsemi, mútuþægni emb-
ættismanna ogólöglega starfsemi í
Wall Street. Hann er líka orðinn
alræmdur fyrir augljósan ákafa í að
upphafi síðustu óperunnar, sem
ber hið táknræna heiti Ragnarök,”
sagði hann þegar réttarhöldin yfir
„nefnd“ mafíunnar hófust.
Þó að atlögur hans við mafíuna
og spillingu meðal embættismanna
í New York - sem hafa hlotið gott
gengi fyrir dómstólunum - hafi
víða vakið aðdáun, eru ekki allir
jafnhrifnir af augljósum ákafa Giu-
lianis í að vekja athygli á sjálfum
sér og árásargjarnri framkomu
hans.
Barátta saksókn-
arans við fjármála-
öflin í Wail Street
Hann kom miklu róti á fjármála-
heiminn í Wall Street þegar hann
bar fram ákærur á ólöglegt athæfi
braskarans Ivans Boesky og banka-
mannanna Dennis Levine og Mar-
tins Siegel, sem fólst í því að nýta
sér þær upplýsingar úr fjármála-
heiminum sem þeir síðarnefndu
áttu aðgang að vegna starfa sinna.
En starfsaðferðir Giulianis voru
harðlega gagnrýndar þegar starfs-
menn hans réðust til inngöngu í tvö
mikilsmetin fjárfestingarfyrirtæki
og höfðu yfirmenn þeirra á brott
með sér í handjárnum. Síðar var
fallið frá ákærum á verðbréfasal-
ana.
Miðað við hversu fyrirferðar-
mikill Giuliani er í starfi sínu gerir
hann sér far um að láta tiltölulega
lítið á sér bera í einkalífinu. Hann
fer t.d. sjaldan ferða sinna um-
kringdur lífvörðum, þó að leyni-
lögreglumaður aki honum til og frá
vinnu, og um helgar fer hann í
gönguferðir með ungum syni sín-
um í grennd við heimili þeirra.
Kona Giulianis, Donna Hanover,
starfar við fréttalestur í sjónvarpi.
Er metnaðar*
gjarni saksóknarinn
á leið í pólitík?
Giuliani virðist ekki heldur geta
ákveðið hvort hann eigi að sýna
pólitískan metnað sinn í verki en
oft hefur komið til tals að hann yrði
frambjóðandi Repúblikanafloícks-
ins til mikilvægs embættis. Giuliani
hefur verið mjög hikandi í sam-
bandi við þetta mál upp á síðkastið
og minnir þar á Cuomo ríkisstjóra
sem iðulega hefur verið nefndur í
sambandi við forsetaframboð en
hefur hingað til í hvorugan fótinn
getað stigið í þeim málum.
Það leit t.d. út fyrir á tímabili að
Giuliani væri reiðubúinn að segja
af sér saksóknaraembættinu fyrr á
þessu ári til að taka upp baráttu um
þingsæti við Daniel Patrick Moyni-
han, demókrata og öldungadeild-
armann frá New York, en á síðustu
stundu dró Giuliani sig í hlé,
sennilega vegna þess að skoðana-
kannanir sýndu fram á að hann
myndi fara halloka í þeirri baráttu.
Nú líta margir á Giuliani sem
væntanlegan keppinaut Cuomos
um ríkisstjóraembættið eða Eds
Koch um borgarstjóraembættið í
New York en hann hefur haft
betur en þeir í skoðanakönnunum.