Tíminn - 21.07.1988, Blaðsíða 12

Tíminn - 21.07.1988, Blaðsíða 12
12 Tíminn Fimmtudagur 21. júlí 1988 FRÉTTAYFIRLIT NIKOSÍA - franska sjón-j varpiö skýröi trá því aö músl- ímskir pílagrímar vaeru um- kringdir af sáudískum öryggis- sveitum þar sem múslímarnir héldu uppi mótmælum í hinni heilögu borg Mekka. Haj trúar-, ! hátíöin er nú aö hefjast, en í1 'fyrra létust 400 manns, flestir, Iranar, á þessari hátíð. AÞENA - Grikkir segja aö. árás hryöjuverkamanna ál grísku farþegaferjuna í síöustu viku hafi verið skipulögð af Khadar Samir Mohamad, ööru nafni Hejab Jaballa, sem einn-1 ig skipulagði morö á egypskum fjölmiðlamanni á Kýpur, þáfyrir öfgahóp Palestímumannsins Abu Nidals. JÓHANNESARBORG- Stjórnarformaður næst; stærstu bankasamsteypu Suö- ur-Afríku hvatti ríkisstjórnina til aö lina á aöskilnaöarstefnunni til aö koma í veg fyrir meiri átök en veriö hafa. I Höfðaborg hvatti dagblaö sem talið er styðja ríkisstjórnina til þess aö Nelson Mandela, leiötogi blökkumanna, veröi látinn laus. JERÚSALEM - ísraelskir hermenn skutu þrjá Palestínu- menn til bana og særöu átta á hernumdu svæöunum á vest- urbakka Jórdan. Á sama tíma baröi óeiröalögregla á mót- mælandi Palestínumönnum í elsta hluta Jerúsalem. ATLANTA - Mikil stemmn-. ing ríkir á þingi demókrata í Atlanta, en þar gáfu þeir Jesse. Jackson og Edward Kennedy, tóninn í samhentri forseta-1 kosningabaráttu. Michael Du-. kakis var síðan formlega út-1 nefndur forsetaefni flokksins í gærkvöldi. j ISLAMABAD - Forseti I Pakistans, Mohammad Zia-ul- Haq, tilkynnti aö þingkosningar yröu haldnar 16. nóvember. Hann var hins vegar harðlega gagnrýndur af Benazir Bhutto, aðalleiötoga stjórnarandstöö- unnar, fyrir aö seinka kosning- í unum. FRANKFURT - Kona sem i ber vitni í réttarhöldunum yfir Líbananum Mohammad Ali Hammadi sem sakaður er um aðild aö flugráni og moröi, sagöi aö henni heföi verið hótaö öllu illu ef hún bæri kennsl á Hammadi í rétti. „Þeir sögöu þaö betra og heilsusam-! legra ef ég myndi ekki berai vitni," sagði hin 25 ára Helgu' Marx. llllllllllllll ÚTLÖND llllllllllllllllllllllilllllllllllllillllllllllllillllllllllllllllllilllllllllllllllllll Vopnahlé í nándí Persaflóastríðinu? Vojtnahlé virðist á næstu grösum í Persaflóastríðinu þar sem Irakar og íranar hafa barist látlaust í átta ár. Aðalfram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna Javier Perez de Cuellar lýsti því yfir á blaðamannafundi í gær að sendinefnd frá Sameinuðu þjóðunum væru á leið til íraks og írans til að ræða við stjórnvöld um útfærslu vopnahlés í stríðinu, en báðir aðilar hafa lýst yfir vilja sínum að koma á friði í anda tillagna Sameinuðu þjóðanna. Eftir harða bardaga í Persaflóa- stríðinu sem urðu í kjölfar þess að íranar ákváðu að ganga að vopna- hlésskilmálum Sameinuðu þjóð- anna, lögðu frakar í gær fram friðar- áætlun í fimm liðum sem þeir sögðu myndu skera úr um hvort friðarvilji írana væri einlægur eður ei. Fyrr um daginn hafði Ajatollah Khomeini lagt áherslu á að sú ákvörðun írana að ganga að vopn- ahlésskilmálum Sameinuðu þjóð- anna væri ekki liður í áróðursstríði, né tilraun til að ná betri vígstöðu, heldur hefði ákvörðunin verið tekin með hagsmuni hins íslamska lýð- veldis að leiðarljósi. Eftir að Peres de Cuellar fékk“ friðaráætlun fraka í hendur í gær, hélt hann fund með öryggisráði Sam- einuðu þjóðanna ásamt Mahalatti sendifulltrúa frana hjá Sameinuðu þjóðunum. Þar var ákveðið að senda embættismenn Sameinuðu þjóðanna til að ræða við liina stríðandi aðila. Bendir það til þess að íranar geti nokkurn veginn sætt sig við friðar- áætlun íraka, en efni hennar hefur ekki verið birt. Ákvörðun Khomeinis um að ganga að vopnahlésskilmálum Sam- einuðu þjóðanna var honum erfið ef marka má ræðu hans í gær. „Að taka þessa ákvörðun var banvænna en að taka eitur. Ég beygði mig undir vilja Guðs og drakk bikarinn í botn til að fullnægja vilja hans,“ sagði Khom- eini. „Ég hafði lofað að berjast til síðasta blóðdropa og til síðasta andartaks. Ákvörðunin í dagbyggist einungis á hagsmunum hins íslamska lýðveldis." Eins og áður segir var ekkert lát á bardögum þó íranar hafi samþykkt skilmála Sameinuðu þjóðanna. í fyrradag háðu ríkin harða loftorr- ustu yfir Persaflóa og í gær gerðu írakar loftárásir á olíumannvirki í íran. Þá sögðu íranar að írakar hefðu ráðist inn fyrir landamæri írans í norðri, en að árásinni hafi verið hrundið. Hins vegar hafa engar fréttir borist af alvarlegum vopna- viðskiptum eftir að Cuellar skýrði frá fyrirhugaðri friðarför sendi- nefnda Sameinuðu þjóðanna til ír- ans og íraks. Rauði krossinn hefur nú haft sam- band við hina stríðandi aðila í því skyni að koma á fangaskiptum milli ríkjanna, en talið er að stríðsfangar séu nú um 60 þúsund. Þá hafa Bandaríkjamenn lýst því yfir að þeir séu tilbúnir til að hafa samskipti við írana, standi þeir við ákvörðun sína um vopnahlé, en segja of snemmt að ræða um stjórn- málasamband. Samskipti ríkjanna hafa algerlega legið niðri frá því stuðningsmenn Khomeinis tóku fimmtíu og tvo Bandaríkjamenn í gíslingu í sendiráði Bandaríkjanna í Teheran árið 1979 og héldu þeim í eitt og hálft ár. Hins vegar hafa Bandaríkjamenn tekið það skýrt fram að ekki sé á dagskrá að kalla herskip þeirra heim frá Persaflóa á næstunni. Skæðir bardagar háðir í Erítreu Skæruliðar Frelsissamtaka Erítreu segjast hafa banað um tvö þúsund eþíópískum stjórnarhermönnum í bar- dögum nærri bænum Keren í síðustu viku. Ekki minntust þeir á eigið mannfall. Tals- maður samtakanna í Brussel sagði að skæruliðar hefðu Yngt upp í Tævan- ■ ■ w st|om Róttækar breytingar hafa verið gerðar á ríkisstjórn Tævans sem orðin var nokkuð ellihrum. Fimnt gamlir ráðherrar voru látnir taka pokann sinn, en þess í stað tóku við miöaldra tæknikratar meö ný og fersk viðhorf í efnahags og fjármálum, en þau hafa verið í nokkrunt ólestri í Tævan að undanförnu. Mcð þessum kyn- slóðaskiptum hverfa af sjónar- sviðinu flestir hinna gömlu kín- versku þjóðernissinna sem flúðu byltinguna í Kfna og komu á fót útlegðarstjórn á Tævan. Brcytingar þessar koma í kjöl- far þings Þjóðernissinnaflokks- ins, en þar misstu gömlu íhalds- mennirnir völd sín, enda margir hverjir orðnir nokkuö hrumir, og nýir menn komust í valdastöður innan flokksins. Greinilegt að Lee Teng-hui forseti landsins hyggst stuðla að róttækum efnahagsbreytingum í landinu og rjúfa þá einangrun sem Tævan hcfur þurft að búa við vegna tilkallsins til valda í Kína. Lee er inníæddur Tæváni og það eru fimm ráðherrar í stjórn- inni einnig. Það er einnig nokkur breyting frá því sem áður var, því ríkisstjórnin hefur nær eingöngu verið skipuð landflótta Kínverj- náð að eyðileggja fimm skriðdreka og þrjár vöru- bifreiðar hlaðnar skotfærum. Enn er barist á svæðinu. Yfirvöld í Addis Ababa hafa ekki skýrt frá átökum á þessu svæði, enda minnast þau sjaldan á bardaga þó þeir hafi farið fram. Talsmaður skæruliðasamtakanna sagði að Eþíópíuher hefði sent níu herdeildir með um fimmtíu þúsund mönnum norður til Keren í þeim tilgangi að hrekja skæruliða frá hern- aðarlega mikilvægum stöðum kring- um bæinn. Keren er þriðji stærsti bær Erítr- euhéraðsins í norðurhluta Eþíópíu, en Frelsissamtök Erítreu hafa barist fyrir sjálfstæði héraðsins allt frá árinu 1962. Keren liggur um 90 km suður af Asmara, höfuðborg Erítreu Sovétríkin: Armeni gerður útlægur vegna mála Karabakh Stjórnvöld í Sovétríkjunum hafa Tilskipun þessa cfnis var undirrit- ákveðið að gera Paruir Airikyan uð af Andrei Gromyko forseta Sov- útlægan, en Paruir var leiðandi í étríkjanna. Sovétmenn hafa beðið baráttunni fyrir að Nagorno Kar- Bandaríkjamenn um að taka við abakh segði sig úr lögunt við Azerba- Paruir. ijan og yrði sameinað Armeníu. Paruir var handtekinn í heima- iass fréttastofan skýrði trá þessu í borg sinni, Jerevan, þann 24. mars, gær og sagði að Paruir heföi vcrið tveim dögum eftir að hann skýrði sviptur sovéskum ríkisborgararétti vestrænum blaðamönnum frá fjölda- og honum vtsað úr landi „vegna fundum Armena í Jerevan sem athafna hans sem sköðuðu viröingu haldnir voru til stuðnings kröfu hér- Sovétríkjanna*. Þá var þess getið að aðsstjórnar Nagorno Karabakh um forsætisnefnd Æðsta ráðs Sovétríkj- að héraðiðyrði sameinað Armeníu. anna hefði tekið þessa ákvörðun. Samkomulag um Angólu í sjónmáli Ríkisstjórnir Angólu, Kúbu og Suður-Afríku hafa náð samkomu- lagi um ramma friðarsamnings í stríðinu í Angólu og sjálfstæði Nam- ibíu. „Þeir hafa samþykkt ramma sem ætti að leiða til friðar,“ sagði embættismaður í utanríkisráðuneyti Bandaríkjanna í gær, en Banda- ríkjamenn hafa tekið þátt í friðarvið- ræðum þessara ríkja. í samkomulaginu er gert ráð fyrir því að blökkumenn fái stjórn mála í Namibíu í sínar hendur, en Suður- Afríkumenn hafa stjórnað landinu í 70 ár í umboði Sameinuðu þjóðanna og áður Þjóðarbandalagsins. Suður- Afríkumenn dragi einnig herlið sitt heim frá Namibíu. Á móti kemur það að Kúbumenn kalli 45 þúsund manna herlið sitt heim frá Angólu. Viðræður um það hvernig þessum málum verður háttað munu hefjast í byrjun ágústmánaðar. UTLO Þýskur eiginmaður tilkynnir lögreglunni um hvarf eiginkonunnar: Takið góðan tíma! Eiginmaður nokkur skrifaði lög- reglunni í Hamborg bréf, þar sem hann skýrir frá þvi að kona hans sé týnd, en biður lögregluna ekkert að vera að flýta sér að finna hana. „Til að fullnægja lagaskyldunni vil ég upplýsa ykkur um það að kona mín hefur ekki sést í nokkrar vikur. Persónulega sakna ég henn- arekkert. Vinsamlegast takiðykk- ur góðan tíma í þetta mál“. Þannig var bréfið orðað. Talsmaður lögreglunnar viidi ekki nafngreina eiginmanninn, en sagði að þrátt fyrir óskir hans hafi lögreglan hafið strax leit að eigin- konunni.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.