Tíminn - 21.07.1988, Síða 11

Tíminn - 21.07.1988, Síða 11
Fimmtudagur 21. júlí 1988 Tíminn 11 Tryggvi Gunnarsson skorar fyrir Val ■ fyrri hálfleik án þess að Birkir Kristinsson komi nokkrum vörnum við. Tímamynd Pjefur Knattspyrna: Fram úr leik Bikarmcistarar Fram eru úr leik í bikakeppninni í ár. Þeir töpuðu 1-3 fyrir Valsmönnum á Hlíðarenda eftir framlengdan leík ■ gærkvöld. Leikurinn var legst af mjög fjörug- ur og töluvert um marktækifæri. Strax á 4. mín. áttu Framarar gott færi, þegar Pétur Ormslev skaut framhjá af stuttu færi. Valsmenn sneru vörn í sókn og Atli Eðvaldsson brunaði upp hægri kantinn og gaf fyrir á Tryggva Gunnarsson, sem skoraði af öryggi framhjá Birki í markinu. En Adam var ekki lengi í Paradís. Á 17. mín náðu Framarar að jafna með óvæntu marki. Há sending barst inní vítateig Vals og Ómar Torfasón skallaði knöttinn í boga þvert yfir teiginn og í bláhornið yfir Guðmund í markinu. Liðin skiptust á um tækifærin það sem eftir var hálfleiksins. Þar á meðal átti Atli Eðvaldsson skot í þverslá. í síðari hálfleik var hart barist, en minna unt opin tækifæri. Ómar Torfason bjargaði þó á marklínu fyrir Fram, eftir skot frá Jóni Grétari Jónssyni. Eftir 90 mín. leik var staðan 1-1 og framlengja þurfti leik- inn. Undir lok fyrri hálfleiks fram- lengingarinnar dæmdi Friðgeir Hall- grímsson dómari meiriháttar vafa- sama vítaspyrnu á Fram. Eftir skot Sigurjóns Kr. lenti knötturinn í varn- armönnum Fram, en Friðgeir taldi að um hendi hefði verið að ræða. Mjög strangur dómur. Úr vítinu skoraði Atli Eðvaldsson af öryggi, 2-1 fyrir Val. I lok síðari hálfíeiks framlengingarinnar gulltryggðf Jón Grétar síðan sigur Vals með marki eftir skyndisókn, 3-1. Valsmenn í undanúrslitin, en bikarmeistarar Fram úr leik. BL IBK áfram í 4-liða úrslit Skagamenn hafa alltaf verið erfíð- ir heim að sækja ■ fótboltanum og hefur þar sjaldan skipt máli hver hefur átt í hlut. Keflvíkingar létu það þó lítið á sig fá, þeir slógu heimamenn út úr Mjólkurbikar- keppninni ■ gærkvöldi. Úrslit leiks- ins urðu 1-0 ÍBK í vil. Þeir komast því áfram í 4-liða úrslit keppninnar en ÍA situr eftir með sárt ennið og er úr leik. Guðmundur Sighvatsson skoraði sigurmark Kcflvíkinga í síðari hálf- leik. Skagamenn sóttu mikið undir lok leiksins án þess að ná að skora. Upp kom m.a. umdeilt atvik þegar Skagamenn vildu fá víti dæmt á ÍBK en dómarinn var á öðru máli. Bikarinn í kvöld Síðasti leikur 8-liða úrslita Mjólkurbikarkeppninnar í knatt- spyrnu fer fram á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði í kvöld. Topplið 2. deildar, FH, mætir Víkingum, sem berjast á botni 1. deildar. Spenn- andi viðureign á ferðinni. Leikur- inn hefst kl 20.00. BL Einherjar keppa Einherjamót í golfi verður hald- ið í Grafarholti á sunnudaginn. Skráninger í Golfskálanum í Graf- arholti fyrir hádcgi á laugardag. Einherjar eru þeir kylfingar scm farið hafa holu í höggi. Féllu á lyfjaprófi Þrír bandarískir hnefalcikarar féllu á lyfjaprófi nú nýlega og í Ijós kom að þeir höfðu neytt kókaíns. Hnefaleikararnir, sem allir voru líklegir til að vinna sér sæti í bandaríska Ólympíuliðinu, voru lyfjaprófaðir eftir keppni í síðustu viku og í Ijós kom að prófin reyndust jákvæð hjá þeirn Eric Griffin, Lavell Finger og Willtam Guthrie. Þcir félagar voru allir reknir með það sama, aðeins tveimur dögum áður en bandaríska liðið var valið. BL Handbolta- námskeið V-þýski landsliðsþjálfarinn í handknattleik, Ivanescu, verður með námskcið í Laugardalshöll í morgun. Námskeiöið er öllum opið og skráning er á skrifstofu HSÍ. Heimsmet í lyftingum Fimmtán ára gömul kínversk stúlka setti um síðustu helgi 3 heimsmct í lyftingum. Hún snaraði 81 kílói, jafnhenti 103,5 kíló og bætti einnig metið í samanlögðu. Stúlkan, Zhou Lunmei, keppir í 67,5 kg flokki. Bak við tjöldin í Ólympíuborginni Seoul: Hundar hengdir í eldhúsi dauðans „Ilann smeygði snörunni um háls hundsins og hcrti að. Hundur- inn dinglaði nú í lausu lofti, nema hvað afturlappirnar náðu aðeins að krafsa í steypt gólfíð. Skclfíngin skcin úr augum dýrsins, sem átti í það mesta eftir 20 sekúndur ólifað- ar. Froða tók að leka út úr kjaftin- um og tungan titraði. Augun þrútn- uðu og þrútnuðu eins og þau væru að springa. Smán saman hætti hundurinn að krafsa í gólfið í örvæntingarfullri tilraun til að halda lífí. Klærnar voru orðnar blóðugar eftir aö hafa krafsað í steingólfíð með síðustu iífskröftun- um. Nokkrum andartökum síðar lá hundurinn á gólfínu í dauðateygj- unum. Sömu örlög biðu 27 hunda og 8 katta í þröngimi búrum fyrir utan Eldhús dauðans.“ Lýsingin hér að framan er ekki tekin upp úr ódýrri skáldsögu eða lýsing á aftökuaðferðum frum- stæðra villimanna fyrr á öldum. Því sem hér er lýst er að gerast á hverjum dcgi í landi gestgjafa ól- ympíuleikanna. En þeir hefjast í Seoul í S-Kóreu eftir nokkrar vikur. Augu milljarðs manna um allan heim munu beinast að þessu landi, þar 1.600 milljónum punda hefur verið eytt í framkvæmdir og áróður fyrir þessa mestu skrautsýn- ingu íþróttanna í heiminum. En skammt frá íþróttavöllunum þrífst arðvænleg atvinnugrein sem ekki verður sýnd almenningi, grimmd- arleg slátrun og sala á hundum og köttum til áts. Umræddir atburðir eru tíundað- ir í grein sem birtist nýlega í bresku vikublaði. Þar lýsir blaðamaður því hvernig er umhorfs á bak við tjöldin í Scoul, ólympíuborginni sjálfri. Lýsingar bíaðantannsinns eru ógeðslegar og vart boðlegar fólki sem ekki er vant hryllingi og viðbjóði. En höldum áfram að grtpa niður í grein breska viku- blaðsins. „Ég eyddi mörgum ömurlegum dögum þrammandi um markaðs- torgin f Seoul til að kanna hvað hæft væri t' því að Kóreumenn dræpu hunda og ketti sér til matar. En ekkert sem ég hafði heyrt komst nálægt því sem cg átti eftir að upplifa. 1 þau 15 ár sem ég hef starfað sem blaðamaður hef ég uppiifað ýmislegt ógeðslegt, en ekkert kemst nálægt því sem ég varð vitni að á þessunt mörkuðum. Sumar sýnirnar ciga eftir að standa Ijóslifandi fyrir hugskotssjónum mínum það sem ég á eftir ólifað.“ „Klukkan er sjö að morgni og regnið steypist niður á grátt mal- bikið. Samt er múgur og marg- menni á markaðnum. Eftirað hafa gengið framhjá borðum fullum af grænmeti og ávöxtum á Chung- Ang markaðnum í Seoul, var ég skyndiiega staddur innan um búr full af hundum og köttum. Maður á hraðferð þarna hjá mundi örugg- lega halda að verið væri að selja gæludýr. Hvað annað gætu menn verið að gera við þau? En bíðum við, skrftin lykt er í loftinu og ekki er allt sem sýnist. Seinna komst ég acl því að þcssi hrikalega magnaða lykt var iykt dauðans. Eftir að hafa fyigst með markaðnum um tíma lærði ég að þekkja þessa lykt og ýmislegt annað sem þrífst á þessum mörkuðum. Sendibílar og önnur farartæki koma með varning á markaðinn. Þar á meðal hunda og ketti. Dýrin eru í litlum búrum, oft mörg saman, þannig að plássið cr nánast ekkert. Umgengnin við þessi elskulegu dýr sem flestir sið- menntaðir ntenn elska cr eins og um kartöflupoka væri að ræða. Búrunum er hent til og frá og ungir drengir cru meðal þeirra scm koma með dýrin á þennan stað. Hund- arnir eru af ýmsum gerðum, St. Bernards, Collic, Spanicl, Labra- dor og Poodie. Áður en dagurinn er allur hafa örlög þeirra orðið á einn veg. Snaran og Eldhús dauð- ans. í augum þeirra mátti sjá að þcir vissu að endirinn var skammt undan. Ég varð vitni að því þegar hundur var hengdur fyrir framan stafla af búrum, full af hundum." En hvernig getur þetta gerst í landi eins og S-Kóreu, þar sem framfarirnar hafa verið með ólík- indum á öllum sviðum síðustu árin. Hunda- og kattakjötsát er aldagömul hefð í landinu, en opin- berlega bannað. Sú staðreynd er ekki meginmálið, heldur hvernig dýrunum er slátrað. Það geta ekki verið menn með eðlilegar tilfinn- ingar sem fremja önnur eins ódæði og lýst er hér. Þó hefur ekki verið sagt frá öllu. Hvernig hundar hafa verið fláðir og settir í kjötpressu Angistin skín úr augum hundsins þegar bandið herðist að hálsinum. Frá ólympíuborginni Seoul. áður en þeir voru dauðir og fleira í þessum dúr. En af hverju má ekki nota eitt- hvað af gróðanum sem er mikill í þessari atvinnugrein, til kaupa tæki til að drepa dýrin á manneskjuiegri hátt? Svarið er rnjög í anda þess sem fyrir augu blaðamannsinns bar. Það er trú manna þar austur frá, að eftir því sem dýrið kveljist meira, því betra verði bragðið. Stjórnvöld í S-Kóreu viður- kenna ckki að hundar og kettir séu drepnir lil matar og vilja ckki fara og sjá það með eigin augum. Það getur verið hættulegt heilsu ferða- manna að sjá of mikið hvað fram fer á mörkuðunum í ólympíuborg- inni Seoul í S-Kóreu.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.