Tíminn - 21.07.1988, Page 20
tj
JJJJ J ý JJ JJJAJJJ J JJ J .4 J J JJ J JJ J JA JJ .ý..4.i _ _*.f. .f..tJJJJJ.ÍJJJJJJJJJ +JJJJJJ t JJJJJ.t J fj tj tj.9 ■ . tJJJJJJ 4 4 iJJJJ J-J, 4AJJ-4 A' A Á A' A' M A Á A ±A..A AA-A-A-J*. .
RIKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
, Hafnarhúsinu v/Tryggvagöfu,
S 28822
Auglýsingadeild hannar
auglýsinguna fyrir þig
Ökeypis þjónusta
Tímiiui
Ástandið á leigumarkaðnum sjaldan verið verra:
Fólki boðið nánast
óíbúðarhæfí Kúsnæði
Ófremdarástand ríkir nú á leigumarkaðnum og telja
menn að sjaldan eða aldrei hafi það verið verra. Ekki er
aðeins um að ræða lítið framboð á húsnæði og gífurlega
hátt verð á því húsnæði sem þó er í boði heldur er margt
af því nánast óíbúðarhæft. Dæmi eru til þess að tveggja
herbergja kjallaraíbúð með óþéttu, lyktandi salerni, lekum
vaski og sturtu í risi, sameiginlegri fyrir allt húsið hafi verið
boðin til leigu á 25 til 30 þúsund krónur. Krafist var
fyrirframgreiðslu.
„Það er nóg framboð á húsnæði
en að vísu meiri eftirspurn. Við
fáum hins vegar mikið af húsnæði
og jafnvel það sem ekki er á hinum
almenna markaði," sagði Ólafur
Gránz framkvæmdastjóri Leigu-
miðlunar húseigenda.
Einstaklingar í leit að leiguhús-
næði voru ekki sammála ummælum
Ólafs heldur töldu framboð á hús-
næði nánast ekkert og sögðu jafn-
framt margir að leigumiðlanir væru
ekki með neina á skrá nema leigj-
endur.
„Það gengur vægast sagt hrylli-
lega að fá íbúð. Ég hef verið að
leita lengi og er búinn að auglýsa
nokkrum sinnum en það kemur
ekki einu sinni slæmt tilboð, það
kemur ekkert,“ sagði ungur maður
í samtali við Tímann.
Hjón með þriggja mánaða barn
sögðu Tímanum að þeim hefði
borist eitt tilboð. Um var að ræða
tvcggja herbergja íbúð án baðs en
klósett og vaskur voru f íbúðinni.
fbúðina átti að leigja á 35 þúsund
krónur.
Tíminn hefur enn fremur haft
spurnir af ungri stúlku, sem fór að
skoða auglýsta íbúð, og var vísað
á kjallaraíbúð, þar sem var mold-
argólf, engin hreinlætisaðstaða og
eldhúsinnrétting úti í garði. Datt
henni helst. í hug, að hún hefði
verið höfð að fífli og afþakkaði
boðið, en íbúðin var engu að síður
augiýst áfram.
Á skrifstofu SHÍ er starfrækr
húsnæðismiðlun fyrir stúdenta í
Háskólanum.
Að sögn Lilju Stefánsdóttur
starfsmanns húsnæðismiðlunarinn-
ar virðist vera nóg af herbergjum í
boði. „Framboð á litlum íbúðum
er hins vegar mjög lítið og okkur
gengur því vægast sagt mjög vel að
finna hentuga leigutaka," sagði
Lilja. Og bætti við að jafnframt
væri það gífurlegt vandamál að
það húsnæði sem þó væri í boði
væri nánast alltaf aðeins til leigu í
fáeina mánuði. „Fóik þarf stöðugt
að vera að rífa sig upp því nánast
ógerlegt virðist vera að fá lengri
tíma samning," sagði Lilja.
Spurð hvört farið væri fram á hjá
húsnæðismiðluninni að stúdentar
greiddu lægra verð fyrir íbúðirnar
sagði Lilja að svo væri ekki heldur
greiddu stúdentar það verð sem
tíðkaðist á markaðnum. „Það virð-
ist hins vegar vera erfiður biti að
kyngja fyrir margan stúdentinn,“
bætti hún við.
„Á hverju hausu þegar iands-
byggðarfólkið flykkist hingað til að
fara í skóla versnar ástandið mjög
og öryggisleysið fyrir fólkið sem er
að reyna að verða sér út um
húsnæði er mikið,“ sagði Lilja.
Horfurnar vænkast þó væntan-
lega eitthvað fyrir stúdenta á næst-
unni því fram í september á næsta
ári verða teknar í notkun alls 90
íbúðir í nýjum hjónagörðum sem
verið er að byggja við Háskólann.
„Þó ekki bætist við nema nokkrir
tugir íbúða þá léttir það töluvert á
ofsetnum markaði," sagði Lilja að
lokum. IDS/þj
íþróttafélag fatlaðra í Reykjavíkog nágrenni ásamt Nýja ferðaklúbbnum:
NÚ Á AD SIGRAST
Á MARKARFLJÓTI
Fjórir fórust:
Flugslys
Eins hreyfils flugvéi, af gcrð-
inni Beachcraft B-35, fórst við
Færeyjar í gærum kiukkan 12.30.
Fjórir Þjóðverjar voru unt borð,
og fórust þeir allir. Vélin var
skrásett í Vestur-Þýskalandi.
Veður var gott, 2 til 3 vindstig og
gott skyggni, þegar slysið varð.
Mennirnir komu til Reykjavík-
ur sl. sunnudag frá Færeyjum og
var fðrinni heitið aftur þangað.
Lögðu þeir af staö frá Reykjavík-
urfiugvelli kl. 9.00 { gærmorgun.
Þegar vélin átti aðeins örfáar
mínútur eftir ófarnar að flugvell-
inum í Vogey tóku bændur í
nágrenninu eftir því að vélin átti
við gangtruflanir að etja. Síðan
varð hávær sprenging og stakkst
vélin i hafið. Segja þeir að vélin
hafi sokkið á einni mínútu.
JIH
Mánudaginn 25. júlí n.k. munu
tíu fatlaðir einstaklingar, sem flestir
eru í hjólastólum, leggja upp í
siglingu niður Markarfljót á tveimur
gúmbátum. Þeir verða þó ekki einir
á ferð því meðlimir í Nýja ferða-
klúbbnum, sem sérhæfa sig í báts-
ferðum niður straumharðar ár,
stjórna förinni.
Siglingin er hluti af fjáröflunarher-
ferð sem fþróttafélag fatlaðra í
Rcykjavík og nágrenni er að setja af
stað vegna byggingar nýs íþróttahúss
fyrir fatlaða í Hátúni 12.
Nýi ferðaklúbburinn bauð ÍFR
aðstoð við siglingu niður Hvítá í
Árnessýslu í fyrrasumar. Því erþetta
í annað skipti sem meðlimir ÍFR
leggja upp í glæfraferð niður straum-
harðar ár.
„Fatlaðir hætta sér hiklaust út í
siglingu sem þessa, til að undirstrika
hve mikilvægt það er fyrir félagið að
eignast eigið íþróttahús. Ef þörf er á
slíkri byggingu fyrir heilbrigða, er
nauðsynlegt fyrir fatlaða að eignast
eina slíka“, segir m.a. í fréttabréfi
frá ÍFR um fjáröflunina og fyrirhug-
aða siglingu.
Ennfremur segir: „íþróttir eru
ekki bara keppni og æfing, þær eru
andleg og líkamleg uppbygging, sem
eykur þrótt og þor og eyðir minni-
máttarkennd, sem er svo oft fylgi-
fiskur fötlunar. Því skorum við á alla
þá, sem vilja styrkja fatlaða til
sjálfsbjargar, að leggja okkur lið.
íþróttahús skai rísa!
Við í ÍFR skorum á starfsmanna-
félög að hugsa til okkar. Fimmtíu
krónur á mann á vinnustað eru
fjármunir, sem engan ætti að muna
um, en eru fjármunir fyrir ÍFR þegar
saman safnast.
ÍFR skorar því á almenning að
sameinast í þessu átaki okkar. Þitt
framlag rennur í heilsuhöll fyrir
fatlaða.“
Tekið verður við fjárframlögum í
síma 91-21076 frá 13:00-17:00 og i
síma 91-25097 frá kl. 9:00-13:00 og
frá kl.17:00-22:00. -gs
Frá siglingu ÍFR og Nýja ferða-
klúbbsins niður Hvítá í Árnessýsiu í
júlí í fyrra. Ferðin gekk vel. Nú
hugsa sömu aðilar sér aftur til hreyf-
ings. Að þessu sinni hyggjast þeir
sigla niður Markarfljót. Timinn: Brein