Tíminn - 01.10.1988, Síða 24
Laugardagur 1. október 1988
■ 24 Tíminn
DAGBÓK
Félagar að ganga frá penipökkunum til sölu á laugardag og sunnudag ■ Hafnarfirði
Perusala Lions í Hafnarfirði
Lionsklúbbur Hafnarfjarðar verður
með sína árlegu perusölu á laugardag og
sunnudag, 1. og 2. okt. Allur ágóði af
sölunni rennur til líknarmála í Hafnar-
firði.
Klúbburinn hefur m.a. styrkt heimili
fyrir þroskahefta, svokallaða „Kisu-
deild“, sem er deild innan barnaheimilis
í Norðurbænum í Hafnarfirði. Einnig
heimili fyrir vangefna að Klettahrauni 17
í Hafnarfirði. Svo og hefur klúbburinn
styrkt St. Jósefsspítala í Hafnarfirði með
tækjakaupum, svo eitthvað sé nefnt.
Nýlega var keypt tæki, sem notað er til að
skcra upp við brjósklosi í baki, þannig að
hægt er nú að framkvæma þær aðgerðir í
Hafnarfirði.
Einnig styrkir Lionsklúbbur Hafnar-
fjarðar ýmis málefni innan Lionshreyfing-
arinnar. Perusala Lionsmanna hjálpar til
við að fjármagna félagið til líknarmála.
Talið f.v.: Sigurður Bragason, Erla Gígja
Garðarsdóttir, Guðjón Grétar Óskarsson
Óperutónleikar í
Innri-Njarðvíkurkirkju
Sunnudaginn 2. október kl. 17:00 verða
óperutónleikar í Innri-Njarðvíkurkirkju.
par koma fram Erla Gígja Garðarsdóttir,
sópran, Sigurður Bragason, bariton og
Guðjón Óskarsson, bassi. Undirleikari á
píanó er Úlrik Ólafson.
Erla Gígja Garðarsdóttir lauk 8. stigi í
söng frá Tónlistarskólanum á Akranesi
sl. vor. Hún tók þátt í námskeiði í sumar
Verk eftir Gunnlaug BLöndal, sem boðið
verður upp á Hótel Borg á sunnudag
Listmunauppboð á Borginni:
M.a Dögun eftir Einar Jonsson og
Stóðhestar eftir Jón Stefánsson
Á 16. listmunauppboði Gallerí Borgar
sunnudaginn 2. október verður boðin
upp gifsstytta eftir Einar Jónsson,
DOGUN, ein af örfáum, gerð 1901-1908,
vatnslitamynd eftir Jóhannes S. Kjarval
frá 1918 og olíumynd eftir Jón Stefánsson
STÓÐHESTAR.
Alls verða boðin upp rúmlega sjötíu
verk. Auk þeirra sem að framan greinir
verða boðnar upp fimm Kjarvalsmyndir,
túss og krft, vatnslitamynd eftir Gunnlaug
Scheving og einnig olíumynd eftir hann.
Þá verður og boðin upp stór olíumynd
eftir Gunnlaug Blöndal og sérstæð blóma-
mynd eftir Kristínu Jónsdóttur.
Þetta er sextánda listmunauppboð
Gallerí Borgar í samvinnu við Listmuna-
uppboð Sigurðar Benediktssonar hf. og
verður það haldið á Hótel Borg. Uppboð-
ið hefst kl. 15:30 á sunnudag.
Myndirnar eru til sýnis í Pósthússtræti
9 í dag, laugardag kl. 14:00-18:00.
hjá Pier Miranda Ferraro á Italíu.
Sigurður Bragason hefur sungið á tón-
leikum víða um land og erlendis. Hann
lauk námi hjá Ferraro á Ítalíu 1986.
Guðjón Grétar Óskarsson er við nám í
akademíunni í Osimo á Ítalíu. Síðasta
vetur söng hann eitt aðalhlutverkið í
Rigoletto í Frakklandi. Hann mun syngja
eitt af aðalhlutverkunum í uppfærslu
Þjóðleikhússins og Islensku óperunnar á
Ævintvrum Hoffmanns nú í október.
Úlrik Ólason er organisti í Kristskirkju
í Reykjavík. Hann stundaði framhalds-
nám í V-Þýskalandi á árunum 1976-1980.
Hann kenndi við Tónlistarskólann á
Akranesi 1980-1981 og var síðan skóla-
stjóri Tónlistarskóla Húsavíkur í sex ár.
Erindi í H.í.
um umhverfismál
í verkfræðideild Háskóla íslands eru á
mánudögum kl. 17:15 flutt erindi um
umhverfismál. Erindin eru flutt í stofu
158 í húsi verkfræðideildar, Hjarðarhaga
6.
Næsta mánudag, 3. okt., flytur Gísli
Már Gíslason, prófessor í líffræði erindi:
Ýmis undirstöðuatriði í vistfræði.
Aðgangur er öllum heimill.
Skákskóli
Skákfélags Hafnarf jarðar
Skákfélag Hafnarfjarðar mun starf-
rækja skákskóla fyrir börn og unglinga,
dagana 3.-21. októbcr. Kennsla fer fram
þrisvar í viku, þrjár vikur í röð, í allt 9
skipti. Hver tími verður 70 mínútur að
lengd. Skólinn er ætlaður öllum, en
æskilcgt er að nemendurnir kunni að
minnsta kosti mannganginn. Þátttakend-
um verður skipt í hópa eftir skákgetu og
aldri. Þátttökugjald er 800 kr. fyrir félaga
en 1200 kr. fyrir aðra.
Kennslan fer fram í félagsheimili Skák-
félagsins í Dverg (á horni Suðurgötu og
Lækjargötu). Innritun og upplýsingar eru
í síma 52625 (Ágúst Sindri Karlsson) og
52635 (Jóhann Larsen) frá og með 1. okt.
Einnig geta þeir sem áhuga hafa mætt í
Dverg mánudaginn 3. okt. kl. 17:30.
Hallgrímskirkja
-Starf aldraðra
í vetur verður fótsnyrting, hárgreiðsla
og handsnyrting hvern þriðjudag og föstu-
dag.
Allir 67 ára og eldri - einnig öryrkjar -
geta notið þessarar þjónustu. Sama verð
er og á Norðurbrún. Panta skal sömu
daga hjá Dómhildi í síma kirkjunnar
10745 eða aðra daga í síma 39965.
Sjúkraleikfimin hefst ekki fyrr en
þriðjudaginn 18. október.
Þrjár sýningar
á Kjarvalsstððum
Á Kjarvalsstöðum standa nú yfir þrjár
sýningar, sem hafa staðið frá 17. septem-
ber og þeim lýkur nú um helgina.
í vestursal og á vesturforsal eru tvær
sýningar. Halisteinn Sigurðsson sýnir
málaða skúlptúra úr málmi, og er bæði
um að ræða verk sem hvíla á stöllum, eru
sett á vegg og svonefnd svifverk.
Ása Olafsdóttir sýnir myndvegnað og
eru mörg þeirra unnin úr íslenskri ull.
1 austursal eru sýnd grafíkverk frá
Tamarind stofnuninni ■ Bandaríkjunum.
Þessi verk eru úrval af verkum ýmissa
listamanna, sem starfað hafa við stofnun-
ina í gegnum árin.
Sýningarnar eru opnar alla daga kl.
14:00-22:00 og er síðasti sýningardagur
sunnud. 2. október.
Hádegisverðarfundur
Hádegisverðarfundur presta verður
mánudag 3. okt. í safnaðarheimili Bú-
staðakirkju.
Kaffidagur og kökubasar
Eyfirðingafélagsins
Eyfirðingafélagið í Reykjavík byrjar
vetrarstarfið með kaffidag og kökubasar
sunnudaginn 2. október í Átthagasal
Hótels Sögu. Húsið opnað kl. 14:00.
Hafnarfjarðarkirkja
Sunnudagaskóli hefst kl. 10:30. Messa
kl. 14:00. Altarisganga. Organisti er
Helgi Bragason.
Sr. Gunnlaugur Garðarsson
Keflavíkurkirkja
Sunnudagaskóli kl. 11:00. Munið
skólabílinn. Guðsþjónusta kl. 14:00.
Ræðuefni: Ábyrgð og aðgerðir kirkjunn-
ar gagnvart alnæmi.
Athugið breyttan messutíma.
Sóknarprestur
Safnaðarfélag Ásprestakalls
Vetrarstarfið hefst með kaffisölu í
félagsheimilinu eftir messu kl. 14:00
sunnudaginn 2. október. Allir velkomnir.
Fundur í Safnaðarfélagi
Ásprestakalls
Fyrsti fundur vetrarins verður þriðju-
daginn 4. október kl. 20:30 í félagsheimil-
inu. Fundarefni: 1. Vetrarstarfið kynnt 2.
Árni Bergur Sigurbjörnsson segir frá ferð
til Tyrklands og sýnir litskyggnur. Allir
velkomnir.
Kvikmyndasýningar MÍR
Vegna sýningar laugardaginn 1. okt. á
sovésku stórmyndinni „Stríði og friði“,
sem byggð er á samnefndri skáldsögu
Tolstojs, fellur sunnudagssýningin í bíó-
sal MÍR. Vatnsstíg 10, niður. Næsta
sunnudag, 9. okt. verðursýnd á Vatnsstíg
10 myndin „Kósakkar", sem gerð er eftir
annarri sögu Tolstojs, en aðrar kvik-
myndir sem MÍR sýnir í októjjai—eru
„Mimino" (16. okt.), „Komfðog sjáið“
(23. okt.) og „Harnlet" (30. okt.).
Myndakvöld Útivistar
Fyrsta myndakvöld vetrarins í Fóst-
bræðraheimilinu, Langholtsvegi 109
verður þriðjudaginn 4. okt. kl. 20:30.
Fyrir hlé: Myndir frá sólstöðuferð fyrir
norðan o.fl. Eftir hlé: Haustlitir í Þórs-
mörk o.fl. Kvennanefnd Útivistar sér um
kaffiveitingar í hléi. Sjáumst!
Útivist
Félag eldri borgara
Opið hús í dag, laugardaginn 1. októ-
ber, ■ Tónabæ. Húsið er opnað kl. 13.30.
Kl. 14.00 er frjáls spilamennska og kl.
20.00 dans.
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, á
morgun, sunnudaginn 2. október. Kl.
14:00 er frjálst spil og tafl. Kl. 20:00
dansað til kl. 23:30.
Opið hús á mánudag, 3. okt. í
Tónabæ. Húsiðopnað kl. 13:30. Félagsv-
ist hefst kl. 14:00.
Félagsvist
Húnvetningafélagsins
Húnvetningafélagið í Reykjavík spilar
félagsvist laugardaginn 1. október
kl. 14:00 í félagsheimilinu Húnabúð,
Skeifunni 17. Þriggja daga keppni er að
hefjast.
Allir velkomnir.
Skólasetning á
Hvanneyri
Á morgun, sunnudaginn 2. október,
verður Bændaskólinn á Hvanneyri settur.
Athöfnin hefst kl. 16.00. Nemendur í
bændadeild verða 90-95 á komandi skóla-
ári en í búvisindadeild verða 20 nemendur
í tveimur árgöngum.
Landbúnaðarráðherra, Steingrímur J.
Sigfússon, mun verða viðstaddur skóla-
setninguna.
Skólastjóri Bændaskólans á Hvanneyri
er Sveinn Hallgrímsson.
Safnaðarstjórn Fríkirkjunnar skorar
á safnaðarfólk að greiða atkvæði í
v ' ailsherjaratkvæðagreiðsiunni 1. og
XJA 2. október n.k. í Álftamýrarskóla og XJA
krossa við JA. Upplýsingaskrifstofa
að Laufásvegi 13, bílasími 27270.
ÚTVARP/SJÓNVARP
Rás I
FM 92,4/93,5
SJÓNVARPIÐ
Laugardagur
1. október
6.45 Veöurfregnir. Bæn, séra Guðni Gunnarsson
flytur.
7.00 Fréttir.
7.05 í morgunsárið. Þulur velur og kynnir tónlist.
Fréttir sagðar kl. 8.00, þá lesin dagskrá og
veðurfregnir sagðar kl. 8.15.
9.00 Fréttir.
9.03 Litli barnatíminn. „Alís í Undralandi" eftir
Lewis Carroll í þýðingu Ingunnar E. Thoraren-
sen. Þorsteinn Thorarensen les (18). (Einnig
útvarpað um kvöldið kl. 20.00).
9.20 Hlustendaþjónustan. Umsjón: Sigrún
Bjömsdóttir.
9.30 Fréttayfirlit vikunnar
10.00 Fróttir. Tilkynningar.
10.10 Veðurfregnir
10.25 Síglldir morguntónar. a. Píanósónata í
F-dúr K.332 eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
Daniel Barenboim leikur. b. Strengjakvartett í
G-dúrop. 76 nr. 1 eftir Joseph Haydn. Amadeus
kvartettinn leikur.
11.00 Tilkynningar.
11.05 í liðinni viku. Umsjón: Páll Heiðar Jónsson.
12.00 Tilkynningar. Dagskrá.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Veðurfregnir. Tónlist.
14.00 Tilkynningar.
14.05 Sinna. Þáttur um listir og menningarmál.
Umsjón: Þorgeir Ólafsson.
15.00 Tónspegill. Umsjón: Bergþóra Jónsdóttir.
16.00 Fróttir. Tilkynningar. Dagskrá.
16.15 Veðurfregnir.
16.20 Islenskt mál Jón Aðalsteinn Jónsson flytur
þáttinn.
16.30 Laugardagsóperan: „Leonore" eftir Lud-
wig van Beethoven. Jóhannes Jónasson
kynnir.
18.30 Tónlist. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Kvöldfróttir.
19.30 Tilkynningar.
19.35 Óskin. Þáttur í umsjá Jónasar Jónassonar.
(Einnig útvarpað á mánudagsmorgun kl. 10.30).
20.00 Barnatíminn. (Endurtekinn þáttur frá
morgni).
20.15 Harmoníkuþáttur. Umsjón: Einar Guðm-
undsson og Jóhann Sigurðsson. (Frá Akureyri)
(Einnig útvarpað á miðvikudag kl. 14.05).
20.45 Land og landnytjar. Umsjón: Finnbogi Her-
mannsson. (Frá ísafirði)
21.30 Elísabet F. Eiríksdóttir syngur lög eftir
Jórunni Viðar. Höfundur leikur með á píanó.
22.00 Fréttir. Dagskrá morgundagsins. Orð
kvöldsins.
22.15 Veðurfregnir.
22.20 Danslög
23.00 Nær dregur miðnætti. Kvöldskemmtun Út-
varpsins á laugardagskvöldi. Stjórnandi: Hanna
G. Sigurðardóttir.
24.00 Fréttir.
00.10 Um lágnættið. Jón örn Marinósson kynnir
sígilda tónlist.
01.00 Veðurfregnir.
Næturútvarp á samtengdum rásum til
morguns.
02.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og sagðar fréttir af
veðri og flugsamgöngum kl. 5.00 og 6.00.
Veðurfregnir frá Veðurstofu kl. 4.30. Þessa nótt
er leikið til úrslita um 1. og 3. sætið í handknatt-
leik, kl. 6.00 um þriðja sætið og kl. 7.30 um 1.
sætið.
8.10 Á nýjum degi. Þorbjörg Þórisdóttir gluggar í
helgarblöðin og leikur notalega tónlist. Pistill frá
Ólympíuleikunum í Seúl kl. 8.30.
10.05 Nú er lag. Gunnar Salvarsson tekur á móti
gestum í morgunkaffi, leikur tónlist og kynnir
dagskrá Ríkisútvarpsins.
12.20 Hádegisfréttir.
12.45 Dagbók Þorsteins Joð. Þorsteinn J. Vil-
hjálmsson.
15.00 Laugardagspósturlnn. Skúli Helgason sér
um þáttinn.
17.00 Fyrirmyndarfólk. Lísa Pálsdóttir tekur á
móti gestum í hljóðstofu Rásar 2 og bregður
léttum lögum á fóninn. Gestur hennar að þessu
sinni er Olafur Halldórsson.
19.00 Kvöldfréttir.
19.30 Kvöldtónar. Tónlist af ýmsu tagi.
22.07 Út á lífið. Anna Björk Birgisdóttir ber kveðjur
milli hlustenda og leikur óskalög.
02.00 Vökulögin. Tónlist af ýmsu tagi í næturút-
varpi til morguns. Fréttir kl. 2.00 og 4.00 og
sagðar fréttir af veðri og flugsamgöngum kl.
5.00 og 6.00. Veðurfregnir frá Veðurstofu kl.
4.30.
Fréttir kl. 2.00, 4.00, 7.00, 8.00, 9.00, 10.00,
12.20,16.00,19.00, 22.00 og 24.00.
Tónlistarkrossgátan
Tónlistarkrossgáta númer 114 verður lögð fyrir
hlustendur Rásar 2 á morgun kl. 16.05. Jón
Gröndal sér um þáttinn og skal senda lausnir til
Ríkisútvarpsins, Rás 2, Efstaleiti 1,108 Reykjavík,
merktar Tónlistarkrossgátan.
Laugardagur
1. október
06.55 Ólympiuleikamir '88 - bein útsending
Úrslit í judó, handknattleik, knattspymu og
sundknattleik.
13.00 Hlé.
17.00 Ólympíusyrpa Ýmsar greinar.
18.50 Fréttaágrip og táknmálsfréttir.
19.00 Mofli - síðasti pokabjöminn. (Mofli - El
Ultimo Koala) Spænskur teiknimyndaflokkur
fyrir böm. Leikraddir Arnar Jónsson og Anna
Kristín Arngrímsdóttir. Þýðandi Steinar V. Áma-
son.
19.25 Smellir Umsjón Ragnar Halldórsson.
19.50 Dagskrárkynning
20.00 Fréttir og veður.
20.30 Lottó.
20.35 Já, forsætisráðherra. (Yes, Prime Minister).
Annar þáttur. Breskur gamanmyndaflokkur í
átta þáttum. Aðalhlutverk Paul Eddington, Nigel
Hawthome og Derek Fowlds. Þýðandi Guðni
Kolbeinsson.
21.00 Maður vikunnar.
21.15 Ein á hreinu (The Sure Thing) Bandarísk
biómynd frá 1985. Leikstjóri Rob Reyner.
Aðalhlutverk John Cusack og Daphne Zuniga.
Tveir menntaskólanemar verða samferða í bíl
langa leið yfir Bandaríkin. Þeim kemur ekki vel
saman og verður ferðalagið því viðburðaríkt í
meira lagi. Þýðandi Veturliði Guðmundsson.
22.50 Allt í röð og rugli (Tutto a Posto e niente in
Ordine) ítölsk bíómynd frá 1976. Leikstjóri Lina
Wertmuller. Aðalhlutverk Luigi Diberti, Nino
Bignamini, Lina Plito og Sara Rapisarda. Fjallað
er á grátbroslegan hátt um tilraunir tveggja
bænda til að aðlagast stórborgarlífinu. Þýðandi
Þuríður Magnúsdóttir.
00.35 Útvarpsfréttir
00.45 Ólympíuleikamir '88 - Bein útsending.
Blak, hnefaleikar og maraþon.
06.30 Útvarpsfréttir í dagskrárlok.
08.00 Kum, Kum. Teiknimynd. Þýðandi: Sigrún
Þorvarðardóttir.
08.25 Hetjur himingeimsins.He-man. Teikni-
mynd. Þýðandi: Sigrún Þorvarðardóttir. Filmat-
ion.
08.50 Kaspar. Teiknimynd. Þýðandi: Guðjón
Guðmundsson. Worldvision.
09.00 Með Afa. I dag ætlar Afi að heimsækja
fisleldisstöðina Laxalón og fræða bömin um
fiskeldi. Hann segir líka sögur, syngur og sýnir
stuttar teiknimyndir. Allar myndir sem börnin sjá
með afa eru með íslensku tali. Leikraddir:
Guðmundur Ólafsson, Guðný Ragnarsdóttir,
Guðrún Þórðardóttir, Júlíus Brjánsson, Saga
Jónsdóttir og Sólveig Jónsdóttir.
10.30 Penelópa punturós. The Perils of Penelope
Pitstop. Teiknimynd. Þýðandi: Alfreð S. Böðv-
arsson. Worldvision.
10.55 Einfarinn. Lone Ranger. Teiknimynd. Þýð-
andi: Hersteinn Pálsson. Filmation.
11.20 Ferdinand fljúgandi. Leikin barnamynd um
tíu ára gamlan dreng sem getur flogið. Þýðandi:
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir. WDR.
12.10 Laugardagsfár. Tónlistarþáttur. Vinsælustu
dansstaðir Bretlands heimsóttir og nýjustu
popplögin kynnt. Musicbox 1988.
12.40 Viðskiptaheimurinn. Wall Street Joumal
Endursýndur þáttur frá síðastliðnum fimmtu-
degi.
13.05 Fanný. Mynd þessi gerist í frönsku sjávar-
þorpi og fjallar um harmleik ungra elskenda sem
ekki fá notist. Aðalhlutverk: Leslie Caron, Maur-
ice Chevalier og Charles Boyer. Leikstjóri:
Joshua Logan. Framleiðandi: Ben Kadish. Þýð-
andi: Snjólaug Bragadóttir. Warner 1961. Sýn-
ingartími 130 mín.
15.15 Ættarveldið. Dynasty. Bandarískur fram-
haldsmyndaflokkur. Þýðandi: Guðni Kolbeins-
son. 20th Century Fox.
16.05 Ruby Wax. Breskur spjallþáttur þar sem
bandaríska gamanleikkonan og rithöfundurinn
Ruby Wax tekur á móti gestum. Umræðuefnin
eru hversdagsleg mál eins og kynlífiö, dauðinn
og peningar og gestimir úr ýmsum stéttum og
atvinnuhópum þjóðfélagsins. Channel 4/NBD.
16.35 Nærmyndir. Endursýnd nærmynd af Indriða
G. Þorsteinssyni rithöfundi. Umsjónarmaður er
Jón Óttar Ragnarsson. Stöð 2.
17.15 íþróttirá laugardegi. Litið yfir íþróttir helgar-
innar og úrslit dagsins kynnt. Meðal efnis: ítalski
fótboltinn, Gillette-pakkinn o.fl. Umsjón: Heimir
Karisson.__________________
19.1919.19 Fréttir, veður og íþróttir, menning og
listir, fróttaskýringar og umfjöllun. Allt í einum
pakka.
20.30 Verðlr laganna. Hill Street Blues. Spennu-
þættir um líf og störf á lögreglustöð í Bandaríkj-
unum. Aðalhlutverk: Michael Conrad, Daniel
Travanti og Veronica Hamel. Þýðandi: Ásthildur
Sveinsdóttir. NBC.
21.25 Séstvallagata 20. All at No 20. Breskur
gamanmyndaflokkur. Aðalhlutverk: Maureen
Lipman. Þýðandi: Guðmundur Þorsteinsson.
Thames Television 1987.
21.50 1941. Bandarísk bíómynd frá 1979. Aðalhlut-
verk: Dan Akroyd, Ned Betty, John Belushi,
Christopher Lee, Toshiro Mifune. Leikstjóri:
Steven Spielberg. Framleiðandi: John Milius.
Columbia 1979. Sýningartími 115 mín.
23.45 Saga rokksins. The Story of Rock and Roll.
( þessum þætti verður fjallað um nokkra píanó-
snillinga eins og Fats Domino, Little Richard,
Jerry Lee Lewis, Elton John, Stevie Wonder og
Billy Joel. Þýðandi: Björgvin Þórisson. LBS.
00.20 Draugahúsið. Legend of Hell House.
Bandarísk hrollvekja frá 1973. Aðalhlutverk:
Pamela Franklín og Roddy MacDowall. Leik-
stjóri: John Hough. Framleiðendur: Albert Fenn-
ell og Norman T. Herman. 20th Century Fox
1973. Sýningartími 95 mín. Alls ekki við hæfi
barna.
01.55 Lagasmiður. Songwriter. Mynd um tvo fé-
laga sem ferðast um Bandaríkin og flytja
sveitatónlist. Aðalhlutverk: Willie Nelson og Kris
Kristofferson. Leikstjóri: Alan Rudolph. Fram-
leiðandi: Sidney Pollack. Þýðandi: Ingunn Ing-
ólfsdóttir. Tri Star 1984. Sýningartími 90 mín.
03.25 Dagskrárlok.