Tíminn - 14.04.1989, Side 2
2 Tíminn
Föstudagur 14. apríl 1989
Þingflokkur Frjálslyndra hægrimanna stofnaður i sameinuóu þingi í gær. Hreggviður Jonsson:
STJÓRNARSINNAR HAFA
STOLIÐ BORGARAFLOKKI
Nýr þingflokkur var formlega stofnaður á Alþingi í gær
og ber hann heitið þingflokkur Frjálslyndra hægrimanna.
Þingmenn flokksins eru tveir, þeir Ingi Björn Albertsson
og Hreggviður Jónsson, sem nú hafa sagt skilið við sinn
gamla flokk Borgaraflokkinn. Ástæðuna fyrir burtför sinni
segja tvímenningarnir vera óánægju með stefnubreytingu
innan Borgaraflokksins og sagði Hreggviður Jónsson í
sameinuðu þingi í gær að flokknum hefði nánast verið
stolið af stuðningsmönnum ríkisstjórnarinnar.
Júlíus Sólnes, formaður Borgaraflokksins, á Alþingi í gær. Tímamvnd Pjeiur
Júlíus Sólnes sagði í svari sínu til
Hreggviðs að fyrir honum væru
það ný tíðindi að Borgaraflokkn-
um hefði verið stolið. „Ég hef ekki
orðið var við það að mér hafi verið
stolið, ég er að minnsta kosti hér
ennþá,“ sagði Júlíus. Hann bætti
því við að hann hefði heldur ekki
verið krafinn um lausnargjald af
þeim aðila sem hugsanlega hefði
stolið þeim flokk sem hann væri
formaður fyrir. Júlíus tók frant að
hann fordæmdi þá efnahags- og
skattastefnu sem ríkisstjórn
Steingríms Hermannssonar Itefði
staðið fyrir.
Það var Ingi Björn Albertsson
sem óskaði eftir umræðu utan
dagskrár, þar sem hann tilkynnti
stofnun hins nýja flokks, flokks
Frjálslyndra hægrimanna. ingi vék
að stofnun flokksins þegar Albert
Guðmundsson var flæmdur úr
Sjálfstæðisflokknum og bauð frant
undir merkjum Borgaraflokksins
um land allt. Hann sagði að þrátt
fyrir glæstan sigur, undir forystu
Alberts hefðu mál nú þannig skip-
ast að hann hefði hætt sem formað-
ur og leiðandi afl innan Borgara-
flokksins og tekið við stöðu sendi-
herra íslands í París. Slfkt hefði
ekki gerst ef Albcrt hefði notið
órofa stuðnings þingflokksins og
unnið hefði verið með honunt af
heilum hug að framgangi stefnu-
skrár flokksins.
Sú ástæða sem Ingi Björn sagði
mikilvægasta fyrir brottför þeirra
Hreggviðs, var að þingflokkurinn
hefði gengið á svig við yfirlýsta
stefnu flokksins í skattamálum.
Nefndi hann í því sambandi hækk-
un vörugjalds, eignaskatts og lækk-
un skattleysismarka. Á hinn bóg-
inn segja þingmenn Borgaraflokks-
ins að þær ástæður sem tvímenn-
ingarnir tína til sem ástæðu fyrir
klofningnum séu cinungis skálka-
skjól, það hafi verið löngu ákveðið
fyrirfram að þeir tveir yfirgæfu
Borgaraflokkinn.
Ingi Björn sagði hann og
Hreggvið hafa gert ítrekaðar til-
raunir til að ná sáttum innan
flokksins og það hefðu aðrir góðir
borgaraflokksmenn reynt. Árang-
urslausar sáttatilraunir er farið
hefðu fram að þeirra frumkvæði,
hefðu leitt til þess að hann og
Hreggviður hefðu stigið þau þung-
bæru skref að ganga úr flokknum.
Júlíus Sólnes formaður Borgara-
flokksins sagði það rangt að Ingi
Björn og Hreggviður hefðu átt
eitthvert frumkvæði að sáttatil-
raunum, hann sem formaður
flokksins hefði borið hitann og
þungann af því og átt frumkvæði
að sáttafundum. Undir þetta tók
Óli Þ. Guðbjartsson sent sagði að
það eina sem þingflokkurinn hefði
heyrt eða séð frá tvímenningunum
væru þær úrslitakröfur sem þeir
sendu inn á fund þingflokksins á
miðvikudag.
í>ó svo að sá klofningur sem
lengi hefur legið í loftinu og var
endanlega staðfestur í gær sé nú
yfirstaðinn, stendur eftir sú spurn-
ing hverjir af kjósendunt borgara-
flokksins fylgja F.F.H. og hverjir
ekki. Samkvæmt heimildum blaðs-
ins er baráttan um stuðningsmenn
nú þegar hafin af fullunt þunga og
hafa forsvarsmenn flokks Frjáls-
lyndra hægrimanna m.a. boðið
starfsfólki Borgaraflokksins hærri
laun komi það yfir til þeirra.
Þess má að lokum geta að Inga
Birni og Hreggviði hefur ekki verið
úthlutað þingflokksherbergi, né
hcldur hefur listabókstafur F.F.H.
verði ákveðinn. Samt þykir ekki
líklegt að SS verði fyrir valinu, þó
finna megi fordæmi fyrir slíku,
samanber klofningsframboð fram-
sóknarmanna á Norðurlandi vestra
fyrir nokkrum árum er notaði lista-
bókstafina BB. - ÁG
Fjölsóttur baráttufundur BHMR í Bíóborg - Austurbæjarbíói í gær, en fundar-
menn svartsýnir á að samningar séu í augsýn. Forysta BHMR segir:
„ÍCjörin verði söm
við einkageirann“
„í grein eitt, þrjú, þrjú í kjara-
samningum segir að ríkisstarfsmenn
eigi að njóta sambærilegra kjara og
þeir menn með sambærilega
ntenntun, sérhæfni og ábyrgð, sem
vinna hliðstæð störf hjá öðrum en
ríkinu. Þessi grein hefur orðið til
þess að við höfum hvað eftir annað
þurft að sýna fram á það að kjör
háskólamenntaðra ríkisstarfsmanna
eru miklu lakari en annars staðar
gerist. Við höfum gert rannsóknir á
rannsóknir ofan, kannanir á kannan-
ir ofan sem sýna þetta,“ sagði Júlíus
K. Björnsson fyrrverandi formaður
BHMR á fjölsóttum baráttufundi
bandalagsins í Bíóborginni - Aust-
urbæjarbíói í gær. Hann sagði að
þrátt fyrir þessa grein í kjarasamn-
ingum hefði ríkið stöðugt svikist um
Lúðvík Gústafsson kennari
að leiðrétta þetta misræmi.
„Þegar ég hóf störf árið 1973 voru
byrjunarlaunin svipuð byrjunarlaun-
um tæknifræðings á almennum
markaði. Nú ersami tæknifræðingur
með rúmlega 50 þúsund krónum
meira á mánuði en kennari með
sama starfsaldur. Nú þarf þrjá
BHMR launþega til að framfleyta
þrem fullorðnum og kannski einum
ketti,“ sagði Þyri Árnadóttirkennari
í sínu ávarpi á baráttufundinum í
gær.
Háskólamenn héldu þennan fund
til að stappa stálinu í hverjir aðra nú
þegar samningaviðræður eru komn-
ar í hálfgerða sjálfheldu. Ávörp
fluttu auk ofannefndra; Unnur
Steingrímsdóttir og Páll Halldórsson
formaður BHMR og skemmtiatriði
Pálína Reynisdóttir viðskipta-
fræðingur
voru flutt, meðal annars kvæði um
Ólaf Villuljós sem vildi á Indriða
trúa.
Tíminn ræddi við allmarga fundar-
ntenn og virtist sem talsvert vonleysi
væri ríkjandi meðal fólks og sagði
t.d. einn viðmælandi að sér virtist
sem að leystist verkfallið í dag,
þyrfti um 10% launahækkun ein-
göngu til að vinna upp þau laun sem
þegar hefðu tapast.
En hvað verður þetta langt
verkfall? Eru launakröfur BHMR
óbilgjarnar og samningar því erfiðir?
Hvað þurfa laun að hækka mikið
bara til að ná upp tekjutapi af -
segjum þriggja vikna verkfalli? Tím-
inn lagði þessar spurningar fyrir
nokkra fundarmenn á baráttufund-
inum í Austurbæjarbíói í gær:
Remi Spilliaert líffræðingur
Æ
_ í
'V&j ________________________
Myndin ertekin í upphafi baráttufundar BHMR í Bíóborg- Austurbæjarbíói
í gær og frakka- og hattklæddu konurnar komu fram í einu ske.nmtiatriöi
fundarins og léku þær „hallelújakór“ formanns samninganefndar ríkisins.
Lúðvík Gústafsson kennarí
„Ég gæti trúað að verkfallið stæði
viku til viðbótar miðað við hver
staðan er á þessari stundu. Mér
sýnist að talsverða hækkun þurfi til
að ná upp tekjutapi fólks í verkfall-
inu. Laun eru algeng svona 70-80
þúsund kr. á mánuði og í sumum
tilfellum lítið eitt hærri hjá þeim sem
vinna meiri eftirvinnu, þannig að
Ijóst er að talsverða hækkun þarf
bara til að ná upp verkfallstapinu."
Páll Sigurðsson kennari
Pálína Reynisdóttir
viðskiptafræðingur
„Ég er farin að óttast að þetta
verði langt verkfall. Kröfur okkar
geta vart talist óbilgjarnar. Við erum
að reyna að semja til þriggja ára og
þessvegna eru þær heldur hærri en
kannski annars staðar."
Remi Spilliaert
líffræðingur
„Ég þori ekkert að segja hvað
verkfallið verður langt en vona auð-
vitað að það dragist ekki á langinn
og verði ekki lengra en tvær vikur.
Launakröfurnar eru varla óbilgjarn-
ar því að það hlýtur að mega krefjast
sæmilegra launa fyrir störf sent krefj-
ast langs háskólanáms."
Páll Sigurðsson kennari
„Ég held að fólk sé almennt
heldur svartsýnt á að deilan leysist í
bráð en auðvitað geta mál breyst á
einni nóttu. Það er nú hálf ósann-
gjarnt að spyrja að því hvort við
gerum óbilgjarnar kröfur og ég vil
helst ekki gefa neitt út á það.
Það þarf drjúga hækkun til að ná
upp tapinu af sjálfu verkfallinu þótt
ég hafi í sjálfu sér ekki reiknað út
hvað það kostar hvern einstakan
dag.“ - sá.