Tíminn - 14.04.1989, Blaðsíða 13

Tíminn - 14.04.1989, Blaðsíða 13
Föstudagur 14. apríl 1989 Tíminn 13 Li Peng í Japan: Akihito keisara boðið til Kfna Kínverski forsætisráðherrann Li Peng sem nú er í opinberri heimsókn í Japan hefur boðið Akihito hinum nýja keisara Japan í opinbera heim- sókn til Kína. Er þetta talið mikil- vægt skref í átt til stórbættra sam- skipta þessara tveggja stóru Asíur- íkja, en grunnt hefur verið á því góða á milli þeirra frá því Japanar hernámu Kina og drápu milljónir Kínverja fyrir og í síðari heimsstyrj- öldinni. Keisarinn sem tók við af Hirohito föður sínum 7. janúar síðastliðinn hefur oft sýnt áhuga á því að heim- sækja Kína. Nú getur sú ósk orðið að veruleika. Akihito þakkaði Li Peng einstak- lega vel fyrir boðið ef marka má yfirlýsingar talsmanna keisarahallar- innar, en Li og Akihito ræddust við nokkra stund í gær. Opinberri heimsókn Hirohitos keisara var frestað á sínum tíma þar sem talið var að heimsókn hans gæti skaðað viðkvæm samskipti ríkjanna. Hinn nýi keisari Akihito. t>að er ekki að undra þar sem Hirohito var í raun yfirhershöfðingi innrásarliðs Japana í Kína á sínum tíma og Kínverjar ekki búnir að fyrirgefa þær hörmungar. Embættismenn keisarahallarinnar sögðu að Akihito muni sækja Li Peng og aðra Kínverja heim um leið og lokið er árs sorgartímabili vegna fráfalls gamla Tenno, en það nefna Japanar keisara sinn. - Hans hátign keisarinn skýrði frá eigin viðhorfum til þróunar og 2000 ára sögu samskipta Japana og Kín- verja. Hann sagðist vonast eftir friðsamlegum samskiptum í framtíð- inni, sagði í yfirlýsingu talsmanns keisarahallarinnar eftir fundinn. Prátt fyrir oft stirð samskipti þá er Japan langmikilvægasta viðskipta- land Kínverja og stærsti hluti er- lendrar efnahagsaðstoðar Japana fara til Kína. Japanar hafa boðist til að lána rúmlega 700 milljónir Bandaríkjadala til ellefu þróunar- verkefna í Kína og eru allar líkur á þvf að Kínverjar taki því með þökkum. Vestur-Þýskaland: Kohl hristir upp ríkisstjórn sína Helmut Kohl kanslari Vestur-Þýskalands hristi upp í ríkisstjórn sinni í gær, enda hafa vinsældir hennar farið mjög dvínandi að undanförnu og litlar líkur á að stjórnin hljóti meirihluta eftir næstu kosningar fari fram sem horfir. Kohl útnefndi nýjan varnar- málaráðherra, innanríkisráðherra og fjármálaráðherra í von um að vinsældir aukist. Breytingarnar eru þær róttæk- ustu sem Kohl hefur gert á ríkis- stjórn sinni frá því hún var mynduð árið 1982. Það var Rupert Scholz varnar- málaráðherra sem þurfti að taka pokann sinn, en í stól hans kemur Gerhard Stoltenberg sem verið hefur fjármálaráðherra undanfarin sjö ár. í stað Stoltenbergs kemur Theo Waigel formaður Kristilega jafnað- armannasambandsins í Bæjara- landi, en það er systurflokkur Kristilega demókrataflokksins sent er flokkur Kohl. Auk þessara flokka eru Frjálslyndir demókratar með í ríkisstjórninni. Það hafa verið deilur hinna íhaldssömu Bæjara í Kristilega jafnaðarmannasambandinu og hinna Frjálslyndu demókrata sem helst hafa skaðað ríkisstjórnina, auk afstöðu Ruperts Scholz varn- armálaráðherra til lágflugs NATO orrustuþotna sent farist hafa í tuga- 45 drepnir Skæruliðar aðskilnaðarsinnaðra Tamíla drápu fjörtíu og fimm manns í sprengjutilræði á Sri Lanka í gær. Tamflarnir komu öflugri sprengju fyrir í bíl á fjölmennu markaðstorgi í Trincomalee sem er bær á austurhluta eyjarinnar. Fimmtíu og fimm manns særðust einnig alvarlega. Sprengjutilræðið var framið í byrjun tveggja daga hátíðarhalda vegna nýja ársins sem er nú að ganga í garð samkvæmt tímatali tólf milljóna Shinalesa sem aðhyll- ast Búddatrú og tveggja milljóna Tamíla sem játa Hindúisma. Flest fórnarlömbin voru Shina- lesar, en fimm Tamílar, þar af fjórar konur voru myrtar annars staðar í Trincomalee eftir sprengjutilræðið. Annars er nokk- uð jafnvægi milli Shinalesa, Tamíla og múslíma í bænum. Eins og áður hefur verið skýrt frá hér á síðunni á stjórnarherinn á Sri Lanka bæði í höggi við skæruliða Tamíla á norðurhluta eyjarinnar og skæruliða vinstri- sinnaðra Shinalesa á suðurhluta Sri Lanka. Hafa tólf þúsund manns látið lífið í átökum þessara aðila síðastliðin sex ár. Á miðvikudag voru sjö indversk- ir hermenn og fjórir skæruliðar Tamíla drepnir í bardaga við Va- vuniya á norðurhluta eyjarinnar. Hófust bardagarnir strax eftir að öryggissveitir ríkisstjórnarinnar lýstu yfir einhliða sjö daga vopna- hléi til að gefa skæruliðum kost á að gefast upp og hljóta sakarupp- gjöf í staðinn. Báðar skæruliðafylkingarnar höfnuðu tilboði stjórnvalda nær samstundis en segjast tilbúnar til viðræðna ef 45 þúsund manna herlið Indverja á Sri Lanka haldi heim, en hersveitirnar voru sendar til eyjarinnar til að stöðva skæru- hernað Tamíla eftir samkomulag við yfirvöld á Sri Lanka sem sam- þykktu miklasjálfsstjórn ásvæðum Tamíla í norðri. tali yfir Vestur-Þýskalandi að undanförnu. Scholz er mikill harð- línumaður í varnarmálum og vildi ekki draga úr lágflugi. Má telja nær öruggt að Stoltenberger muni njóta meiri vinsælda, enda er hann mjög virtur í Þýskalandi. Innanríkisráðherrann Friedrich Zimmermann er færður til og tekur við embætti samgöngumálaráð- herra, en í stað hans kemur Wolf- gang Schaeuble, náinn samstarfs- maður og ráðgjafi Kohls, bæði í innanríkismálum og utanríkismál- um. Þá mun kona, Gerda Hasselfeldt taka við ráðuneyti opinberra starfsmanna. Þá eru þrjár konur í vestur-þýsku ríkisstjórninni og hafa konur aldrei áður verið svo fjölmennar þar. Baneitruð Bandaríki Sérstök rannsókn sem gerð hefur verið um Bandaríkin vítt og breitt sýna að efnamengun náttúrunnar þar í landi er mun meiri en svartsýn- ustu menn töldu. Þetta kom fram í skýrslu rannsóknarnefndar Banda- ríkjastjórnar sem kannað hefur eit- urmengunina. Bandarískar verksmiðjur slepptu rúmlega 10 milljörðum kílógramma af eiturefnum út í náttúruna árið 1987 og fór nær helmingur þessa eiturs í ár og vötn þess víðfeðma ríkis. - Þessar tölur sýna hversu mikil þörf er á mun harðari mengunarlög- gjöf. Við getum ekki litið framhjá slíkum tölum, sagði Linda Fischer forstjóri Stofnunar um stefnu og áætlunargerð í umhverfisvernd, sem sérum þessi mál fyrirríkisstjórnina. Rúmlega hundrað þessara eitur- efna eru krabbameinsvaldandi að sögn Lindu. Líkur eru á að enn meira af eiturefnum sé sleppt út í náttúruna, því ekki fengust skýrslur frá fjórð- ungi þeirra fyrirtækja sem leitað var upplýsinga hjá. BÍLAR DAGSINS ÚRVAL NOTAÐRA LADA SPORT OG LADA SAMARA Tegund Árgerð Ekinn LadaSportög. 1988 9.500 km. LadaSport4g. 1988 15.000 km. LadaSport5g. 1987 30.000 km. LadaSport4g. 1987 20.000 km. LadaSport5g. 1986 31.000 km. LadaSportög. 1986 56.000 km. LadaSport4g. 1986 34.000 km. LadaSport4g. 1986 50.000 km. LadaSport4g. 1985 31.000 km. Lada Samara 1500 5 g. 1988 16.000 km. Lada Samara 1300 5 g. 1988 15.000 km. Tökum vel með farna Lada bíla upp í nýja. Opið kl. 9-18 virka daga og laugardaga kl. 10-14. Heitt á könnunni. Vélsleóasalan BIFREIÐAR & LANDBÚNAÐARVÉLAR 8 40 60 'S. 68 12 00 Suðurlandsbraut 14 Arnarflug hf.: Hlutafjársala Á aðalfundi Arnarflugs hf. í dag var stjórn félagsins heimilað að hækka hlutafé félagsins um allt að 315 millj. kr. með áskrift nýrra hluta. Hlutafjáraukningin má fara fram í áföngum samkvæmt nánari ákvörð- un stjórnarinnar. Á fundi sínum í dag samþykkti stjórn Arnarflugs hf. að hækka hlutaféð í félaginu um 155 millj. kr. á nafnverði. Hluthöfum í félaginu er hér með boðinn forkaups- réttur að hlutafé í félaginu, og gildirforkaupsréttar- boðið til 21. apríl nk. Hluthafar og aðrir, sem óska að kaupa hlutafé í félaginu, eru beðnir að gjöra svo vel að hafa samband við Þórð Jónsson skrifstofustjóra í skrifstofu félagsins að Lágmúla 7, Reykjavík, sími 29511. Reykjavík, 12. apríl 1989 Stjórn Arnarflugs hf. t Faðir okkar, fósturfaðir, tengdafaðir og afi Þorsteinn Vilhjálmsson f.v. bóndi Syðri-Hömrum, Ásahreppi, er lést hinn 7. apríl s.l. verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju í Holtum laugardaginn 15. apríl kl. 14.00. Rútuferð verður frá Umferðarmið- stöðinni í Reykjavík kl. 12.00 á hádegi. Fyrir okkar hönd og annarra vandamanna Jón Þorsteinsson Vigdís Þorsteinsdóttir Björn Guðjónsson Sölvi Magnússon Karla M. Sigurjónsdóttir og barnabörn hins látna.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.